Dagur


Dagur - 30.08.1988, Qupperneq 14

Dagur - 30.08.1988, Qupperneq 14
14 - DAGUR - 30. ágúst 1988 Nýr opnunartími Eftir 1. sept. verður verslun HAGKAUPS opin sem hér segir: Akureyri Mánud. -miðvikud. 900-1800 Fimmtud. -föstud. 900-1900 Laugard. 1000-1600 HAGKAUP Akureyri Atvinna - Atvinna SAUMASTÖRF Óskum eftir að ráða starfsfólk við saumaskap Vi eða allan daginn. PRJÓNASTÖRF Okkur vantar einnig starfsmenn á dagvakt við prjónavélar. VEFDEILD Þar vantar okkur starfsmann Vi eða heila kvöld- vakt við rakgrind. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími 21900 (220). y * Alafoss hf., Akureyri Félagsmiðstöðvar á Akureyri óska að ráða starfsfólk í vetur Um er að ræða V2 stöðu og tímavinnufólk eftir nán- ara samkomulagi. Vinnan fer að mestu fram á kvöld- in og um helgar. Æskilegur aldur 20 ára og eldri. Upplýsingar gefur forstöðumaður félagsmiðstöðva í Dynheimum milli kl. 16 og 18 alla virka daga í síma 22710. Laus staða Staða bæjargjaldkera á bæjarskrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar er laus til umsóknar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 1, september nk. Bæjarstjórinn í Siglufirði. Meinatæknir Meinatæknir óskast til starfa á rannsókna- stofu Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöð- um. Upplýsingar gefa Gunnar í síma 97-11386 og Guð- rún í síma 97-11400. Órökstuddar fullyrðingar hafa skaðað fyrirtækið“ - segir dr. Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Kaupþings hf. en íyrirtækið hyggst endurgreiða innlausnargjald Einingabréfa Kaupþing hf. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta undan- farið um að eitt eða fleiri ótil- greind „fjármögnunarfyrir- tæki“ geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Fyrir- tækið segir að þó að þessi ósannaða fullyrðing geti á engan hátt átt við þá sjóði sem Kaupþing hf. reki, telji fyrir- tækið nauðsynlegt að eyða þeirri óvissu, sem þessar fréttir hafa vakið hjá viðskiptavinum þess. Dr. Pétur Blöndal fram- kvæmdastjóri sagði að þessi órökstudda fullyrðing Ölafs Ragnars Grímssonar formanns Alþýðubandalagsins hefði skað- að starfsemi fyrirtækisins og væru þetta óvönduð vinnubrögð. Sagði Pétur að margir hefðu haft sam- band við fyrirtækið og tjáð áhyggjur sínar í sambandi við þessar fréttir. Pess vegna vildi Kaupþing taka fram: 1. Kaupþing hf. er verðbréfa- miðlun og rekur verðbréfasjóði, sem gefa út Einingabréf. 2. Kaupþing hf. hefur ætíð haft hið besta samstarf við starfsmenn Bankaeftirlits Seðlabankans þeg- ar þeir hafa komið eða óskað eft- ir upplýsingum um reksturinn. Hafa fulltrúar eftirlitsins fengið öll þau gögn, sem þeir hafa óskað eftir samanber bréf til bankaeft- irlits Seðlabankans dagsett 23. ágúst 1988. 3. Við rekstur sjóðanna hafa verið hafðar í heiðri almennt viðurkenndar reglur um útjöfnun og dreifingu áhættu. Pess er gætt að ætíð sé til staðar nægt laust fé til þess að unnt sé að sinna inn- lausn einingabréfa við eðlilegar aðstæður. Þá er fylgt varlegum reglum við mat á eignum sjóð- anna, sem standa að baki útgefn- um einingum. Allar þessar reglur hafa verið samræmdar hjá Kaup- þingi hf., Fjárfestingafélaginu hf. og bæði bankaeftirliti Seðla- bankans og viðskiptaráðuneyt- inu. Þess er vænst að löggjatinn hafi þessar reglur til verndar sparifjáreigendum til hliðsjónar, þegar sett verða lög um starfsemi verðbréfasjóða. 4. Fé verðbréfasjóða, sem Kaupþing hf. rekur, hefur EKKI verið varið til kaupa á skulda- bréfum af fyrirtækjum eða ein- staklingum, sem tengd eru Kaup- þingi hf., enda væri slíkt afar vandasamt vegna hættu á hags- munaárekstrum. Fé sjóðanna er EKKI varið til kaupa á fyrirtækj- um eða hlutabréfum. 5. Löggildir endurskoðendur Kaupþings hf. eru Endurskoðun- armiðstöðin hf., N. Manscher og endurskoða þeir reksturinn stöðugt. 6. Níu stærstu sparisjóðir landsins eru eignaraðilar að Kaup- þingi hf. og viðskiptabanki fyrir- tækisins er Sparisjóður Reykja- víkur og nágrennis. 7. í stjórn Kaupþings hf. eru: Þorvaldur Gylfason, prófessor, formaður; Þorkell Helgason, prófessor, formaður; Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri; Jónas Reynisson, sparisjóðsstjóri og Geirmundur Kristinsson spari- sjóðsstjóri. Pétur sagði ennfremur að ákveðið hefði verið að fella niður 2% innlausnargjald þeirra sem innleystu einingar sínar föstudag- inn 19. ágúst til 26. ágúst, ef þeir óskuðu eftir að kaupa Eininga- bréf aftur. Hægt sé að hafa sam- band við Kaupþing hf. fyrir mán- aðarlok og þá verði gengið frá þessum málum. Með þessu vill stjórn fyrirtækisins bæta þessum sparifjáreigendum það tjón, sem ofangreindar fréttir hefðu bakað þeim. AP Akureyrarkirkja: Franskur orgelleikari með tónleika í kvöld Loic Mallic orgelleikari frá Frakklandi heldur tónleika í Akureyrarkirkju í Franski orgelleikarinn Loic Mallié er staddur hér á landi um þessar mundir í boði Alliance francaise. Hann held- ur hér þrenna tónleika og voru þeir fyrstu í Prestbakkakirkju á Síðu á sunnudaginn. I kvöld verður hann með tónleika í Akureyrarkirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Síðustu tón- leikarnir verða svo í Dóm- kirkjunni í Reykjavík fimintu- daginn 1. september kl. 20.30. í fréttatilkynningu frá Alliance francaise segir að efnisskráin sé breytileg í samræmi við mögu- leika hljóðfæranna í kirkjunum þremur en búast megi við verk- um eftir Johann Sebastian Bach og Oliver Massiaen. í Dómkirkj- unni mun Mallié einnig leika verk eftir sjálfan sig en hann er afkastamikið tónskáld og hefur samið allmörg verk bæði fyrir einleik og stórar hljómsveitir. í lok allra tónleikana leikur hann af fingrum fram. Loic Mallié fæddist í La Baule við ósa Loire-fljóts í Frakklandi árið 1947. Hann stundaði nám í tónsmíðum og í píanó- og orgel- leik við tónlistarskólann í París þar sem frægasti kennari hans var án efa Massiaen. Jafnframt tón- listarnáminu lauk hann námi í lögfræði. Loic Mallié vann til fjölda verðlauna í skólanum og á náms- árunum einnig utan skólans í alþjóðlegum samkeppnum. Skal þar frægust telja verðlaun fyrir kvöld kl. 20.30. „impróvísasjón“ á píanó í Lyon 1977 og á orgel á sama stað 1979. Hann hreppti hin eftirsóttu verð- laun fyrir „impróvísasjón“ á orgel í Chartres 1982. Loic Mallié er prófessor við tónlistarháskólann í Lyon þar sem hann er starfsbróðir Eddu Erlendsdóttur píanóleikara. Hann er orgelleikari við kirkju heilags Péturs í Neuilly og hefur haldið tónleika víða um lönd við góðar viðtökur og lof gagnrýn- enda.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.