Dagur - 16.09.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 16.09.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 16. september 1988 spurning vikunnar Er ríkisstjórnin að springa? Mannlíf í Skúli Magnússon: Já, ætli þaö ekki. Ég hef trú á því. Mér líst ekkert á ástandiö, en þaö er bara spurning hvort völ er á betri stjórn. Eru ekki allir jafn slæmir? Ég á enga sér- staka óskastjórn, þær virðast allar vera eins hvernig svo sem þær eru samsettar. Þó held ég að best sé að hafa ekki fleiri en tvo flokka í stjórn. Um síðustu helgi var réttað í Tungurétt. Það má með sanni segja að þessi réttardagur marki tímamót í Svarfaðardal því í haust verður allt fé bænda í daln- um skorið niður vegna riðu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd- um voru menn - þrátt fyrir allt - hressir og lyftu gjarnan flösku með guðaveigum þegar þeir hittu vini og kunningja. Á myndinni hér fyrir neðan er hann Símon á Þverá og María (á hestbaki). Við teljum að piltur sá er veifar plastflöskunni heiti Björn og sé frá Dalvík, en svo mikið er víst að það er Helgi frá Þverá sem er lengst til hægri. Karlarnir sem skeggræða þar fyrir neðan eru þeir Hjörtur frá Tjörn og Björn Þórðarson. Og neðst er Kristján frá Tjörn að skrúfa tappann á flösku - sjálfsagt hefur hann neit- að Hjörleifi bróður sínum um sopa enda er sá síðarnefndi tals- vert yngri. Arndís Magnúsdóttir: Ríkisstjórnin hefur verið ansi líf- laus upp á síðkastið. Þetta hef- ur staðið ansi tæpt hjá þeim undanfarnar vikur. Ég vil að Kvennalistinn fái að spreyta sig núna. Það vantar nýtt blóð í stjórn landsins. Ólafur Halldórsson: Ég vona það. Og það sem fyrst. Ég vil fá vinstri sinnaða stjórn. Við þurfum að losa okkur við þetta „frjálsræði" í gæsalöpp- um sem veður uppi og er til háborinnar skammar. Fram- sóknarflokkur, Alþýöubandalag og Kvennalisti eiga að mynda næstu stjórn. Það er alveg ágætis tríó. Mattý Einarsdóttir: Er það ekki augljóst mál? Ann- ars fylgist ég ekki mikið með pólitík, má ekki vera að því. Ég veit ekki hvort er betra að stjórnin tóri áfram eða hún fari frá. Maður veit ekkert hvað kemur í staðinn. Hvort það verður eitthvað betra. Guðrún Guðmundsdóttir: Ég veit það ekki. En ég vona að hún springi ekki. Þeireiga mikið verk fyrir höndum í ríkisstjórn- inni og ég vona að þeim takist að leysa það vel úr hendi. Ég segi svo sem ekki að þetta sé óskastjórnin, en það er sjálfsagt að gefa henni tækifæri út kjör- tímabilið og athuga hvernig hún hefur staðið sig.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.