Dagur - 03.02.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 03.02.1990, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Laugardagur 3. febrúar 1990 Laugardagur 3. febrúar 1990 - DAGUR - 9 Bogi Pétursson er gjarnan kenndur við drengjaheimilið Ástjörn í Kelduhverfi, enda hefur hann unnið þar 43 sumur samfleytt. Um síðustu áramót var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að æskulýðsmálum. Við ætlum að spjalla við Boga um starf hans með ungmennum og einnig langan feril hjá Skógerð Sambandsins, eða Iðunn sem var og hét. Bogi er nú gangavörður í Gagnfræðaskóla Akureyrar og vinnur því með börnum jafnt sumar sem vetur. Færri vita hins vegar að hann hefur um árabil heimsótt fanga í fangelsinu á Akureyri og boðið þeim aðstoð sína. „Já, undanfarin átta ár hef ég heimsótt langtímafanga sem dvelja hér. Upphafið má rekja til þess er ég heimsótti vin minn sem lenti í fangelsinu en upp frá því fór ég að velta því fyrir mér hvað ég gæti gert. Mér fannst að með því að lesa með þessum mönnum guðs orð og spjalla við þá gæti ég kannski hjálpað þeim. Pann tíma sem ég hef ekki verið á Ástjörn hef ég reynt að heimsækja þá reglulega og haft hálftíma stund með þeim þar sem ég les og tala út frá guðs orði. Jafnframt er þetta heimsókn, mannleg sam- skipti, en þessir menn eru oft komnir út tengslum við sitt fólk. Oft eru þetta menn úr Reykjavík sem fá sjaldan heimsóknir. Ekki vilja allir ræða við mig, en þetta er algjörlega frjálst. Þeir koma sem vilja,“ sagði Bogi um þennan þátt í lífsstarfi sínu. „Mér var keyrt á öskuhauganau Bogi Pétursson er fæddur á Eski- firði, náriar tiltekið Mjóeyri, 3. febrúar 1925. Hann dvaldi þar fram til 14 ára aldurs er hann flutti til Akureyrar og hóf þegar störf hjá Skógerð Sambands ís- lenskra samvinnufélaga á Glerár- eyrum. Par átti hann eftir að vinna í rúm 49 ár. Foreldrar Boga voru Pétur B. Jónsson, skósmiður, og Sigurbjörg Péturs- dóttir. „Ég flutti í ágúst 1939 rétt áður en stríðið skall á og byrjaði hjá Iðunni 18. sama mánaðar. Það þótti mikið happ á þeim árum að fá vinnu hjá SÍS, enda var Sam- bandið talið mjög öruggur vinnu- veitandi. Ég vann við það að smíða skó í nærri hálfa öld en þegar Sambandið fór út úr rekstr- inum og ég fékk uppsagnarbréf þá fannst mér kominn tími til að hætta í þessu fagi. En mér fannst alla tíð mjög gaman að smíða skó, annars hefði ég varla verið svona lengi hjá Iðunni." - Hvernig tilfinning var það að fá uppsagnarbréf eftir svo langan starfsferil? „Þetta var erfitt. Ég skrifaði Sambandinu bréf út af því að þeir skyldu segja upp manni eftir hálfrar aldar starf án þess að bjóða honum annað starf. Á viss- an hátt var mér keyrt á ösku- haugana og í bréfi mínu til stjórnar SÍS gagnrýndi ég það að lífeyrissjóður skyldi ekki vera í stakk búinn til að koma manni áfram. Ég var orðinn 63ja ára gamall og ekki hlaupið að því að fá vinnu. Stjórn SÍS lofaði að athuga málið og láta mig vita, en þeir virðast hafa haft annað að gera og kannski eru þeir enn að synda yfir laugina og það er spurning hvort þeir ná bakkanum eða ekki.“ „Þeir voru svo vitlausir að ráða mig“ Bogi byrjaði á Skógerðinni þegar hún var að stíga sín fyrstu skref og var reyndar ekki nema tveggja ára. Hann þekkti hana því næst- um frá byrjun til enda, meðan hún var í eigu SÍS en eftir upp- sagnirnar stofnuðu eirstaklingar Strikið, eins og kunnugt er. „Mér fanpst sorgkgt hvað Sambandið var lengi að byggja verksmiðjuna upp. Þegar loksins var farið að athuga málið voru vélarnar sem við vorum að hjakka á orðnar 40 ára gamlar. Sérfræðingar frá Englandi komu í heimsókn og þeir hlógu bara að vélunum.“ - En þú fékkst síðan annað starf. „Já, ég sótti um starf hjá Gagn- fræðaskólanum um sumarið þeg- ar ég var orðinn atvinnulaus og þeir voru svo vitlausir að ráða mig sem gangavörð! Mér hefur liðið ákaflega vel innan um börn- in og kennarana. Allir hafa verið mér mjög góðir og ég hef aldrei þurft að kvarta. Þarna eru 450 börn og ég er eini gangavörður- inn, þannig að það er í ýmsu að snúast, en þetta hefur gengið vel.“ - Víkjum að æskulýðsstarfi þínu, hver er sagan á bak við það? „Þegar ég kom til Akureyrar lagði ég stund á íþróttir. Ég var í Þór þar til ég varð 20 ára, og æfði bæði frjálsar íþróttir og hand- bolta. Á þeim árum var þetta hálfgerður slagsmálahandbolti og þótti ég liðtækur í honum!" „Tók virkan þátt í starfínu hjá Þór“ - Hvaða greinar frjálsra íþrótta lagðir þú helst stund á? „Ég æfði hlaup, allt upp í 10 kílómetra. Ég keppti í 10 km, 5 km og 3 þúsund metra hlaupi. Oft æfði ég hlaup allan veturinn úti og ég fann hvað ég eignaðist mikið þrek með því að þjáifa lík- amann á þennan hátt. Maður eignaðist marga kunn- ingja í íþróttunum og ég tók virk- an þátt í öllu starfi hjá Þór. Ég hef alltaf verið félagsvera og það má segja að þetta hafi verið góð- ur undirbúningur fyrir það starf sem hófst hjá mér þegar ég var tvítugur. Þá hófst sá þáttur sem hefur fylgt mér síðan." - Segðu mér frá því.'Fékkstu kannski skilaboð eða ábendingu frá æðri máttarvöldum? „Já, ég varð fyrir lífsreynslu sem varð þess valdandi að ég tók stökkbreytingu. Ég fann Jesúm Krist sem frelsara minn og varð að velja hvort ég ætti að halda áfram í íþróttum eða starfa við kristileg málefni. Þetta gerðist ekki vegna áróð- urs frá neinum, þetta gerðist að- eins milli mín og guðs. Á þessum árum fannst mér ég ekki þurfa að hugsa mikið um guð. Ég var hraustur íþróttamaður og mér þótti það nóg. En einn daginn komu upp erfiðleikar og þá gátu íþróttirnar ekki hjálpað.“ „Hann lifír og það er kraftaverk“ Bogi greinir nú frá þessum ör- lagaríka atburði: „Tveggja ára bróðir minn Iá fyrir dauðanum. Mér þótti óskaplega vænt um hann og gat ekki hugsað mér að hann myndi deyja. Læknirinn sagði að það væri lítil von. Þá fór ég að hugsa að kannski ætti ég að biðja, sem ég og gerði, en fann strax að ég kunni lítið til þess. Tíminn leið og ég hélt áfram að biðja, dag eftir dag. í vinnunni og heima lyfti ég huga mínum til guðs. Éinn daginn þegar ég kom heim sá ég að það lá óvanalega vel á móður minni og hún sagði: Nú líður honum betur. Hún bað mig að sækja lækninn, Jón Geirsson, sem bjó í næsta húsi. Hann kom og skoðaði drenginn og komst svo að orði: Þessi drengur hefði átt að vera dáinn fyrir fjórum dögum. Hann lifir og það er kraftaverk. Ég get ekki útskýrt þetta á annan hátt, sagði Jón. Guð hafði þá heyrt bæn mína. Ég var þakklátur og glaður. All- an tímann sem ég hafði verið að biðja fannst mér ég vera syndari fyrir guði, óverðugur. Um kvöld- ið gerði ég nokkuð sem ég hafði aldrei gert fyrr. Ég kraup við rúmið mitt og sagði þessi orð við guð af heilu hjarta: Ég þakka þér guð að þú hefur verið mér synd- - segir Bogi á Astjörn, sem var sœmdur riddarakrossi fyrir störf að œskulýðsmálum ugum líknsamur. Þá var eins og himinninn opnaðist fyrir mér og mér fannst ég sjá Jesúm Krist. Það var eins og hann hefði tekið synd mína burtu og mér leið dá- samlega vel. Það var friður í hjarta mínu og ég var fullviss um að Jesús væri frelsarinn og sú hugsun hefur ekki farið frá mér síðan.“ Vinnumaður hjá Sæmundi og Gook - Hvernig áhrif hafði frelsun þín á fjölskyldu og vini? „Mér fannst eðlilegt að segja pabba og mömmu frá því að ég hefði fundið Jesúm Krist, en þeg- ar mér var hugsað til strákanna í handboltanum þá taldi ég víst að þeir myndu gera grín að mér. Ég ákvað þá að jafna mig aðeins á þessu og athuga hvort það myndi ekki hverfa frá mér. Því fór fjarri. Það olli mér hugarangri að ég skyldi ekki segja frá þessari lífsreynslu. Ég æfði handboltann áfram og það leið heilt ár þar til ég sagði frá þessu. Sæmundur gamli á Sjónarhæð, sem hafði kennt mér ensku, bauð mér á samkomu um áramótin 1945-46. Ég greip tækifærið því mig lang- aði til að kynnast öðrum sem höfðu eignast þá lífsreynslu sem ég átti í hjarta mínu. Um leið hófst ganga mín með öðrum trú- uðum, sérstaklega Sæmundi. Ég sótti samkomur á Sjónarhæð og þarna um veturinn sagði Sæmundur mér að þeir væru að fara að starfa á Ástjörn. Ég ætlaði að skreppa austur með honum, fór fyrst í eina viku til að vinna við braggann sem þar var. Síðan komu 5 drengir og voru í viku. Ég hafði hálfan mán- uð í sumarfrí og eyddi honum á Ástjörn. Áður fyrr hafði ég geng- ið á fjöll og ferðast mikið en þarna hófst óslitin sumardvöl mín á sama stað. Fyrstu 13 árin á Ástjörn vann ég sem vinnumaður hjá Sæmundi og Arthur Gook. Ég sótti vatn í fötur, kol og hjó eldivið og bar inn í braggann. Þá bar ég út skólpið og vann öll hugsanleg störf. Þetta var góður skóli.“ Bragginn hélt hvorki vatni né vindi___________ - Tókstu síðan við stjórn Ástjarnar eftir vinnumennskuna? „Sú staða kom upp að Sæ- mundur hætti en ég hafði aldrei hugsað mér að taka við starfinu. Gook afhenti Sjónarhæðarsöfn- uðinum heimilið þegar hann flutti til Englands, en Sæmundur og Gook höfðu byggt það upp á eigin kostnað. Söfnuðurinn hélt fund og stungið var upp á mönn- um í starfið. Ég var sá síðasti sem stungið var upp á og kannski hef- ur það hert mig. Það hefur alltaf verið mitt mottó að gera mitt besta og þótt það hafi ekki alltaf verið nógu gott þá hefur starfið gengið. Gamli bragginn á Ástjörn hélt hvorki vatni né vindi. Söfnuður- inn ákvað að ráðast í byggingu og var hafist handa við að safna pen- ingum. Þetta var lítill söfnuður og ekki mikið um peninga, en stefnan frá upphafi var sú að byggja aðeins fyrir það fé sem til var. Grindin í þessu stóra húsi, sem við köllum gamla húsið núna, stóð í tvö ár án þess að nokkuð miðaði. Það var baráttu- mál hjá mér að koma húsinu upp og eftir 17 ára baráttu með guðs hjálp og góðra manna þá tókst það. í gamla húsinu voru 55 strákar þegar flest var, fyrir utan starfsfólk. Það var vel staflað og marga nóttina svaf ég sjálfur á ganginum. Samt fann ég aldrei fyrir þrengslum, nema hvað í innisetum var orðið ansi plásslít- ið. Árið 1978 auglýsti Krafla hús til sölu. Við áttum marga góða vini, m.a. Jón Sólnes heitinn, sem þá var formaður Kröflu- nefndar. Ég gekk á fund hans og bar upp erindið. Einar Tjörvi kom líka við sögu. Eftir að við höfðum skoðað húsið þurfti að huga að peningamálum.“ Hús keypt frá Kröfluvirkjun Og Bogi heldur áfram: „Vinur minn Jógvan Purkhus hvatti mig til að koma með sér til Færeyja. Þar eigum við góða vini og þegar hugmyndin var kynnt voru þeir strax tilbúnir til að hjálpa okkur. Við skrifuðum undir samninga við Kröfluvirkj- un og það má segja að verkið hafi verið unnið í trú því enga áttum við peninga. Strax og auðið var grófum við fyrir húsinu. Við handgrófum fyrir þessu 30 metra langa húsi á einni helgi, fimm eða sex menn, og þykir vel að verki staðið. 46 dögum seinna var flutt inn í húsið. Allt í einu var orðið mjög rúmgott á Ástjörn. Okkur tókst að standa í skilum með hús- ið og það var ómetanlegt að fá iþað. Ég viðurkenni að það var mikið álag að koma því upp. Strákarnir á Ástjörn voru nú orðnir 70 og slíkur hefur vöxtur- inn verið að síðasta sumar voru þeir komnir upp í 95 í einu. Sem betur fer hefur starfið alltaf verið vinsælt og ekki hefur skort starfsfólk. Það eru um 20 full- orðnir í vinnu þegar hópurinn er svona stór. í fyrra byggðum við sérstakt þvottahús fyrir starfið og mun það vera einsdæmi í starfi íslenskra barnaheimila. Við keyptum gamlan skúr og drógum hann hingað, síðan komu 18 Fær- eyingar og gerðu þetta að falleg- asta húsi á staðnum á einni viku.“ „Get verið harður harðfískur“ - í hverju er starfsemin fólgin á Ástjörn? „Hér er um að ræða uppeldis- starfsemi sem hefur frá upphafi haft það að markmiði að kenna drengjunum guðs orð og góða siði. Fólk gæti haldið að það væri erfitt að ná til svo margra barna en mér finnst betra að tala við börn í dag heldur en fyrstu árin. Börn eru opnari og mér finnst ég ná betur til þeirra nú. Við skiptum drengjunum niður í aldurshópa í sambandi við kennslu úr biblíunni. Með smá- hópum er hægt að ná góðum árangri. Það er samverustund strax klukkan hálf níu á morgn- ana, fyrir morgunmat. Þá syngj- um við og biðjum. Mér finnst stórkostlegt að í dag eru dreng- irnir svo ófeimnir að flytja eigin bænir. Þeir hafa lært að biðja. Það er ákveðið skipulag á þessu. Morgunstundinni lýkur á bæn þeirra sjálfra og síðan er fánahylling. Sumir biðja kannski ekki mikið og eitt sinn greip ég dreng sem rölti beint að fánanum og sagði við hann: Ekki fórst þú neitt til að biðja. Drengurinn svaraði: Ég bað á leiðinni. Mér fannst þetta mjög gott. Drengur- inn hafði lært að við þurfum ekki að setja okkur í sérstakar stell- ingar til að biðja.“ - Hvernig gengur að hafa stjórn á öllum þessum fjörugu strákum? „Æðsta boðorðið er hlýðni. Allir drengirnir verða að læra strax að þeir eiga að hlýða mér og mér finnst stórkostlegt hvað þeir hlýða mér miðað við hvað ég get verið harður harðfiskur stund- um!“ „Guð aimáttugur sendi mér aukavinnu“ - En nú gefast margar frjálsar stundir til útiveru og leikja á Ás- tjörn. „Já, það sagði einmitt maður frá Færeyjum við mig að það væri stórkostlegt hvað börnin væru frjáls. Þau fengju að leika sér næstum allan daginn. Við höfum lagt áherslu á þetta, að gefa drengjunum lausan tauminn fyrir utan föstu samverustundirnar. Bátaflotinn er orðinn stór og drengirnir geta farið út á vatnið þegar þeim sýnist, eftir að hafa klætt sig í björgunarvesti. Fyrst voru hér bara árabátar en nú eru komnir hjólabátar, sem þykja algjört ævintýri, og einnig sex seglskútur. Drengirnir geta geng- ið út í skóginn eða gert hvað sem þeim þykir best. Þeir fá að vera þeir sjálfir. Mér finnst dásamlegt að þessi sveit skuli liafa opnað faðm sinn fyrir íslenskum drengj- um og það er ekki hægt að velja nógu fögur orð til Sigríðar í Ási sem leyfði okkur að hrinda þessu í framkvæmd." - Er það rétt að þú hafir unnið á Ástjörn í sjálfboðaliðastarfi í öll 43 árin? „Þegar Ástjörn byrjaði var aldrei minnst á kaup. Hins vegar er samþykkt fyrir því í Sjónar- hæðarsöfnuðinum að ef ég vil kaup þá fái ég það. Mig hefur aldrei langað til þess. í þau ár sem ég vann hjá Skógerðinni þurfti ég alltaf að taka aukafrí fyrir utan sumarfríið, sem ég lagði í starfið. Þann tíma var ég vitanlega án launa og auðvitað kom ég blankur heim. Guð al- máttugur sendi mér þá gjarnan aukavinnu fyrstu mánuðina eftir að ég kom heim og þetta bjargað- ist allt. Það verður enginn fátæk- ari þótt hann vinni kauplaust fyr- ir guð. Maður fær alltaf eitthvað í staðinn." „Gleymi ekki strákunum mínum“ - Á Ástjörn í 43 sumur sam- fleytt, aldrei frí. Hvernig hefur þetta komið við fjölskylduna? „Það gefur auga leið að þetta hlaut að koma niður á fjölskyld- unni. Sumarfríið var alltaf tekið út á Ástjörn, en það var mín gæfa að eiginkonan, Margrét Magnús- dóttir, og sonurinn Arthúr, studdu mig í starfinu. Það er kannski heppilegt að ég skyldi bara eignast einn son, en í stað- inn hafði ég hann býsna stóran,“ sagði Bogi og brosti, en sem kunnugt er þá er Arthúr „norður- hjaratröll" margfaldur afreks- maður í lyftingum. „Mín von er sú að ég hafi orðið einhverjum að gagni með því að vera á Ástjörn og kenna drengj- unum að þekkja guð. Ég kenni þeim að vara sig á hinum ýmsu blindskerjum lífsins. Það hafa margir komið til mín í gegnum árin og talað um ógleymanlega dvöl á Ástjörn og það gleður mig mjög. Ég vona að strákarnir læri af dvölinni og gleymi henni ekki. Sjálfur gleymi ég ekki strákunum mínum. Þó að ég komi heim frá Ástjörn á haustin þá heldur starf- ið áfram heima. Það er mikið hringt í sambandi við Ástjörn og pantað. Það er líka mikil vinna í sambandi við uppgjör og því er ekki að neita að starfið er að verða dýrt í rekstri. En Ástjörn stendur fyrir sínu og má þakka guði fyrir það. Þá má ekki gleyma öllum þeim hjálparhönd- um sem hafa lagt liönd á plóg, árangurinn er fyrst og fremst þeim að þakka. Ég er bara einn þátttakandinn." Tekið á móti viðurkenningu úr hendi forsetans Þegar sumardvalarheimilið Ástjörn var stofnað voru þar stúlkur og drengir til skiptis. Fljótlega minnkaði eftirspurn eft- ir plássi fyrir stúlkurnar og dreng- irnir tóku því öll völd og hafa haldið þeim síðan. Jafnréttiskröf- ur hafa orðið æ háværari á síð- ustu árum og í fyrrasumar voru tvær stúlkur teknar inn í tilrauna- skyni og telur Bogi að það hafi gefið góða raun og um áframhald verði líklega að ræða. Bogi kynnir guðs orð víðar en á Ástjörn. Hann talar á samkom- urn á Sjónarhæð og einnig í Ak- ureyrarkirkju og Glerárkirkju, sérstaklega í starfi sunnudaga- skólanna. „í fyrra var ég í þremur sunnu- dagaskólum að jafnaði og það er dálítið sérstakt að maður úr litl- um söfnuði skuli fá að tala í öðr- um söfnuðum, en ég lít svo á að við séum öll bræður og systur. Prestarnir hafa sýnt mér mikið traust og það má segja að æsku- lýðsstarf mitt hafi verið á býsna breiðum grundvelli og það hefur glatt mig mikið. Ég er ekki mikill predikari en ég hef reynt að túlka mitt mál á þann hátt sem ég tel að guð vilji að ég geri.“ - Og fyrir þessi störf hefur þú nú fengið fálkaorðu. „Já, ég fór suður og fékk orðu úr hendi forsetans. Ég mun aldrei gleyma því á hvern hátt Vigdís gerði þetta. Hún er sérstök per- sóna og ég held að ég verði aldrei svo gamall að ég muni gleyma því hversu látlaust og hlýlega hún afhenti mér þessa viðurkenningu og hve innilega hún sagði: Bogi minn, ég þakka þér svo innilega fyrir allt sem þú hefur gert fyrir íslenska æsku. Þessi orð höfðu meiri áhrif á mig en sjálf orðan. Ég vona að ég hafi verið verður þess að hljóta slíka viðurkenn- ingu, en ég get ekki dæmt um það sjálfur,“ sagði Bogi Pétursson að lokum. Ástirningar hyggja á frekari uppbyggingu og draumurinn er að. koma upp sundlaug. Bogi ætl- ar að taka ótrauður þátt í þeirri uppbyggingu og fylgja eftir því uppeldisstarfi sem hófst í gamla bragganum á fimmta áratugnum. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.