Dagur - 28.05.1990, Qupperneq 9
Mánudagur 28. maí 1990 - DAGUR - 9
í Hölliraú með Kim Larsen
Óhætt er að segja að ágæt stemmning hafi ríkt á meðal um það bil eitt þúsund
áhorfenda sem mættu í íþróttahöllina hér á Akureyri til að sjá og heyra Kim
Larsen og hljómsveit hans Bellami spila síðastliðið föstudagskvöld. Var efnis-
skráin að mestu byggð upp á tveimur síðustu plötum Larsens, Yummi Yummi og
Kielgasten, auk nokkurra eldri laga. Spilamennskan var eins og við var að búast,
nær hnökralaus, og góður skriður á hljómsveitinni út alla tónleikana. Kim Larsen
verður aldrei talinn mikill gítarleikari (enda spilaði hann aðeins taktinn) en sem
söngvari er hann mjög góður og sömuleiðis hinn þokkalegasti munnhörpuleikari.
Eins og áður sagði voru um eitt þúsund manns sem sóttu tónleikana og verður
það að teljast þokkaleg aðsókn þótt vonast hafi verið eftir fleirum. Var það
Iþróttafélagið Þór sem stóð að komu Kim Larsens hingað til bæjarins og er
ástæða til að hrósa því fyrir framtakið. Er svo bara vonandi að framhald verði á.
MagnÚ!> Geir Guðnuindsson
Fulltrúaráð Framsóknar-
félaganna á Akureyri
Fundur í kvöld kl. 21.00 í Hafnarstræti 90.
Fundarefni:
Úrslit kosninganna og starfiö framundan.
Önnur mál.
Fulltrúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Stjórnin.
Sjómannadagurinn
1990
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í kappróðri eða
öðrum íþróttum á Sjómannadaginn þann 10. júní
n.k. tilkynni þátttöku til Baldvins eða Áka, Hafnar-
skrifstofunni í síma 26699.
Róðrarbátar Sjómannadagsráðs verða tii afnota fyrir
keppnislið til æfinga í samráði við sömu aðila.
Vinsamlegast athugið að róðrarkeppnin fer fram
laugardaginn 9. júní og hefst kl. 15.00.
Sjómannadagsráð Akureyrar.
Frá Kammerhljómsveit Akureyrar.
AÐALFUNDUR
Kammerhljómsveitar Akureyrar
verður haldinn miðvikudaginn 30. maí kl. 20.30 á sal
Tónlistarskólans á Akureyri.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tónlistaratriði og kaffiveitingar.
Stjórnin.
Hestamannafélagið Léttir
Félagsfundur
Almennur félagsfundur í Skeifunni kl. 20.30,
miðvikudaginn 30. maí.
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga.
Önnur mál.
Félagar fjölmennið!
Stjórn Léttis.
AKUREYRARB/ÍR
Norðlendingar
Vínardrengjakórinn verður með tónleika í
Akureyrarkirkju laugardaginn 2. júní kl.
16.00.
Forsala aðgöngumiða hófst í síðustu viku.
Tryggið ykkur miða í tíma. Þegar er búið að selja
um helming miðanna.
Aðeins þessir einu tónleikar á Akureyri.
Miðasala hjá Akureyrarbæ á skrifstofu menning-
armála, Strandgötu 19 b.
Einnig tekið við pöntunum í síma 96-27245.
f?
Menningarfulltrúi.
N
AKUREYRARB/íR
FRÁ GRUNNSKÓLUM
AKUREYRAR
Kennara vantar í eftirtöldum greinum, ýmist í
heilar- eða hlutastöður:
Gagnfræðaskóla Akureyrar (sími 96-24241):
íslensku, ensku, stærðfræði, samfélagsfræði,
sérkennslu, heimilisfræði, vélritun og smíðum.
Glerárskóla (sími 96-21395): Dönsku,
myndmennt, smíðum, tónmennt, heimilisfræði og
forfallakennslu.
Síðuskóla (sími 96-22588): Bekkjarkennslu í 1.-
7. bekk, ensku, smíðum, sérkennslu og forfalla-
kennslu.
Nánari upplýsingar hjá skólastjórum og yfirkenn-
urum viðkomandi skóla og hjá skólafulltrúa (sími
96-27245).
Umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
Skólanefnd Akureyrar.
Heilræði
Varúö!
Geymið lyf þar sem
börn ná ekki til