Dagur - 15.10.1988, Page 10
10 - DAGUR - 15. október 1988
ÞESSIHUÓMSWT
SUINAR EKKEFfT ÖPP
m
)
— hljómsveitin Herramenn frá Sauðárkróki í helgarviðtali
Hljómsveitir í Skagafirði hafa löngum verið til staðar, mismargar í það og það skiptið, og er þá átt við danshljómsveitir.
Öll könnumst við við hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, sem er án efa þeirra frægust og hefur starfað
lengst í „bransanum". Stöku sinnum komafram nýjar hljómsveitir og eru lífdagar þeirra mislangirog misgóðir. Undanfarið
hefur ein hljómsveit vakið athygli, en það er hljómsveitin Herramenn frá Sauðárkróki. Tónlist hennar hljómaði
í eyrum landsmanna í sumar með tveim lögum sem voru á safnplötu frá Steinum hf., Bongóblíðu. Lögin hétu „Nótt hjá
þér" og „í útvarpi" og náðu bæði lögin talsverðum vinsældum, t.d. komst fyrrgreinda lagið í 2. sæti á vinsældalista
Rásar 2. Herramenn eru sex ungir Sauðkrækingar, á aldrinum 19-20 ára, og hafa allir, nema einn,
spilað saman í hljómsveit frá barnaskólaaldri. Það er hljómsveitin Herramenn sem er í helgarviðtali að þessu sinni.
Blaðamaður Dags mælti sér
mót við Herramenn fyrir nokkru
í æfingaaðstöðu þeirra, upp undir
súð í sútunarverksmiðjunni
Loðskinni hf., þar sem þrír þeirra
unnu í sumar, og tveir vinna enn.
Par eru þeir búnir að leggja undir
sig stórt herbergi með viðeigandi
tækjum og tólum og nýlega festu
þeir kaup á nýju hljóðkerfi sem
skilar mun betri hljómgæðum til
ballgesta og annarra sem hlýða á
tónlist þeirra.
Byrjuðum sem „Bad boys“
og gerðum miklar rósir
Herramenn gerðu hlé á æfingu og
tóku vel í smá spjall. Við komum
okkur þægilega fyrir í einni
skinnastæðu í verksmiðjunni og
hófum viðtalið. Áður en lengra
er haldið skal þess getið hverjir
skipa hljómsveitina að þessu
sinni. Aðalsöngvari er Kristján
Gíslason, auk þess sem hann spil-
ar á hljómborð, Svavar Sigurðs-
son leikur á gítar, Árni Þór Þor-
björnsson á bassagítar, Birkir
Guðmundsson hljómborð og
raddir, og Kristján Baldvinsson
trommur í forföllum Karls Jóns-
sonar, en hann mun fljótlega fara
að berja húðir á ný, eftir langvar-
andi íþróttameiðsli. Kalli var
ekki viðstaddur þegar viðtalið fór
fram, hann var í æfingatækjum
að þjálfa upp skrokkinn eftir
sjúkraleguna.
- Hvað hafið þið starfað lengi
saman?
Herramenn frá Sauðárkróki, frá vinstri Svavar Sigurðsson, Kristján Baldvinsson, Kristján Gíslason, Árni Þór Þorbjörnsson, Birkir Guðmundsson og Karl
Jónsson.
Árni: „Við höfum spilað sam-
an í hljómsveit frá 12 ára aldri,
þ.e. ég, Kristján, Karl, Svavar og
Birkir. Byrjuðum sem hljóm-
sveitin „Bad boys“, sem gerði
miklar rósir, komum aðallega
fram á skólaböllum við góðar
undirtektir. Við erum mjög
ánægðir með það nafn, „Bad
boys“, enda vorum við ekkert
voðalega góðir strákar. Þá var
Kristinn Baldvinsson með okkur
á hljómborð. Undir „Bad boys“
nafninu spiluðum við í um tvö ár.
Skiptum þá um nafn, yfir í
Metan. Þá voru 3 hljómborðs-
leikarar í hljómsveitinni, sem
gekk ekki til lengdar. Það endaði
með því að Kristinn hætti. Þá
breyttum við aðeins áherslum í
hljómsveitinni, minnkuðum
hljómborðsleik og Kristján fór
meira yfir í sönginn. Það var svo
sl. vetur sem við breyttum nafni
hljómsveitarinnar í Herramenn.“
Vorum að leita
að grípandi nafni
- Af hverju breyttuð þið um
nafn?
Árni: „Það var af því að við
gerðumst svo frakkir að fara aft-
ur í Músíktilraunir, en við fórum
’87 undir Metan-nafninu, og vild-
um því breyta til. Þá urðum við í
öðru sæti, eins og gerðist aftur í
ár.“
Svavar: „Metan-nafnið var líka
ekki nógu gott til að markaðs-
setja, það var ekki nógu gríp-
andi. Við vildum einnig velja
alíslenskt nafn.“
- Hvernig kom nafnið Herra-
menn til?
Birkir: „Það var nú Svavar sem
átti hugmyndina að því.“
Svavar: „Það var verið að leita
að íslensku og grípandi nafni, nafni
sem fólk þyrfti aðeins að heyra
einu sinni og myndi síðan muna