Dagur - 16.03.1990, Page 12

Dagur - 16.03.1990, Page 12
Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Fjórir aðilar á Akureyri sækja um styrk til Rannsóknaráðs: Nemendur í Lundarskóla hafa lagt hefðbundið námsefni til hliðar í vikunni, enda eru „opnir dagar“ í skólanum og þá gefast tækifæri til fjölbreyttra sköpunarstarfa. Mynd: kl Hyggjast vinna litar- efni úr rækjuskel Krossanesverksmiðjan, Háskól- inn á Akureyri, K. Jónsson & co. og útibú Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins á Akureyri hafa sótt um styrk til Rann- sóknaráðs ríkisins til að athuga möguleikann á því að vinna Iitarcfni úr rækjuskel. Hugmyndin að baki umsókn- inni er að blanda litarefninu sam- an við lýsi, sem notað er í laxa- fóður. „Við höfum prófað þetta í litlum mæli og svo virðist sem þetta sé ekkert mál. Hins vegar er spurn- ing hvort hægt er aö finna heppi- legar vélar til að gera þetta í alvöru og hugmyndin var sú að leita eftir styrk til þess að standa straum af því að hafa rannsókna- stofnanirnar með, þ.e. Háskól- ann á Akureyri og útibú Rann- Verkfallshljóð í mörgum sjómanninum: Kröfumar kollvarpa ekki kjarasaimrnigunum - segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyja^arðar „Við höfum ekki fengið samn- ingaviðræður við útgerðar- menn síðastliðin þrjú ár og menn vilja ekki sætta sig við að binda sig til næstu 20 mánaða án viðræðna. Þetta hefur verið ýmist þannig að ASI hefur gert samninga sem yfirfærðir hafa verið yfir á okkur eða á okkur hafa verið sett lög. Sá samn- ingur sem við erum með nú er því ekki í takt við daginn í dag,“ segir Konráð Alfreðs- son, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, en að líkindum verður boðað til félagsfundar næsta sunnudag þar sem leitað verður heimildar til verkfalls- boðunar. í fjölmiðlum í gær létu bæði formaður LÍÚ og formaður VSÍ þung orð falla í garð sjómanna. Kristján Ragnarsson sagði að útgerðarmenn trúi því ekki að sjómenn beiti verkfallsvopninu enda hafi þeir ekkert tilefni til slíkra aðgerða. Sérkröfum sjó- manna verði ekki svarað. Einar Oddur Kristjánsson sagði einnig í Morgunblaðinu að engar sérkröf- ur hafi verið teknar til greina og það sama gildi um sjómenn. Konráð Alfreðsson segir meginkröfu sjómanna að olíu- verðstenging í laununum verði leiðrétt. „Þessi kostnaðarhlut- deild sjómanna í olíuverðinu er orðin alröng miðað við hluta- skiptakjör sjómanna. Þegar byrj- að var að tala um svokallaða núll- lausn í samningaviðræðunum í haust þá byrjaði olían að hækka í verði og þar með fór kostnaðar- hlutdeild sjómanna úr 24% í 28%. Aðrir Iaunþegar í landinu héldu sínu kaupi sem þeir voru á Sauðárkrókur: Gagngerar breytingar á Skagfirðingabúð Gagngerar breytingar standa nú yfir í Skagfírðingabúö, hinu glæsilega vöruhúsi Kaupfélags Skagfírðinga. Deildir verða færðar til og einnig afgreiðslu- kassar. Ætlunin er að gera framsetningu hinna ýmsu vörutegunda aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Aætlað er að breytingum þessum verði lokið fyrir sumarið. Skagfirðingabúð hefur verið óbreytt í þau sex ár sem hún hef- ur starfað. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar, verslunarstjóra Skagfirðingabúðar, var kominn tími til að verslunarhúsnæðið fengi andlitslyftingu. „Það var nauðsynlegt að fríska upp á verslunina. Með tilfærslu deilda breytum við leið viðskipta- vinarins um búðina. Aðstaða fyr- ir börn verður einnig veglegri eft- ir breytingarnar," sagði Ómar Bragi. Upplýsingaþjónustu verður komið á fót fyrir viðskiptavini. Byggingavörudeild verður stækk- uð og svo kölluð hvít heimilis- tæki t.d ísskápar og frystikistur færðar þangað úr búsáhalda- deild. Afgreiðslukassar verða færðir til meðal annars einn inn á lager til að flýta afgreiðslu á heimsendingarþjónustu. „Mér er óhætt að segja að búðin verði frísklegri og skemmtilegri eftir breytingarnar, það er jú mark- miðið,“ sagði Ómar Bragi að lokum. kg þegar þessi núlllausn kom til á meðan sjómenn lækkuðu í kaupi. Okkar núll er því 24% kostnað- arhlutdeild í olíunni en það eru menn ekki tilbúnir til að sam- þykkja,“ segir Konráð. Um kröfur sjómanna segir hann að þær kollvarpi ekki þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið. „Sjómenn eru tilbúnir til að skrifa undir þess núlllausn, eru tilbúnir til að taka þessar launahækkanir á sína kauptrygg- ingu og kaupliði. Ég hef fengið skilaboð frá sjómönnum um að fyrir okkur sé ekki annað að gera en boða verkfall. Menn eru orðn- ir þreyttir á að láta aðra semja fyrir sig eða fá á sig lög. Þessi vilji mun koma skýrt fram í sjó- mannafélögum á næstunni þegar aflað verður heimilda til verk- fallsboðunar,“ segir Konráð. JÓH sóknastofnunar fiskiðnaðarins. Þetta er því í leiðinni hreint Iandsbyggðarmál," segir Ásbjörn Dagbj artsson, gæðaeftirlitsstjóri Krossanesverksmiðjunnar. Ásbjörn bendir á að á Eyja- fjarðarsvæðinu og austur á Húsa- vík séu rækjuverksmiðjur sem hendi miklu magni af ónýttri rækjuskel. „Framhaldið veltur á því hvort þessi athugun gengur og hvort sé markaður fyrir hendi.“ óþh Snjóþyngsli í Hrísey: Tvær maimhæðir niður á götu Mikið fannfergi er nú í Hrísey og segir Guðjón Björnsson, sveitarstjóri, að kominn sé í eynni meiri snjór en í fyrra. Eins og gefur að skilja eru víða dj“P göng á götum en Guðjón segir að ótrúlega vel hafí geng- ið að ryðja götur. „Já, við höfum dæmi um tveggja mannhæða djúp göng á götum hér þannig að hver maður getur séð hver snjórinn er í þorp- inu. Maður sér því ekki einu sinni fólk á gangi á götunum nema maður komi gangandi beint á móti,“ segir Guðjón. Hann segir að búast megi við að trjágróður við hús verði illa úti að þessu sinni enda eru víða í görðum skaflar sem nema við húsþök. „Hér er reyndar snjó- þyngra en margir halda en þetta er hins vegar með mesta móti,“ segir Guðjón. JÓH Skagafjörður: Heyfengur farinn að minnka í sumiun sveitum - ástand mjög misjafnt eftir bæjum Slæmt tíðarlar hefur nú verið „Ef það vorar ekki sæmilega seinnipart vetrar í Skagafírði. snemma þá verður örugglega Jarðbönn hafa verið víða síðan hreint vandræðaástand á sumum um áramót. Bændur hafa tekið bæjum. Menn reyna að kaupa hross á fulla gjöf og hefur hey- forði minnkað hjá mörgum svo að í óefni stefnir. Ástandið er mjög misjafnt eftir bæjum og sumstaðar er það mjög slæmt. I Fljótum var grasspretta léleg vegna kals í túnum. í Lýtings- staöahreppi voru heyföng mjög misjöfn að gæðum og magni. Að sögn Eiríks Loftssonar hjá Búnaðarsambandi Skagfirðinga er ástandið mjög misjafnt eftir bæjum. „Það eru oft sömu bæ- irnir ár eftir ár sem eru í vand- ræðum með hey. Heyfengur var mjög misjafn í sumar bæði vegna kals í túnum og óþurka," sagði Eiríkur. Víða eru það hrossin sem eru að éta upp heyforðann. Sérstak- lega í þeim sveitum sem hrossa- eign er heldur meiri en æskilegt væri. Að sögn Eiríks er útlitið slæmt en þó veltur mikið á hvern- ig og hvenær vorar. hey en það verður orðið mjög hátt verð á heyi þegar líður á vorið," sagði Eiríkur að lokum. kg Húsavík: Löggan með klippumar Lögreglan á Húsavík hóf að klippa númer af bifreiðum á þriðjudaginn, og þurftu tíu bílaeigendur að sætta sig við slíkar aðfarir. Þeir gátu samt sjálfum sér um kennt, því þeim hafði öllum láðst að færa bfla sína til skoðunar á síðasta ári. Næstu daga og kvöld mun lög- reglan hafa klippurnar með sér í farteskinu. Töluvert mikið mun vera um að þungaskattur af bifreiðum sé vangoldinn, og mega eigendur þeirra búast við að númerin verði klippt af bílun- um, nema þeir dragi snarlega upp veskin og geri skil. IM Sigluíjörður: Ekkert framboð tilbúið Enginn stjórnmálaflokkur hef- ur enn gengið frá framboðs- lista vegna bæjarstjórnarkosn- inga á Siglufírði. Undirbúningur vegna bæjar- stjórnarkosninganna í vor hefur gengið rólega fyrir sig á Siglu- firði. Undirbúningsnefndir stjórnmálaflokkanna í bænum hafa starfað undanfarið, en eng- inn framboðslisti hefur verið lagður fram ennþá. Að sögn kunnugra verða fyrstu listarnir ekki tilbúnir fyrr en eftir hálfan mánuð eða svo. EHB

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.