Alþýðublaðið - 16.08.1921, Side 4

Alþýðublaðið - 16.08.1921, Side 4
4 ALÞ7ÐUBLAÐIÐ Ritstjód Halldár FrlðjönsaoB. Árgangurfcm 5 kr. Gjaldd. r. júní. Bezt ritaður allra norðleazkra blaða. ¥erkagnenn ka&spið ykkar biðð! Gerist áskrifendur á jfjffillsls ^fþýðttbL VerzlunÍE „Yon” aelur Capstan cigarettur í heildsöiu og heíir fengið þetta marg þekta og góða rúgmjöl til að gera slátrið bragðgott. Munið það, að „Von“ hefir ávalt miklar og góðar .vörur fyrirliggjandi. Komið því og reynið viðskiftin. Vinsamlegast. Gnnnar S. Sigurðss. Alþbl. kostar í kr. á mánuði. Það ínli er stuin ððfrast. Kafíibætir okkar er sá óíiýrasti og foeacti á öII'ol landinu — viðurkendur af fjölda húsmæðra hér i bænum. Hálft kíló kostar 1,10. Seldur í Gamla bankauum, Laugaveg 22 A og Bræðraborgarstíg 1. iar kartöf 1 ur komu með Botníu í Kaupfélögin, Símar 1026 og 728. _AIJ>ýOo.t>iaaiö er ódýrasta, fjölbreyttasta og bezta dagblað landsins. Kaup- ið það og lesið, þá getið þið aldrei án þess verið. Lltill útidyFalykill hefir tapast. Skilist á afgreiðslu Alþbl. Ritstjóri og áfoyrgðarraaðcsr: Ólafur Friðrikssoa, Prentsmiðjan Gutenberg. 1 Carit Etlar: Astin vaknar. ‘ með ströndinni, hlaut að sjást frá skipinu. Líklega leit- uðu þeir að heppilegasta staðnum til þess að hleypa skipinu á land, þegar öll önnur von um björgun brást Bátarnir voru losaðir, áður en þeim hafði verið hleypt niður barst skipið inn í brimgarðinn. Heljarstór hol- skefla bar það hreykin og tíguleg á kolli sér, svo skrapp hún undan því. Það brakaði og brast í öllu skipinu við heljarhöggið sem það fekk er það steytti á grunni, enn þá einu sinni hófst það upp eins og.til síðustu átaka, þegar það hné aftur niður brast reiðinn öðrum megin. Siglutrén riðuðu og steyptust útbyrðis, um leið flæktu þau bátana í neti at köðlum, seglum og ráarbrotum. Stýrið lyptist úr lykkjunni og brot úr því flutu á öld- unum. Eftir síðasta áfallið virtist skrokkurinn standa fastur á rifinu, grunnsjóarnir og möstrin sem skullu á skipshliðina, brutu aftur á móti báða bátana. Nú skall hver sjórinn á fætur öðrum yfir þilfarið og virtist mundu rífa 'alt lauslegt með sér. Nú var stundin komin sem fiskimennirnir sáu fram á, þeir skriðu undan bátum sínum, þar sem þeir höfðu verið þögul vitni alls þess sem fram fór. Tveimur bát- um var ýtt á flot og brutust þeir áíram til norðurhorns rifsins, þangað sem flakið var. Á meðan höfðu fallbyssu- bátarnir snúið aftur inn 1 Langeyrarhöfn. Jatnskjótt og þeir komu inn á víkina fór Jakob TroIIe yfir í annan bátinn sem réri út að flakinu. Meðan fiskimennirnir lögðu að hlið fallbyssubátsins, stóð Pétur Bos hugsi litla stund. Þegar þeir ætluðu að hrinda frá, rétti hann upp hendurnar og hrópaði að þeir skyldu bíða, hann ætlaði að fara með. Annar báturinn hafði þegar komist út að rifinu, þár sem flakið lá á hliðinni með nokkuð af þilfarinu í sjó. Um leið og báturinn lagði að fyltist hann af hásetum. Tveir duttu í sjóinn, ráku upp neyðaróp og brutust um litla stund, ný holskefla skolaðist um staðinn. Þá var öllu Jokið. Pétur Bos horfði á úr bát Trolle. Þegar bylgjan skall saman yfir höfðum ólánsmannanna, nérí hann saman höndunum og hrópaði: „Þetta er ykkur mátulegt, syndaselirnir! Þið tókuð Önníi frá mér.“ „Skammastu þín!“ sagði Trolle. „Sá sem er staddur í háska, er ekki lengur óvinur manns." Pétur ansaði ekki. Hann lá á þóftunni með hönd undir kinn og hugsaðf um orð Jakobs. Þegar Trolle komst upp á flakið, sat gamall maður á þilfarinu, bundinn við annað siglubrotið. Fyrir framan hann lá ung stúlka með höfuðið í knjám hans. Hann vafði hana örmum. Hvert sinn sem alda reið yfir skipíð reyndi hann að verja hana, og hún hjúfraði sig fastar að honum. Sítt flaxandi hár féll niður um herðar henni, og ur stóru svörtu augunum skein ógnar ótti. Varirnar titruðu. Bæði þögðu. Öldungurinn horfði til himins með ósegjanlegum vonleysissvip, auðsveipni sem beið úrslit- anna, hvort sem þau sýndu sig sem glötun eða björg- un; það var eitthvað í hinum þögla sársauka þeirra, sem gagntók Jakob. Hann braust í gegnum vatnið á þilfarinu og skreið að mastrinu. „Eg verð víst að fylgja honum", sagði Pétur Bos, — „uh!“ Þegar Jakob komst að siglutrénu, lagði hann hendina á öxl öldungsins. „Komdu!“ hrópaði hann. Æfintýriö eftir Jack London, er nú fullprentað á ágæt- an pappir með mynd höfundarins. Þetta er ein- hver allra slcemtilegasta saga Londons, sem er meðal frægustu rithöfunda slðari ára. — Bókin er yfir 200 slður og kastar að eins 4 kr. send frítt hvert á land sem er gegn póstkröfu. Bók- hlöðuverð er 6 kr. Kaupendur Alþýðublaðsins fá söguna fyrir kr. 3,50 Sendið pantanir sem fyrst til Alpýdubladsins, Reykjavík. Ath. Skrifið á pöntunina hjá hverjum þið kaupið Alþýðublaðið, ef þið kaupið það. /

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.