Dagur - 15.10.1988, Side 11
15. október 1988 - DAGUR - 11
það. t>að var leitað mikið. Við
fengum nafnið m.a. þannig að
við erum nú herramenn í okkur.
Svo er það líka fengið úr teikni-
myndasögunum.“
Árni: „Síðasta vetur meiddist
trommarinn okkar, Karl Jóns-
son, það slitnuðu í honum kross-
bönd í hné og liðþófi rifnaði,
þannig að hann hefur síðan lítið
sem ekkert getað barið trommu-
húðir. Þá urðum við að útvega
nýjan trommuleikara. Það var
erfið fæðing, í byrjun fengum við
ungan trommara sem ekki hafði
mikla reynslu. Það gekk ekki upp
fyrir okkur.“
Kristján G: „Við viljum taka
það fram að við kunnum honum
bestu þakkir fyrir það sem hann
gerði á þeim stutta tíma sem
hann var með okkur.“
Árni: „Þá fengum við Kidda,
Kristján Baldvinsson, sem nú
trommar hjá okkur í forföllum
Kalla, og erum mjög ánægðir
með hann.“
Byrjaði með fáum böllum
og góðum
- Kristján, hvernig finnst þér að
spila með Herramönnum?
Kristján B: „Það hefur verið
ágætt. Ég hef spilað á trommur
nokkuð lengi, maður byijaði í
þessum bílskúrsböndum, svona
þessu „fokki“ sko. Síðan komu
alvöru hljómsveitir eins og Fást
og Týról, að ógleymdri Tíbet.
Það má segja að þetta sé toppur-
inn að spila með Herramönn-
um.“
- Hvenær byrjuðuð þið að spila
á alvöru böllum, og þá á ég ekki
við skólaböll í Gaggó?
Árni: „Það byrjaði svona laus-
lega fyrir um tveim árum, og
fyrsta alvöru ballið var áramóta-
ball í Miðgarði."
Kristján G: „Þetta byrjaði með
fáum böllum og góðum, aðallega
sveitaböllum. Það hefur þróast
þannig að þetta er orðið þokka-
lega mikið, og ennþá eru böllin
góð.“
- Hvernig hefur sumarið
verið?
Kristján G: „Seinni partur
sumars hefur verið mjög góður,
við höfðum frekar lítið að gera
um mitt sumarið. Það var aðal-
lega í kringunr trommaraskiptin
sem við gátum ekki mikið spilað
á böllum. Eftir að við fengum
nýjan trommara í gang þá hefur
verið nóg að gera.“
- Nú voruð þið með tvö lög á
safnplötu í sumar, Bongóblíðu.
Árni: „Já, og síðan voru tvö
lög í viðbót á spóluútgáfu af
Bongóblíðu. Þau lög heita
„Landslagið" og „Baðferðin“, og
er það síðarnefnda eftir Ægi
Ásbjörnsson. Lögin á plötunni
eru eftir okkur Herramenn. í
tveim lögum spilaði með okkur
einn saxófónleikari, Einar Bragi
Bragason."
Viötökur betri
en við áttum von á
- Hvað finnst ykkur um þær við-
tökur sem lögin fengu?
Kristján G: „Nokkuð góðar,
a.m.k. voru viðtökurnar betri en
við áttum von á.“
Árni: „Fyrir það fyrsta vorum
við búnir að gera okkur vonir um
að komast á plötu. Svo komumst
við á plötu og þá gerðum við okk-
ur vonir um að komast inn á vin-
sældalista. Það tókst, „Nótt hjá
þér“ komst hæst í 2. sæti og „í
útvarpi“ í 13. sæti.“
Kristján G: „Ég átti von á því
að „í útvarpi" kæmist ofar en hitt
lagið. „Nótt hjá þér“ hafði maður
gert ráð fyrir að myndi vinna
hægt og örugglega á.“
- Hvernig er svo að spila á
sveitaböllum?
Kristján G: „Það er frábært.
Svo fremi sem fólk er ekki alveg
ofurölvi, þá er þetta mjög
gaman. Við spilum mest af þeim
lögum sem ganga hverju sinni, og
síðan frumsömdu lögin okkar,
þau ganga alveg jafn vel og Bruce
Springsteen t.d. Svo er endað á
vangalagi, og það má segja að við
höfum náð að para saman nokk-
uð marga.“ (Það sem kom næst
af vörum Herramanna er varla
prenthæft, þannig að við snúum
okkur að næstu spurningu. - inn-
skot blm.)
Tvö lög á rokksafnplötu
í nóvember
- Hvað er svo að gerast hjá ykk-
ur í dag strákar?
Kristján G: „Það voru tekin
upp tvö ný lög frá okkur fyrir
skömmu í Glaðheimum, hljóð-
veri Bítlavinafélagsins. Upptöku-
stjórar voru Jón Ólafsson og
Rafn Jónsson. Þau lög verða á
rokksafnplötu sem Steinar hf.
ætla að gefa út í nóvember nk.“
Árni: „Svo er bara að spila
meira á næstunni. Við stefnum
að því að gefa út plötu næsta
sumar með okkar eigin lögum,
sem vonandi einhver vill gefa
út.“
- Nú voruð þið að kaupa nýtt
söngkerfi fyrir hljómsveitina.
Segið mér aðeins frá því?
Svavar: „Við segjum ekki frá
því hvað það kostaði. í kjölfar
vaxandi vinsælda þá krefst það
þess að við séum með góðar græj-
ur í þessu. Það þarf að hafa góð-
an hljómburð á böllum og þar
sem við komum fram. Þetta var
bara það sem var nauðsynlegt að
bæta við hjá okkur. Viö keyptum
allt það sem fylgir söngkerfi, eins
og hátalarabox, magnara o.fl.“
- Hvað finnst ykkur um þá
popptónlist sem við fáum að
heyra í dag, þá íslensku?
Kristján G: „Mér finnst hún
þokkaleg, ekkert meira en svo.“
Svavar: „Það er ekki mikið að
gerast, það er ekki svo mikil
gróska."
Árni: „Það var mikil gróska í
plötuútgáfu í sumar, en fyrir utan
liana þá er fátt um fína drætti.“
Einn leikurinn
var aö stofna hljómsveit
- Svona að endingu, verðið þið
að spila saman á böllum eftir tíu
ár?
Árni: „Örugglega ekki sem
Herramenn, en sjálfsagt verða
einhverjir okkar að spila ennþá,
það er aldrei að vita.“
Kristján B: „Eftir tíu ár? Þá
verður maður 18 barna faðir með
drykkfellda konu á bakinu!“ (Nú
var mikið hlegið, svo mikið, að
skinnastæður í Loðskinni hristust
og skulfu.)
Svavar: „Jú, jú, það má vel
vera að við verðum að spila sam-
an eftir 10 ár, hver veit? Þetta er
búið að endast í 7 ár, þannig að
það getur varað í tíu ár enn. Það
er alveg ómögulegt að segja neitt
til um þetta, við eigum flestir t.d.
eftir að fara í meira nám.“
Árni: „Við munum koma sam-
an á sumrin, þótt ekki væri nema
bara til að leika okkur."
Kristján G: „Það er öruggt að
við munum spila saman út næsta
sumar, og einhver næstu sumur.
Það eru veturnir sem eru ótryggir
hvað þetta varðar, við munum
koma til með að tvístrast í hina
og þessa skóla. Það má geta þess
að þessi hljómsveit er ekki
samansafn úr ýmsum áttum, það
byrjaði ekki einhver einn sem
safnaði að sér mönnum. Við lék-
um okkur saman sem smápollar
og vorum í sama bekk. Einn
leikurinn var að stofna hljóm-
sveit, ef má orða það svo, eins og
sumir sem byggðu kassabíl
saman. Þetta er byggt á miklum
félagsskap, við erum allir miklir
vinir og þessi hljómsveit slitnar
ekkert upp, svona einn, tveir og
þrír. “
Þá vitum við það, það er góður
andi í herbúðum Herramanna,
enda ekki nema von. Þeim hefur
vegnað vel að undanförnu og er
engan bilbug á þeim að finna.
Tvö lög að koma út á safnplötu í
næsta mánuði og stefnan sett á
eigin plötu næsta sumar.
Þegar viðtalinu lauk var reynt
að finna tíma, þar sem allir
hljómsveitarmeðlimir gætu mætt
í myndatöku. Það tókst eftir
nokkurn bræðing og var kátt á
hjalla hjá drengjunum þegar þeir
voru ljósmyndaðir í bak og fyrir
eitt kuldalegt septemberkvöld.
Eitt er öruggt, við munum
heyra nýtt efni frá Herramönnum
á öldum ljósvakans innan tíðar
og hefur undirritaður vissu fyrir
að þau lög munu vekja eftirtekt,
ekki síður en þau sem heyrðust í
sumar, og heyrast enn. -bjb