Dagur - 15.10.1988, Blaðsíða 3
15. október 1988 - DAGUR - 3
Nýbakaðar vöfflur
með sultu og íjónia
Ivindiii við Leiruveg
Niðurstöður úr skoðanakönn-
un sem við efndum til um efni
Helgarblaðsins verða að teljast
mjög uppörvandi því flestir
lýstu yfir ánægju með blaðið.
Fæstir vildu miklar breytingar
en allir komu þó með uppá-
stungur um efni sem gaman
væri að hafa í blaðinu og kenn-
ir þar ýmissa grasa. Þrír svar-
seðlar voru dregnir út og í Ijós
komu þessir vinningshafar:
1. verðlaun, AEG kaffivél frá
Járn- og glervörudeild KEA,
hlýtur Dóra Tryggvadóttir,
Hamrahlíð 30 Vopnafirði.
2. verðlaun, AEG brauðrist frá
Járn- og glervörudeild KEA,
komu í hlut Kristins Reynis
Guðmundssonar, Suðurvegi 4,
Skagaströnd.
3. verðlaun, tvær ástar- og tvær
spennusögur frá Snorrahúsi,
hreppti Sólveig Sigurðardóttir,
Baughól 14 Húsavík.
Við óskum vinningshöfunum
til hamingju og sendum þeim
vinningana við fyrsta tækifæri.
Um leið þökkum við öllum sem
tóku þátt í skoðanakönnuninni,
en það vekur athygli að enginn
Akureyringur er á meðal vinn-
ingshafa og þó var tæplega helm-
ingur svarseðla frá áskrifendum á
Akureyri. Aðrir svarseðlar komu
frá Húsavík, Hvammstanga,
Vopnafirði, Skagaströnd,
Dalvík, Siglufirði, Raufarhöfn,
Hafnarfirði og Reykjavík. Konur
voru í meirihluta þeirra sem
sendu okkur svör, en mjótt var á
mununum.
Krossgátan vinsælust
Lítum nánar á niðurstöðurnar.
Fyrsta spurningin var: Hvaða
efnisþætti ert þú sáttur við,
áskrifandi góður, í Helgarblaði
Dags? Flestir sögðust vera
ánægðir með alla eða svo til alla
efnisþætti blaðsins. í>eir þættir
sem fengu flest atkvæði voru
Krossgátan, Hallfreður Örgum-
leiðason, Helgarviðtölin, Sögu-
brot, Sakamálasaga og Vísna-
þáttur, en allir fastir þættir fengu
einhver atkvæði, enda smekkur
fólks misjafn.
Önnur spurning hljóðaði svo:
Hvaða þætti mætti að skaðlausu
leggja niður? Hér gáfu langflestir
það svar að ekki væri ástæða til
að leggja niður neinn af þeim
þáttum sem við höfum bryddað
upp á í núverandi mynd Helgar-
blaðsins. Nokkrir vildu þó ekki
sjá þýddar, erlendar greinar í
blaðinu. Varla getum við þó úti-
lokað slíkt, enda reynum við að
taka ekki inn erlent efni nema
það þjóni einhverjum tilgangi, til
gagns eða gamans, og erlendir
þættir á borð við sakamálasög-
urnar njóta mikilla vinsælda.
Þá er komið að þriðju spurn-
ingunni: Hvers konar efni vilt þú
sjá í Helgarblaði Dags? Þarna
voru lesendur í essinu sínu því
alls bárust um 30 mismunandi
hugmyndir og mjög fáir með
sömu tillögur. Hluta af því efni
sem lesendur stungu upp á hefur
reyndar mátt finna í blaðinu
stöku sinnum og aðrar hugmynd-
ir hafa verið til athugunar hjá
okkur. Nýjum hugmyndum verð-
ur sinnt svo sem kostur er.
„Spennandi
framhaldssögu“
Greinilegt var að margir vildu fá
meira af efni utan Akureyrar og
vissulega tökum við það til
greina. Þá vildu nokkrir fá meiri
umfjöllun um lista- og menning-
EININGABRÉF KAUPÞINGS
- GRUNDVÖLLUR
FJÁRHAGSLEGS ÖRYGGIS
Viðskiptavinir okkar hafa
sannreynt að Kaupþing stend-
ur traustum fótum í íslensku
fjármálalífl, með nokkra
stærstu sparisjóðina að bak-
hjarli.
Einingabréf, íyrsti íslenski
verðbréfasjóðurinn heíur nú á
fjórða ár skapað viðskiptavinum Kaupþings trausta
og áhyggjulausa ávöxtun sparifjár, 13% vexti um-
fram verðbólgu síðustu mánuði.
Kaupþing er stofnaðili að Samtökum íslenskra
verðbréfasjóða og stofnaði Verðbréfaþing íslands
ásamt Seðlabanka íslands, Landsbanka íslands,
Iðnaðarbanka íslands hf. og Fjárfestingarfélagi ís-
lands hf.
Eignaraðilar að Kaupþingi hf. eru: Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóðurinn í
Keflavík, Sparisjóður vélstjóra, Sparisjóður Mýra-
sýslu, Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður
Vestmannaeyja, Sparisjóður Siglufjarðar og dr.
Pétur Blöndal.
Fjármálasérfræðingar Kaupþings nýta staðgóða
menntun sína, áralanga reynslu og markviss
vinnubrögð í þágu viðskiptavina sinna.
Á þennan hátt hefur Kaupþing alltaf starfað. Því
stendur ekki til að breyta.
Einingabréf - framtíðaröryggi í fjármálum.
KAUPÞING HF
éél KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
arlíf á svæðinu og getum við hæg-
lega lofað því, enda færist ætíð
aukinn kraftur í alla menningar-
starfsemi þegar líða tekur á vet-
urinn.
Lítum á nokkrar hugmyndir að
lokum: „Eitthvað af léttara tag-
inu.“ „Alvarlegar greinar um
þjóðfélags- og menningarmál."
„Samtöl við fólk úr öllum stéttum
atvinnulífs á Norðurlandi öllu.“
„Umfjöllun um bókmenntir."
„Meira um listalíf á svæðinu.“
„Spennandi framhaldssögu.“
„Léttari krossgátur." „Gamlar
myndir af mönnum og atburð-
um.“ „Getraunir." „Matarupp-
skriftir.“ „Skrif um sálfræði.“
Þannig mætti lengi telja því
áhugamál fólks eru mismunandi
og hinn beini og breiði vegur
vandfundinn. SS
—
■
Niðurstöður úr
skoðanakönnun