Dagur - 03.02.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 03.02.1990, Blaðsíða 3
fréttir Laugardagur 3. febrúar 1990 - DAGUR - 3 r- Heilsugæslustöðin á Sauðárkróki: Saninmgar við hjúkrunar- fræðinga tókust - höfðu hótað útgöngu 1. febrúar Gengið var f'rá samningum við hjúkrunarfræðinga á Heilsu- gæslustöðinni á Sauðárkróki nú í vikunni. Þeir hjúkrunar- fræðingar sem þar unnu höfðu hótað að ganga út um síðustu mánaðamót ef ekki hefði sam- ist fyrir þann tíma. Megin inntak nýja samningsins er að mismunur á launum milli hjúkrunarfræðinga á heilsugæslu og sjúkrahúsi var leiðréttur. Vegna mannfæðar voru hjúkrun- arfræðingar á sjúkrahúsi með laun aðstoðardeildarstjóra en sama starfsstétt á heilsugæslunni með laun almennra hjúkrunar- fræðinga. Þessi mismunur var sem sagt leiðrcttur og eru hjúkr- unarfræðingar á þessum tveimur stofnunum með svipuð laun nú. Stöðugildin sem um ræðir á heilsugæslunni eru 3,4. Þá hætti Elísabet Kemp störfum sem hjúkrunarforstjóri heilsugæslu- stöðvarinnar og Sigurbjörg Páls- dóttir var ráðin í staðinn. kj Háskólinn á Akureyri: SÍF gefiir sjávarútvegs- deildinni eina milljón Stjórn Sölusambands íslcnskra fiskframleiðenda ákvað á fundi sínum nýlega að gefa nýstofn- aðri sjávarútvegsdeild Háskól- ans á Akureyri eina milljón króna. Fénu skal verja til rann- sókna tengdum saltfiskvinnslu á íslandi í samráði við SIF. Jón Þórðarson forstöðumaður sjávarútvegsdeildar segir að þessi gjöf muni koma að góðum not- urn. „Við erum afskaplega ánægð- ir með þessa höfðinglegu gjöf og getum nú horft til þess að ráðast í einhverjar rannsóknir sem við höfum verið að gæla við. Það er óendanlega margt sem liægt væri að gera í stærri eða minni verk- efnum. Deildin er hins vegar varla farin af stað og mannskapur rétt að koma til starfa þannig að við munum flýta okkur hægt í þessum efnum." Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri SÍF segir að gjöfin lýsi þeim áhuga stjórnar SIF að byggja upp öflug tengsl milli atvinnugreinarinnar og Háskól- ans. „Við gcrum okkur vonir um að með samstarfi við þessa sér- hæfðu deild innan Háskólans megi efla þessi tengsl." Bakkafjörður: Engin veiðarfæri duga á þann gula „Það hefur ekki verið nokkurt fiskerí enda ótíð og djöful- skapur til sjávarins,“ segir Birgir Ingvarsson, skipstjóri og einn eigenda Sjafnar II á Bakkafirði. Sjöfnin II er stærsti bátur þeirra Bakkfirðinga, 63 tonn að stærð, og keyptur fyrir skömmu frá Grenivík. Birgir segir að bát- urinn hafi verið á línuveiðum en nýverið skipt yfir á net. Þær veið- ar hafa ekkert gengið betur að sögn Birgis. Sjöfninn II leggur upp afla hjá Útveri hf., en þar hefur að vonum vcrið lítið um hráefni til vinnslu síðustu daga. Bakkfirðingar láta eymd til sjávarins lítið á sig fá og huga að undirbúningi stærstu hátíðar ársins, þorrablótsins, sem verður eftir viku. Birgir segir að þar mcgi búast við mikilli gleöi og fjölmenni, því slæðingur af Vopnfirðingum og Þórshafnar- búum koma jafnan og blóta með heimamönnum. óþh Nýja sundlaugin við Glerárskóla: Nú styttist í að laugin verði opnuð fyrir almenning - verður þá auglýst vel og rækilega Hin nýja og glæsilega sundlaug við Glerárskóla á Akureyri, var formlega vígð þann 21. janúar sl. Skólasund hefur far- ið fram í lauginni að undan- förnu en almenningi hefur ekki enn gefist kostur á að bregða sér í laugina, ef undanskilinn er sjálfur vígsludagurinn. Samúel Jóhannsson forstöðu- maður íþróttamannvirkja við Glerárskóla, sagðist í samtali við Dag, ekki vita nákvæmjega hve- nær laugin yrði opnuð fyrir almenning en vonaðist þó til að það yrði nú í febrúar. „Það er alla vega ljóst að þegar það gerist, verður það auglýst vel og rækilega og ætti ekki að fara framhjá nokkrum manni." Enn er eftir ýmis lokafrágang- ur við laugina og þessa dagana er verið að ganga frá stigum og handriðum og lyftu fyrir fatlaða. Þorparar og aðrir bæjarbúar verða því að bíða enn um sinn eftir því að geta stungið sér í nýju laugina en vonandi rætist spá forstöðumannsins og laugin verði opnuð fyrir almenning í þessum mánuði. -KK ÞAU NOTA BOÐKERFI PÓSTS & SÍMA N er líha 't samband nilli þeirro þegor þou eru ehhi somon Oft er bagalegt að geta ekki náð sambandi við fólk sem þarf að vera mikið á ferðinni innan húss og úti við. Nú er sá vandi úr sögunni. Boðkerfi Pósts & síma gerir fólki kleift að senda boð firá venjulegum síma til léttra boðtækja sem viðtakandi hefur í vasa sínum. Hann er í kallfæri hvar sem hann er. v I / Boðtæki taka ýmist við tónboðum eða talnaboðum. Tækið sem Halldór smiður hefur í vasanum gefur frá sér fjögur mismunandi tónmerki. Hann og Anna kona hans ' I ' hafa komið sér saman um að ákveðið tónmerki tákni póstcog sTma Halldór eigi að hringja heim. Anna hringir einfaldlega ... í svæðisnúmer boðkerfisins og fimm stafa boðkallsnúmer og velur í framhaldi af því þá tölu sem kallar fram það hljóðmerki sem þau hafa valið í þessu skyni. Fyrirtæki geta komist hjá kostnaðarsamri farsímavæðingu með því að nota boðkerfið. Það getur líka virkað sem fullkominn símsvari og hægt er að senda boð til allt að 10 boðtækja í einu. Boðkerfið er einnig til mikilla þæginda fyrir einstaklinga og eykur öryggi þeirra í fjölmörgum tilvikum. Merkjasendingar þess ná um allt Stór-Reykjavíkursvæðið og sendar hafa verið settir upp á Akureyri, Selfossi, Akranesi og Keflavík. Stofngjald fyrir boðþjónustu miðað við tónboðtæki er kr. 5000.- og ársfjórðungsgjald kr. 800.-. Stofhgjald fyrir þjónustu talnaboðtækja er kr. 6000,- og ársfjórðungsgjald er kr. 1000.-. Á verðið leggst 24,5% ð 1 PÓSTUR OG SÍMI Við spörutn þér sporin Boðtæki eru seld í öllum söludeildum Pósts & síma og hjá nokkrum öðrum innflytjendum notendabúnaðar. Eru þau einnig nefnd símboðar. Fáðu frekari upplýsingar um boðkerfið hjá söludeildum Pósts & síma Ármúla 27 (fyrirtækjaþjónusta), sími 680580, Kirkjustræti, sími 26165 og Kringlunni, sími 689199 og á Póst - og símstöðvum þar sem sendar hafa verið settir upp.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.