Dagur - 10.12.1988, Page 10

Dagur - 10.12.1988, Page 10
10 - DAGUR - 10. desember 1988 Mér hefiir alltaf komið vel saman við bœkur - segir Sigurður Þorbjarnarson, fyrrum bóndi á Geitaskarði Þaö er Sigurður Þorbjarnarson, fyrrum bóndi á Geitaskarði sem er í helgarviðtalinu að þessu sinni. Hann man tímana tvenna varðandi sveita- störfin. Hann man þá tíma þegar mannshöndin varð að vinna öll störf til sveita og þegar hesturinn og hestverkfærin fóru að létta sveitafólkinu störfin og hann tók þátt í vélvæðingarbyltingunni í land- búnaðinum. Sigurður var mikill félagsmálamaður og var valinn til margra trúnaðarstarfa fyrir sveit sína. Hann sat í fjölda ára í hreppsnefnd Engi- hlíðarhrepps, var fulltrúi sveitar sinnar í sýslu- nefnd og hreppstjóri var hann um alllangt skeið. Hann segir að sér hafi þótt vænst um starf sitt í sýslunefndinni því sér finnist að þar hafi hann náð því að koma góðum málum til leiðar og gera mest gagn. Sigurður er fæddur á Heiði í Gönguskörðum þann 27. október 1916. Foreldrar hans voru Sigríð- ur Árnadóttir frá Geitaskarði og Þorbjörn Björnsson frá Heiði. Árið 1944 kvæntist Sigurður, Valgerði Ágústsdóttur frá Hofi í Vatnsdal. Þau tóku við búi af foreldrum Sigurðar árið 1946 og ráku myndarbú á Geitaskarði fram undir 1980 og eignuðust fimm mannvænleg börn. Nú býr á Geita- skarði Ágúst sonur Sigurðar og Valgerðar, ásamt eiginkonu sinni Ásgerði Pálsdóttur. Það voru hafðar kindur í bænum til að hita hann upp „Eg óst ekki upp á Heiði nema að litlu leyti. Var meira hjá móð- urforeldrum mínum á Geita- skarði sem ég virti mjög mikils. Hins vegar á ég minningar frá Heiði eins og gefur að skilja og sú fyrsta er frá frostavetrinum mikla, sem svo var kallaður, 1918. Frostin urðu þá það hörð þarna uppi í fjöllunum að allt ætl- aði að frjósa og það voru fluttar kindur inn í bæinn til að verja t.d. matvæli fyrir skemmdum og halda yl. Minningin er bundin við að ég þorði ekki að fara einn fram hjá stíu sem var útbúin fyrir hrúta á milli baðstofu og svefn- herbergis foreldra minna. Ég man að ég skreið þarna á milli og hafði mikla ógn af hrútunum eða hrútshornunum á bak við spilið. Húsakynnin á Heiði voru gamall fimm bursta torfbær og þar voru löng og dimm göng. Myrkfælnin fylgdi þeim auðvitað eins og öllu myrkri á þessum tíma þegar Skottur, Mórar og Skinnpilsur voru nærri jafn sjálfsagt heimilis- fólk og foreldrarnir og systkin- in,“ sagði Sigurður. - Hvenær fluttu foreldrar þín- ir frá Heiði að Geitaskarði? „Pað var 1926. Þá urðu við- skipti á milli afa gamla og pabba sem þá keypti jörðina. Eg man ekki mikið eftir búferlaflutning- unum en það stendur í ævi- minningum pabba að hann hafi farið með 12 sleða lest yfir fjöll. Þessir flutningar fóru fram síðari hluta vetrar á hjarni. Ég held að ég muni það rétt að Lúðvík Kemp sem þá bjó á Illugastöðum hafi verið ráðgjafi pabba og hjástoð í þessum flutningum. Hann var vanur og mikill ferða- maður. Þá var farið um Hryggja- dal, Kamba, Víðidal, Litla- Vatnsskarð og niður Strjúgs- skarð. Það var farin meira en þessi eina ferð og mig minnir að hann hafi talað um þrjá sleða síðar. Búpeningur var ekki flutt- ur vestur fyrr en um haustið nema kýrnar. Foreldrar mínir hófu búskap á Geitaskarði vorið 1926 og þá með afa og ömmu búandi enn á smá hluta af jörð- inni með grasnytjar og nokkrar skepnur. Ekki löngu seinna tóku foreldrar mínir við allri jörðinni.“ - Þú hefur séð mikið breyt- ingaskeið á vinnubrögðum til sveita. Hvernig voru þau í þinni æsku? „Það var mikil breyting. Á Heiði var ekki önnur tækni til en hjólbörur og ekki hægt að nota þær mikið vegna þess hvað túnið var þýft. Flutningatæknin var hesturinn með því sem hægt var að koma á hann og við hann. Það voru notaðir kláfar til að bera út skítinn á túnið, hrip voru notuð til að reiða heim mó og krókar til að flytja byggingarefni, þ.e.a.s. hnausa og strengi og annað slíkt efni til byggingar torfhúsa. Ann- að var eftir því og vinnubrögð utanhúss og innan voru þau sömu og höfðu tíðkast í gegnum aldirn- ar held ég að megi segja. Það var staðið á teig við slátt með orfi og Ijá að minnsta kosti 10 tíma á dag og konurnar með hrífurnar á eftir og heyið borið saman með hönd- unum." - Þótti ekki rnikil framför þeg- ar hestakerrur komu til sögunn- ar? „Jú það var vissulega stór bylting. Það var ekki kominn kerrutími norður á Skörðum þeg- ar við fluttum þaðan, þar var enginn vegarspotti til nema að ég man eftir örnefni hátt uppi í hlíð sem hét Hróarsgötur. Þar um lá leiðin upp Heiðardalinn og norð- ur yfir Heiði og út Laxárdal, það voru bara reiðgötur. Eftir þeim voru aðdrættir úr kaupstað fluttir á hestbaki.“ Tæknin kom til sögunnar í menningunni í Langadalnum „Tæknin kom fljótt til sögunnar þegar koinið var í menninguna í Langadalnum. Þá var þar hlemmi- vegur að manni fannst eftir öllum dalnum og til Blönduóss og hesta- kerrur og vagnar þóttu þar sjálf- sagðir hlutir. Ég man ekki fyrir víst hvenær fyrstu bílarnir komu en sennilega hefur það verið á árunum 1927-’29. Það var mikil upplifun að sjá þessi farartæki fara um veginn á eigin spýtur án þess að maður sæi neitt sem hjálpaði þeim til að komast áfram. Svo fóru heyvinnu- vélar fyrir hesta að verða algeng- ar. Jónatan á Holtastöðum, sá ágæti maður, flutti fyrstu hesta- sláttuvélina inn í héraðið. Það mun hafa verið eina tækið sinnar tegundar á svæðinu í nokkur ár. Það voru einhverjir tæknilegir örðugleikar við hana, greiðan var of gróftennt og sló illa. Það varð svo algengt að hestarnir tóku við striti mannsins og leystu orfið af hólmi og aðrar heyvinnuvélar tengdar hestum fóru að verða algengar. Það má geta- þess í samanburði á gömlum tíma og nýjum að maður gæti ætlað að það hafi verið mjög erfitt verk að slá með orfi í 10 tíma á dag 6-7 daga vikunnar en samt er það þannig að ég man ekki eftir þreytumerkjum hvorki á karli né kerlingu og unglingar áttu nóg eftir á kvöldin eftir 10 tíma vinnu- dag til að fljúgast á og leika sér. Ég held að fólk hafi verið ódrep- ið af þessari miklu vinnu. Annað- hvort hefur fólkið'verið þrek- meira en það er nú eða lífsfjörið hefur verið meira.“ - Voru ekki foreldrar þínir alltaf með vinnufólk? „Ég man að það var vinnukona og tveir vinnumenn á Heiði en það dugði ekki til eftir að flutt var í Geitaskarð og búið stækkað verulega. Heiði bar ekki þá áhöfn sem síðar varð á Geita- skarði. Við systkinin vorum sex og það tók nokkurt pláss í heimil- inu og þar að auki voru tveir vinnumenn og mig minnir að aldrei hafi verið minna en einn kaupamaður til viðbótar yfir sumartímann. Síðan var ein föst kona í bænum allt árið og tvær kaupakonur að sumrinu svo þetta var fjölmennt heimili. Það var mikið sönglíf á mínu bernskuheimili því foreldrar mínir voru bæði músíkölsk og söngvin. Mér eru minnisstæðar kvöldstundir við orgel- eða gít- arspil og söng. Pabbi var sérlega barngóður og laginn við að umgangast börn, bæði sín eigin og önnur.“ - Hvað var bú foreldra þinria stórt þegar flest var? „Nú man ég það ekki vel en það munu hafa verið yfir þrjú hundruð fjár og kýrnar sennilega tíu. Það var svo naut á einum bás og kálfastía á öðrum.“ - Var ekki mikið verk að vinna úr mjólk úr svo mörgum kúm? „Foreldrar mínir höfðu þann hátt á að það var unnið úr mjólk- inni og mjólkurmatur var mjög mikið notaður í heimilinu svo seldi hann bæði smjör, rjóma og skyr. Eftir að ég tók við búinu seldi ég skyr, smjör og rjóma og það var þó dálítil stoð að því á erfiðleikaárunum í kringum mæðiveikina. Það eru í rauninni einu fjárhagslegu erfiðleikarnir 'sem ég hef lent í á ævinni sem sköpuðust í kringum þá pest. Hross voru nokkuð mörg ég man ekki töluna en ég hafði spurnir af því að afi gamli hafði átt 100 hross. Mér er minnisstætt þegar hrossunum var smalað heim að vori, til að gera þeim til góða svo sem að raka af þeim og marka folöld. Það var fallegur floti og í minningunni er meiri hluti þessara hrossa hvítur. Þó var eitthvað af rauðum hrossum og brúnum. Pabbi hafði aldrei jafn mörg hross þótt hann ætti nokkuð stóra hópa. Það kom fram áðan að hest- arnir hefðu tekið við hluta af störfum fólksins en heima var það sennilega svolítið með seinni skipunum. Pabbi var fastheldinn á gamlar venjur, gamli maður- inn, og ég man að það var staðið við slátt löngu eftir að maður heyrði suðið í sláttuvélinni á Holtastöðum. Svo breyttist þetta allt en ég man ekki ártalið þegar véltæknin hóf innreið sína í hey- skapinn hjá okkur.“ Klárinn Skjöldur varö hesta elstur, 42 ára - Varð ekki einn af vinnuhestun- um á Geitaskarði allra klára elstur? „Þú átt við Skjöld, liann varð 42 ára gamall. Það var merkileg- ur hestur ekki aðeins fyrir aldurs- sakir. Hann var á eftirlaunum síðustu 3-4 árin og var þá ekkert hreyfður og var í túninu og hag- aði sér eins og hann vildi. Þetta var klár til allra nytja og á sínum tíma reiðhestur mömmu. Þar fyr- ir utan var hann notaður til burð- ar og dráttar. Ég veit aldur hans nákvæmlega því hann var folald undir móður sinni 1926 þegar flutt var að Geitaskarði frá Heiði. Þetta var mjúkgengur klár og þokkalega viljugur. Eg eign- aðist svo þennan hest þegar ég tók við búi af pabba. Ég átti um tíma fjóra hvíta hesta sem voru bræður og Skjöldur var einn þeirra. Þótt ég hafi aldrei verið hesta- maður eru tveir klárar mér sér- staklega hugstæðir. Annar þeirra var bleikur hestur fæddur sama ár og Skjöldur. Hann var aldrei notaður til annars en dráttar. Það var eins og hann hefði mannsvit og þegar búið var að raða kannski sex krökkum á hrygginn á honum og hann lullaði áfram með þetta þá fann hann ef einn krakkinn fór að hallast og stoppaði þá og leit aftur þangað til krakkinn var búinn að rétta sig af. Ef ég á að láta þig hafa aðra hestasögu þá ætla ég að nefna Hvíting sem var snillingshestur og mjög vitur. Þetta var lipur og viljasnarpur klár sem ég notaði þegar ég var að ríða til lambánna Heyskapur aft Gcitarskarði í Laugadal.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.