Dagur - 03.04.1990, Síða 1
- segir Þröstur Guðjónsson
Vetraríþróttahátíðinni lokið:
Hátíðin gekk vel
og þátttakan góð
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ 1990
var slitið á Akureyri sl. sunnu-
dag og voru menn sammála að
vel hefði tekist til þrátt fyrir
rysjótt veðurfar. Þátttaka í
almenningsíþróttum var mjög
góð og var þessi fjölmenna
hátíð óhappalaus, nema hvað
skeifa losnaði undan hesti og
lenti á bíl. Forsvarsmenn há-
tíðarinnar hafa nú hug á að
halda vetraríþróttahátíðir oftar
en á tíu ára fresti.
„Þetta gekk vel þegar á heild-
ina er litið. Atriðin voru mjög
mörg en þó góð þátttaka. Það
eina sem mér finnst neikvætt við
þessa hátíð er að unglingarnir
sem komu hingað um fyrri helg-
ina gátu ekkert gert og urðu
meira að segja veðurtepptir,"
sagði Þröstur Guðjónsson, for-
maður hátíðarnefndarinnar.
Þröstur sagði í samtali við Dag
í gær að nefndin hefði þá þegar
veitt um tvö þúsund viðurkenn-
ingar fyrir þátttöku í almennings-
íþróttum og hún ætti eftir að
veita fleiri.
Norðurland eystra:
Yfir 80 milljófflr í snjómokstur frá áramótmn
- mesti kostnaðurinn við Ólafsíjarðarmúla og Öxnadalsheiði
„Hátíðin var ívið stærri en við
höfðum gert okkur grein fyrir.
Við verðum bara að halda vetrar-
íþróttahátíðir oftar með ein-
hverju sniði. Akureyri er tilval-
inn staður fyrir útivistardaga,“
sagði Þröstur.
Hann var mjög ánægður með
alþjóðlegu skíðamótin. Þau
hefðu eflt íslensku keppendurna
og gefið þeim dýrmæt stig, sem
koma þeim ofar í rásröð á alþjóð-
legum mótum. Hann nefndi einn-
ig landsmót í skíðagöngu, „ski-
cross“, vetrarþríþraut og dagskrá
hesta- og vélsleðamanna sem
eftirminnilega atburði, að
ógleymdum skátunum. Þröstur
vildi þakka Hjálparsveit skáta
sérstaklega fyrir öryggisvörslu á
Vetraríþróttahátíðinni. SS
Vetraríþróttahátíð lauk á Akureyri í gær, en Sverrir Björnsson forseti ÍSÍ sleit henni fornilcga.
Mynd: KL
Líkur á að laxveiðin
bregðist aftur í ár:
„Ég er svart-
sýnn á sumarið“
segir Tumi Tómasson
fiskifræðingur
Laxveiðimenn hafa ekki mikla
ástæðu til bjartsýni með veiði
sumarsins. Síðasta sumar brást
veiðin illilega þrátt fyrir spár
um metveiði. Ástæður fyrir
aflabrestinum í fyrra eru ekki
kunnar. Að sögn Tuma Tóm-
assonar fiskifræðings er
skýringanna ekki að leita í
ánum heldur hafa afföllin orð-
ið á laxinum í sjónum.
„Bæði stórlaxa- og smálaxa-
göngurnar brugðust í fyrra.
Hugsanlegar skýringar á bresti í
stórlaxagöngunum eru einfald-
lega veiðar í sjó. Þar koma til
veiðar útlendra skipa austan við
land og ólöglegar netaveiðar við
strendur landsins. Þær virtust
vera með mesta móti í fyrra.
Afföll af gönguseiðum sem
fóru í sjó árið 1988 hafa verið
mjög mikil. En þá var sjór með
kaldara móti,“ sagði Tumi. Horf-
ur fyrir veiði sumarsins eru ekki
glæsilegar. Búast má við að smá-
Jaxagöngur bregðist aftur. Seiðin
sem gengu í sjó 1989 voru smá og
fóru seint úr ánum. Hlutfallslega
meira af stórlaxi gæti orðið á
ferðinni.
„Ég á ekki von á að þessi aftur-
kippur í laxveiðinni núna sé var-
anlegur. Mér þykir líklegra að
þetta sé tímabundið bakslag í
uppsveiflu laxastofnsins,:* sagði
Tumi. kg
Meö nýhafínni viku fækkar
snjómokstursdögum á þremur
leiöum í Norðurlandsumdæmi
eystra. Þannig verður nú hætt
að moka yfír Öxnadalsheiði á
miðvikudögum og sú leið verð-
ur rudd á mánudögum og
föstudögum. Kísilvegurinn
verður það sem eftir lifir vetrar
ruddur einu sinni í viku í stað
tvisvar áður og sama er að
„Mér Iíst illa á stöðu Álafoss,
og ég hef margsinnis sagt á
undanförnum árum að ég get
ekki skilið að menn séu með
upphrópanir í atvinnumálum á
meðan þeir horfa þegjandi á
ullariðnaðinn hrynja í bæn-
um,“ segir Heimir Ingimars-
son, bæjarfulltrúi á Akureyri.
Heimir segir að störfum í ullar-
iðnaði hafi fækkað um tvö til þrjú
hundruð á Akureyri á undan-
förnum árum, án þess að sú
staðreynd hafi gefið tilefni til
mikilla umræðna. „Menn líta á
þetta eins og livert annað nátt-
úrulögmál, en í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks, hefur fækkað um
nærfellt fjögur hundruð manns á
örfáum árum. Þetta segir sína
sögu,“ segir Heimir.
Þessi fækkun félaga í Iðju hef-
ur afar neikvæð áhrif á stéttar-
félagið, það hefur orðið að draga
saman seglin í starfsmannahaldi
og tekjustofnar þess rýrna í réttu
hlutfalli við fækkun félaganna.
Auk þess hefur Iðja þurft að taka
á sig skuldbindingar vegna eign-
segja um leiðina Húsavík-
Yopnafjörður.
„Við erum búin að eyða
óhemju fé í snjómokstur í vetur
og þessi fækkun mokstursdaga er
í samræmi við heimild í reglum,
tilkomin vegna þess hve mokstur-
inn hefur verið dýr. Þann 24.
mars síðastliðinn var búið að
eyða rúmum 84 milljónum króna
í snjómokstur á Norðurlandi
arhluta síns í Alþýðuhúsinu á
Akureyri.
Um orsakir þess að svo illa er
komið fyrir ullariðnaðinum segir
Heimir að margar samverkandi
Félagar í Sjómannafélagi
Eyjafjarðar hafa samþykkt að
veita stjórn og trúnaðar-
mannaráði heimild til verk-
fallsboðunar, en í gær voru
atkvæði um verkfallsboðun
talin á skrifstofu Sjómanna-
félagsins á Akureyri.
Atkvæði greiddu 79 eða 24,5%
af fullgildum félagsmönnum.
Sextíu og níu geiddu atkvæði
með verkfallsboðun, níu sögðu
nei og einn seðill var auður.
Konráð Alfreðsson, formaður
Sjómannfélagsins, segir að næsta
skref í málinu verði formanna-
fundur Sjómannasambands
íslands, þar sem tekin verður
eystra frá áramótum og er sú tala
mun hærri en á sama tíma í
fyrra,“ sagði Sigurður Oddson,
umdæmistæknifræðingur Vega-
gerðar ríkisins á Akureyri í sam-
tali við Dag.
Af einstökum vcgum má net'na
að mokstur í Ólafsfjarðarmúla
hefur kostað rúmar 8 milljónir
frá áramótum, Öxnadalsheiði
tæpar 8 milljónir og svokallaður
orsakir komi til, en meginvand-
inn sé þó vafalaust sá að Álafoss
hf. sé alltof skuldsett fyrirtæki til
að geta staðið undir sér, eins og
málum er nú komið. EHB
ákvörðun um framhaldið. Ekki
er búið að tímasetja þann fund.
óþh
Togarinn Hjörleifur RE 211,
sein Sæmundur Árelíusson
gerir út frá Siglufírði og leigir
af Granda hf., seldi í Grimsby
á fímmtudaginn. Salan var
ágæt, og fengust 9,5 millónir
króna fyrir 66,5 tonn af
blönduðum afla.
Afli Hjöleifs var að uppistöðu
helmingamokstur, þ.e. mokstur
sem að kostnaði skiptist milli
Vegagerðar ríkisins og sveitarfé-
laganna, hefur kostað Vegagerð-
ina 14 milljónir króna frá áramót-
um. JÓH
Akureyri:
Heyrðist
til lóunnar
íbúum í húsi á suðurbrekkunni
á Akureyri brá heldur í brún í
gær þegar söngur lóunnar barst
inn um opinn glugga. Þó ekki
sé vorlegt um að litast á Norð-
urlandi þessa dagana virðist þó
sem vorboðinn Ijúfí sé kominn
„að kveða burt snjóinn“.
Veðurguðirnir hafa látið mikið
að sér kveða á síðustu vikum og
því átti heimilisfólk í húsi einu á
suðurbrekkunni á Akureyri alls
annars von en að heyra söng ló-
unnar úti fyrir. í fyrstu taldi fólk
að um verulega misheyrn hefði
verið að ræða en ekki var um að
villast þegar aftur heyrðist til
lóunnar. Þá er bara að bíða eftir
að snjórinn leggi á flótta undan
vorboðanum. JÓH
þorskur, 47,5 tonn, meðalverð
pr. kg 131,87 pr. kg. Af ýsu voru
seld 14,6 tonn fyrir 187,52 kr. pr.
kg. Heildarverðmæti aflans var
kr. 9.439.228,-
Hjörleifur mun verða á veiðum
yfir páskana, en aflinn fer í gáma
til útflutnings. Næsti túr þar á eft-
ir verður að öllum líkindum
sölutúr á Þýskaland. EHB
Stéttarfélag verksmiðjufólks Akureyri:
Samdráttur í ullariðnaði
hefur neikvæð áhrif á Iðju
Sjómannafélag Eyjagarðar:
Heimild til verkfallsboðunar
Ágæt sala hjá Hjörleifi