Dagur - 14.09.1988, Page 5
lesendahornið
14. september 1988 - DAGUR - 5
l
Yfir 200% hækkun
á tveimur árum!
Maí 1986 Útseld vinna: Ágúst 1988 Hækkun í %
424.69 1.098.00 158,5
552.10 1.722.00 211,9
313.75 898.00 186,2
407.85 1.290.00 216,3
454.00 1.377.00 203,3
523.00 1.659.00 217,2
í hinni miklu umfjöllun liðinna
vikna varðandi erfiðleika fisk-
verkunar og útgerðar hafa ítrek-
að komið fram aðilar, sem hafa
viljað gera lítið úr þessum erfið-
leikum og þá gjarnan talað um
„eilífðan barlóm“ sjávarútvegs-
aðila.
Mér datt því í hug að sýna ykk-
ur smádæmi, sem sýna glögglega
við hvað er að eiga.
í maímánuði 1986 fengum við í
Ameríku fyrir 5 lbs pakkningu af
þorski kr. 2.990.00, sem í dag er
á kr. 4.078.00. Hefur hækkað um
36,9%.
Ef við tökum síðan taxta þjón-
ustu-fyrirtækis hér í bæ, sem eru
ekkert hærri heldur en hjá öðrum
aðilum á landinu, þá hljóta menn
að geta séð hve alvarlegir hlutir
eru á ferðinni hjá undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar.
Ofanrituð dæmi eru ekki á
nokkurn hátt einstök tilfelli,
heldur eru þetta dæmi, sem hver
sem er getur með auðveldum
hætti sannað sér.
Jón E. Aspar,
Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
„Hefur bæjarfélagið
eftii á þessu?“
- Nokkur orð um fyrirhuguð framkvæmdastjóraskipti hjá ÚA
Geta bæjaryfirvöld á Akureyri
lagt best rekna sjávarútvegsfyrir-
tæki landsins í hendur einstefnu
frjálshyggjunnar? Hefur bæjar-
félagið efni á því?
Spurningar eins og þessar
hljóta að vakna þegar fráfarandi
forstjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa, sem fyrir þremur áratug-
um forðaði því frá falli og hefur
alla tíð síðan átt drjúgan þátt í
velgengni þess með stjórn sinni,
hefur varað við einlitri pólitískri
stjórn þessa fyrirtækis.
Hafa menn efni á því að hafa
ráð hans að engu og finnst mönn-
um yfirleitt tilhlýðilegt að launa
honum með þeim hætti vel unnin
störf um þrjátíu ára skeið?
Freyja Eiríksdóttir.
Sirkusinn:
Ljótar auglýsingar
Mig langar að kvarta vegna aug-
lýsinganna um sirkusinn sem var
á ferð á Akureyri fyrir stuttu.
Þeir límdu auglýsingar út um all-
an bæ á áberandi stöðum og
hanga þær enn uppi, að vísu sum-
ar hálf niðurrifnar. í þokkabót er
liturinn á þeim hræðilega bleikur
sem gerir þær enn meira áberandi
fyrir vikið. Þetta er afskaplega
ljótt og ættu viðkomandi aðilar
að sjá sóma sinn í að fjarlægja
þær svo bæjarbúar þurfi ekki
lengur að ergja sig yfir að hafa
þær fyrir augunum.
Reiður bæjarbúi.
„...þama úti er fólk
sem enn þjáist“
- Stofnum Norðurlandsdeild SÁÁ!
Einn af hverjum tíu sem drekka,
missa stjórn á drykkjunni og þar
með á lífi sínu. Alkóhólistinn
réttlætir drykkjuna og býr til
varnarskel um sig með hroka og
reiði, en innan skeljarinnar er
maður sem þjáist. Til þessa
manns viljum við ná. Þeir sem
standa alkóhólistanum næst,
börn hans, maki og aðrir, þjást
með honum á einn og annan hátt.
Þessu fólki viljum við leiðbeina.
Ástandið kringum ofdrykkjuna -
eða pilluátið - er sjúklegt og á
sök á mörgum fjölskylduharm-
leiknum. Margar áleitnar spurn-
ingar vakna vegna þessa.
SÁÁ og Akureyri
Árið 1987 leituðu 65 karlmenn og
18 konur á Akureyri á náðir SÁÁ
vegna alkóhólisma og fóru í með-
ferð á Vogi. Það er gott mál, því
bak við hvern alkóhólista eru að
meðaltali fimm sem þjást með
honum, svo hópurinn er stór.
Til skamms tíma var starfs-
maður SÁÁ á Akureyri. Hann
leiðbeindi alkóhólistum og
aðstandendum þeirra hér á
Norðurlandi. Starfsmaðurinn var
launaður tvo tíma á dag, fimm
daga vikunnar, en vinnutíminn
var oft þrefaldur sá tími. Vegna
fjárhagsörðugleika SÁÁ var
starfið lagt niður hér á Akureyri.
Reynslan hefur þó sýnt að full
þörf er á ráðgjafa á Norðurlandi,
sem sérhæfður er í alkóhólisma.
Ráðgjafinn getur boðið upp á
markviss viðtö! og beitt sér fyrir
uppbyggjandi námskeiðum og
stofnun stuðningshópa.
Stofnun
Norðurlandsdeildar
Fyrir nokkrum mánuðum kom
hópur áhugamanna um áfeng-
isvandamálið saman á Akureyri.
Rætt var um hvað væri til úrbóta.
Niðurstaða hópsins var sú að þörf
væri fyrir starfsemi SÁÁ hér á
Akureyri. 600 manns eru á
félagaskrá SÁÁ á Akureyri og
margir í nærliggjandi byggðar-
kjörnum. Það þarf að virkja bet-
ur hinn frjálsa landsbyggðar-
mann og fá styrk hans og stuðn-
ing og stofna SÁÁ-N; þ.e.a.s.
Samtök áhugamanna um áfeng-
isvandamálið - Norðurlands-
deild. Starfsemin hefði sjálfstæð-
an fjárhag og ákvörðunarrétt í
sínum málum. Þetta fyrirkomu-
lag myndi tvímælalaust styrkja
samtökin í heild og í raun er
þetta útfærsla á 2. grein laga
SÁÁ, 3. lið, en þar er talað um
stofnun leitar- og leiðbeiningar-
stöðvar í hverjum landsfjórð-
ungi.
Hlutverk SÁÁ-N yrði að reka
á Akureyri skrifstofu, er byggði á
tíu ára reynslu samtakanna, og
sjá um skipulag og rekstur starfs-
ins hér á Akureyri. Ýmis vand-
mál þarf að leysa áður en slík
skrifstofa verður opnuð. T.d.
þarf að finna hentugt húsnæði og
fjármagna kaup ýmiss stofnbún-
aðar s.s. síma, símsvara, ljósrit-
unarvélar og annars sem tilheyr-
ir. Tekjur SÁÁ-N yrðu félags-
gjöld, opinber framlög og svo
fjáröflun af ýmsu tagi, s.s. blaða-
útgáfa o.fl.
Undirbúningsnefnd SÁÁ-N
mun auglýsa stofnfund samtak-
anna síðar, en fundurinn verður
haldinn um eða upp úr næstu
mánaðamótum.
Guð styrkir góðan vilja og ef
margir leggjast á eitt, mun skrif-
stofa SÁA-N á Akureyri verða
opnuð áður en langt um líður.
Undirbúningsnefnd SÁÁ-N
Innritun hafin
í alla flokka
Nánar í Dagskranni
Sími 22566
frá kl. 16-20
Leikfimi - Þrekhringur - Erobik
Byrjum 19. september
Kvennaleikfimi ★ Músíkleikfimi ★ Leikfimi og megrun,
barnshafandi ★ Magi, rass og læri ★ Framhaldstími ★
Erobik ★ Þrekhringur ★
Karlatími í þrekhring
Morguntími, dagtímar, kvöldtímar.
Námskeið hefjast 19. september.
Látið skrá ykkur sem fyrst, allt er að fyllast.
Skírteinaafhending laugard. 17. sept. frá kl. 13-17
og sunnud. 18. sept. frá kl. 13-15.
Sími 24979.
Tryggvabraut 22
Akureyri
V/SA
Hugsið vel um bílinn
Látið stilla hjólin í hinni
nýju fullkomnu hjólastill-
ingatölvu okkar.
Sparið bensín.
Komið í veg fyrir dekkjaslit
Varnið því að slit komi í
stýrisgang og hjólaiegur.
Aukið endingu bifreiðarinn-
ar.
Öll hjól bifreiðarinnar
eru stillt undir bifreiðinni,
sem tryggir rásfestu og
rétt álag við mikinn hraða.
Símar 21365 og 26915.