Dagur - 10.12.1988, Qupperneq 16
16 - DAGUR - 10. desember 1988
poppsíðan
Umsjón: Valur Sæmundsson.
Framhaldssaga um Phil Collins:
Byrjaði að tromma
fímm ára gamall
- ásamt ýmsu ööru
frumstætt trommusett og litli guttinn
trommaði og trommaði. Sifellt
ágerðist þetta og Phil kynntist pilti
sem átti alvörusett og var alveg til í
að selja nokkra parta. Phil litli lét
hann hafa leikfangalestina sína í
staðinn. Og enn trommaði hann og
trommaði. Það mætti alveg skjóta
því inn í að á þessum tíma var
eiginleg popptónlist ekki til. Bítlarnir
voru ekki komnir fram og stráksi
hafði því bara Joe Brown og
Shadows á fóninum og trommaði
með. Síðan keypti hann sér sjálfur
alvörusett þegar hann var tólf ára.
Hann trommaði svo í stofunni
heima hjá sér með plötuspilarann í
botni. Það er óhætt að segja að
þessi mikla ástundun piltsins hafi
skilað sér, þar sem Collins er álitinn
einn albesti trommari heims og hef-
ur verið það undanfarin 10-15 ár.
Hins vegar er hann fús til að játa að
hann vildi gjarnan hafa orðið
atvinnumaður í knattspyrnu en að
eigin sögn var hann mjög öflugur
knattspyrnumaður á sínum yngri
árum og var mjög mikilvægur hlekk-
ur í skólaliðinu. Hins vegar átti hann
það til að spila eins og byrjandi
þegar kom að stórum kappleikjum.
En tónlistargáfur hans náðu yfir-
höndinni, enda eru þær eigi litlar. Til
marks um það má nefna atvik sem
gerðist þegar Phil var fimm ára. Þá
var hann að taka þátt í hæfileika-
keppni fyrir börn, einni af mörgurh
sem hann tók þátt í, og átti stór
hljómsveit að leika undir. Hljóm-
sveitin hóf leikinn en Phil bað hana
að doka örlítið og benti á að sveitin
væri að spila í rangri tóntegund.
Allir urðu steini lostnir en strákl-
ingurinn reyndist hafa rétt fyrir sér
og vann auðvitað keppnina.
Það eru eflaust margir sem hafa
verið að uppgötva mann nokkurn að
nafni Phil Collins núna nýverið.
Hann hefur notið geysilegra vin-
sælda hér á landi undanfarið með
lögin Groovy kind of love og Two
hearts úr kvikmyndinni um lestar-
ræningjann Buster Edwards. Coll-
ins leikur einmitt aðalhlutverkið í
þeirri mynd sem nú er farið að sýna
í Reykjavík. En tónlistarferill Collins
er langur og mig langar dálítið til að
renna yfir lífshlaup kappans í tveim
eða þrem greinum, svona til fróð-
leiks.
Philip Collins fæddist í nágrenni
Lundúna, fimm mínútum yfir mið-
nætti þann 30. janúar 1951. Fyrir þá
sem hafa áhuga er hann vatnsberi.
En annars skiptir það ekki máli.
Hans fyrsta og stærsta áhugamál
hefur alla tíð snúist um trommur.
Hann eignaðist fyrstu trommuna
sína þegar hann var fimm ára en
foreldrum hans var lítt um
barsmíðarnar gefið og földu
trommuna niðri í kjallara. En stráksi
var heltekinn af trommubakteríunni
og það endaði með því að frændur
hans tveir smíðuðu handa honum
Svona var Phil þegar þessi mynd var tekin. Árið er 1979.
Tónleikar með Bubba
og Megasi um helgina
- auk þess sem þeir árita plötuna sína í dag
Ein af athyglisverðustu íslensku
hljómplötunum sem út koma fyrir
þessi jól, er að mínu mati plata
tveggja ágætismanna, Ásbjarnar og
Magnúsar. Þetta er dálítið hliðar-
spor á tónlistarferli þeirra beggja,
þar eð platan er léttdjössuð/blúsuð
og greinilegt að þeir eru að gera
þetta ánægjunnar vegna. Fyrir vikið
er platan þægilega afslöppuð og
mjög notaleg áheyrnar. En pistill
þessi er ekki hugsaður sem umfjöll-
un um plötuna, ég ætla að geyma
það til betri tíma.
Tilefnið er hins vegar það að
umræddir Ásbjörn og Magnús eru
nú staddir á Akureyri og ætla að
halda tónleika. Það má kannski
skjóta því hérna inn í að þeir eru
sennilega þekktari undir nöfnunum
Bubbi og Megas. En þetta er útúr-
dúr. Tónleikastaður er Sjallinn og
stund er annars vegar f kvöld kl.
22.00 og hins vegar á morgun kl.
15.00 og er þá öllum heimill
aðgangur en í kvöld fá yngri en 18
ára ekki inngöngu í Sjallann fremur
en vanalega.
Brýn ástæða er til að hvetja tónlist-
arunnendur til að koma á staðinn og
berja kappana augum, en eins og
þeir vita sem séð hafa, eru Bubbi og
Megas alveg ómótstæðilegir þegar
þeir kyrja saman. Og auðvitað
skemmir það ekki fyrir að eiga í
vændum að heyra ferskt efni af nýju
plötunni. Þið hafið þetta bak við eyr-
að.
En þeir félagar ætla ekki að láta
þetta duga. í dag ætla þeir nefni-
lega að sitja í Hljómdeild KEA milli
kl. 16 og 18 og árita nýju plötuna
(eða hljómdiskinn eða snælduna,
allt eftir smekk). Það væri nú ekki
amalegt að fá áritaða plötu með
þeim poppjöfrum í jólagjöf, eða
hvað? Hljómdeildin er í göngugöt-
unni, þið vitið. Bubbi og Megas í
dag milli fjögur og sex.
Þetta er Phil hins vegar eins og hann leit út þegar þessi mynd var tekin. 6 ára gamall snáði.
Þá er nokkurn veginn búið að tína
það bitastæðasta úr æsku Phil Coll-
ins en þó er mikilvægur þáttur eftir.
Það er nefnilega leiklistarferillinn.
Hann verður tekinn fyrir í næstu
viku, ásamt því að haldið verður
áfram að rekja lífshlaup hans.
Sæl að sinni.
Vinsældalistar
Hljóðbylgjan
- vikuna 3/12-9/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (4) Harder I try Brother Beyond
2. (4.) (3) Wild wild west Escape Club
3. (2.) (5) Kokomo Beach Boys
4. (10.) (2) Two hearts Phil Collins
5. (3.) (5) I'm gonna be Proclaimers
6. (?•) (3) Nothing can divide us Jason Donovan
7. (14.) (2) Never trust a stranger Kim Wilde
8. (N) (1) Þig bara þig .... Sálin hans Jóns
9. (5.) (5) Groovy kind of love Phil Collins
10. (N) (1) Hólmfríður Júliusdóttir Nýdönsk
Rás 2
- vikuna 2/12-9/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (6) l’m gonna be (500 miles) ... The Prodaimers
2. (2.) (6) Handle with care Traveling Wilburys
3. (3.) (11) De smukke unge mennesker Kim Larsen
4. (9.) (5) Það er svo undarlegt með unga menn ... Bítlavinafélagið
5. (4.) (10) Where did I go wrong UB-40
6. (6.) (7) Wild, wild west Escape Club
7. (8.) (5) Two hearts
8. (5.) (6) The harder I try Brother Beyond
9. (10.) (4) Ógeðslega ríkur Eggert Þorleifsson
10. (7.) (13) Groovy kind of love Phil Collins
íslenski listinn
- vikuna 3/12-9/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (7) l’m gonna be 500 miles Prodaimers
2. (3.) (4) Two hearts Phil Collins
3. (2.) (11) Kokomo Beach Boys
4. (4.) (6) Wild, wild west Escape Club
5. (7.) (5) Það er svo undarlegt Bítlavinafélagið
6. (5.) (6) Girl You know its true Millie Vanillie
7. (17.) (3) Gott Eyjólfur Kristjánsson
8. (16.) (2) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
9. (6.) 0) Desiree U2
10. (8.) (12) Where did I go wrong UB-40
Óvinsældalisti
Ólundar
-vikuna 3/12-9/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1-) (4) Kókómó
2. (5.) (3) Hardeætræ
3. (13.) (2) Görl jú nó its trú
4. J5) (5) Ver didd æ gó vrong
5. (37.) (2) Never tröst ei streindsjer Kim Wilde
6. (17.) (3) Noþþing kan dívæd öss Djeison Dónóvan
7. (8.) (3) Meö vottorð í leikfimi Bjartmar
8. (15.) (3) Handel viþ ker Traveling Vilbörís
9. (22.) (2) Jú ar öe von A-ha
10. (N) (D Tú harts Fil Kollins