Dagur - 10.12.1988, Side 11
10. desember 1988 - DAGUR - 11
Sigurður Þorbjarnarson fyrrum bóndi á Geitarskarði.
á vorin. Ærnar voru þá alltaf
látnar bera úti í nokkuð stórri
girðingu og það var hörð vertíð
fyrir okkur báða, a.m.k. fyrir
hann, sauðburðartíminn. Þangað
var farið stundum tvisvar og aldrei
minna en einu sinni á dag og ég
hafði þann sið eftir að ég tók við
búinu að marka öll lömb sem
höfðu fæðst síðasta sólarhringinn
að morgninum. Það bar nokkuð
oft við að farið var það langt í
ærnar og lömbin að ég sá ekki
hvort lömbin væru mörkuð. En
Hvítingur sá það og það kom oft
fyrir að þegar ég var að elta rollu
sem ég hélt að væri með ómörk-
uðu að hann snéri þvert úr leið.
Hann hætti að hlaupa á eftir ánni
þegar hann sá að lambið var
markað. Þetta er sannleikur og
þetta kom oft fyrir því hann virt-
ist alveg vita hvað ég ætlaði að
gera við lambið."
Ekki spurt um hvað
dagurinn hét eða
hvað klukkan var
- Tæknin óx og áttir þú ekki eina
af fyrstu dráttarvélunum sem
komu í héraðið?
„Jú ég vil geta þess að við átt-
um jörðina saman við Brynjólfur
bróðir og hann var heima á
Geitaskarði nokkuð mörg sumur
með sína fjölskyldu. Hann átti þá
helminginn af jörðinni en seinna
breyttist það þannig að hann átti
aðeins einn fjórða af henni og
hætti þá jafnframt að dvelja þar
yfir sumarið með sitt fólk og
íeggja fram vinnu við búið. Okk-
ur Brynjólfi kom ákaflega vel
saman í sambandi við alla hluti
og það var styrkur að Brynjólfi
því hann var bæði mikill starfs-
maður og framúrskarandi hand-
laginn og mikill smiður.
En í sambandi við tæknina þá
keypti ég dráttarvél sama árið og
ég tók við búinu á Geitaskarði
1946. Þessi vél sem var af gerð-
inni Massey Harris er enn við
líði. Manni fannst þetta frábær
gripur og hún bilaði lítið. Þessi
vél var örugglega fyrsta vélin sem
kom hingað í héraðið með lyfti-
tækjum. Tilkoma dráttarvélar-
innar gjörbreytti heyskaparað-
ferðunum í einu vetfangi svo það
var ekki hægt að bera það á neinn
hátt saman við það sem áður var.
Það hefur líklega verið ári síðar
sem ég keypti múgavél, kambvél,
sem var hægt að nota til að raka
þótt hún gerði það ekki sérlega
vel en hún var ágæt til að rifja
með. Eftir það var hrífan aðeins
notuð til að hreinraka því ég
hafði ekki geð til að láta þessa
hagræðingu kosta það að heyið
sem vélin ekki tók væri skilið
eftir. Rifjingin með hrífu var eitt
af því sem var mest svekkjandi
við handvirka heyskapinn og hún
var þarna úr sögunni. Það var
ekki spurt um hvaða dagur var
eða hvað klukkan var þegar mik-
ið hey var undir og ekki síst ef
þurfti að bjarga því undan rign-
ingu, þá var staðið meðan stætt
var.
Það fylgdi tilkomu dráttarvél-
arinnar að það var hætt að binda
hey og var raunar komið til að
hluta fyrir þann tíma. Ég tók upp
á því hálfpartinn í óþökk gamla
mannsins, líklega 1944, að fara
að draga heim sætin með hestum.
Ég hafði séð það gert á Stóru-
Giljá. Þetta var mikill léttir að
því að vera laus við að binda hey-
ið og geta þess í stað sveiflað
kaðli um sætin og dregið þau
beint inn í hlöðu. Með þessum
vélakosti var erfiði við heyskap-
inn að kalla úr sögunni. Það var
sætt með kvíslinni framan á vél-
inni þótt sætin yrðu þá ekki eins
falleg og þau handhlöðnu höfðu
verið en púlið var horfið að
manni fannst.
Rómantíkinni fórnað
á altari tækninnar
En rómantíkin sem fylgdi þessum
gömlu störfum þegar menn stóðu
í röð við slátt á spildunni og kon-
urnar á eftir við að raka það var
horfin, henni hafði verið fórnaðá
altari tækninnar. Það var óneit-
anlega viss sjarmi yfir þessum
störfum frá garnla tímanum."
- Var ekki næsta stigið að
jepparnir komu í sveitirnar?
„Jú þá komu blessaðir jepp-
arnir og þá byrjaði þessi árátta að
fólk í sveitinni hætti að tolla
heima hjá sér og fór að verða tíð-
förulla á aðra bæi og í kaupstað.
Það var mikið hagræði í að fá
þessi tæki og jepparnir komu inn
í búreksturinn í verulegum mæli,
þeir urðu önnur dráttarvélin á
bænum þangað til að þeim vélun-
um fjölgaði og urðu jafnvel þrjár
eða fjórar á bæ,“
- Hvernig var kaupstaðarferð-
um háttað fyrir tíma jeppanna?
„Það voru kerrurnar og vagn-
arnir sem klárarnir drógu. Það
var býsna gaman og erfiðislítið
að setja klár fyrir kerruna og setj-
ast upp í hana og fara niður á veg
og beina klárnum í átt til Blöndu-
óss. Þegar búið var að setja í
kerruna það sem heim þurfti að
flytja var snúið lieim á leið og
klárarnir sáu um þetta sjálfir."
- Voru kaupstaðarferðir þá
ekki fáar á ári?
„Þær voru helst ekki nema
tvær, í haustkauptíð og vor-
kauptíð. Það var þegar fénu var
slátrað og þegar farið var með
ullina. Forðinn til ársins var að
mestu fluttur heim að haustinu."
Fæðið var heilnæmt
og hollt
- Þá komum við að mataræðinu
í gamla daga, hvernig var það?
„Það var að ég held afskaplega
heilnæmt og hollt. Það var þessi
heimatilbúni matur. Þótt ég muni
ekki eftir því frá Heiði eða Geita-
skaröi þá var sagt að engu hefði
verið hent af skepnunum þegar
þeim var slátrað. Það var bók-
staflega allt saman nýtt. Kjöt-
skrokkar voru höggnir niöur og
geymdir saltaðir eða reyktir því
þá var þessu ekki stungiö niður í
frystikistuna og maturinn var sem
sagt saltur, súr eða reyktur að
ógleymdum mjólkurmatnum.
Síst má gleyma sjávarfanginu,
hákarlinum, harðfisknum og
ryklingnum en það voru sannir
hátíðarréttir. Pabbi fór árvisst
ferð til Skagastrandar síðla
haasts til að sækja þangað sjávar-
fang á tvo vagna. Það voru nokk-
ur hundruð kíló af fiski sem var
að mestum hluta hertur. Saltan
fisk fékk hann norðan úr Hofsósi
og lýsi í vöruskiptum fyrir tólg.
Það var ekki farið í verslun til að
kaupa nokkurn skapaðan hlut
sem hægt var að gera heima.
Brauðin og kökurnar var allt
bakað heima og annað eftir því.
Ef fólk yrði sjálfu sér nægt
mundi vanta í ríkiskassann
Nútíma lifnaðarhættir bjóða ekki
upp á neina svona hagsýni og það
verður að borga skatt af þessu
öllu saman til ríkisins svo hægt sé
að velta rekstri þess áfram. Ef
fólk tæki upp á því að verða
sjálfu sér nægt eins og áður var
þá mundi fjárlagagatið stækka
illa."
- Á hvaða árum byggðir þú
upp útihúsin á Geitaskarði?
„Ég byggði 1946 hluta af fjós-
hlöðu, byggði hana í áföngum við
hlöðu sem var þarna fyrir og súg-
þurrkun kom þá fljótlega, að vísu
með lausum blásara sem tengdur
var inn á stokk. Fjósið yfir 32 kýr
byggði ég 1950 og fjárhúsin byrj-
aði ég að byggja ári síðar og
bygging þeirra stóð yfir í ein þrjú
eða fjögur ár. Sú bygging var eig-
inlega tómstundaiðja sem að
mestu var unnin með heimafengnu
vinnuafli þótt ég fengi vinnuflokk
til að vinna þar vissa áfanga. Þá
var ég búinn að eignast steypu-
hrærivél og þetta var að mestu
stcypt með henni.
Rafstöð fyrir heimilið komst í
gagnið 1945. Það var Brynjólfur
bróðir sem smíðaði túrbínuna og
setti stöðina upp. Þetta var 12
kílóvatta stöð sem er í gangi enn
í dag þrátt fyrir tilkomu ríkisraf-
magnsins."
íbúðarhúsið var byggt
af stórhug 1910
- íbúðarhúsið á Geitaskarði er
merkileg bygging, hvenær var
það byggt?
„Það var byggt í búskapartíð
afa og ömmu árið 1910. Ég hygg
að öllum sem sjá það hús og vita
aldur þess þyki að bygging þess
hafi verið unnin af mikilli fram-
sýni og stórhug. Það sjást ekki í
nýjum húsum í dag jafn breiðir
gangar og stigar eins og þar eru
auk þess sem þetta var stórhýsi á
þeitra tíma mælikvarða og er það
raunar enn í dag. Húsið er byggt
á þremur hæðum og tveir kjallar-
ar undir því.
Verulegar endurbætur voru
gerðar á húsinu fyrir allmörgum
árum. Þær kostuðu þá allt að því
jafn mikið og nýtt einbýlishús á
þeim tíma.
Ég veit ekki sönnur á því og hef
aldrei fengið það staðfest og
reyndar ekki leitað eftir heimild-
unt þar um en ég hef heyrt aö það
liafi kostaö 10 þús. gullkrónur,
hafi verið sauðagull og ekki tek-
iö lán.
Það væri efni í langa blaðagrein
ef það ætti að segja frá afa mín-
um Árna á Geitaskarði það var
merkilcgur karl. Einn af þessum
sérstæðu persónum sem ekki
fyrirfinnast lengur."
- Eru ekki þessir sérkennilegu
persónuleikar fólks að hverfa og
allir að steypast í sama mót?
„Jú vissulega er það að gerast
og það er ekki allt af hinu góða.
Þaö er sjálfsagt þróun í rétta átt
að nú hafa allir jafnari möguleika
þó að manni finnist stundum að
þetta sé full mikið út flatt.
Krökkunum er stungiö neðan í
kerfið og síðan ganga þau á færi-
bandi upp úr því og verða aískap-
lega svipuó öll."
Það fór hrifningarhrollur
um hrygginn á manni
- Manst þú eftir sérstæðum
mönnum frá fyrri tíð?
„Ég man eftir einum manni
sem var mjög sérstæður, Jóhann-
esi Halldórssyni á Móbergi.
Hann var án efa sérkennilegasti
persónuleiki senr þarna var á
mínum unglingsárum og það
voru ótrúlega margir fletir á þess-
um manni. Hann var ábyggilega
manna fyrstur til að fara með list
ur.i landið. Hann bar hana á bak-
inu í líki grammófóns, inn á vcl
flest heimili. Það var enginn smá
viðburður þegar maður hafði
grun um að Jói á Móbergi eins og
hann var kallaður væri kominn af
stað með grammófóninn, til-
hlökkunin var svo gífurleg. Hann
var með kassa fullan af hljóm-
plötum af ýmsurn gcrðum.
Grammófónninn var úr tré og
bæði stór og þungur og með
gríðarlega stórri trekt. Allt þetta
get ég ekki giskað á hvað var
þungt en það var ábyggilega full-
kominn burður fyrir einn mann.
Með þetta á bakinu fór hann um
héraðið. Það fór hrifningarhroll-
ur um hrygginn á manni þegar
maður hlustaði á þessa listamenn
á heimsmælikvarða sem hann var
með í kassanum sínum eins og
Carusu, og fleiri. Auk íslensku
söngvaranna Maríu Markan og
annarra slíkra. Svo voru þarna
hergöngulög og þar kenndi
margra grasa.
Það var ekki nóg að Jói léti
mann hafa listina í svo stórum
skömmtum heldur var hann slík
hermikráka að það var alveg
merkilegt. Hann hermdi jafnt
eftir dýrum og fólki. Hann gerði
það svo vel að mér er minnisstætt
eitt atvik heima á Geitaskarði.
Það var verið að borða í eldhús-
inu þegar heyrðust þessi óskap-
legu læti eins og hundur væri að
drepa kött. Það var rokið upp til
handa og fóta til að bjarga kettin-
um undan hundinum en þetta
reyndist þá vera Jói á Móbergi í
báðum hlutverkunum, hann var
snillingur þessi karl og í mínu
minni einhver merkilegasti mað-
ur sem hér hefur verið vegna þess
hvað maður heillaðist af því sem
hann hafði meðferðis og af hæfi-
leikum hans. Auk þess var hann
alveg völundur í höndunum,
mikill ágætis smiður.
Það voru þarna á hverjum bæ
sérstæðir persónuleikar. Frímann
í Hvammi var alveg kempukarl
og það mundu ntargir snúa sér
við á götunum í dag ef hann sæist
þar. Mér finnst að hann hafi setið
fyrir hjá þeim sem gerði Snorra-
styttuna í Reykholti, mér datt
það strax í hug þegar ég sá þessa
styttu. Svo var Agnar á Fremsta-
gili, Guðmundur í Engihlíð,
Gestur á Björnólfsstöðum og
Breiðavaðsbræöur. Allt voru
þetta menn með sín sérstæðu ein-
kenni og þorðu að eiga þau og
reyndu ekkert til að falla inn í
fjöldann."
Ég hafði minnimáttar-
kennd gagnvart
föður mínum sem bónda
- Hvenær bregður þú búi á
Geitaskarði?
„Það eru ekki skörp mörk á
því. Ágúst sonur minn kom inn í
búskapinn 1975 en ég var viðloða
þarna fram til 1980 meira og
minna. Þótt ég gerði mér ekki
grcin fyrir því þá var heilsan aö
fjara út og ég fann að þetta var *
orðiö mér erfiðara en mér fannst
eðlilegt. Ég var orðinn ósáttur
við sjálfan mig á vissan hátt því
ég hafði alltaf lagt áherslu á að
rcyna að búa vel. Það er rétt að
ég segi þér það að ég hafði
nokkra minnimáttarkennd gagn-
v;irt föður mínum sem bónda og
var smeykur við að ég mundi
ekki geta fetað í sporin hans og
sennilega hefur það verið hvati
sem herti verulcga á mér. Sér-
stakur var sá þáttur í fari pabba
sem bónda hvaö hann var snyrti-
legur í öllu sem hann gerði og
leið aldrei sóðaskap eða drasl. Ég
var svolítið hræddur um að mér
yrði erfitt að lifa upp í það en nú
tel ég að mér hafi lukkast það
nokkuð. Vitaskuld var það hon-
um að þakka kallinum með sínu
fordæmi að eitthvað varð úr mér
sem bónda og auðvitað er maður
þakklátur fyrir, en erfitt var
það."
Það er erfitt að kippa sér
upp úr plógfarinu
- Hvernig notar bóndi sem flytur
í þéttbýli tíma sinn?
„Það er best að segja það eins
og er að það er erfitt að kippa sér
upp úr plógfarinu og koma sér
upp öðru nýju. Það er því verra
sem kringumstæðurnar sem valda
því að horfiö er frá því gamla eru
andsnúnari. Það sem varð til þess
að ég hætti búskapnum að fullu
var að ég réði ekki lengur við
þetta vegna heilsubrests sem ég
gerði mér í fyrstu ekki grein fyrir.
Ég var ekki orðinn það gamall þá
að ég kenndi ellinni um en hækk-
andi aldur samfara þeim veik-
leika sem var að búa um sig í mér
orsakaði að ég gekk ekki heill til
skógar. Sameiginlega varð þetta
mér þvingun sem neyddi mig til
að söðla um.
Mér líkar vel hér á Blönduósi
og hefði ekki farið hingað og sest
hér að ef svo hefði ekki veriö.
Mér líkar vel við fólkið og stað-
inn og mér lukkaðist að ná í störf
sem hentuðu mér á skrifstofu
kaupfélagsins en ég er ekki eins
viss um að ég hafi hentað starf-
inu. Ég var aldrei sérlega góöur
skrifstofumaður en samt held ég
að mér hafi tekist að vinna fyrir
kaupinu mínu. Kaupfélagið var
mjög góður vinnustaður.
Aftur á móti féll mér betur við
hitt starfið mitt. Ég fór fljótlega
að vinna í Héraðsbókasafninu og
mér hefur alltaf komið vel saman
við bækur. Ég hætti alveg hjá
kaupfélaginu á þessu ári en áður
en ég hætti þar fór ég að sjá um
bókasafn Héraðshælisins og það
er Ijómandi gott að hafa samfélag
við bækurnar og í gegnum þær
samfélag við fólk." fh