Dagur - 01.03.1989, Side 9
1. mars 1989-DAGUR-9
Kiwanismenn á Siglufirði sýndu það og sönnuðu á afhendingu verðlauna vegna kjörs íþróttamanns Siglufjarðar að
þeir eru og hafa alltaf verið miklir söngmenn, þrátt fyrir að fræg tilraun þeirra í plötuútgáfu fyrir nokkrum árum hafi
ekki skilað miklum arði. Mynd: Ás
Verkalýðshreyfingin beiti samtaka-
mætti til að koma á lífskjarajöfmm
„Almennur fundur í Verka-
Iýðsfélagi Húsavíkur, haldinn
1. febrúar 1989, telur að nauð-
synlegt sé fyrir íslenska verka-
Iýðshreyfingu, að ganga sam-
einuð til þeirra kjaraátaka sem
framundan eru. I þeim kjara-
samningum ber að leggja meg-
ináherslu á eftirfarandi: 1.
Tryggingu fullrar atvinnu. 2.
Lífskjarajöfnun. 3. Hjöðnun
verðbólgu. 4. Aðhald í verð-
lagsmálum.“ Þannig hljóðar
upphaf ályktunar sem sam-
þykkt var samhljóða á fundin-
um.
Síðan segir: „Undanfarin ár
hefur verkalýðshreyfingin gert
kjarasamninga við ríkisvald og
atvinnurekendur, sem hafa haft
að markmiði hjöðnun verðbólgu,
sem leiddi af sér að þær kaup-
hækkanir sem samið væri um
skiluðu launþegum raunveruleg-
um kjarabótum. Árangri af þess-
ari stefnu hefur verið glatað
vegna ábyrgðarleysis ríkisvalds
og atvinnurekenda í efnahags- og
fjárfestingarmálum.
Verkalýðshreyfingin mátti
þola ógildingu þeirra hógværu
kjarasamninga sem hún gerði á
síðasta ári með þeim rökstuðn-
ingi stjórnvalda að þau væru að
undirbúa aðgerðir til styrktar
atvinnulífi, sem síðar skiluðu sér
til launafólks. Ekkert af þessu
hefur staðist og sífellt sígur á
ógæfuhlið í kaupmætti launa.
í átökum stjórnvalda við
banka og fjárfestingarsjóði um
hjöðnum fjármagnskostnaðar
hafa þau beðið ósigur. Þessir
aðilar hafa haldið uppi hávaxta-
stefnu með þeim rökstuðningi að
þessar vaxtaákvarðanir væru
afleiðing af vaxandi verðbólgu en
ekki orsök. Ekki er hægt að sætta
sig við þessi rök þegar aðeins
fjármagnsskuldbindingar eru
verðtryggðar, en launafólk og
atvinnuvegir verða bótalaust að
taka afleiðingum þessarar stefnu.
Fulltrúar einstakra greina
atvinnulífsins hafa uppi kröfur
um stórfellda gengislækkun og
nokkrir stjórnmálamenn hafa
uppi sömu kröfur í ábyrgðarlausu
valdatafli sínu, en hafa undanfar-
in ár beðið hvern ósigurinn á fæt-
ur öðrum við stjórn efnahags-
mála.
Verkalýðshreyfingin hefur
undanfarin ár sýnt ótrúlegt lang-
lundargeð í kaupgjaldsmálum í
þágu þeirra markmiða, að reynt
yrði að ná skynsamlegri stjórn á
efnahagslífi okkar. Hún hefur
boðið upp á samstarf og lagt fram
tillögur um leiðir til að vinna sig
út úr þeim erfiðleikum sem við er
að glíma. Ekki hefur verið farið
að tillögum hennar eða óskað
samráðs við liana, nema til að
sýnast, og sífellt stefnir í meira
óefni í efnahags- og atvinnumál-
um.
Verkalýðshreyfingin getur
ekki þolað að vandamál efna-
hags- og atvinnulífs verði enn
einu sinni leyst á kostnað
almenns launafólks eins og hinir
úrræðalausu gengisfellingarpost-
ular hafa uppi kröfu um. Hún
verður að krefjast þess að hafa
eitthvað um það að segja hvaða
leiðir verði farnar við úrlausn
þessara mála. Verði ekki sam-
komulag við atvinnurekendur og
ríkisvald um að halda þannig á
málum, ber verkalýðshreyfing-
unni að beita öllum þunga sínum
og samtakamætti til að koma á
þeirri lífskjarajöfnun, sem nauð-
synleg er.“ IM
Atvinnutækifæri
fyrir samhenta fjölskyldu
Til leigu eða sölu verslun með kvöldsölu á
Akureyri. c 'ós >
Versluninni fylgir allt er til þarf.
Áhugasamir leggi nafn, heimilisfang og símanúmer
inn á afgreiðslu Dags fyrir föstudaginn 3. mars n.k.
merkt „Verslun".
Dalvík - Blaðberar
Vantar blaðbera í syðri hluta bæjarins.
Upplýsingar í síma 96-61462.
Tónmenntakennara
vantar að Lundarskóla til vors.
Um er að ræða 15 til 20 vikustundir.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
96-24888.
Sendi öllum sem heiðruðu mig á 75 ára
afmæli mínu, þann 8. febrúar sl.
bestu kveðjur og þakklæti.
Lifið heil.
ÞÓRA STEINDÓRSDÓTTIR.
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
AskriftarlSr 96-24222
Hannyrðaverslun Kristbjargar og Bertu flutti í nýtt húsnæði í Kaupangi við
Mýrarveg. Verslunin er til húsa á sama stað og Bókabúðin Huld var. Fyrir
utan hannyrðavörur verður boðið upp á efni í íslenska þjóðbúninginn fyrir
konur sem hafa áhuga á honum, skírnarkjóla o.fl. vörur sem ekki hefur ver-
ið þægilegt að nálgast á Akureyri til þessa í verslunum, svo sem ýmislegt
fyrir fermingarstúlkur.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA ríkissjóðs
Í2.FLB1985
Hinn 10. mars 1989 er sjöundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 7 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir:
_________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.124,30_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. september 1988 til 10. mars 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 2346 hinn 1. mars 1989.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr.7 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars 1989.
Reykjavík, febrúar 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS