Dagur - 06.07.1989, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 6. júlí 1989 - DAGUR - 11
Borgarbíó
JGKEMtms GEN'iðlETEiilJÖlI)
TVIBURAR,
ADSKIINAÐUR ER LIFSHÆTTULEGUR fi
DAVID CRÖNENBERO'S Sf
Nýlega héldu þessar þrjár ungu stúlkur hlutaveltu á Akureyri, til styrktar
„Hungruðum heimi“. Stúlkurnar söfnuðu alls 1.470 krónum sem þær
afhentu á ritstjórn Dags. Þær heita Sigrún Björk Bjarkadóttir, Silja Dögg
Baldursdóttir og Heiðdís Dröfn Bjarkadóttir. Mynd: kl
Kl. 11.10
Tequila Sunrise
Fimmtudagur 6. júlí
Kl. 9.00 og 11.00
Tvíburar
Kl. 9.10
Tungl yfir Parador
Þessar þrjár ungu stúlkur, héldu nýlega hlutaveltu til styrktar lömuðum og
fötluöum. Alls söfnuðu þær 1.805 krónum, sem þær afhentu á ritstjórn
Dags. Þær heita, f.v. Sigrún Kristbjörg Tryggvadóttir, Freydís Anna Ingv-
arsdóttir og Eva Ösp Þórðardóttir. Mynd: kl
Tvíburarnir Beverly og Elliot Mantle hafa
verið ákaflega samrýmdir frá barnæsku.
Þeir fengu snemma áhuga á innri gerö
kvenlíkamans og reka saman einkalækna-
stofu í Toronto þar sem þeir sérhæfa sig í
því að lækna ófrjósemi kvenna Þeir búa
saman og deila öllu hvor með öðrum,
einnig kvenfólki. Veraldarvani Elliot nær i
konurnar, en feimni Beverly þykist síðan
vera bróðir sinn, án þess að þær verði þess
nokkurntíman varar.
Aðalhlutverk:
Jaremy Irons, Genviave Bujold, Heidi Von
Palleska.
Hóladómkirkja:
Kristján Bjömsson vígður
í embætti á sunnudaginn
Sunnudaginn 9. júlí verður
prestvígsla í Hóladómkirkju.
Séra Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup vígir Kristján
Björnsson cand. theol til Ból-
staðahlíðarprestakalls í Húna-
vatnsprófastsdæmi.
Vígsluvottar verða dr. Einar
Sigurbjörnsson prófessor, sem
lýsir vígslu, séra Guðni Þór
Ólafsson prófastur, séra Hjálmar
Jónsson prófastur og séra Ágúst
Sigurðsson en hann er föður-
bróðir vígsluþegans.
Séra Svavar A. Jónsson þjónar
fyrir altari, ásamt vígslubiskupi.
Kirkjukór Sauðárkróks syngur
við messuna, undir stjórn Rögn-
valdar Valbergssonar organista.
Kristján Björnsson verður
þriðji núlifandi presturinn sem
vígist í Hóladómkirkju. Hinireru
séra Ágúst Sigurðsson, sem vígð-
ur var af töður sínum, séra Sig-
urði Stefánssyni vígslubiskupi,
árið 1965 og séra Svavar A.
Jónsson, sem vígður var af
núverandi vígslubiskupi árið
1986.
Messan hefst kl. 14.00 og eru
allir velkomnir.
Tímaritið Þroskahjálp:
Þriðja tölublað
er komíð út
Tímaritið Þroskahjálp 3. tölu-
blað 1989 er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
í þessu tölublaði segir móðir á
Höfn í Hornafirði frá reynslu
sinni og fjölskyldunnar í viðtali
sem ber yfirskriftina Hér viljum
vid búa. Seinni hluti greinar
Beritar Johnsen, Skóli fyrir alla -
hvað er nú það? birtist í heftinu
en fyrri hlutinn kom í síðasta
tölublaði. Þá er greint frá ýmsum
sumartilboðum fyrir fatlaða,
spjallað við starfsfólk Vinnuskóla
Reykjavíkur og Eygló Ebba
Hreinsdóttir segir frá skólagöngu
sinni í grein er nefnist Skrítið en
gaman.
Rannveig Traustadóttir skrifar
frá Bandaríkjunum um stuðning
og þjónustu við fjölskyldur fatl-
aðra og nefna má þýdda grein, /
friði með eigin hugsanir - eða?
sem er fötlunarvitund.
Tímaritið Þroskahjálp kemur
út sex sinnum á ári. Það er sent
áskrifendum og fæst í lausasölu í
bókabúðum, á blaðsölustöðum
og á skrifstofu samtakanna að
Nóatúni 17.
Áskriftarsíminn er: 91-29901.
Útgáfan hefur ákvcðið að bjóða nýjum áskriícmlum
cina bók ókcypis um lcið og þcir gcrast áskrilcndur.
I’cir gcta valið úr eftirtöldum bókum.
Spennusöguflokkurinn:
Mofðið í Taucrngöngunum. Þeir dauðu drckka ckki
Síðasta bónin. Líkið stjórnar lciknum.
Astarsóguflokkurinn:
Hrakfallabálkur, Ómótstæðilcgur karlmaður
Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinscssan.
SNORRAHÚS
Pósthólf 58 • 602 Akureyri • ræ 96-24222
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRODDUR INGVAR JÓHANNSSON,
Eikarlundi 22, Akureyri,
sem lést 2. júlí sl. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 7. júlí kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans
er bent á líknarstofnanir.
Margrét Magnúsdóttir,
Ingvar Þóroddsson, Sigríður Vilhjáimsdóttir,
Eydís Ingvarsdóttir,
Svandís Þóroddsdóttir, Gretar Örlygsson,
Birkir Örn Gretarsson,
Berghildur Þóroddsdóttir, Vignir Már Þormóðsson.
GUÐLAUGUR KETILSSON,
frá Mið-Samtúni,
verður jarðsunginn frá Draflastaðakirkju, laugardaginn 8. júlí
kl. 14.00.
Ingi Steinar Guðlaugsson
og vandamenn.