Dagur - 03.04.1990, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 3. apríl 1990
Minning
‘y' Jónína Vilborg Jónsdóttir
Fædd 1. apríl 1906 - Dáin 5. febrúar 1990
Mánudagsmorgun fimmta febrú-
ar hringdi Bogga á Þorvaldsstöð-
um til mín og sagði að tengda-
móðir sín, Vilborg Jónsdóttir
hefði dáið um nóttina. Mig setti
hljóðan við fréttina, það er eins
og maður sé alltaf jafn óviðbú-
inn, ekki síst þegar það er náinn
ættingi og vinur. Vilborg var
föðursystir mín og síðust af þeim
stóra systkinahópi. Ég hafði frétt
að Vilborg hefði veikst og gengist
undir mikla skurðaðgerð á
sjúkrahúsi Akureyrar. En sigð
dauðans sigraði og nú er hún
horfin fyrir tjaldið sem skilur að
líf og dauða.
Mig langar til minnast hennar
með fáeinum línum. Vilborg eins
og hún var alltaf kölluð, var fædd
á Vaði í Skriðdal 1. apríl 1906.
Foreldrar hennar voru hjónin
Ingibjörg Bjarnadóttir frá Við-
firði og Jón Jónsson frá Hali-
bjarnarstöðum í Skriðdal. Jón
var seinni maður Ingibjargar.
Fyrri maður hennar var Björn
ívarsson frá Vaði og áttu þau 12
börn, 5 dóu ung. Jón og Ingi-
björg áttu 5 börn, drengur dó
óskírður. Ingibjörg var 17 barna
móðir þó ekki næðu nema 11 full-
orðinsaldri. Flest þeirra urðu
búendur í Skriðdal. Enda er svo
enn í dag að flestir Skriðdælingar
eru frá henni komnir. Alsystkini
Vilborgar voru: Björg í Valla-
nesi, Snæbjörn í Geitdal og Ár-
mann á Vaði.
Vilborg ólst upp á Vaði í stór-
um systkinahóp og vandist ung
öllum verkum, bæði úti sem inni.
Ekki naut hún annarrar skóla-
göngu en barnafræðslu fyrir
fermingu. Hún var greind og
lærði í skóla lífsins. Ung gekk
hún í Ungmennafélag Skriðdæla
og síðar í Kvenfélag sveitarinnar,
hún mun hafa verið frentur
hlédræg, en traustur og góður
félagsmaður.
Laugardag fyrir hvítasunnu, 21.
maí 1926 giftist Vilborg Runólfi
Jónssyni í Litla-Sandfelli og hafa
þau lifað í ástríku hjónabandi í
tæp 64 ár og aldrei hlaupið
snurða á þráðinn í þeirra
sambúð.
í Litla-Sandfelli bjuggu þau
Vilborg og Runólfur myndarbúi í
32 ár og má segja með sanni að
þau hafi breytt koti í stórbýli,
bæði með húsakynnum og ræktun.
Litla-Sandfell var í þjóðbraut og
áttu því margir Ieið þar um
hlaðið. Stóð Runólfur þá venju-
lega í dyrunum ef hann var heima
við, heilsaði glaðlega komu-
mönnum og bauð þeim að ganga
í bæinn. Þar tók Vilborg á móti
gestunum með sínu hlýja og
alúðlega viðmóti, og ekki skorti
veitingarnar hjá henni.
Þau Litla-Sandfells hjón eign-
uðust 9 börn. Eitt barnið fæddist
andvana. Berklar voru algengir á
þessum árum og það fengu hjón-
in og börnin að reyna. Jón sonur
þeirra veiktist þegar hann var á
milli fermingar og tvítugs, dvaldi
hann á sjúkrahúsum og var allt
gert sern í mannlegu valdi stóð til
að bjarga lífi hans og heilsu, en
án árangurs. Einnig misstu þau
litla stúlku, Árnýju að nafni.
Næst kom röðin að Vilborgu að
verða að dvelja lengi á sjúkra-
húsi. En viljaþrek og dugnaður
hennar sigraði, þó að hún yrði að
gæta allrar varúðar. Þessi veik-
indi voru þung byrði fyrir fjöl-
skylduna. En flest él birta upp
um síðir. Börn Þeirra sem upp
komust þroskuðust vel og eru
dugmikið fólk, hvert á sínu sviði.
Þau eru: Kristbjörg húsfreyja
Akureyri, Björgvin bóndi
Dvergasteini Eyjafirði, Ingibjörg
húsfreyja Vökulandi Eyjafirði,
Sigurður smiður Akureyri, Árný
húsfreyja Akureyri og Kjartan
bóndi Þorvaldsstöðum í Skrið-
dal. Öll eru systkinin vel gefin,
gift og eiga fjölskyldur. Þegar
þessar línur eru skrifaðar eru
Hvað er hel?,
öllum líkn sem lifa vel,
engill sem til lífsins leiðir
Ijósmóðir sem hvflu breiðir.
Sólarbros er birta él,
heitir hel.
Matth. Joch.
Okkur langar til að minnast hans
Steina, eins og hann var jafnan
kallaður, með nokkrum síðbún-
um kveðjuorðum.
Hann fæddist að Geldingsá
þann 28. apríl 1941, sonur hjón-
anna Láru Þorsteinsdóttur og
Árelíusar Halldórssonar, yngstur
fimm systkina er upp komust. Á
Geldingsá er víðsýnt og náttúru-
fegurð mikil. Fram Eyjafjörður,
þessi fagra byggð blasir við og í
norður sést út eftir öllum firði. Á
góðviðrisdögum speglast tignar-
leg fjöll í vestri í djúpskyggðum
haffletinum. í austri, eða við tún-
fótinn, rís Vaðlaheiðin með sínu
mijda og stílhreina yfirbragði.
í þessu fallega umhverfi sleit
Steini barnsskónum. Það kom
líka fljótt í Ijós að hann var mikill
náttúruunnandi og hreifst af
þeim dásemdutn sem hið íslenska
vor býr yfir. Hann var mikill vin-
ur mófuglanna og annarra sntá-
fugla. Tímunum saman gat hann
dvalið í nágrenni við þá og unnið
traust þeirra. Hér má taka undir
með skáldinu sem segir:
„Pér frjálst er að sjá,
hve ég bólið mitt bjó. “
Af varúð og nærfærni var fylgst
með hreiðrunum, allt þar til litlir
ungahnoðrar gátu lyft sér til flugs
út í ómælisgeiminn.
Eins og önnur börn á þessum
tímum vann Steini að búi foreldra
sinna. En árið sem hann fermdist
var mikill harmur kveðinn að
heintilinu er faðir hans lést
skyndilega, tæpra 54 ára gamall.
Það var mikill og sár missir og má
nærri geta hvort hann hefur ekki
haft varanleg áhrif á ungling á
þessum aldri, því mjög kært var
með þeim feðgum.
Næstu árin vann hann við búið
með ntóður sinni og Sigfúsi bróð-
ur sínum. Ekki átti það þó fyrir
honum að liggja að eyða ævideg-
inunt á sínum æskuslóðum, því
fljótlega fór hann að vinna að
heiman í vegavinnu á sumrum en
á vetrum við bústörf á bæjum í
nágrenninu. Um tvítugsaldur
flutti hann svo til Akureyrar og
afkomendur þeirra Vilborgar og
Runólfs 68 talsins.
Þegar að því kom að börn
þeirra hjóna stofnuðu sín heimili,
lá leið þeirra flestra norður í
Eyjafjörð og til Akureyrar. Þeg-
ar þau Vilborg og Runólfur voru
orðin ein eftir í Litla-Sandfelli
hættu þau búskap árið 1958 og
fluttu til Akureyrar. Þau komu
sér vel fyrir í snoturri íbúð sem er
vann þar við verslunarstörf og
fleira næstu árin.
Árið 1966 réðst hann til starfa
á togurum hjá Útgerðarfélagi
Akureryar og vann þar urn það
bil 20 ár. Fyrstu árin var hann
kyndari en síðan gegndi hann
starfi vélstjóra í mörg ár, þótt
ekki væri hann til þess lærður.
Þetta sýndi það traust sem til hans
var borið. Hann gegndi líka þess-
uin störfum eins og hann átti eðli
til, af mikilli trúmennsku og
samviskusemi.
Þann 24. október 1970 kvænt-
ist Steini Ólöfu Jónasdóttur, sem
fædd er að Borgarholti í Árnes-
sýslu. Þeirra leiðir skildu. en
saman eignuðust þau dótturina
Hörpu, sem nú stundar nánt í
Reykjavík.
Harpa var bjartasti sólargeisl-
inn í lífi Steina, enda reyndist
hún honum elskuleg og um-
hyggjusöm dóttir og var samband
þeirra feðgina ætíð hið besta.
Þrátt fyrir skilnað þeirra Steina
og Lóu, (eins og hún er kölluð)
var samband þeirra ávallt vinsam-
legt og ættingjar Lóu litu alla tíð
á Steina sem einn af fjölskyld-
unni og var það honum mikils
virði. Móður sinni, sem hann átti
heimili nteð í mörg ár í Skarðs-
hlíð 16d á Akureyri, reyndist
hann góður og umhyggjusamur
sonur og ekki síst eftir að hún
fluttist á Dvalarheimilið í Skjald-
arvík. Hann heimsótti hana svo
oft sem við var komið, stundum
veikur og þjáður og daginn sem
kallið kom, hafði hann ráðgert að
heimsækja hana og það hefur
hann vissulega gert, en nú laus
við alla fjötra.
Steini var fremur dulur í skapi
neðri hæð í húsi Sigurðar sonar
þeirra í Langholti 17. Þar mættu
allir sömu gestrisni og glaða við-
móti sem áður.
Vilbotg var myndarleg í hönd-
unum og vandvirk við alla handa-
vinnu, enda fékk hún vinnu hjá
prjónastofunni Heklu á Akur-
eyri. Hefur vinnan eflaust átt vel
við hana og lét hún ekki nokkurt
stykki frá sér fara fyrr en það var
lýtalaust. Þarna eignaðist hún
marga góða vini.
En nú er hún horfin okkur, og
saknar hennar allur vinahópur-
inn. En sárastur er söknuðurinn
öldruðum eiginmanni og
börnum.
Útför Vilborgar fór fram í
Glerárkirkju fimmtudaginn 15.
febrúar að viðstö.ddu fjölmenni.
Jarðsett var í Akureyrar kirkju-
garði. Að athöfninni lokinni var
erfidrykkja í safnaðarheimilinu.
Ég og mínir nánustu sendum
þér Runólfur, börnum þínutn,
barnabörnum og öðrum vanda-
mönnum innilegar samúðar-
kveðjur.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt.
Stefán Bjarnason Flögu.
og bar ekki tilfinningar sínar á
torg en var tryggur vinur vina
sinna. Orðheppinn var hann og
spaugsamur í góðra vina hópi, á
sinn rólega og yfirlætislausa hátt.
Hann dvaldi oft hjá okkur um
tíma á sumrum í sínum fríum og
gekk þá gjarnan að heyskap með
okkur og tók hraustlega til hendi,
meðan hann hafði til þess heilsu.
Þakklát í huga geymum við
margar dýrmætar minningar frá
þessum árum.
Á annan áratug háði hann
harða baráttu við hinn erfiða
sjúkdóm sykursýkina. Veikindi
sín bar hann með æðrulausri ró
og kvartaði ekki, enda ekki
margmáll um eigin hag. Vinnu
stundaði hann svo lengi sem hann
gat, en þar kom í apríl 1988 að
hann orkaði ekki meiru. Við
gerðum okkur grein fyrir heilsu-
leysi Steina og að hverju stefndi
en samt kom andlátsfregnin okk-
ur á óvart. Það var erfitt að trúa
því að hann Steini væri dáinn,
aðeins 48 ára gamall, en huggun
liarmi gegn er, að nú er hann laus
við allar þrautir.
Já, kæri bróðir og mágur, nú ert
þú farinn yfir móðuna miklu til
betri og bjartari heirna, þangað
sem engin þjáning er. Við trúum
því staðfastlega að þín heim-
koma hafi verið góð, þar sem
tekið hefur verið á móti þér af
elskandi föður og öðrum ástvin-
um sem á undan eru farnir. Og
smáfuglarnir, gömlu vinirnir;
„Þeir syngja þér söng, um sumar-
ið blíða og vorkvöldin löng.“
En eftirlifandi ástvinir sakna
þín vissulega sárt, ekki síst elsk-
andi dóttir og öldruð ntóðir, en
eftir lifa dýrmætar minningar,
sem enginn getur frá okkur tekið.
Minningar um elsku þína og ljúf-
lyndi, hjálpsemi og umhyggju,
sem kom best í ljós þegar ein-
hverjir erfiðleikar steðjuðu að
hjá þeim sem voru þér kærir. Því
eins og séra Birgir Snæbjörnsson
orðaði svo fallega í útfararræð-
unni, þá geymdi hjarta þitt gull,
gæsku og mildi.
Elsku Steini, hinsta kveðja
okkar til þín felst í þessum orð-
um skáldsins Vald. Briem.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Lilja og Þorlákur,
Vogum, Mývatnssveit.
FLUGLEIDIR
Umsjónamaður Bílaleigu
Flugleiða Akureyri
Flugleiðir óska að ráða starfsmann til að hafa
umsjón með Bílaleigu Flugleiða á Akureyri.
Félagið leitar eftir starfsmanni sem:
- getur unnið sjálfstætt,
- hefur góða málakunnáttu,
- hefur þekkingu á bílum,
- á gott með að umgangast fólk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í maí n.k.
Umsóknir berist Flugleiðum Akureyri eða Ferðaskrif-
stofu Akureyrar fyrir 7. apríl n.k.
Flugleiðir hf., Akureyri.
Dalvíkurbær auglýsir
starf aðalbókara
laust til umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa verslunarpróf eða sam-
bærilega menntun.
Starfsreynsla er áskilin.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl.
Upplýsingar gefur undirritaður í síma 96-61370.
Bæjarritari.
Háskólinn á Akureyri
Laus er til umsóknar staða fulltrúa á skrifstofu
skólans.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 11. apríl.
Upplýsingar um starfið gefur skrifstofustjóri.
Háskólinn á Akureyri, sími 27855.
Minning:
■tt3 Þorsteinn Steinberg Árelíusson
frá Geldingsá á Svalbarðsströnd
Fæddur 28. apríl 1941 - Dáinn 8. september 1989