Dagur - 15.10.1988, Síða 20
u CHICOGO
Snvrtivönjr í úrvali -
TBiodroqa
COSmetics Snyrtivörudeild
Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali
Möl og sandur Akureyri:
Meira selt af steypu
nú en í fyrra
- mikið að gera hjá fyrirtækinu
Kristján Tryggvason notar hvíta stafinn og hér sést hann á ferðinni í Odd-
eyrargötunni á Akureyri. Mynd: tlv
Alþjóðlegur dagur
hvíta stafsins í dag
„Það hefur verið mikið að gera
hjá okkur á öllum sviðum,“
sagði Hólmsteinn Hólmsteins-
son forstjóri Malar og sands í
samtali við blaðið. Þó að síðasta
ár hafi verið Ijómandi gott er
búið að framleiða heldur meira
fyrstu níu mánuði þessa árs.
Á þessu ári er búið að selja um
8500 rúmmetra af steypu hjá Möl
og sandi, sem er um 7% meira en
var í fyrra.
Önnur starfsemi gengur einnig
vel, röraframleiðsla hefur verið
mikil og hið sama gildir um jarð-
vegsskipti á vegum fyrirtækisins.
Enn er mikið að gera í jarðvegs-
skiptunum og þessa dagana sér
fyrirtækið um jarðvegsskipti í
Nýlega var rætt um alvarlegar
horfur í atvinnumálum á Húsa-
vík á fundi atvinnumálanefnd-
ar. Fram kom að rekstrarstaða
fyrirtækja, einkum þeirra sem
tengjast sjávarútvegi og land-
búnaði er mjög alvarleg en
ekki var talið á færi atvinnu-
málanefndarinnar að hafa þar
bein áhrif á. Dagur hafði sam-
band við Bjarna Þór Einarsson
bæjarstjóra og spurði um
stöðuna í atvinnumálum.
„Staðan er þannig að nóg
framboð hefur verið á atvinnu á
undanförnum mánuðum en fyrir-
tækin hafa verið'að síga á ógæfu-
hliðina sem bendir til að þau störf
sem unnin hafa verið hafi ekki
verið nægilega arðbær. Þetta er
hlutur sem fyrirtækin eru að berj-
ast við að leysa og í sumum til-
fellum sýnist mér vera að sjást
árangur af þeirri baráttu," sagði
Bjarni. Og bætti við að búa þyrfti
til ný, arðbær störf í stað þeirra
sem lögð væru niður, svo ekki
kæmi til atvinnuleysis.
Aðspurður um hvort verra at-
vinnuástand væri að skapast á
Húsavík en öðrum stöðum á
landsbyggðinni sagði Bjarni að
það væri ekki sín tilfinning, vand-
inn væri að miklu leyti aðsendur
vegna ástandsins í þjóðfélaginu
almennt og að því leyti sem hann
væri aðsendur væri hann ná-
kvæmlega jafn slæmur hér og
annars staðar. Þetta ætti fyrst og
fremst við erfiðleika í útgerð og
fiskvinnslu og rekstri þeirra fyrir-
tækja sem þjónuðu landbúnaðin-
um mest. Eitthvað af vandanum
væri heimafengið og það væri
helst það sem menn réðu við að
laga. Jákvæði þátturinn við svona
grunni raðhúss við Litluhlíð.
„Það er töluvert líf í verktökun-
um hér ennþá,“ sagði Hólm-
steinn.
Fyrirtækið framleiðir ýmiss
konar einingar og sagði Hólm-
steinn að verkefni á því sviði
væru fyrirliggjandi alveg fram að
áramótum. „Við höfum unnið
mjög mikið í þessu, það hefur
t.d. verið unnið á hverjurn laug-
ardegi alveg frá því í maí.“
Hólmsteinn leit björtum aug-
um til framtíðarinnar og sagði að
ef veðurguðirnir yrðu mönnum
hliðhollir sæi hann fram á mikla
steypusölu í haust, því enn væri
talsverðu ólokið af byggingum.
ástand væri að forsvarsmenn
fyrirtækja kæmust ekki hjá því að
skoða ofan í kjölinn hvað gera
mætti betur, þegar almenna
ástandið batnaði stæðu fyrirtækin
betur að vígi sem búin væru að
skoða þessa hluti vel og laga þá
eins og hægt væri.
„Það er engin spurning um að
þetta gengur yfir. Þetta fer eftir
því hvað nýrri ríkisstjórn tekst að
gera og ég vona það besta,“ svar-
aði Bjarni, aðspurður um hvort
hann væri bjartsýnn á framtíðina.
„Okkur vantar meiri afla, ver-
ið er að vinna að því að finna
lausn á þeim málum en það er
erfitt í kvótakerfi nútímans. Hér
vantar ný og arðbær atvinnutæki-
færi, sem við skulum vona að
komi m.a. út úr átaksverkefni
sem verið er að hrinda af stað, ég
held að full ástæða sé til að binda
vonir við að það skili okkur Hús-
víkingum einhverjum atvinnu-
tækifærum," sagði Bjarni. IM
Fyrir skömmu var gengiö frá
stofnun nýs hlutafélags í
Skagafirði, er ber nafnið Belta-
vélar hf. Hlutafélagið keypti
tvær jarðýtur af Ræktunar-
sambandi Skagafjarðar, sem
lagt hefur verið niður, en það
fékk greiðslustöðvun í sumar.
Söfnun hlutafjár meðal bænda
15. október ár hvert er alþjóðleg-
ur dagur hvíta stafsins. Hvíti staf-
urinn er aðalhjálpartæki blindra
við að komast leiðar sinnar jafnt
utan húss sem innan. Hann er
jafnframt forgangsmerki þeirra í
umferðinni.
Það krefst langrar þjálfunar að
læra að nota hvíta stafinn svo að
hann komi að sem mestum not-
um. Þjálfunin er fólgin í að læra
að beita stafnum á réttan hátt,
læra ákveðnar leiðir og að þekkja
kennileiti. Mikilvægt er að hlusta
eftir umhverfishljóðum, t.d. eru
fjölfarnar umferðargötur gott
kennileiti. Þegar blindur maður
þarf að komast yfir götu heldur
hann stafnum skáhallt fyrir fram-
an sig.
hófst í ágúst sl. og hefur gengið
vel. Nú er hlutaféð um 4,5
milljónir og stefnan sett á að
ná því í 6 milljónir, sem var
kaupverðið á jarðýtunum. Að
sögn Jóns Guðmundssonar á
Oslandi, sem er formaður hins
nýja félags, mun það dæmi
ganga upp.
Ökumenn og aðrir vegfarend-
ur taka í ríkara mæli tillit til
blindra og sjónskertra sem nota
hvíta stafinn. Eitt aðalvandamál
þess sem ferðast um með hjálp
hvíta stafsins eru kyrrstæðir bílar
á gangstéttum. Þessir bílar geta
valdið stórhættu, sérstaklega
vörubílar og aðrir háir bílar.
Stafurinn lendir undir bílnum og
sá blindi verður ekki var við hann
fyrr en hann rekst sjálfur á hann.
Blindrafélagið skorar á öku-
menn að virða hvíta stafinn sem
stöðvunarmerki. Þá eru vegfar-
endur hvattir til að sýna blindum
og sjónskertum fyllstu tillitssemi
í umferðinni og að bjóða fram
aðstoð sína ef þurfa þykir.
Jón sagði að góður vilji væri á
meðal bænda fyrir þessum kaup-
um, og væru hluthafar orðnir
mjög margir, en Jón var ekki klár
á tölum í því sambandi. „Það var
fyrst og fremst gengið frá þessum
kaupum og stofnun nýs félags til
að bjarga Ræktunarsambandinu
út úr greiðsluerfiðleikum og nú
Blönduós:
Aflaverðmæti
Nökkvayfir
100 milljónir
- verðmætamet
í síðustu veiðiferð
Rækjutogarinn Nökkvi frá
Blönduósi landaði sl. fimmtu-
dag í heimahöfn og er afla-
verðmæti skipsins nú komið
yfir 100 milljónir króna frá ára-
mótum.
Aflamagn skipsins hefur verið
lítið í síðustu veiðiferðum en þar
sem aflinn hefur nær eingöngu
verið úrvalsrækja hefur verðmæti
hans verið mjög mikið þrátt fyrir
lítinn tonnafjölda. Úr þessari
veiðiferð landaði skipið 18,5
tonnum en verðmætið reyndist
vera 11,6 milljónir sem er mesta
aflaverðmæti skipsins úr veiði-
ferð.
Frá áramótum hefur skipið
landað 649 tonnum af rækju að
verðmæti 107,3 milljónir króna.
fh
Rjúpnaveiði
hefst í dag
- Bandaríkjamenn í
rjúpu í Skagafjörðinn
í dag, 15. október, hefst
rjúpnaveiðin og víst er að
margir hugsa sér gott til glóð-
arinnar. Búist er við að fjöldi
veiðimanna fari strax á stúfana
um helgina. Margeir Björns-
son á Mælifellsá í Lýtings-
staðahreppi, Skagafirði, á
t.a.m. von á átta Bandaríkja-
mönnum og ætla fjórir þeirra á
rjúpnaveiðar.
Töluvert hefur sést af rjúpu í
Skagafirði og sömu sögu er að
segja víðar á Norðurlandi. Bænd-
ur sem veita veiðileyfi munu
væntanlega eiga annríkt um helg-
ina og jafnvel er talað um að
menn flykkist nú út á land í
„rj úpnahelgarpakkaferðir“.
Á Hótel Húsavík fengust þær
upplýsingar að bókanir væru
mikið að glæðast núna, t.d. hefðu
nokkrir helgarpakkar verið
seldir, og er getum að því leitt að
þar séu rjúpnaskyttur í meiri-
hluta. SS
eru þeir úr sögunni. Bændur
munu svo nýta þessar tvær vélar
til þeirra verkefna sem til falla í
það og það skiptið,“ sagði Jón.
Auk Jóns í nýju stjórn hluta-
félagsins eru Árni Bjarnason
Uppsölum, Símon Traustason
Barði, Sigurður Sigfússon Vík og
Jón Stefánsson Gauksstöðum.
Húsavík:
Alvarlegar horfur
í atvmnumálum
- „Engin spurning um að
þetta gengur yfir,“ segir bæjarstjóri
Skagaflörður:
Nýtt hlutafélag tekur við
af Ræktunarsambandinu