Dagur - 01.09.1989, Side 10
fþróttir
10 - DAGUR - Föstudagur 1. september 1989
myndosögur dogs
\
ÁRLANP
Þetta er ekki sanngjarnt! Þið
þvingið mig til að hafa samvisku-
bit yfir því að vera farin að vinna
.. eins og ég sé að svíkja ykkur j
eða eitthvað!;
Þú fékkst nýja vinnu líka Teddi
... þú verður lika að heiman
allan daginn ... en þrátt fyrir það
er það mér að kenna að Daddi
skuli þurfa að koma heim úr
skólanum í tóma íbúð!
HERSIR
Landleiöis og sjóleiðis halda Bjargvættirnir með hjálp Williams Wo áfram á fullum
Leikurinn er búinn
herra Browning!
BJARGVÆTTIRNIR
Þui-- r
ómöqulegt!... I
# Kemur titill-
inn norður?
t>að er kátt á hjalla í herbúð-
um KA-manna um þessar
mundir. Liðið trónir nú eitt á
toppi 1. deildar karla í knatt-
spyrnu þegar einungis þrjár
umferðir eru eftir af Islands-
mótinu og KA á léttari leiki
eftir, a.m.k. á pappírnum, en
helstu andstæðingarnir, FH,
Fram og KR. En ekki er sop-
ið kálið þótt í ausuna sé
komið og KA-menn taka á
móti neðsta liði 1. deildar,
Fylki, á Akureyrarvelli á
morgun laugardag kl. 14.00.
Það er skemmst frá því að
segja að KA tapaði fyrir
Fylki 1:0 í fyrri umferðinni
og Fylkir gerði sér lítið fyrir
og skellti Valsmönnum
mjög örugglega 3:1 í síð-
ustu umferð. A þessu sést
að Fylkir er sýnd veiði en
ekki gefin. Það veltur því
mikið á því að knattspyrnu-
áhugamenn mæti á leikinn
til þess að leggja sitt af
mörkum til að íslands-
meistaratitillinn komi norð-
ur um heiðar í fyrsta skipti.
# TBA eina tap-
lausa liðið
á íslandi
Fyrst verið er að minnast á
knattspyrnu er vert að geta
þess að spútnikliðið TBA
frá Akureyri leikur síðari
leik sinn í úrslitakeppninni
um sæti i 3. deild við Leikni
frá Fáskrúðsfirði á sunnu-
daginn kl. 14.00 á Akureyr-
arliðið. TBA hefur ekki tap-
að leik á íslandsmóti síðan
liðið var stofnað og er TBA
eina félagið á íslandi sem
getur státað af slíkum
árangri.
# Þórsarar
á leið heim
Það hefur heyrst að nokkrir
knattspyrnumenn úr Þór
sem nú leika með öðrum
félögum séu á leið heim
aftur að loknu þessu keppn-
istímabili. Við seljum þetta
ekki dýrara en við keyptum
það og veltur það nú sjálf-
sagt mikið á því hvort liðinu
tekst að halda sér uppi í 1.
deild eður ei. Þórsarar verða
því að hleypa í sig fítons-
kraftí í þessum síðustu
umferðum því framtíðin er
mjög björt hjá félaginu með
alla þessa ungu og efnilegu
leikmenn innanborðs.
Knattspyrna/2. flokkur:
Þór lagði KA
- 2:1 og lenti i 3. sæti
- KA bjargaði sér frá falli
Þór sigraði KA 2:1 í A-riðli
Islandsmótsins í knattspyrnu.
Leikurinn fór fram á KA-veOin-
um en þessi sigur dugði þó
Þórsurum einungis í þriðja
sætið á íslandsmótinu. Þrátt
fyrir tapið sluppu KA-menn
við fall því bæði ÍBK og KR
voru með lélegra markahlutfall
og falla því niður í B-riðiI.
íslandsmeistarar í 2. flokki
1989 urðu Valsmenn eftir að
ÍA hafði leitt mótið framan af
sumri.
Ef við snúum okkur aftur að
leik KA og Þórs þá voru Þórsarar
mun ákveðnari í öllum sóknarlot-
um sínum í fyrri hálfleik. Oft
Axel V'atnsdal skoraði sigurmark
Þórs gegn KA í 2. flokki.
sluppu varnarmenn KA með
skrekkinn eða þá að Ægir Dags-
son markvörður KA varði vel.
Hann átti þþ ekki möguleika á
því að verja skot Árna Þórs
Árnasonar á 12. mínútu eftir að
knötturinn hafði hrokkið af ein-
um varnarmanni KA og í netið.
Þrátt fyrir nokkur ágæt mark-
tækifæri tókst Þórsurum ekki að
auka við forskot sitt.
Síðari hálfleikur var mun jafn-
ari og það var markaskorarinn
mikli, Björn Pálmason, sem jafn-
aði leikinn fyrir KA með ágætu
marki um miðjan hálfleikinn.
Varnarmenn Þórs gleymdu hon-
um eitt andartak og hann var
fljótur að nýta sér það með því
að skora jöfnunarmarkið.
Reyndar hafði Björn átt stangar-
skot nokkru áður en þá vildi
knötturinn ekki í Þórsmarkið.
En KA var ekki lengi yfir því
Axel Vatnsdal skoraði sigurmark
Þórs nokkrum mínútum síðar
eftir að varnarmenn KA höfðu
gleymt honum eitt andartak.
Þrátt fyrir þokkaleg marktæki-
færi á báða bóga reyndust mörkin
ekki vera fleiri og Þórsarar hrós-
uðu því enn einu sinni sigri yfir
KA í þessum aldursflokki.
Valsmenn urðu efstir með 22
stig, ÍA var með 21 stig, Þór með
19 stig en önnur félög nokkuð
færri stig í A-riðli 2. flokks.
Blak:
Fei er mættur
- Evrópuleikurinn leggst vel í hann
Hou Xiao Fei, hinn kínverski
þjálfari blakliðs KA, er nú
mættur aftur til Iandsins eftir
að hafa dvalið í heimalandi
sínu í sumar. Hann var þreytt-
ur eftir rúmlega 35 tíma ferða-
lag frá Kína en var samt hress í
samtali við Dag.
„Það er ágætt að vera kominn
aftur til Akureyrar og Evrópu-
íþróttir
helgariimar
Knattspyrna:
Föstudagur:
Úrslit í 3. flokki karla á K.A og Þórs-
vclli.
Laugardagur:
1. deild . . . KA-Fylkir á Akureyrar-
velli kl. 14.00.
2. deilcl . . . Völsungur-Leiftur á Húsa-
vík kl. 14.00.
2. deild . . . Tindastóll-ÍR á Sauðár-
króki kl. 14.00.
2. dcild . . . Einherji-Víðir á Vopna-
firði kl. 14.00.
3. deild . . . Dalvik-Reynir á Dalvík kl.
14.00.
3. deild . . . Magni-Valur Rf. á Greni-
vík kl. 14.00.
3. deild . . . Þróttur N.-KS á Neskaup-
stað kl. 14.00.
3. deild . . . Huginn-Austri á Seyðis-
firði kl. 14.00.
Úrslit í 3, t'lokki karla á KA og Þórs-
velli.
Sunnudagur:
Úrslit í 4. deild . . . TBA-Leiknir á
Akureyrarvelli kl. 14.00.
Úrslitaleikur í 3. flokki karla.
Golf:
Kóka-kóla golfmótið að Jaðri, laugar-
dag og sunnudag.
leikurinn og önnur verkefni
vetrarins leggjast vel í mig,“
sagði hinn geðþekki þjálfari KA.
Fei við komuna í fyrradag.
Lokastaðan
1. deild kvenna
Valur 12 10-2-0 43: 6 32
ÍA 12 8-2-2 34: 7 26
KR 12 7-3-2 29: 8 24
UBK 12 5-2-5 17:23 17
KA 12 1-4-7 12:32 7
Þór 12 1-3-8 11:40 6
Stjarnan 12 1-2-9 10:39 5
3. deild
KS 15 14-1-0 57: 3 43
Þróttur N. 15 10-2-3 44:17 32
Dalvík 15 8-3-4 39:18 27
Reynir Á. 15 8-2-5 36:24 26
Huginn 15 7-2-6 33:31 23
Magni 14 4-3-7 23:29 15
Kormákur 16 3-3-10 i 30:63 12
Valur Rf. 15 2-2-11 11:50 8
Austri 14 1-2-11 10:48 5