Dagur - 03.04.1990, Side 5

Dagur - 03.04.1990, Side 5
Þriðjudagur 3. apríl 1990 - DAGUR - 5 Þjóðleg byggðastefiia Dagleg vandræði í atvinnumál- um, sem oftast eru fylgifiskar tvígengisstefnu íslenskra efna- hagshátta og einkenna stjórn- málameðferðina. Petta daglega strit stjórnmálamanna hefur blindað margan og lokað yfirsýn bestu manna. Við verðum að hverfa frá þessum starfsháttum. íslenskt efnahagskerfi er að komast út úr skeiði mistaka. Nú eru uppi veigamiklar aðgerðir til að byggja upp atvinnulíf lands- byggðarinnar á vegum Atvinnu- tryggingarsjóðs útflutningsgreina og hlutafjársjóðs. í raun og veru brann upp allt eigið fé hinna mörgu landsbyggðarfyrirtækja, sem sett voru á stofn til að tryggja atvinnu á landsbyggðinni vegna efnahagslegra mistaka. Reynslan hefur sýnt oftar en einu sinni að fjármagnsleg upp- bygging þorra atvinnufyrirtækja í sjávarútvegi út á landi á sér félagslegar rætur í því umhverfi, þar sem stofnað er til þeirra. Ekki eru líkur til þess að þeir sem fjárfesta eingöngu vegna hagnað- arvonarinnar telji það fýsilegan -i kost að leggja fé sitt í atvinnu- rekstur, sem auk vonarinnar má ná endum saman, hefur öðrum þræði það meginmarkmið að halda uppi atvinnu. Byggðarlegar aðgerðir í at- vinnumálum liggja í því að gera byggðarlögum kleift að eignast atvinnutæki, sem þeim markmið- um, að auka byggðafestu, nýta landkosti og tryggja atvinnuör- yggí- Hin nýja raunhæfa byggða- stefna verður að byggjast á því að treysta undirstöðu þeirra fyrir- tækja, sem gegna áðurnefndu hlutverki. í þessum efnum verður að gæta þess að ábyrgð á upp- byggingu og rekstri verði í hönd- um heimamanna og að ekki sé verið að stofna til samkeppnisfyr- irtækja innbyrðis í byggðarlög- um, þar sem ekki eru samkeppn- isskilyrði fyrir hendi. Hlutverk byggðaaðgerða er að útvega slíkum fyrirtækjum fram- lagalán, sem gegnir hlutverki eig- in fjár á meðan fyrirtækin eru að ná eðlilegu jafnvægi um arðsemi. Þetta fjármagn verði vaxtalaust á l----------------- venjulegum afborgunartíma stofn- lána, en breytist eftir það í lengri lán. Sé ekki gripið til þess konar byggðaaðgera og einhliða arð- semissjónarmið látin ráða mun atvinnurekstur færast saman í landinu í fáa stóra bæi. Þessi þróun getur haft kosti svo fram- arlega sem ekki falli landkostir í órækt, og að byggðaeyður mynd- ist í landinu, sem á síðari áratug- um myndu skapa skilyrði fyrir óhamið aðstreymi útlendinga. Með endurmótun pólitískra viðhorfa verður ekki hjá því komist þrátt fyrir meginsjónar- mið að þjóðin verði að aðhæfa sig í nýrri heimsmynd að gæta verð- ur sérsjónarmiða lands og þjóðar, í grimmum heimi tillits- leysis ella verður þetta litla þjóð- félag gleypt og hlutverk þess verður að vera útkjálki stórrar heildar. í þessum efnum á þjóðleg byggðastefna hlutverki að gegna. Áskell Einarsson, frainkvæmdastjóri Fjórðungs- sambands Norðlendinga. verðkönnun Hvað kostar drykkurirai? - Mikill verðmunur á drykkjarföngum vínveitingahúsa Þeir sem hyggjast leggja leið sína í veitingahús í þeim tilgangi að væta kverkarnar, gætu spar- að sér drjúgan skilding með því að gera verðsamanburð áður en af stað er haldið. í 2. tbl. Verðkönnunar Verðlagsstofnunar eru birtar niðurstöður verðkannana á nokkr- um algengum tegundum af drykkjarföngum í veitingahúsum. Þann 1. október sl. var álagning á áfengi í veitingahúsum gefin frjáls. Af því tilefni gerði Verðlagsstofnun verðkönnun á allmörgum tegundum af áfengi, gosdrykkjum og kaffi í rúm- lega 80 veitingahúsum á höfuðborgarsvæðinu, ísafirði, Akureyri og Égilsstöðum í lok sept- ember sl. og aðra könnun nú í byrjun mars. Við birtum helstu niðurstöður hér að neðan, svo og þann hluta könnunarinnar sem varðar veitingastaðina á Akureyri. Dæmi um verðmun á áfengi Lægsta Hæsta verð verð Verðmunur Rauðvínsglas, 25 cl. 220 833 279% Tvöf. vodka í gosdr. 340 570 68% Alexander kokteill 350 750 114% Egilsgull, 33 cl.flaska 245 400 63% Helstu niðurstöður í könnuninni kom fram að mikill verðmunur er á milli veitinga- húsa. Verðmunur á sömu tegund drykkjar er allt að 370%. Þannig kostar t.d. 25 cl. glas af gosdrykk 57 kr. þar sem það er ódýrast en hæsta verð er 268 kr. Flaska af Tuborg bjór kostar minnst 250 kr. en mest 400 kr. Meðalhækkun á léttum og sterkum vínum í veitingahúsum er á bilinu 5-8% umfram þær hækkanir sem orðið hafa hjá ÁTVR síðan álagning var gefin frjáls. Meðalhækkun á bjór er hins vegar um 10% umfram hækkanir hjá ÁTVR. Kaffi hefur að meðaltali hækkað um rúm 10%, en engin hækkun hefur orðið á innkaupsverði þess á tímabilinu. Meðalhækkun á glasi af gosdrykk er um 5% en hún er aðeins minni en verðhækkun frá gosdrykkjaframleiðendum hefur verið. Vissir erfiðleikar eru fólgnir í því að gera verðsamanburð á veitingahúsum. Var sá kostur valinn að kanna verðið á sem flestum stöðum bæði matsölu- stöðum ýmiss konar og skemmti- stöðum. Þjónusta þeirra er mis- góð svo og innréttingar og umhverfi. Þessi atriöi geta haft áhrif á verðið, en í könnuninni er ekki lagt mat á slíkt, heldur er eingöngu um að ræða kynningu og verðsamanburð á verðlagi veitingahúsanna. VEITINGASTAÐIR Glas af" gosdrykk Verð Verðbr. mars sept-mars Kaffi með ábót Verð Verðbr. mars sept-mars Tvöf. vodka í gosdr. Verð Verðbr. mars sept-mars Hvítvíns-" glas Verð Verðbr. mars sept-mars Tuborg 33 cl flaska Verð Verðbr. mars sept-mars Bleiki fíllinn 146 (0%) 100 (0%) 480 (9%) 474 (8%) 380 (19%) Fiðlarinn 125 (0%) 120 (0%) 450 (7%) 667 (20%) 330 (10%) Hótel KEA 125 (0%) 110! (0%) 440 (5%) 467 (12%) 320 (14%) Hótel Norðurland, Hlóðir 156 (7%) 150 (25%) 340 (-23%) 472 (0%) Hótel Stefanía 106 (8%) 90 (0%) 490 (11%) 475 (13%) Sjallinn 155 (-13%) 120 (0%) 490 (9%) 534 (31%) 380 (21%) Smiðjan 107 (20%) 120° (20%) 417 (20%) Uppinn 148 (0%) 100 (0%) 470 (9%) 389 (27%) 300 (-) Lægsta verð 57 60 340 239 250 Hæsta verð 268 160 570 802 400 Mismunur I % 370% 167% 68% 236% 60% 1) Vegna þess hve glasastærðir eru mismunandi á veitingastöðum, hafa glösin verið umreiknuð í 25 cl. 2) Konfekt fylgir með. (-) Samanburðarverð frá september lá ekki fyrir. Menntamálaráðuneytið Ferðastyrkur til rithöfundar Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns samstarfs í fjárlögum 1990 verði varið 90 þús. kr. til að styrkja rit- höfund til dvalar á Norðurlöndum. Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. mai n.k. Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum. Menntamálaráðuneytið, 30. mars 1990. Menntamálaráðuneytið Laus staða Háskólabókasafn auglýsir lausa stöðu bókavarðar. Starfið felst í því að hafa umsjón með rekstri tölvukerfis fyrir þjóðarbókhlöðusöfnin. Áskilið er að umsækjandi hafi menntun í bókasafnsfræði, starfsreynslu í bóka- söfnum og nokkra tölvuþekkingu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfs- feril, skulu hafa borist menntamálaráðuneyti fyrir 23. apríl n.k. Menntamálaráðuneytið, 29. mars 1990. Orlofsferð Verkalýðsfélagsins Einingar 1990 verður farin um Austurland dagana 19.-24. júlí n.k. ef næg þátttaka fæst. Gist verður í heimavist Menntaskólans á Egilsstöð- um allan tímann og farið í skoðunarferðir um Hérað og Austfirði. Vegna takmarkaðs gistirýmis á staðnum, verður hámarksfjöldi í þessa ferð 40 manns. Verð kr. 16.500,- pr. mann. Innifalið í verði, rútuferð- ir, gisting, morgun- og kvöldverðir. Þátttöku ber að tilkynna til skrifstofu félagsins á Akureyri sem allra fyrst í síma 23503. Ferðanefnd. Vinningstölur laugardaginn 31. mars. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 2.816.008.- 2. <rM 4 143.975,- 3. 4af 5 173 5.742.- 4. 3af 5 5.392 429,- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 9.514.450.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.