Dagur - 01.03.1989, Page 12
TEKJUBREF• KJARABRÉF
rFÍARFESriNGARFÉLÁGÍÐ
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
Ráðhustorgi 3, Akureyri
Fræðsluráð Norðurlandsumdæmis eystra:
Fræðslustjóraumsóknir
f\TÍr næsta firnd
Fræðsluráð Norðurlandsum-
dæmis eystra hefur ekki komið
saman síðan í desember í fyrra.
Þráinn Þórisson, formaður
ráðsins, er með umsóknirnar
fímm um stöðu fræðslustjóra
umdæmisins og segir hann að
fundur verði haldinn við fyrsta
tækifæri.
í samtali við Þráinn Þórisson
kom fram að tvær tilraunir hafa
verið gerðar til að halda fund í
fræðsluráði á þessu ári en í bæði
skiptin hefur orðið að hætta við
vegna veðurs og ófærðar. Þegar
hægt verður að halda fund í ráð-
inu verður fjallað um umsóknirn-
ar fimm og tekin afstaða til
þeirra. Það er síðan menntamála-
ráðherra sem sker endanlega úr
um hver umsækjendanna fær
starf fræðslustjóra.
Áþekk vinnuregla gildir um
skipan í stöðu fræðslustjóra og
aðrar opinberar stöður innan
skólakerfisins. Ráðherra er ekki
endilega bundinn af ákvörðun
meirihluta fræðsluráðs en hann
leitar álits þess á umsækjendum.
Ef ráðherra sættir sig ekki við
neinn umsækjanda getur hann
auglýst starfið á ný.
Sigurður Hallmarsson, settur
fræðslustjóri, hefur að sögn Þrá-
ins gengist inn á að gegna starfinu
þar til nýr fræðslustjóri verður
ráðinn, hvort sem sá tekur við
embætti í vor, sumar eða næsta
haust. í fræðsluráði sitja sjö full-
trúar. EHB
Vel heppnuð fjáröílun
í Gagganum:
100 þúsund
fyrir snúsnú
Krakkarnir í níunda bekk í
Gagnfræðaskóla Akureyrar
stóðu í ströngu um helgina, en
þá fór fram maraþonsnúsnú á
sal skólans. Tilgangur snúsnús-
ins var að safna fé vegna skóla-
ferðalags sem fara á í vor.
„Þetta var mjög gaman, en
óneitanlega voru sumir orðnir
dálítið þreyttir í hnjánum," sagði
Karen Malmquist um snúsnúið.
Krakkarnir höfðu erindi sem erf-
iðií en um 100.000 krónur
söfnuðust. Snúsnúið stóð yfir í 28
tíma samfleytt, en það hófst kl.
16.00 á föstudaginn og stóð til kl.
20.00 á laugardagskvöld.
Hjúkrunarfræðingur skólans
leit til með krökkunum, nuddaði
auma vöðva og sá um að enginn
ofkeyrði sig á hoppinu. Ljós-
myndari Dags, KK kom við í
Gagnfræðaskólanum og tók þá
meðfylgjandi mynd. mþþ
Lögreglan á Akureyri:
miskunnarlaust stöðva öku-
menn ef við grunum þá um
ölvunarakstur,“ sagði Ólafur
Asgeirsson aðstoðaryfírlög-
regluþjónn í gær.
Aðgerðir lögreglunnar ná ekki
aðeins til dagsins í dag, því héðan
í frá geta ökumenn átt von á að
lögreglan sé á höttum eftir
drukknum ökumönnum alla daga
vikunnar, en áður beindist
athygli þeirra mest að þessari hlið
um helgar. „Við munum breyta
okkar venjum í samræmi við
þetta en að sjálfsögðu hvetjum
við ökumenn til þess að geyma
bíla sína heima ef neyta á bjórs
þvf akstur og áfengi fara ekki
saman,“ sagði Ólafur að lokum.
VG
Lögreglan á Akureyri mun skima eftir drukknum ökumönnum alla daga vikunnar. Unnendur bjórsins ættu því að
skilja bílana eftir, ætli þeir á annað borð að kneyfa ölið. Akstur og áfengi fara nefnilega engan vegin saman.
Mynd: TLV
Verðstöðvun lýkur í dag:
Hertar aðgerðir
vegna bjórsins
- akstur og áfengi fara ekki saman
Lögreglan á Akureyri er þess
vel meðvituð að í dag hefst sala
áfengs öls í landinu og gerir sér
fyllilega grein fyrir því, að
ýmsir kunni að freistast til að
aka bifreiðum sínum eftir eina
kollu eða svo. „Við munum
Kelduhverfi:
Bæimir
tveir enn
vegasam-
bandslausir
Vegasambandslaust er enn við
tvo bæi í Kelduhverfi, Syðri-
Bakka og Þórseyri, og hefur
svo verið síðan 17. febrúar er
veg tók af skammt frá Keldu-
nesi, vegna klakastíflu í Jök-
ulsá á Fjöllum.
í gær hófust vegagerðarmenn
handa við viðgerð á veginum.
Ekki var ljóst hve marga daga
viðgerðin tæki en stórt skarð
myndaðist í veginn við Seyrur, er
hluti Jökulsár flæddi eftir þeim
farvegi. Á bæjunum tveimur hafa
alls fjórar manneskjur verið inni-
lokaðar vegna flóðanna í tæplega
hálfan mánuð. Fólkið lætur vel af
sér og æðrast ekki yfir vegasam-
bandsleysinu, en tvisvar hefur
verið vaðið yfir flóðið eftir mjólk
og brýnustu nauðsynjum sem
bændur úr sveitinni hafa flutt á
árbakkann. IM
Hið glögga auga verðlags-
eftirlitsmanna lokast þó ei
- búið að skrá niður verð 250 vörutegunda í 15 verslunum á Akureyri
Verðstöðvun lýkur í dag.
„Þetta er búið að standa einn
meðgöngutíma og mér þætti
við hæfí að flagga í heiia
stöng,“ sagði Níels Halldórs-
son hjá Verðlagsstofnun á
Akureyri. Níels vildi engu spá
um hvað kann að gerast nú
þegar verðstöðvun er lokið og
sagði húsbændur sína ekki
hafa lagt línurnar um hvað
gera ætti I framtíðinni.
Starfsmenn Verðlagsstofnunar
hafa síðustu daga skráð niður
verð á 250 vörutegundum í 15
verslunum á Akureyri og sagði
Níels að hugmyndin væri að
fylgjast náið með verðlagi á þess-
um vörutegundum. „Ef verð-
breytingar verða umfram það
sem eðlilegt getur talist grípum
við eflaust í taumana og vil ég
eindregið hvetja fólk til að vera í
sambandi við skrifstofuna og láta
okkur vita um verðbreytingar.
Okkar starfsemi byggist á góðri
samvinnu við neytendur.“
Er Níels var beðinn að leggja
mat á árangur verðstöðvunarinn-
ar, sagði hann að vel hefði tekist
til framan af, en uppúr ára-
mótunum hefðu hlutirnir farið úr
böndunum. „Það hafa komið til
þrjár mislitlar gengisbreytingar
sem orsakað hafa breytingar á
vöruverði. Tollalög sem gildi
tóku um áramót hafa líka haft sitt
að segja. Fólk hefur því á stund-
um orðið önugt er það hringir til
að segja okkur frá verðhækkun-
um og fær þær útskýringar að
vörurnar megi hækka. Þá gætir
vonleysis í röddinni."
Níels sagði að mikið hefði ver-
ið hringt til þeirra á Verðlags-
stofnun eða að jafnaði um 10
hringingar á dag og allt upp í 20.
Eftir áramótin dró verulega úr og
sagði Níels hringingar fólks með
ábendingar um hækkun vöru-
verðs vera þetta ein til tvær á
dag. Hvatti hann fólk mjög til að
vera á verði og láta Verðlags-
stofnun vita yrði vart við verð-
hækkanir. mþþ