Dagur - 20.07.1990, Page 5
Föstudagur 20. júlí 1990 - DAGUR - 5
_n Síðbúin kveðja
T Ingólfur Benediktsson
Fæddur 25. september 1908 - Dáinn 6. maí 1990
Ingólfur Benediktsson frá Dal við
Grenivík, var fæddur 25. sept. 1908 á
Grund á Svalbarðsströnd. Ung og
bjartsýn, höfðu foreldrar hans, Bene-
dikt Sigurbjörnsson og Steinlaug Guð-
mundsdóttir reist handa sér þetta litla
býli, úr landi Breiðabóls. Undu þau sér
vel þar fyrstu árin, en jarðnæðið var
ófullnægjandi, fyrir ört vaxandi fjöl-
skyldu og fluttu þau því í Veigastaði
árið 1912.
Árið 1916 fluttu þau búferlum í
Jarlstaði í Grýtubakkahreppi og
bjuggu þar til æviloka. Benedikt og
Steinlaug voru mannkostamanneskjur,
sem ekki máttu vamm sitt vita í neinu.
Synirnir urðu sex að tölu, allt mestu
sómamenn og var Ingólfur sá þriðji í
röðinni. Látnir eru: Sigurbjörn, lengi
bóndi í Ártúni í Grýtubakkahreppi,
síðast í Skarðshlíð á Ákureyri og Sig-
urður, lengi bóndi í Litlagerði í Grýtu-
bakkahreppi, seinna trésmiður á Akur-
eyri.
Á lífi eru: Bjarni bóndi á Jarlstöð-
um, Jóhann bóndi á Eyrarlandi og
Kristján, málarameistari og hagyrðing-
ur á Akureyri.
Ekki var um langa skólagöngu að
ræða hjá þessum bræðrum, þótt nægar
væru námsgáfur. Á þessum árum var
sveitafólk víðast hvar fremur fátækt og
lítil efni á skólaveru, umfram daglegar
þarfir.
En bókasöfn voru vel notuð, fólkið
las góðar bækur, fylgdist vel með öllum
þjóðmálum, það talaði fagurt og kjarn-
gott mál og var vel að sér, eins og sagt
er, og það urðu þeir Jarlstaðabræður
einnig.
Ingólfur dvaldist á Laugaskóla einn
vetur, en heilsa hans setti skorður við
áframhaldandi skólavist. Hann dvaldi
lengi á Sjúkrahúsi Akureyrar, en náði
samt dágóðri heilsu að lokum.
Árið 1933 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Hólmfríði Björnsdóttur frá
Nolli í Grýtubakkahreppi. Fyrstu árin
dvöldust þau í skólahúsinu og á Völlum
á Grenivík, en fljótlega lét hann draum
sinn rætast og byggði nýbýli, úr landi
Grenivíkurjarðar. Hann var mjög lag-
tækur og smíðaði að mestu leyti sjálfur
þetta litla býli, sem hann nefndi Dal.
Pangað flutti fjölskyldan, sem sífellt
stækkaði, urðu börnin 10 talsins. Er
það allt myndarfólk og góðir þjóðfél-
agsþegnar. Pau eru: Sigríður Inga, gift
Birni Jónssyni á Einarsstöðum. Þá er
næstur: Ernst Hermann, búsettur á
Grenivík, kvæntur Brynhildi Frið-
bjarnardóttur. Jóhann, rafvirki á
Akureyri, ógiftur. Pá eru tvíburar: Ing-
ólfur Steinar, rafvélavirki á Akureyri,
kvæntur Steinunni Sigurðardóttur og
Björn Andrés, skólastjóri á Grenivík,
kvæntur Ólínu Friðbjarnardóttur.
Næstur er: Sr. Kristján Valur, prestur á
Grenjaðarstað, kvæntur Margréti Bó-
asdóttur söngkonu. Anna Steinlaug, á
Grenivík, gift Heiðari Baldvinssyni.
Guðbjörg, búsett í Mývatnssveit, gift
Hinriki Árna Bóassyni. Haukur Már,
búsettur á Grenivík, kvæntur Ingi-
björgu Hreinsdóttur, en yngst er Krist-
ín Árný, heima ógift.
Þessi stóri mannvænlegi hópur, ber
foreldrum sínum fagurt vitni, um gott
og farsælt uppeldi, þar sem góðir siðir
voru í heiðri hafðir, tillitssemi við aðra
og virðing borin fyrir öllu mannlífi.
En mikils hefur það heimili þarfnast,
í daglegum rekstri og heimilisfaðirinn
ekki alltaf komist af með átta stunda
vinnudag. Eiginkona hans Hólmfríður,
er að allra dómi einstök móðir og hús-
móðir. Hún hefur vakað og verndað
heimili sitt og börn, náð endum saman
og hefur unnið kraftaverk í hagsýni og
fyrirhyggju.
Ingólfur vinur minn var óvenju vel
gerður maður, hann var hagmæltur
listrænn að eðlisfari, tónelskur og hafði
fagra söngrödd. Hann söng í kór
Grenivíkurkirkju um áratugaskeið og
einnig í þeim öðrum kórum, sem störf-
uðu í sveitinni og lék mjög vel á har-
moniku, sem og bræður hans fleiri.
Hann var meðhjálpari í Greni-
víkurkirkju um áratugaskeið, var lengi
safnaðarfulltrúi og lét sig málefni kir-
kjunnar miklu varða. Hann náði leikni
í húsamálningu og ávann sér réttindi í
þeirri grein og allt fórst honum vel úr
hendi, viðvíkjandi því starfi. Á efri
árum tók hann til við listsmíði, renndi
úr skógviði fagra muni, smáborð,
öskjur, tónsprota o.fl. sem hann gaf
vinum og vandamönnum.
Ingólfur varð bráðkvaddur á heimili
sínu á Grenivík, sunnudagsmorguninn
6. maí sl. Kallið var komið.
Hann var jarðsettur frá Greni-
víkurkirkju, laugardaginn 12. maí, að
viðstöddu fjölmenni. Vinsæll og góður
maður er genginn.
Að lokum þakka ég alla góða við-
kynningu, í söng og gleði, í félagsstarfi
heima í sveitinni okkar.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt:“
Ég sendi Hólmfríði og börnum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Sigríður Guðmundsd. Schiöth.