Dagur - 30.08.1988, Side 5

Dagur - 30.08.1988, Side 5
30. ágúst 1988 - DAGUR - 5 í Húnaþing lokið oða veður“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir Bridds Sumarbridds í kvöld kl. 19.30 í Dynheimum. Ekkert þátttökugjald - allir briddsspilarar velkomnir. Bridgefélag Akureyrar. hrepps ávarpaöi forsetann og taldi upp nokkuð sem sá hreppur heföi fram yfir aðrar sveitir, svo sem að þar væru þrjár kirkjur, á Breiðabólstað, Tjörn og Vestur- hópshólum en það er trúlega einsdæmi að svo margar kirkjur séu í einu sveitarfélagi. Hann minntist á þau Friðrik og Agnesi sem síðust íslendinga voru dæmd til lífláts, þau voru Þverhrepping- ar. Einnig minntist Agnar á að fyrsta prentsmiðja hérlendis hefði verið á Breiðabólstað og að Skáld-Rósa hefði átt heima á Vatnsenda. Hann nefndi Borgar- virki, Hvítserk, að Bríet Bjarn- héðinsdóttir hefði alist þar upp og síðast en ekki síst sóknar- prestinn á Tjörn, Robert Jack. Forsetinn þakkaði fyrir sig og sagði það mikil forréttindi að fá að ferðast um landið og kynnast fólkinu. Næst lá leiðin að Borgarvirki og þaðan að Kolugljúfrum sem eru mikilfengleg gljúfur við Víði- dalsá. Kaffið og meðlætið beið í Víði- hlíð og þegar þangað var komið bauð Olafur Óskarsson, oddviti, forsetann velkominn. Þrjú birki- tré voru gróðursett við félags- heimilið Víðihlíð. Frá Víðihlíð var haldið að Gljúfurá, sýslumörkum Vestur og Austur-Húnavatnssýslu. Þar kvaddi forsetinn sýslunefnd Vest- ur-Húnavatnssýslu og heilsaði sýslunefnd Austur-Húnavatns- sýslu. Þaðan var ekið til Skagastrand- ar með stuttri viðkomu á Blöndu- ósi. Farin var kynnisferð um Skagaströnd undir leiðsögn Lár- usar Ægis Guðmundssonar, fyrr- um sveitarstjóra Höfðahrepps og tré voru gróðursett. Þá tók við kvöldverður í boði hreppsnefnd- ar Höfða-, Vindhælis- og Skaga- hrepps. Þar flutti Kristján Hjart- Vigdís stendur við hestastein langafa síns við Staðarbakkakirkju arson forsetanum kvæði eftir Rúnar Kristjánsson. Um kvöldið var opið hús í félagsheimilinu Fellsborg fyrir íbúa hreppanna. Að því loknu fóru forsetinn og fylgdarlið hans til gistingar á Hótel Blönduósi. Á laugardaginn var dagurinn tekinn snemma eins og aðra daga og var ekið sem leið liggur að Húnaveri. Þar voru kaffiveitingar í boði Svínavatns-, Bólstaðar- hlíðar- og Engihlíðarhrepps. Erla Hafsteinsdóttir oddviti Ból- staðarhlíðarhrepps, ávarpaði forsetann og bauð hann velkom- inn. Forsetinn þakkaði fyrir sig og lét þess getið að kvöldið áður hefði hann undirritað bráða- birgðalög á hótelinu á Blönduósi. Tré voru gróðursett í skógarreit við Húnaver en þaðan var haldið að Blönduvirkjun. Þar tóku á móti forsetanum JóhannCs Nordal, stjórnarformaður, Hall- dór Jónatansson, forstjóri Lands- virkjunar, og Sveinn Þorgríms- son, staðarverkfræðingur. Við op jarðganganna ávarpaði Jóhannes Nordal forsetann og bauð hann velkominn. Ekið var eftir aðkomugöngam Sjá næstu síöu. Árný Björg ísberg afhendir forsetanum blóm, AKUREYRARB/ER F FRA GRUNNSKOLUM AKUREYRAR Kennarafundir verða í öllum grunnskólum bæjarins fimmtudaginn 1. september nk. kl. 10 f.h. Nemendur skulu mæta í skólana þriðjudaginn 6. september og þá sem hér segir: í Gagnfræðaskóla Akureyrar mæti nemendur á skólasetningu í Akureyrarkirkju kl. 14.00. í öðrum skólum mæti nemendur sem hér segir: 7.-9. bekkur kl. 09.00. 4.-6. bekkur kl. 11.00. 1.-3. bekkur kl. 13.00. Skólasvæðin verða óbreytt miðað við sl. skólaár, nema að í vetur munu allir árgangar nemenda í Síðu- hverfi sækja Síðuskóla. Forskólakennslan hefst mánudaginn 12. september, en áður munu viðkomandi kennarar hafa samband við heimili þeirra barna, sem hafa verið innrituð. Innritun þeirra barna sem flust hafa í bæinn eða milli skólasvæða í sumar fer fram í skólunum föstudag- inn 2. september kl. 09.00-12.00. Á sama tíma skal ganga frá innritun eða staðfestingu á óskum um gæslu 6-8 ára barna næsta skólaár. Skólastjórarnir. Aðeins 2 dagar eftir Því verslunin hættir 1. sept. Síðasta tækifærið að fa sér kápu á góðu verði Verið velkomin VISA Kápusalan Hafnarstræti 88 • Sími 25250

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.