Dagur - 14.09.1988, Síða 14
14 - DAGUR - 14. september 1988
Uppreimandi málarar
á Svalbarðseyri
Á Svalbarðseyri voru nú
nýverið nokkrir strákar að
mála leiktæki við skólann.
Tveir þeirra, Valdimar Jóns-
son 10 ára og Henry Indriða-
son 13 ára voru alveg til í smá
spjall á meðan þeir kepptust
við að mála.
„Ég er ekki í unglingavinn-
unni,“ tilkynnti Valdimar og
bætti við að hann væri bara að
þessu sér til gamans. Henry er
aftur á móti í vinnu og í sumar
sagðist hann aðallega hafa verið
að slá fótboltavöllinn og lóðir fyr-
ir íbúa þorpsins.
Henry hefur alltaf átt heima á
Svalbarðseyri en Valdimar bjó
einu sinni á Akureyri í 1 ár.
Strák.arnjr voru í barnaskólanum
á Svalþarð'seyri í vetur og kemur
Valdimar til með að halda áfram
þar en Henry fer í heimavist á
Hrafnagili eins og flestir jafnaldr-
ar hans í Svalbarðsstrandar-
hreppi.
Peir sögðu ekki mikið vera um
félagslíf fyrir krakkana fyrir utan
íþróttir. „Við höfum fótboltafé-
lag hérna sem heitir Æskan,“
sagði Henry og sagðist alls ekki
halda með KA en það gerði
Valdimar hins vegar.
Aðspurðir sögðu þeir félagarn-
ir að það væru ekki allir jafn
skemmtilegir á Svalbarðseyri.
„Sumir eru svolítið skemmtilegir
en ekki allir,“ sögðu þeir. KR
Henry og Valdimar í málningargöllunum.
Mynd: TLV
}uf-*viiiun ~~~—-------------
íll .U^i«laður
;f| hun er f iunu
staðícit,,.
samræml
■'Oselninq
, ^ "'naa dU'íií)S
Ski,a9roinTegnániauna 9ialda
———niir^gre/ðs/na
1 -------■
Fnimrli
OnitolnHu
GJALDDAGI
FYRIRSKIL
A STAÐGREÐSLUFE
Launagreiðendum ber að
skila afdreginni staðgreiðslu
af launum og reiknuðu endur-
gjaldi mánaðarlega. Ekki
skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd
fyrirfram eðaeftirá.
Gjalddagi skila er 1.
hvers mánaðar en eindagi
þann 15.
Með greiðslu skal fylgja grein-
argerð á sérstöku eyðublaði
„skilagrein". Skilagrein ber að
skila, þó svo að engin' stað-
greiðsla hafi verið dregin af í
mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu
vera í heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálf-
stæðir rekstraraðilar eiga að
hafa fengið eyðublöð fyrir
skilagrein send. Þeir sem e:n-
hverra hluta vegna hafa ekki
fengið þau snúi sér til skatt-
stjóra, ríkisskattstjóra, gjald-
heimtna eða innheimtumanna
ríkissjóðs.
-Gerið skil tímanlega
og forðist öriröð síðustu dagana.
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
Starfsemi Tón-
listarskólans
að hefjast
Tónlistarskólinn á Akureyri
verður settur í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 25. sept. kl. 17 og
kennsla hefst daginn eftir.
Gert er ráð fyrir svipuðum
nemendafjölda eins og á síðasta
vetri eða um 570 nemendum.
Þegar á sl. vori höfðu 440
nemendur sótt um skólavist og
gert er ráð fyrir nokkrum fjölda
eldri nemenda sem enn hafa ekki
skilað inn umsóknum. Þegar er
fullskipað í kennslu á ýmis hljóð-
færi, en unnt er að bæta við
nemendum í forskóladeild (aldur
5-9 ára), á selló, í gítar og á
nokkur blásturshljóðfæri. Loka-
innritun og staðfesting eldri
umsókna fer fram fimmtudaginn
15. sept. og föstudaginn 16. sept.
á skrifstofu skólans, í Hafnar-
stræti 81 á þriðju hæð. Á sama
tíma verður tekið við skólagjöld-
um, eða samið um greiðslufyrir-
komulag, jafnframt því sem
nemendur þurfa einnig að skila
inn afriti af stundaskrá eða upp-
lýsingum um hvenær þeir geta
sótt tónlistartíma.
Gallery AllraHanda:
Breyttur
opmmartúm
Vakin er athygli á breyttum
opnunartíma í Gallerí Allra-
Handa, Brekkugötu 5, efri
hæð, sími 27584. Gallerí Allra-
Handa verður opið á fimmtu-
dögum frá kl. 17-19, föstudög-
um frá kl. 13-18 og laugardög-
um frá kl. 10-12. Aðrir opnun-
artímar geta orðið eftir sam-
komulagi.
í Gallerí AllraHanda eru til
sölu og sýnis íslenskir listmunir
eftir marga af okkar þekktustu og
viðurkenndustu listamönnum í
ýmsum listgreinum.
Má þar nefna Grafik eftir Þórð
Hall, Ingunni Eydal, Hörpu
Björnsdóttur, Guðrúnu B. Ólafs-
dóttur og Jennýju Guðmunds-
dóttur.
Leirmuni eftir „Koggu“, Kol-
brúnu Kjarval, Lisbet Sveins-
dóttur, Jónínu Guðnadóttur,
Bryndísi Jónsdóttur og Guðnýju
Magnúsdóttur.
Silfurmuni eftir Jens Guð-
jónsson, Snorra Sigurðsson og
Hansínu Jensdóttur. Önnu Mar-
íu Guðmundsdóttur „Pýrit“ gull-
smiðja.
Myndvefnað eftir Ásu Ólafs-
dóttur og Guðrúnu Gunnarsdótt-
ur.
Tekstil muni svo sem sérhann-
aða hatta, silkislæður og fleira.
Þá er að finna ýmiss konar norð-
lenskan heimilisiðnað og nytja-
list. Og íslenskt ilmvatn.