Dagur - 15.10.1988, Síða 13
Lost leikur gæðarokk sem kitlar norðienskar rokktaugar, að sögn hljómsveitarmeðlima.
Mynd: SS
15. október 1988 - DAGPR-J,3
Hljómsveitin Lost:
Svar við Skriðjöklum
o g Stuðkompaníinu?
Er eitthvað til sem heitir norð-
lenskt rokk? Hljómsveitin
Lost leikur norðlenskt rokk,
að sögn hljómsveitarmeðlima,
sem eru: Rögnvaldur Rögn-
valdsson bassaleikari, Jóhann
Anton Ásmundsson söngvari
(og klarinettuleikari?), ívar
Orn Eðvarðsson trommuleikari,
Sigurjón Baldvinsson gítarleik-
ari og Kristján Pétur Sigurðs-
son aðalsöngvari.
Þeir fjórir sem fyrst voru
nefndir sátu fyrir svörum á
dögunum og hér á eftir fer brot af
því samtali, eða það sem birting-
arhæft getur talist af velsæmis-
ástæðum.
- Hver ykkar er aðaldriffjöðr-
in í hljómsveitinni, semur allt og
ræður öllu?
Rögnvaldur: „Við semjum
allir, þetta er svo lýðræðislegt
band.“
Sigurjón: „Lögin eru öll skráð
á hljómsveitina."
- Spilið þið aðallega frumsam-
ið efni?
Rögnvaldur: „Já, eingöngu og
allir textar eru á íslensku.“
- Pað var gott að heyra. En
segið þið mér, hvenær var hljóm-
sveitin stofnuð? (Nú hirði ég ekki
um að greina hver sagði hvað og
skrifa því hljómsveitina fyrir
svörunum. Petta er hvort eð er
svo lýðræðislegt band).
„Hún var aldrei formlega
stofnuð, þetta kom bara smám
saman. Reyndar er þetta ívari að
kenna því hann keypti sér
trommusett. Lost er rúmlega eins
árs í þessari mynd. Við vorum
búnir að glamra eitthvað áður, en
sem betur fer heyrði það
enginn.“
- Er þetta kraftmikið, íslenskt
rokk sem þið spilið?
„Gæðarokk. Það kitlar norð-
Lost á tónieikum.
lenskar rokktaugar. Þetta er eig-
inlega svar við Skriðjöklum og
Stuðkompaníinu. Við erum samt
ekkert að skjóta á þær hljóm-
sveitir. Þetta eru ágætir strákar,
ef þeir hafa gaman af þessu þá er
þetta allt í lagi.“
- Eruð þið ekkert í sveita-
ballabransanum?
„Nei, Lost er eingöngu tón-
leikaband."
- Endar þetta ekki með plötu
einhvern tíma?
„Jú, við stefnum að því. Það
vill bara enginn gefa okkur út.
Reyndar höfum við lítið reynt
fyrir okkur, bara hjá Gramminu
og Smekkleysu.“
- Þið eruð kannski ekki nógu
þekktir. Hafiði spilað eitthvað
fyrir sunnan?
„Já, já. Við höfum spilað í
Duus húsi og spilum í Tunglinu
10. nóvember ásamt fleiri hljóm-
sveitum. Við höfum fengið ágæta
dóma hjá gagnrýnendum, þannig
að fólk hlýtur að kannast við
hljómsveitina.“
- Og væntanlega fá fleiri að
kynnast ykkur um helgina?
„Já, við verðum með tónleika í
Borgarbíói í dag. Þar verða líka
leyninúmer eða huldumenn,
ýmsar óvæntar uppákomur. Har-
aldur Davíðsson trúbador opnar
þetta með söng og kassagítar-
spili. Við höfum spilað áður í
Borgarbíói, fínt sánd þarna og
góð aðstaða fyrir áhorfendur.
Gagnrýnanda Morgunblaðsins
þykir til dæmis mjög gott að sofa
í Borgarbíói.
Við hituðum upp fyrir Sykur-
molana í Möðruvallakjallara og
fengum mjög góða dóma. Það
var jafnvel skrifað að við hefðum
stolið senunni frá þeim, en það
hlýtur að hafa verið spaug. Við
höfum trú á því að þeir séu að-
eins betri en við. Það hefur
a.m.k. borið meira á þeim. En
við lofum góðum tónleikum í
Borgarbíói."
- Takið þið ykkur alvarlega
sem tónlistarmenn?
„Vissulega. Við erum búnir að
æfa sleitulaust síðan 24. mars,
nema Jói sem fór á Djúpavog.“
- Einhver sérstök yrkisefni?
Ætlið þið kannski að breyta
heiminum?
„Bara það sem er að gerast í
kringum okkur og það sem er
ekki að gerast í kringum okkur.
Heimurinn hlýtur að breytast
einhvern tíma, við ætlum ekki að
breyta honum. Við viljum hins
vegar breyta áliti almennings á
Norðurlandi á rokktónlist.
Hljómsveitin ætlar að gera víð-
reist um Norðurland í vetur.“
Þar með klippum við á viðtalið
við Lost og látum lesendum eftir
að geta í eyðurnar. SS
Bflasýning
í dag kl. 10-18 og sunnudag kl. 13-17
Suzukl Vitara 4x4
Nýr jeppi frá Suzuki
Einnig:
Nýr Mazda 626 station
Suzuki Samurai 4x4
Mazda 323 Super Special
Korando 4x4
Ford Bronco II
Bflasalan hf .
síml 26301, Strandgötu 53
(Bílahöllinni)