Dagur - 28.05.1990, Síða 7
Mánudagur 28. maí 1990 - DAGUR - 7
SigluQörður:
Breyttar
áherslur í
bæjarmálimum?
Kjóscndur á kjörskrárstofni á
Siglufirði voru 1307 og hefur
fækkað um 5% frá síðustu
kosningum. Níu fulltrúar voru
kjörnir af fjórum listum en list-
arnir voru fimm 1986. Kosn-
ingaþátttaka var mjög góð, en
1147 neyttu atkvæðisréttar síns.
Á Siglufirði var góð kjörsókn í
kosningunum á laugardaginn.
1147 greiddu atkvæði af 1286 sem
voru á kjörskrá eða 89,19 %, sem
er sama tala og í síðustu kosning-
um 1986. Auðir seðlar og ógildir
voru 29. Úrslit kosninganna voru
sem hér segir: A-listi Alþýðu-
flokks 261 atkvæði og tvo menn
kjörna, B-listi Framsóknarflokks
214 atkvæði og tvo menn kjörna,
D-listi Sjálfstæðisflokks 307
atkvæði og tvo menn kjörna, F-
listi óháðra 336 atkvæði og þrjá
ntenn kjörna. Listi óháðra er nýtt
framboð. í kosningunum 1986
fékk A-listi Alþýðuflokks 318
atkvæði(27,0%), B-listi Fram-
sóknarflokks 197 atkvæði
(16,7%), D-listi Sjálfstæðisflokks
(28,5%), G-listi Alþýðubanda-
lags 294 atkvæði (25,0%) og M-
listi Flokks mannsins 33 atkvæði
(2,8%)
Kosningu hlutu: Af A-lista:
Kristján L. Möller og Ólöf Á.
Kristjánsdóttir. Af B-lista:
Skarphéðinn Guðmundsson og
Ásgrímur Sigurbjörnsson. Af D-
lista: Björn Jónasson og Val-
björn Steingrímsson. Af F-lista:
Ragnar Ólafsson, Ólafur Mar-
teinsson og Brynja Svavarsdóttir.
Varamenn í bæjarstjórn eru:
Af A-lista: Birgir Sigmundsson
og Regína Guðlaugsdóttir. Af B-
lista: Ásdís Magnúsdóttir og
Sveinbjörn Ottesen. Af D-lista:
Axel Jóhann Axelsson og
Runólfur Birgisson. Af F-lista:
Guðmundúr Davíðsson, Björn
Valdimarsson og Hörður
Júlíusson. ój
Óskar HúnQörð D-lista:
Unum þokkalega
við okkar útkomu
„Ég vil ekki miklu spá um fram-
haldið. Menn ganga opnir til
samninga um meirihluta hér í
Sveitarstjórnarkosningarnar 1990 úrslit
Kristján L. Möller A-lista:
Góður
vamarsigur
„Ég er hress, var úti í garði að
moka snjó. Bæjarfulltrúar okkar
Alþýðuflokksmanna urðu tveir í
stað þriggja, en við munum vinna
sem fyrr, af öllu afli. Ekki skiptir
máli hvort kústurinn er stór,
heldur hvernig er haldið á
honum. Sigurinn okkar síðast var
stórglæsilegur, hinn mesti í 35
ár. Alþýðuflokksmenn á Siglu-
firði eru raunsæisfólk og okkar var
fullljóst að ekki myndi ganga sem
fyrr, nú eftir að Alþýðubanda-
lagsmenn gáfust upp og óháði
listinn kom fram. Slíkt framboð
fær alltaf tiltrú manna, aðeins
vegna þess að hér er um nýjung
að ræða. Úrslit kosninganna eru
góður varnarsigur fyrir Alþýðu-
tlokksmenn á Siglufirði."
Skarphéðinn Guðmundsson B-lista:
Að mörgu þarf
að vinna
„Framsóknarmenn á Siglufirði
eru mjög hamingjusamir í dag.
Við stefndum á að ná öðrum
manni inn í bæjarstjórn og það
tókst. Þakklæti er mér efst í huga
til allra þeirra sem studdu okkur.
Nú er að sjá hvernig málin
þróast, margt er óljóst og að
mörgu þarf að vinna. Framsókn-
arflokkurinn er í sókn á Norður-
landi. Stígandinn er góður. Stóra
vandamálið hér á Siglufirði eru
fjármál bæjarfélagsins og á þeim
verður tekið með röggsemd."
Björn Jónasson D-lista:
Atkvæðin
nýtast iila
„Sjálfstæðismenn eru nokkuð
hressir með úrslitin. Við áttum
von á að halda þriðja manninum,
en það tókst ekki. Samt sent áður
teljum við að kjósendur hafi ekki
hafnað okkur. Við höfum
ákveðnum skyldum að gegna við
kjósendur okkar og við munurn
ekki bregðast þeim. Erfiðleikar í
fjármálum bæjarfélagsins eru
miklir og þar verður að leysa úr
mörgu. Fjöldi kjósenda er vel
viðunandi, en því miður nýtast
atkvæðin okkur illa. Eitt hundrað
góðir kjósendur nýttust ekki.“
Ragnar Ólafsson F-lista:
Menn leggjast
undirfeldoghugsa
„Okkur gekk vel. Nú leggjast
menn undir feld. til að hugsa um
úrlausnir mála. Við erum með
þrjá menn inni og verkefnin eru
mörg og stór. Fæst orð hafa
minnsta ábyrgð. Ég vil þakka öll-
um stuðningsmönnum listans fyr-
ir að veita okkur brautargengi og
við munum ekki bregðast þeim.
Framboð okkar er nýtt framboð
og við munum starfa með það að
leiðarljósi að þjóna bæjarfélag-
inu sem best.“
bæjarstjórn og leggja sig fram um
að finna grundvöll til samstarfs.
Við unum þokkalega vel við okk-
ar útkomu en hér tefldum við
fram nýju fólki í efstu sætum.
Okkur fannst vera kominn tími
til breytinga á fylgi flokkanna og
hefðum viljað vera í sókn en
þessi ósk gekk ekki eftir.
Mér finnst ekki sjálfgefið að
meirihluti frá síðasta kjörtímabili
verði áfram þrátt fyrir að breyt-
ingar hafi ekki orðið miklar á
fylgi listanna. Væntanlega fara
fram þreifingar næstu daga sem
leiða niðurstöðu ntálsins í ljós.“
JÓH
Vilhjálmur Pálmason H-lista:
Mæst geta
stálin stinn
„Skipan í bæjarstjórn er óbreytt
hvað fulltrúa listanna varðar og
meirihlutinn heldur sínu. Núna
kom fram ágreiningur milli þess-
ara flokka sem verið hafa í meiri-
hlutasamstarfi vegna byggingar
brimvarnargarðs sem minn flokk-
ur setur á oddinn en K-listinn
hefur dregið í land með. Á þessu
stigi er ekki hægt að segja um
niðurstöðu úr því máli en gefum
okkur nokkra daga til að kanna
það. Þetta er að okkar mati stórt
ntál og setjum það á oddinn. Ef
hinn aðilinn hvikar ekki heldur
frá sinni stefnu þá mætast stálin
stinn og vissulega getur þetta mál
haft veruleg áhrif á samstarfið.".
Guðmundur Theódórsson K-lista:
Mjög ánægð
með útkomuna
„Listarnir fá jafn marga fulltrúa
og áður en við unnum persónu-
legan sigur í þessum kosningum
og bættum við okkur nokkru
fylgi. Við erum því nijög ánægð
með útkomu okkar í kosningun-
um.
Maður getur ekkert sagt um
framhaldið. Kosningabaráttan á
stað sem þessum er hörð og
persónuleg en þegar kosningarn-
ar eru nú um garð gengnar ræðast
tveir aðilar við og athuga fram-
haldið. Við gengum óbundin til
þessara kosninga en það kom
ekki sérstaklega fram hjá okkar
stuðningsfólki að fengnum þess-
um niðurstöðum hvort ætti frekar
að ræða við D-lista en H-lista um
samstarf.“