Dagur - 10.12.1988, Síða 4

Dagur - 10.12.1988, Síða 4
4 - DAGUR - 10. desember 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRI'MANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Að ijúfa hefð Dagur skýrði frá því í gær að íþróttafélögin á Akureyri, KA og Þór, hyggðust nú um áramótin bjóða flugelda til sölu í fyrsta sinn. Þar með hafa íþróttafélögin hafið samkeppni við skátana á Akureyri, en flugeldasala hefur fram til þessa verið helsta fjáröflunarleið Hjálparsveitar skáta þar í bæ og hafa skátar verið einir um hituna. I frétt Dags kom fram að skátar eru afar óhressir með að íþróttafélögin ætli að nota þessa leið til fjáröflunar, enda telja þeir að í gildi sé óformlegt samkomulag milli félagasamtaka bæjarins um að seilast ekki hvert inn á fjáröfl- unarleiðir annars. Forsvarsmenn íþróttafélag- anna kannast hins vegar ekkert við slíkt sam- komulag. Ekki skal fullyrt hér að slíkt samkomu- lag hafi nokkru sinni verið staðfest formlega, en ljóst er að eftir því hefur verið unnið, beint og óbeint, í áraraðir. Þannig hefur smám saman skapast viss hefð, sem íþróttafélögin hyggjast nú rjúfa. Það er kunnara en frá þurfi að segja að fjöl- mörg hinna svonefndu frjálsu félaga og félaga- samtaka, á Akureyri sem annars staðar, byggja rekstur sinn fyrst og fremst á margvíslegri fjár- öflun meðal almennings, enda njóta þau tak- markaðs stuðnings frá hinu opinbera. Þessi fjár- öflun fer fram með ýmsum hætti. Sem dæmi má nefna að aðaltekjulind Lionsklúbbsins Hængs á Akureyri er útgáfa blaðsins „Leo“, skömmu fyr- ir jól ár hvert. Annar lionsklúbbur, Huginn, hef- ur selt perur og jóladagatöl í sama skyni. íþróttafélagið Þór hefur haft talsverðar tekjur af árlegri Þrettándagleði sinni, KA af útgáfu síma- skrár fyrir Akureyri, og svona mætti lengi telja. í öllum tilfellum hafa önnur félagasamtök í bæn- um látið viðkomandi félag óáreitt í þeim skiln- ingi að þau hafa ekki tekið upp hliðstæða fjár- öflun. En nú hefur það sem sagt gerst að íþróttafélögin KA og Þór hafa ákveðið að selja flugelda um áramótin og fara þar með inn á svið, sem fram til þessa hefur verið helgað Hjálpar- sveit skáta. Menn geta séð í hendi sér afleiðing- arnar. Tekjur Hjálparsveitarinnar af flugelda- sölu munu dragast verulega saman og því þurfa félagar í sveitinni væntanlega að huga að nýrri fjáröflunarleið áður en langt um líður. Ef þeim t.d. dytti í hug að standa fyrir Þrettándagleði eða gefa út símaskrá, er næsta víst að það yrði tekið' óstinnt upp af forsvarsmönnum íþróttafé- laganna á Akureyri. Nokkur íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu hafa hin síðari ár staðið í samkeppni við skátana um flugeldasölu. Fram til þessa hefur sá siður ekki náð fótfestu utan höfuðborgarinnar. En nú hafa íþróttafélögin á Akureyri sem sagt ákveðið að taka sunnanmenn sér til fyrirmyndar í þessu efni. Það ber auðvitað að harma. BB. úr hugskotinu Jól þótt að kreppi Það eru að koma jól, þótt að kreppi í þjóðfélaginu, og fréttir af gjaldþrotum, fjöldauppsögn- um, samdrætti og öðrum viðlíka plágum, setji nú jafnvel enn meiri svip á alla fjölmiðlaflór- una en þetta hefðbundna og árvissa, en alltaf innihaldslitla skrum kaupahéðnanna jóla- glöggu. Menn segja jafnvel að svört kerti séu nú mjög í tísku, hvort sem það er nú vegna þess að fjöldinn sé farinn að finna fyrir því að farið sé að harðna á dalnum, eða að kaupmangarar hafi komið þessu tískufyrirbæri af stað til að lýsa sorg sinni yfir eigin versnandi hag. Siðferði á aðventunni Hverri aðventu fylgir nú orðið jólaglögg, og hverri aðventu fylgja nú orðið sjöljósa rafljósa- stjakar, hvort tveggja hingað innflutt úr Svíaríki, að meðtöld- um Lúsíudeginum, fyrrum sænskri svallhátíð. En þau sið- ferðisvandamál sem virðast dyggir fylgifiskar efnahags- kreppa hér á landi eru tæpast innflutningur frá Svíþjóð, en þessi mál koma mjög gjarnan upp einmitt á aðventunni, eða þá í byrjun árs þegar drunginn er hvað mestur yfir þjóðlífinu að afloknum gleðskap ársloka- hátíðanna. Við munum það öll, að þessi „þurru" spillingarmál, ef svo má að orði komast vegna tengslanna við SÁÁ, þar sem Hafskipsmálið var hámarkið, komu upp á yfirborðið í þann mund sem kreppan sem hófst 1982 eða ’83, var að leggjast yfir af fullum þunga, og hún var ekki að fullu gengin yfir, þegar málið sem tengt var Hjálpar- stofnun kom upp, gott ef ekki einmitt á aðventunni. Og enn gerist það á aðventu, og þegar alvarleg efnahagskreppa virðist vera að skella yfir, að það brak- ar og brestur í kerfinu vegna þess að siðferðið er ekki sem skyldi. Að þcssu sinni er spillingin ekki „þurr“ eins og áður, þvert á móti. Hún er „blaut" og það meira að segja alveg „renn- blaut". Má segja að þetta sé kærkomin tilbreyting fyrir ýmsa. Og alla vega, hafi það verið ætlun ráðamanna, að fá fólkið til að gleyma um stund óáraninni allt í kring, þá hefur það mætavel tekist. Tæpast einsdæmi Ekki skal hér lítið gert úr þessu vafasama einkaframtaki forseta Hæstaréttar, að koma sér upp einkabar á kostnaðarverði, og það var hárrétt hjá fjármálaráð- herra að gera mál þetta opin- bert. Samt sem áður þá læðist að manni sá grunur, að synd dómarans sé nú alls ekki svo stór í sniðum, sé miðað við ýmislegt annað sem viðgengst í kerfinu. Það sem aftur á móti gerir hana alvarlega, er það að þessi maður gegndi einu æðsta embætti landsins, og það í sjálfu dómskerfinu og þegar allt kem- ur til alls, þá hefur hann fyrst og fremst verið svo óheppinn, að hann gegndi nákvæmlega þess- ari stöðu, fyrir svo utan það að hann ber ættarnafn sem þykir fínt. Því er nefnilega þannig varið að það sem fyrrum forseti Hæstaréttar gerði er tæpast einsdæmi. Misnotkun á aðstöðu er nefnilega nokkuð sem allir vita að er látið viðgangast, ef ekki upp kemst, líkt og hrossa- kjötsátið eða barnaútburðurinn forðum. Það er óþarfi að vera hér nokkuð að ræða um ráð- herrana eða embættismennina sem reisa sér veglega bústaði eða aka dýrum drossíum á kostnað skattborgaranna, mennina sem opinberir aðilar skipa til að hafa eftirlit með eig- in fyrirtækjum, þá sem geta beint viðskiptum ríkisins til eig- in fyrirtækja eða ættmenna sinna, eða þeirra sem blaðra sfnkt og heilagt um það hvað launin í landinu séu óhóflega há, milli laxveiðitúranna með útlendu , kóngaslekti, að ógleymdum þeim sem fá orður út á það hve sniðugir þeir eru í viðskiptum við sjálfa sig. Þegar þessi mál eru skoðuð finnst manni nú einkabarinn hans Magnúsar Thoroddsen harla lítilfjörlegur. Líka einkageirinn Og það er auðvitað ekki bara í hinum svonefnda „opinbera" geira sem svona hlutir hljóta að viðgangast. Ef farið væri út í það að rannsaka einkageirann er ekki óhugsandi að jafnvel enn verri siðferðisbrestir kynnu að koma í ljós, og má vera að einmitt það sé ástæðan fyrir því að hann hefur lítt verið rann- sakaður. Það hefur einfaldlega enginn hugrekki til þess. Það gæti þannig verið ómaks- ins vert að athuga rekstur sumra sjávarútvegsfyrirtækjanna sem nú eru á hausnum. Hver veit nema í ljós kæmi að einhverjar af bankaskyldum þeirra væru ekki vegna togarans eða frysti- hússins, heldur vegna íbúðar- innar sem eigandinn hefði keypt í Borginni, svo að dóttirin Sigga í Versló eða sonurinn Gunnar í viðskiptafræðinni hefðu nú þak yfir höfuðið meðan þau væru í skóla, eða að vélin í bátnum sem bilaði í fyrra hafi í rauninni verið nýr Lincoln handa synin- um á sautján ára afmælisdag- inn. Þeir eru án efa fleiri Granda- vagnarnir á íslandi en við ger- um okkur grein fyrir og fá jafn- vel lán úr Atvinnutrygginga- sjóði meðan vindhanar gala yfir Ogurvíkum. Jól þrátt fyrir allt En líklega ætti maður ekki að vera svona dómharður, því það eru að koma jól, þrátt fyrir allt krepputalið, svörtu kertin og spillinguna í kringum okkur. Sá er við á jólum tignum mátti nú þola það í sínu lifanda lífi að vera kallaður auðnuleysingi, fyllibytta ef ekki eitthvað enn verra, en varð þó mestur á jörð. Og ef til vill eru þeir sem gjarnir eru að skara eld að sinni köku oft í rauninni bestu skinn sem hafa misstigið sig á siðgæðis- brautinni, og sjálfsagt oft meira fyrir vanþekkingu og hugsunar- leysi en illmennsku. Þeir eru heldur örugglega ekkert vondir menn þessir pólitíkusar sem segja að launin séu of há, jafn- vel á helgum Hólastað, þeir bara einfaldlega þekkja ekki kjör venjulegs launafólks, og vitanlega eru til laun í þjóð- félaginu sem að skaðlausu mætti lækka verulega, laun manna á borð við Guðjón B. Ólafsson, sem Framsókn af óskiljanlegum ástæðum álpaðist til að kjósa í miðstjórn, laun Páls í Pólaris, Geirs Hallgríms- sonar, nokkurra bankastjóra og verðbréfabraskara. En það að fara að blása til almenns stétta- stríðs nú er stórvarasamur hlutur, og getur lítt talist í anda barnsins sem í Betlehem var fætt. Við ættum miklu heldur að strengja þess heit um þessi jól og áramót, að taka öll höndum saman og vinna okkur út úr vandanum sem að steðjar, þannig að hver og einn vinni eftir getu og uppskeri laun eftir þörfum. En fyrst af öllu verður að byrja það verk að moka flór- inn í siðgæðisfjósinu okkar. Það eitt út af fyrir sig er árangursrík- ari efnahagsaðgerð en margur hyggur. Reynir Antonsson skrifar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.