Dagur - 28.05.1990, Side 1
73. árgangur
Akureyri, mánudagur 28. maí 1990
99. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir:
Ótvíræð
trausts-
yfirlýsing
við
Framsóknar-
flokkinn
„Ég er ákaf-
tega ánægð
með þessi
kosningaúrslit
og þakklát
þeim fjöl-
mörgu sem
studdu B-
listann. Þetta
er ótvíræð
traustsyfirlýsing kjósenda við
Framsóknarflokkinn á Akureyri,
og ljóst er að störf flokksins á
kjörtímabilinu hafa fallið í góðan
jarðveg. Samhentur hópur vann
að undirbúningi kosninganna, og
eining ríkti innan hans. Þessi úr-
slit voru framar okkar björtustu
vonum. Ég tel þetta vitna um að
fólk vill breytingar í bæjarstjórn
og hafnaði meirihlutanum sem
starl'aði á síðasta kjörtímabili. Á
þessari stundu er ekkert hægt að
segja um meirihlutamyndun, við
erum að kanna málin með tilliti
til þessara jákvæðu kosninga-
úrslita fyrir Framsóknarflokkinn.
Sem sigurvegarar þessara kosn-
inga hljótum við að hafa for-
göngu að því að leita eftir við-
ræðum við aðra flokka um hugs-
anlega meirihlutamyndun í næstu
bæjarstjórn." EHB
Það var glatt a hjalla í herbúðum franisóknarmanna á Akureyri á kosninganótt þegar Ijóst var að flokkurinn hefði náð fjórum fulltrúuin í bæjarstjórn.
Bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri:
Mynd: EHB
Stórsigur Framsóknarflokksins
Framsóknarflokkurinn vann
stórsigur í bæjarstjórnarkosn-
ingunum á laugardag. Meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks í Bæjarstjórn
Akureyrar er því fallinn. Fram-
sóknarflokkurinn jók fylgi
sitt mikið frá bæjarstjórnar-
kosningunum fyrir fjórum
árum, og fékk fjóra fulltrúa
kjörna í Bæjarstjórn Akureyr-
ar. Alþýðuflokkurinn á Akur-
eyri varð fyrir fylgishruni, og
missti tvo bæjarfulltrúa af
þremur. Sjálfstæðisflokkurinn
missti nokkurt fylgi miðað við
kosningarnar 1986, en heldur
fjórum bæjarfulltrúum.
Alþýðubandalagið tapaði
einnig fylgi miðað við kosning-
arnar 1986. Þjóðarflokkur og
Kvennalisti fengu engan full-
trúa kjörinn.
Kjósendur á kjörskrá á Akur-
eyri voru 10.044, en það er fjölg-
un um 3% frá síðustu sveitar-
stjórnarkosningum. Sex listar
voru í framboði, en fimm fyrir
fjórum árum. Atkvæði greiddu
7024, kjörsókn var 70 af hundr-
aði, en 1986 var kjörsókn 76,4 af
hundraði.
Úrslitin voru sem hér segir:
Alþýðuflokkur fékk 862 atkvæði,
12,3%, og einn bæjarfulltrúa
kjörinn, Framsóknarflokkur
1959 atkvæði, 27,9%, og fjóra
fulltrúa kjörna, Sjálfstæðisflokk-
ur 2253 atkvæði, 32,1 %, og fjóra
fulltrúa, Alþýðubandalag 1000
atkvæði, 14,2%, og tvo fulltrúa
kjörna. Kvennalistinn fékk
350 atkvæði, 5%, en Þjóðar-
flokkurinn 361 atkvæði, 5,1%
greiddra atkvæða. 3,4% atkvæða
voru auð eða ógild.
Fylgi flokkanna á Akureyri
skiptist þannig í prósentum í
kosningununi 1986: Alþýðu-
flokkur 21,7%, Framsóknar-
flokkur 21,4%, Sjálfstæðisflokk-
ur 35,2%, Alþýðubandalag
19,8%, Flokkur mannsins 1,8%.
Kjörnir bæjarfulltrúar og vara-
bæjarfulltrúar eru eftirtaldir:
Fyrir Alþýðuflokk Gísli Bragi
Hjartarson, 1 .varafulltrúi Hulda
Eggertsdóttir, fyrir Framsóknar-
tlokk Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
Þórarinn E. Sveinsson, Jakob
Björnsson, Kolbrún Þormóðs-
dóttir, 1. varafulltrúi Sigfríður
Þorsteinsdóttir, fyrir Sjálfstæðis-
flokk Sigurður J. Sigurðsson,
Björn Jósef Arnviðarson, Birna
Sigurbjörnsdóttir, Jón Kr.
Sólnes, 1. varafulltrúi Valgerður
Hrólfsdóttir. Fyrir Alþýðubanda-
lag Sigríður Stefánsdóttir, Heimir
Ingimarsson, 1. varafulltrúi Sig-
rún Sveinbjörnsdóttir.
Dagur haföi samband við efstu
menn framboðslistanna, og
spurði þá álits á úrslitum kosn-
inganna og möguleikum á meiri-
hlutamyndun. EHB
Sigríður Stefánsdóttir:
Við héldum
okkar hlut
„Við stefnd-
um að þvf að
halda tveimur
bæjarfulltrúum
og það tókst.
Alþýðubanda-
lagið varð fyr-
ir fylgistapi
miðað við
kosningarnar
1986, en þá voru heldur ekki þeir
tveir flokkar í framboði sem nú
buðu fram V og Þ lista. Þegar
Ijóst varð að Kvennalistinn byði
fram reiknaði ég með að hann
tæki eitthvert fylgi frá okkur, eins
og gerðist fyrir 8 árum. Við vor-
um hrædd um að þessir tveir
tlokkar tækju til sín það mikið
fylgi að það rnyndi fella 2. mann
Álþýðubandalagsins, en okkur
tókst að verjast og halda okkar
hlut, þótt ég hefði gjarnan viljað
að Alþýðubandalagið fengi fleiri
fulltrúa í þessum kosningum.
Tveggja flokka meirihluta-
samstarf er líklegast úr þessu.“
EHB
Sigurður J. Sigurðsson:
Ennþá stærsti
flokkurinn
„Við sjálfstæð-
ismenn gerð-
um okkur
betri vonir
um úrslit
þessara kosn-
inga en raun
varð á. Við
vorum að
gæla við að
bæta við fimmta manninum. Það
tókst ekki. í öðru lagi er hin
afleita útkoma Alþýðuflokksins
umhugsunarefni og orsök þess að
meirihlutinn sem starfað hefur er
ekki lengur til staðar. Fylgi D-
listans er aðeins minna en fyrir 4
árum, sem má eflaust rekja til
neikvæðrar untræðu um atvinnu-
mál á svæðinu. Sjálfstæðisflokk-
urinn er samt ennjjá stærsti flokk-
urinn á Akureyri, og samanlagt
hafa D- og A-listinn fleiri
atkvæði en B- og G-listinn, þótt
þeir síðarnefndu fái fleiri fulltrúa
kjörna. Um meirihlutasamstarf
er ekki mikið hægt að segja á
þessari stundu.“ EHB
Gísli Bragi Hjartarson:
Sumir tapa og
sumir viiina
„Mér sýnist að
alls staðar þar
sem atvinnu-
mál hafa ver-
ið aðalmál
kosningannna
hafi meirihluti
fallið. Við ósk-
um sigurveg-
urum kosning-
anna til hamingju. Það er einu
sinni gangur lífsins að surnir tapa
og sumir vinna. Við vorum sigur-
vegarar síðast en töpuðum núna.
Ég vænti þess að þeim góðu
málum sem við lögðum áherslu á
verði haldið áfram. Ég nefni sem
dæmi íþrótta-, umhverfis- og
öldrunarmálin.
Ég vona að nýr meirihluti verði
þannig skipaður að hann taki vel
á móti þeim sem vilja reisa álver
við Eyjafjörð.
Þótt ég ætli ekki að afsaka
þessa útkomu bendi ég á að það
hlýtur að vera eitthvað að þegar
svo stór hópur kjósenda kemur
ekki á kjörstað." óþh
Valgerður Magnúsdóttir:
Úrslitin eru
vonbrigði
„Kvennalista-
konur vonuð-
ust til að koma
að fulltrúa eða
fulltrúum í
bæjarstjórn,
og okkur
fannst undir-
tektir vera
góðar við
framboðið. Auðvitað eru úrslitin
vonbrigði, en þó erum við
ánægðar nteð að hafa ákveðið að
bjóða fram og vera með í þessari
vinnu. Við tókum ákvörðun í
janúar um að vera með, og finnst
V-listinn liafa sett mikinn svip á
stjórnmálaumræðuna í bænum.
Málstað okkar höfum við kynnt
skilmerkilega. Framundan er
mikið starf, sem er annars eðlis
en ef við hefðum eignast fulltrúa
í bæjarstjórn. Kosningaþáttakan
nú er mikið umhugsunarefni fyrir
alla sent taka þátt í pólitísku
starfi. Spurningin, sem leitar á
mig, er hvers vegna meira en
fjórðungur kjósenda notaði ekki
atkvæðisrétt sinn. En við munum
halda áfram að efla tengsl okkar
við fólk, kynna málstaðinn og
vinna af fullum krafti. Framund-
an er m.a. að halda upp á 75 ára
afmæli kosningaréttar kvenna til
alþingis 19. júní.“ EHB
Valdimar Pétursson:
Út af fyrir sig
ekki slæm útkoma
„Við hefðum
kosið að fá
nteira fylgi og
koma manni
að. En við
vissurn ekkert
hversu ntikið
fylgi við hefð-
um og út af
fyrir sig var
þetta ekki slæm útkoma. Ég held
að komið hafi í ljós að menn eru
mjög fastheldnir á stjórnmála-
flokka og því vcrður ekki breytt
allt í einu.
Við teljum að þetta fylgi sé
ákveðin vísbending unt að við
eigum ekki að gefast upp. í þess-
um kosningaundirbúningi mynd-
aðist ákveðinn kjarni og við ger-
um okkur vonir um að hann
stækki.
Ég skil ekki þetta fylgi Frarn-
sóknarflokksins og það verða
einhverjir aðrir að skýra. Ég
sagði það í útvarpsviðtali að
stefna Framsóknar hafi ekki fært
þeim þennan sigur, heldur kaffið
og kökurnar sem þeir báru á borð
fyrir kjósendur.“ óþh