Dagur - 15.10.1988, Blaðsíða 6
- HUðAa - 88C' f -ísdöfrlo .cíf
6 - DAGUR - 15. október 1988
poppsíðan
\
Umsjón: Valur Sæmundsson.
John Norum fyrrum gítarleikari Europe:
Tónlistin er meira virði en peningar
Eins og lesendum er eflaust (fersku
minni fjallaöi ég dulftið um hljöm-
sveitina Europe í síöustu viku.
Dálítið skiptar skoðanir eru meðal
manna um hvort tónlist téðrar
hljómsveitar teljist til þungarokks
eður ei. Ég veit um einn sem hefur
mjög ákveðnar skoðanir á þessu
máli, John nokkurn Norum. John
þessi stofnaði einmitt hljómsveitina
Europe, árið 1980, og var í henni
alveg fram yfir Final Countdown
tímabilið. Þá yfirgaf hann sveitina.
Vegna hvers? Við skulum athuga
það mál nánar.
Það var fyrir átta árum sem John
Norum hófst handa við að safna
saman mönnum í hljómsveit. Vel
gekk að finna bumbuslagara og
bassaleikara en dálitill tími leið áður
en söngvari fannst. Að lokum gróf
John upp söngvara/bassaleikara í
klúbbi nokkrum í Stokkhólmi. Sá nýi
féllst á að sleppa bassanum og ein-
beita sér að söngnum. Um það leyti
tók hann upp sviðsnafn. Hann kall-
aði sig Joey Tempest.
Piltarnir hófu æfingar af kappi og
nefndu hljómsveitina Europe. Fullir
sjálfstrausts innrituðu þeir sig í
hæfileikakeppni áhugamanna. Og
þeir unnu. Verðlaunin voru útgáfu-
samningur og fljótlega kom fyrsta
plata sveitarinnar út. Hún hét í
höfuðið á hljómsveitinni og fékk
ágætis viðtökur. Nokkrar manna-
breytingar urðu áður en önnur plat-
an kom út, Wings of tomorrow. Sú
plata fékk sömuleiðis ágætar við-
tökur.
Með sömu liðsskipan gaf Europe út
plötuna The Final Countdown fyrir
um tveimur árum. Sú plata náði
aldrei neinum vinsældum og hljóm-
sveitin féll í gleymskunnar dá.
Hljómsveitin leikur núna fyrir dansi
á sveitaböllum í norðurhluta
Bangladesh.
Nei, nei. Látið mig ekki plata ykkur.
Við þekkjum öll hvernig Final
Countdown gekk. En það er
Moiar og mylsna
kannski best að koma sér að efninu,
sem er það að eftir útgáfu Final
Countdown yfirgaf stofnandinn
John Norum Europe. Hann var
búinn að fá nóg af vinsældabrölti og
minnkandi tónlistarlegum metnaði.
John sendi nýverið frá sér sóló-
plötu, Total Control, sem fékk prýði-
legar viðtökur. En heyrum dálítið í
Jóni sjálfum.
- Af hverju hættirðu í Europe?
„Það eru margar ástæður fyrir þvi.
Ég vildi spila þyngra rokk með gítar-
inn í aðalhlutverki. Þeir vildu spila
mýkra popp - í stíl við Mr. Mister og
þannig dótarí. Ég hafði engan
áhuga á því, þer vildu nota hljóm-
borðið miklu meira en ég vil spila
rokk. Rokk eins og t.d. Van Halen
og Dokken. Rokkkkk.“
- Réðir þú engu varðandi tónlist-
ina?
„Ekki get ég nú sagt það, rétt að-
eins varðandi gítarsándið. Joey réði
nánast öllu, hann lét eins og Europe
væri sín hljómsveit. En það var nú
ég sem stofnaði þessa hljómsveit,"
segir John.
- Hvenær var það sem þér fannst
að Europe væri farin að breytast?
„Það var í síðustu hljómleikaferð-
inni sem við fórum í, til Japans. Ég
hlustaði á upptökur af hljómleikun-
um og fannst þær hræðilegar.
Á þessum tíma voru strákarnir líka
farnir að breytast svo mikið. Þeir
voru ekki lengur mannlegir, þeir
voru orðnir að vélum. Þeim var
alveg sama um tónlistina, það að
eiga smell skipti öllu máli, sama
hvort tónlistin var léleg eða ekki. Og
fyrir utan þessa persónubreytingu
voru þeir líka farnir að hugsa svo
mikið um útlitið. Hárgreiðslan og föt-
in skiptu mun meira máli en sjálf
tónlistin. Þegar svona var málum
komið fannst mér ekkert erfitt að
hætta í hljómsveitinni. Þaðvarekk-
ert sárt. Það skiptir mig engu máli
hvort við seljum 100.000 plötur eða
fimm milljónir. Það er tónlistin sem
Að þessu sinni ætla ég að geta
um safnplötur nokkurra lista-
manna sem allar eru nýkomnar
út eða þá rétt ókomnar.
í fyrsta lagi er á leiðinni safn-
plata frá Dire Straits Þetta er
samansafn af þeirra bestu
lögum, endurhljoðblönduðum. Að
auki er að finna lagið Twisting by
the pool, sem aldrei hefur áður
fengist á breiðskífu, og eitt nýtt
lag ...
Þreföld safnplata frá Santana
er nýkomin út. Það dugir ekkert
minna enda er hljómsveitin búin
að vera í eldlínunni í tvo áratugi.
Á plötunum er að finna bestu lög
Santana frá þessu tímabili, auk
nokkurra laga sem hafa aldrei
komið út áður. Meðfylgjandi er
vandaður bæklingur með sögu
hljómsveitarinnar auk athuga-
semda Carlosar Santana um
hvert lag. Platan heitir Viva
Santana. ..
Negotiations and Love songs
’71-’8B heitir ný tvöföld safnplata
frá Paui Simon. Eins og nafnið
gefur til kynna þá spannar platan
allan fimmtán ára sólóferil
kappans...
Human League sendir bráðlega
frá sér Greatest hits plötu sem
inniheldur 12 af vinsælustu lög-
um þessara brautryðjenda
nýrómantíkurinnar. Eitt nýtt lag
er aukreitis ...
(slandsvinirnir í /f/sseru einnig
að senda frá sér Best of plötu.
Ekki er ómögulegt að hún seljist
eitthvað hér á landi...
Látum þetta gott heita í bili en
glóðvolgar fréttir koma að sjálf-
sögðu að viku liðinni. Það er
margt að gerast. Dokið því við.
Gene Simmons úr Kiss er greinilega ánægður með nýju plötuna. Eða er
það ekki?________________________________________________________________
John Norum er bara kátur og hress eftir
skiptir mig máli. Hinum var alveg
sama,“ segir John Norum.
„Metnaðurinn skiptir mig máli. Þeg-
ar þú ert í hljómsveit, þarftu alltaf að
fylgja hinum, þú ræður ekki hvernig
tónlistin er. Sérstaklega ekki í Eur-
ope. Ég ákvað að hefja sólóferil, þar
get ég nefnilega sungið lögin, samið
þau sjálfur og útsett. Allt eins og
mér finnst sjálfum vera best. Það er
þó í sjálfu sér ekki mikill munur á
Final Countdown og plötunni minni.
Mín plata er þyngri, það er betri
að hann yfirgaf félaga sína í Europe.
hljómur á henni, betri útsetningar og
söngurinn er betri. Þetta eru atriði
sem gera gæfumuninn," segir John
Norum býsna hreykinn. Hann sér
ekkert eftir því að hafa yfirgefið Eur-
ope þegar hljómsveitin hafði náð
tindinum. Tónlistin skiptir hann
meira máli en peningar.
Rokktónleikar í dag
„Það var mikið,“ hugsaði ég þegar
ég frétti að loksins yrðu nú haldnir
hljómleikar í Akureyrarbæ á öðrum
stað og tíma en að kvöldlagi á
vínveitingahúsi. Afskaplega lítið
hefur verið um þannig hljómleika í
bænum undanfarin ár. Afar
kærkomið.
Það verða nefnilega rokktónleikar í
Borgarbíói í dag kl. 16. Nokkur
leynd hefur hvílt yfir því hvaða lista-
menn koma fram en eftir því sem ég
kemst næst mun hin stórgóða sveit
Lost frá Akureyri verða
aðalnúmerið. Þessir piltar eru
tvímælalaust það besta sem akur-
eyrskt rokklíf hefur alið af sér siðan
Bara flokkurinn var og hét. Annars
er viðtal við Lost á öðrum stað í
blaðinu. Þið getið bara lesið það.
Ekki hef ég fengið öruggar
fregnir af fleiri flytjendum en orð-
rómur hefur verið á kreiki um að
hljómsveit sem nefnir sig, ef ég man
rétt, Daman og hérinn, træði upp.
Einnig kæmi mér ekkert á óvart ef
einhverjar óvæntar uppákomur yrðu.
En sjón og heyrn eru sögu ríkari
og vil ég því ráðleggja öllum sem
vettlingum og treflum geta valdið að
leggja leið sína í Borgarbíó klukkan
16.00 í dag. Það verður örugglega
þess virði.
Sæti Vinsældalistar Rás 2 - vikuna 7/10-14/10 1988 Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (10) Foxtrott ... Bubbi Morthens
2. (3.) (5) Groovy kind of love Phil Collins
3. (2.) (5) Frozen feelings Jan Bang
4. (5.) (5) Cocomo Beach Boys
5. (9.) (3) De smukke unge mennesker Kim Larsen
6. (8.) (3) One moment in time . Whitney Houston
7. (15.) (4) When it’s love Van Halen
8. (22.) (2) Dont worry, be happy ... Bobby McFerrin
9. (10.) (10) Im nin alu Ofra Haza
10. (14.) (5) He aint heavy hes my brother Bill Medley
íslenski listinn
- vikuna 8/10-14/10 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (2.) 7 Foxtrott .. Bubbi Morthens
2. (3.) 5 Frozen feelings Jan Bang
3. (1.) 7 Gerum okkar besta ísl. landsliðið
4. (5.) 4 Groovy kind of love Phil Collins
5. (6.) 4 One moment in.time Whitney Houston
6. (8.) 4 Don’t worry be happy .. Bobby McFerrin
7. (7.) 14 Nothing’s gonna change my love for you .. Glenn Medeiros
8. (18.) 3 Den förste kærlighed Kim Larsen
9. (11.) 9 Hands to heaven Breathe
10. (10.) 3 Cocomo Beach Boys