Dagur - 03.04.1990, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 3. apríl 1990
íþróttir
Knattspyrna:
Bjarni í
landsliðið
Bjarni Jónsson, KA, hefur verið valinn
í íslenska landsliðið í knattspyrnu sem
leikur gegn Bermuda í dag og Banda-
ríkjunum síðar í vikunni. Bjarni kemur
inn í hópinn í stað Eyjólfs Sverrissonar
sem ekki gaf kost á sér vegna breyttra
aðstæðna hjá Stuttgart.
Hópurinn sem hélt utan á sunnudaginn
er þannig skipaður:
Markmenn:
Bjarni Sigurðsson Val
Birkir Kristinsson Fram
Aðrir leikmenn:
Sævar Jónsson
Viðar Þorkelsson
Pétur Ormslev
Pétur Arnþórsson
Rúnar Kristinsson
Pétur Pétursson
Þormóður Egilsson
Alexander Högnason
Haraldur Ingólfsson
Ólafur Kristjánsson
Hörður Magnússon
Kristinn R. Jónsson
Ingvar Guðntundsson
Kjartan Einarsson
Bjarni Jónsson
Val
Fram
Fram
Fram
KR
KR
KR
ÍA
ÍA
FH
FH
Fram
Val
KA
KA
Bjarni Jónsson leikur með landsliðinu gegn
Bermuda og Bandaríkjunum.
Handknattleikur:
Þórsarar
steinlágu
A laugardag léku Þórsarar sinn síðasta
ieik á Islandsmótinu í handknattleik og
verður vart sagt að þeir hafí endað mót-
ið með glæsibrag. Mótherjarnir voru b-
lið Vals og unnu þeir sannfærandi sigur
á áhugalausum Þórsurum, 29:23.
Leikurinn fór fram á Akureyri og komu
úrslitin enn meira á óvart fyrir þá sök.
Valsmenn voru betri aðilinn og höfðu
forystuna nánast allan tímann enda
fengu þeir að ráða gangi leiksins frá
upphafi.
Leikurinn var í járnum fyrstu 15 mínút-
urnar en síðan sigu Valsmenn frarn úr og
höfðu þriggja marka forystu í leikhléi. Þeir
héldu forystunni allan síðari hálfleikinn og
það næsta sem Þórsarar komust þeim var
eitt mark, 17:18.
Þórsliðið átti afar lélegan dag svo ekki
sé nteira sagt. Áhugaleysið skein af leik-
mönnum og þeir gerðu þau mistök að láta
Valsmenn ráða hraðanum í stað þess að
keyra hann upp og reyna að „sprengja"
Valsmennina á þann hátt. Sævar Árnason
var sá eini í liðinu sem gerði góða hluti.
Valsmenn höfðu gaman af því sem þeir
voru að gera og var skemmtilegt að fylgj-
ast með tilþrifum þeirra. Stefán Halldórs-
son var besti maður liðsins og vallarins og
Árni Sigurðsson varði mjög vel í síðari
hálfleik enda fékk hann skotin nánast
undantekningarlaust á sama stað.
Dómarar voru Guðmundur Lárusson og
Guðmundur Stefánsson og dæmdu þeir
ágætlega.
Mörk Þórs: Sævar Árnason 7, Ólafur Hilmarsson
5, Páll Gíslason 4, Rúnar Sigtryggsson 3, Ingólfur
Samúelsson 2 og Jóhann Jóhannsson 2.
Mörk Vals-b: Stefán Halldorsson 11/2, Þorbjörn
Guðmundsson 5, Ólafur H. Jónsson 5, Sigurjón
Práinsson 3, Trausti Ágústsson 3 og Gunnsteinn
Skúlason 2.
Alþjóðlegu mótin í Alpagreinum:
Guðrún sló öllum við
sigraði í öllum þremur mótum helgarinnar - Örnólfur sigraði í sviginu á sunnudag
Guðrún H. Kristjánsdóttir
stóð sig frábærlega á alþjóð-
legu mótunum í alpagreinum
sem fram fóru í Hlíðarfjalli og
á Dalvík um helgina. Eftir að
hafa misst niður forystu í fyrsta
stórsvigsmótinu sem fram fór
sl. fímmtudag gerði Guðrún
sér lítið fyrir og vann öll mótin
þrjú sem eftir voru. Þetta er
glæsilegur árangur, ekki síst
þegar tillit er til þess tekið að
Guðrún var þarna að keppa
við erlendar stúlkur sem voru
fyrirfram álitnar mun sigur-
stranglegri þar sem þær stóðu
töluvert betur stigalega séð.
Guðrún sýndi þarna að hún er
besta skíðakona landsins og
verður gaman að sjá hvað hún
gerir á landsmótinu sem fram
fer í Reykjavík síðar í þessum
mánuði.
íslensku körlunum gekk ekki
jafn vel á þessum mótum. Aðeins
einu sinni varð Islendingur í efsta
sæti en það var Örnólfur Valdi-
marsson frá Reykjavík sem sigr-
aði í sviginu á sunnudag. Örnólfi
hafði ekki gengið vel fram að því
og var hann því að vonum kátur
þegar úrslitin lágu fyrir.
En úrslitin í þessum mótum
urðu þessi:
2. Ásta Halldórsdóttir í
3. Carin Lindberg S
4. Ulla Carlsson S
5. Linda Pálsdóttir í
1:34.88
1:35.21
1:39.89
1:43.66
Stórsvig karla:
1. Urban Wiberg S
2. Thorbjörn Blomberg S
3. Haukur Arnórsson 1
2:05.36
2:06.96
2:07.35
4. Valdimar Valdimarsson í
5. Arnór Gunnarsson í
2:07.77
2:09.36
Sunnudagur
Svig kvenna:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir í 1:27.93
2. Carin Lindberg S 1:27.97
3. Ulla Carlsson S 1:29.53
4. María Magnúsdóttir í
5. Þórunn Pálsdóttir í
1:31.05
1:34.28
Svig karla:
1. Ornólfur Valdimarsson 1
2. Thorbjörn Blomberg S
3. Arnór Gunnarsson I
4. Daníel Hilmarsson í
5. Cebulj Pavli Júg.
1:29.07
1:29.37
1:30.93
1:30.96
1:31.63
Föstudagur
Stórsvig kvenna:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir í 2:14.46
2. Ulla Carlsson S 2:14.48
3. Carin Lindberg S
4. Ásta Halldórsdóttir í
5. María Magnúsdóttir í
2:15.83
2:16.77
2:17.35
Svig karla:
1. Thorbjörn Blomberg S
2. Valdimai Valdimarsson í
3. Kristinn Björnsson í
4. Daníel Hilmarsson í
5. Arnór Gunnarsson í
1:30.52
1:31.63
1:32.92
1:33.64
1:33.95
Laugardagur
Svig kvenna:
1. Guðrún H. Kristjánsdóttir í 1:34.83
Guðrún H. Kristjánsdóttir á fullri ferð í stórsviginu á laugardag.
. Mynd: KL
99
Hrifin af Guðrúnu“
■ segir Ulla Carlsson frá Svíþjóð
„Þetta hafa verið mjög
skemmtileg mót, sérstaklega
mótið á Dalvík. Fyrir minn
smekk er snjórinn hér full
mjúkur en það er víst lítið
hægt að gera í því,“ sagði Ulla
Carlsson frá Svíþjóð.
Urban Wiberg frá Svíþjóð:
Ánægður með
mína frammistöðu“
99J
„Þetta var erfítt mót. Brautin
var frekar ójöfn og því erfítt að
keyra hana á fullri ferð,“ sagði
Urban Wiberg frá Svíþjóð
skömmu eftir að hann hafði
lokið seinni ferðinni í sviginu á
sunnudaginn. Wiberg var
nokkuð í sviðsljósinu á alþjóð-
Urban Wiberg.
Mynd: KL
legu mótunum í alpagreinun-
um en hann var þar oft meðal
fremstu manna.
„Ég er ánægður með mína
frammistöðu á þessum mótum.
Ég hafði ekki gert mér neinar
vonir fyrirfram og vissi ekkert á
hverju ég mætti eiga von. Þess
vegna get ég ekki annað en verið
ánægður."
Wiberg sagðist vera hrifinn af
íslensku skíðamönnunum, þar
væru mörg efni á ferðinni. „Þeir
þyrftu hins vegar að fá fleiri tæki-
færi á alþjóðlegum mótum. Það
veitir dýrmæta reynslu auk þess
sem það myndi gefa þeint tæki-
færi á bæta stöðu sína á stigatöfl-
unni. Sjálfur tek ég þátt í 40-50
mótum á ári.“
Wiberg var að koma til íslands
í fyrsta skipti og sagðist hann
vera ánægður með það sem hann
hefði séð. „Það er mjög góð að-
staða hér í Hlíðarfjalli og ég
myndi segja að þetta væri mjög
heppilegur staður fyrir alþjóðleg
mót af þessu tagi,“ sagði Urban
Wiberg.
„Ég hef ekki náð mér vel á
strik en það skiptir ekki öllu máli
því þetta er búið að vera sérlega
skemmtilegt. Ég átti að vísu von
á sigrum en hef þrátt fyrir það
ekki orðið fyrir neinum veruleg-
um vonbrigðum.
Ég er hrifin af Guðrúnu Krist-
jánsdóttur og átti alls ekki von á
að hún væri jafn góð og raun ber
vitni. Mér skilst að hún hafi lítið
keppt erlendis en held að hún
ætti að gera meira af því. Hún er
bæði góð skíðakona og hefur auk
þess mjög sterkan vilja til að
sigra. Það er mjög mikilvægt
atriði.“
Ulla var í sænska skíðalands-
liðinu á síðasta ári en er nú kom-
in í háskólanám og segist því gera
þetta meira að gamni sínu nú
orðið. Hún sagðist vera hrifin af
Akureyri en veðrið væri öllu leið-
inlegra en hún ætti að venjast.
„Það þýðir þó ekki að fást um
það. Það eina sem ég sakna úr
ferðinni er að hafa ekki komist á
hestbak,“ sagði Ulla Carlsson.
Ulla Carlsson.
Mynd: KL
Örnólfur Valdimarsson.
99
Það ^
duga eða
- segir Örnólfu:
„Ég féll úr keppni í fyrstu
þremur mótunum og varð því
að gera eitthvað í dag. Það var
duga eða drepast,“ sagði
Örnólfur Valdimarsson frá
Reykjavík eftir að hann hafði
sigrað í sviginu á síðasta degi
hátíðarinnar.
„í stórsviginu fyrsta daginn fór
ég á innra skíðið og féli út úr. í
sviginu daginn eftir fór ég út úr
brautinni á sama stað og margir
aðrir og í stórsviginu í gær losn-
uðu bindingarnar af öðru skíðinu
þannig að heppnin hefur ekki
verið með mér fyrr en í dag. Ég
hef því ástæðu til að brosa núna.