Dagur - 03.02.1990, Blaðsíða 16
Evrópukepnin 1 knattspyrnu:
Landsliðið í kröppum dansi
íslendingar leika gegn Albön-
um, Tékkum, Spánverjum og
Frökkum í 1. riöli í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu.
Dregið var í riðla í Stokkhólmi
í gær.
Það er Ijóst að róðurinn verður
mjög þungur hjá íslenska lands-
liðinu. Ekki þarf að fara mörgum
orðum um styrkieika Frakka og
Spánverja og bæði Tékkar og
Albanir hafa verið að sækja í sig
veðrið á síðustu misserum. En
ekkert lið er ósigrandi og það
verður gaman að sjá hvernig
landanum reiðir af í Evrópu-
keppninni.
Fulltrúar íslands við dráttinn í
gær voru þáverandi og núverandi
formaður KSÍ, Eggert Magnús-
son og Ellert B. Schram. óþh
330 börn á aldrinum 1-6 ára á biðlista
eftir dagvist á Akureyri:
HlutfaUslega færri
en oft áður
Sigríður Magnea Jóhannsdótt-
ir, dagvistarfulltrúi Akureyrar-
bæjar, segir að hlutfailslega
færri séu nú á biðlista eftir dag-
heimilisplássum en oft áður.
Sem stendur eru 330 börn á
aldrinum 1-6 ára á biðlista, en
Sigríður segir að hægt sé að
anna eftirspurn fyrir eldri
börnin.
dagheimilspláss verður að ræða
má gera ráð fyrir plássi fyrir tutt-
ugu börn," segir Sigríður.
Vöggustofa er ekki fyrir hendi
í bænum og hefur aldrei verið.
„Stefna félagsmálaráðs hefur ver-
ið að fullvinna með dagvistarrými
fyrir börn á aldrinum 2-6 ára áður
en farið væri út í vöggustofu-
formið eða fleiri skólagæslu-
forrn." óþh
Eyrnalangir og
annað fólk:
Góð aðsókn á
skólasýningar
Leikfélag Akureyrar er nú að
taka til sýninga leikverkið
Heill sé þér þorskur, eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Leikstjóri er Viðar Eggerts-
son, leikarar eru tíu og tveir
bljóðfæraleikarar annast und-
irleik á harmoniku og gítar.
Frumsýning verður 10. febrúar
næstkomandi.
Barna- og fjölskylduleikritið
Eyrnalangir og annað fólk verður
sýnt áfram fram yfir miðjan
febrúarmánuð. Aðsókn hefur
verió viðunandi, að sögn Sigurð-
ar Hróarssonar lcikhússtjóra, en
ekki hafði hann tölur yfir fjölda
áhorfenda. Þeir munu þó vera
komnir á þriðja þúsundið.
„Skólasýningar hafa gengið
nijög vel. Við höfum smalað úr
skólunum í nágrenninu og t.d.
hafa Fingcyingar verið mjög dug-
legir að koma og einnig nemend-
ur úr skólum í Eyjafirði. Hins
vegar höfðum við vonast til að
fleiri Akureyringar létu sjá sig og
þá ekki aðeins börnin því okkur
finnst þetta vera fjölskyldusýn-
ing," sagði Siguröur. SS
Árlax í Kelduhverfi:
Framkvæmdasjóður líklega með í tilboði í eignimar
„Ástandið með leikskólapláss
er nokkuð gott. Það er að vísu
lang lengstur biðlisti barna sem
fædd eru 198S, um 150 börn,"
segir Sigríður Magnea.
Ástandið er mjög mismunandi
eftir hverfum í bænum, að sögn
dagvistunarfulltrúa. Þannig er
ástandið hvað erfiðast í Glerár-
hverfi. Þó er þess vænst að bót
verði á með tilkomu nýs leikskóla
við Þverholt, sem stefnt er að því
að taka í notkun í ágúst á þessu
ári. Á fjárhagsáætlun í ár eru 21
milljón króna áætluð til uppbygg-
ingar þessa leikskóla og er hann
stærsta einstaka framkvæmd bæj-
arins í dagvistunarmálum á
árinu.
Sigríður Magnea segir að ckki
hafi verið ákveðið hversu mörg
börn verði tekin inn á leikskól-
ann við Þverholt. „Það hefur
ekki verið tekin endanleg
ákvörðun um barnafjölda eða
starfsemina innan dyra. Ef um
Búið er að dreifa fasteigna-
gjaidaseðlum á Akureyri.
Gjalddagar eru fimm, 1. hvers
mánaðar frá febrúar að telja
og eindagi mánuði síðar.
Heildarupphæð álagðra fast-
eignagjalda fyrir árið í ár nem-
ur 379 milljónum króna, og
hafa gjöldin hækkað um 25,7
prósent frá síðasta ári.
Fasteignagjöld skiptast í fjóra
flokka, fasteignaskatt, lóðaleigu,
vatnsskatt og holræsagjald. Við
breytingu á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga gengu í gildi
ákvæði um að samsvarandi álagn-
ingarstofn og gildir á Reykjavík-
ursvæðinu skuli notaður um allt
land.
Valgarður Baldvinsson, bæjar-
Byggðastofnun og Fiskveiða-
sjóður íslands hafa tekið
ákvörðun um að gera tilboð í
eignir þrotabús Árlax í Keldu-
hverfi. Síðdegis í gær átti að
„Aldrei þessu vant hefur verið
spurt óvenju mikið eftir vinnu
hér. Það virðist vera heldur lít-
ritari, segir að varðandi lækkun
fasteignaskatts til ellilífeyrisþega
samþykkti Bæjarstjórn Akur-
eyrar að veita þeim sem fæddust
árið 1920 eða fyrr allt að 15 þús-
und króna lækkun á fasteigna-
skatti af íbúð til eigin afnota.
Þessi lækkun hefur verið dregin
Loðnuskipin veiddu vel á mið
unum fyrir austan land í fyrri-
nótt. í gærmorgun tilkynntu 14
bátar um samtals 12500 tonna
afla eftir nóttina.
Aðeins voru tveir af þessum
bátum á leið norður fyrir land í
funda í stjórn Framkvæmda-
sjóðs Islands og ræða þar hvort
að sjóðurinn verður með í
þessu tilboði. Líklegt var talið
síðdegis í gær að afgreiðsla
ið að gera hjá ykkur í landi. Ég
man aldrei eftir svo mikilli
eftirspurn eftir vinnu. Frá ára-
frá á gjaldseðlum sem scndir hafa
verið til ellilffeyrisþega.
Öryrkjar rneð 75% örorku eða
meira munu fá sömu lækkun, en
hún er tekjubundin þannig aö
ekki er unnt að veita hana fyrr en
skattframtöl hafa verið yfirfarin.
EHB
gær. Jón Finnsson átti langa sigl-
ingu fyrir höndum því stefnan var
tekin á Siglufjörð með 1120 tonn.
Hinn báturinn var Húnaröst sem
landaði 750 tonnum á Þórshöfn.
JÓH
stjórnar sjóðsins yrði jákvæð.
„Mál Árlax gætu því farið að
skýrast hægt og bítandi. Ef Fram-
kvæmdasjóður verður með í
þessu tilboði þá á ég von á að til-
mótum hafa 3-5 hringt á dag og
spurt um vinnu,“ sagði Einar
G. Þorgeirsson hjá Fiskverkun
KEA í Grímsey.
Einar segir að yfirleitt hafi þurft
að auglýsa eftir fólki og oft hafi
gengið illa að fá fólk til starfa, en
annað sé upp á teningnum núna.
Hann segir að tlestir sem hringi
séu af yngri kynslóðinni og búi á
Akureyri.
Sem stendur vinna átta ein-
staklingar úr landi hjá Fiskverk-
un KEA í Grímsey. Þrátt fyrir
óvenju lítinn afla að undanförnu
hefur verið nóg að gera. Einar
segir að dauði tíminn sé notaður
til að meta saltfisk og sinna öðr-
um verkum.
Einar segir að þrátt fyrir lítinn
afla séu Grímseyingar vel hressir
þessa dagana. Þorrablótið er á
næstu grösum, áætlað um næstu
helgi ef veðurguðir lofa. Flug FN
sér Grímseyingum fyrir nægum
þorramat í trogin og þá kentur
hljómsveit úr landi. Grímseying-
ar leggjast því á bæn þegar nær
dregur næstu helgi og biðja um
tlugveður. óþh
boð frá þessum aðilum komi inn-
an skamms," segir Örlygur Hnef-
il! Jónsson, bústjóri þrotabús
Árlax.
Þrjátíu þúsund laxar verða
seldir úr stöð Árlax í Ártungu til
ÍSNÓ en áður var búið að selja
Silfurstjörnunni annað eins.
Með þessum sölum hefur rýmk-
ast mjög á seiðaeldisstöðinni í
Ártungu.
Frestur til að skila inn kröfum í
þrotabú Árlax rennur út n.k.
þriöjudag og veröur þá Ijóst hve
miklar kröfurnar eru. JÓH
Helgarveðrið:
Tilbrigði við
úrkomustef
Veörið á Noröurlandi uiii
helgina mun einkennast af til-
brigöuin við úrkomustef og
fantasíum í d-nioll um
frostmark. Þessi tónlist veðra-
kerfa hefur væntanlega aukið
fannfergi í för nieð sér og
áframhaldandi ófærð á
vcguni. Skíöamenn gcta
glaðst.
Vcöurstofa íslands spáir
norðan- eða norðaustan golu
eða kalda í dag. Sums staöar
verða snjó- eða slydduél. Á
sunnudag er gert ráö fyrir aust-
an- eöa norðaustanátt. Dálítil él
verða áfram og hiti nálægt frost-
marki. Á mánudag tekur við
austan- og suðaustanátt með
snjókomu á Norðurlandi vestra
og snjó- eða slydduéljum á
Noröurlandi eystra. Hiti verður
í kringum frostmark. SS
Innheimta fasteignagjalda hafin:
Akureyringar greiða 379 milljómr
- gjöldin hækkuðu um 25,7% frá fyrra ári
Grímsey:
Óvenju mikið spurt eftir vinnu
Góð loðnuveiði í fyrrinótt