Dagur - 30.08.1988, Síða 6
6 - DAGUR - 30. ágúst 1988
Forsetaheimsókn...
að stöðvarhúsi og mannvirki
skoðuð. Sveinn Þorgrímsson lýsti
framkvæmdunum og hvernig
vinnu hefði verið hagað við hina
ýmsu verkþætti. Þá var ekið að
stíflusvæði Blönduvirkjunar og
ekið yfir Blöndu eftir bráða-
birgðastíflu sem hefur verið sett í
ána rétt ofan við þann stað sem
Blöndustíflan á að rísa.
Ekið var að mötuneyti Lands-
virkjunar en þar beið á borðum
ríkulegur hádegisverður í boði
Landsvirkjunar. Að hádegisverði
loknum gróðursetti forsetinn
þrjú birkitré í skógarreit á virkj-
unarsvæðinu þar sem Landsvirkj-
un hefur, á tveimur síðustu árum
látið gróðursetja 20 þús. trjá-
plöntur. Nú eru plönturnar hins
vegar orðnar tuttugu þúsund og
þrjár eftir að birkitrén þrjú bætt-
ustí hópinn.
Frá Blönduvirkjunar ekið að
Húnavöllum þar sem kaffi beið á
borðum fyrir fylgdarlið Vigdísar
og íbúa Torfalækjar-, Sveins-
staða- og Áshrepps. Þar ávarpaði
Sigríður Höskuldsdóttir, hús-
freyja á Kagaðarhóli, forsetann.
Hún kvaðst vita að Vigdís væri
að koma frá því að skoða
Blönduvirkjun og þar hefði hún
trúlega séð hvað íbúar þessara
sveitarfélaga legðu af mörkum
með því að láta svo mikið land
undir virkjunarframkvæmdirnar
en mikið mætti láta af hendi til að
tryggja íslendingum Ijós og hita
um ókomin ár.
Forsetinn heimsótti Borgarvirki.
Sýslunefnd Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu bíða forsetans.
Framkvæmdir útskýrðar fyrir forsetanum.
Við Húnavelli voru gróðursett
þrjú tré eins og annars staðar þar
sem forsetinn hafði viðdvöl.
Á laugardagskvöldið sat for-
setinn kvöldverðarboð bæjar-
stjórnar Blönduóss á Hótel
Blönduósi.
Sunnudagurinn, síðasti dagur
heimsóknarinnar, hófst með
heimsókn í Skagahrepp, nyrstu
byggð Húnavatnssýslna. Veður
var þá mjög slæmt, norðan hvass-
viðri og rigning. Vigdís lét það
ekki á sig fá og kvaðst vera hing-
aö komin til að heimsækja fólk,
landið gæti hún skoðað síðar.
Kirkjan á Hofi, sem er elsta
kirkja í A.-Hún. var skoðuð og
komið að Örlygsstöðum í boði
hjónanna þar, Ingibjargar Ólafs-
dóttur og Rafns Sigurbjörnsson-
ar.
Þegar komið var af Skaganum,
beið forsetans og fylgdarliðs
hans, hádegisverður í sýslu-
mannsbústaðnum á Blönduósi.
Þaðan var farið í skoðunarferð
um Blönduós, komið við í Heim-
ilisiðnaðarsafninu og eldri íbúar
heimsóttir í Hnitbjörgum. Þá var
opið hús í Félagsheimilinu á
Blönduósi fyrir bæjarbúa og aðra
velunnara forsetans.
Frá Blönduósi lá leiðin inn í
Vatnsdal, að trjálundi Áshrepps í
landi Hofs.
Jón Bjarnason, oddviti, ávarp-
aði forsetann og skýrði frá því að
Ágúst Jónsson, fyrrurn bondi á
Hofi, hefði gefið sveitarfélaginu
landið undir skógræktina árið
1952. Dóttir hans, Vigdís hús-
freyja á Hofi hefði verið umsjón-
armaður sveitarfélagsins með
trjáræktinni og hefðu fyrstu trén
verið gróðursett þar árið 1958. I
skógarlundinum gróðursetti
Vigdís þrjú birkitré og lét þess
getið að það hefði ekki gerst fyrr
en í þessari ferð að hún hefði
gróðursett tré í hvassviðri, en í
skjóli trjáa. Það væri búið að ger-
ast tvisvar, á Hofi og í Húnaveri.
Elva Þöll Grétarsdóttir, dótt-
urdóttir Vigdísar á Hofi afhenti
forsetanum fallegan blómavönd.
Úr skógarreitnum lá leiðin heinr
að Hofi þar sem garður þeirra
Hofshjóna, Vigdísar og Gísla
Pálssonar var skoðaður og veit-
ingar þegnar.
í garðinum á Hofi er óvenju-
lega fjölbreytt sambland af trjá-
gróðri og blómum og er hann
örugglega einn fegursti garður í
Húnaþingi án þess að á nokkurn
verði hallað.
Frá Hofi lá leiðin að Flóð-
vangi, veiðihúsi við Vatnsdalsá.
Þar ávarpaði Magnús Sigurðsson,
sýslunefndarmaður Sveinsstaða-
hrepps, forsetann og boðið var
upp á kaffi og ríkulegt meðlæti.
Frá Flóðvangi lá leiðin á síð-
asta áfangastað forsetans í þess-
ari heimsókn í Húnaþing,
Þingeyrakirkju. Þar flutti Jón
ísberg, sýslumaður ávarp, og
forsetinn þakkaði Húnvetningum
góðar móttökur. Séra Stína
Gísladóttir hélt stutta helgistund
og Ólafur Magnússon á Sveins-
stöðum flutti ávarp þar sem hann
rakti byggingarsögu kirkjunnar.
Að lokum kvaddi forsetinn sýslu-
mann, sýslunefnd og aðra við-
stadda.
Það eina sem skyggði á heim-
sókn forseta íslands í Húnavatns-
sýslur var að veðurguðirnir voru
ekki samvinnuþýðir. Það rigndi
meira og minna alla þá daga sem
heimsóknin stóð og síðustu dag-
ana var einnig hvassviðri. Forset-
inn lét það ekki á sig fá og kvaðst
hafa lagt leið sína í Húnaþing til
að heimsækja fólk en ekki til að
skoða veður. fh
Frú móttöku við op jarðganganna.
Heimsókn til eldri borgara í Hnitbjörgum á Blönduósi.
Úr matarveislu í Fellsborg á Skagaströnd.
Sýslunefnd A.-Húnavatnssýslu ásamt sýslumanni og forseta.
Að loknu opnu húsi í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugabakka.