Dagur - 01.12.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 1. desember 1990 - DAGUR - 5
Kynningarfundur um umhverfismál á Norðurlandi vestra:
Sorphirða - Brotamálmar - Mengunarvamir
„Kynningarfundur um umhverf-
ismál á vegum sveitarfélaga.
Sorphirða - Brotamálmar -
Mengunarvarnir.“ Þetta var
yfirskrift fundar sem haldinn
var sl. fimmtudag í Safnahús-
inu á Sauðárkróki, þar sem
þessi mál voru m.a. rædd á
kjördæmisgrundvelli. Fundinn
sátu sveitarstjórnarmenn á
Norðurlandi vestra.
Tilefni þessa fundar var sam-
þykkt frá síðasta Fjórðungsþingi
Norðlendinga um umhverfismál
og kynningarfundi og stóðu
Fjórðungssambandið og umhverf-
isráðuneytið fyrir honum.
Fyrst á dagskrá var framsaga
umhverfisráðherra, Júlíusar
Sólness, þar sem hann sagði m.a.
að sú nefnd sem verið hefur að
vinna að frumvarpi um umhverf-
isverndarlög væri farin að nálgast
verklok. Um leið og frumvarpið
verður lagt fram sagðist Júlíus
vonast til að mótun umhverfis-
málastefnu stjórnvalda yrði lokið
og hún sett fram í formi þings-
ályktunartillögu. Pessi tvö atriði
auk þingsályktunartillögu um
fyrirkomulag sorphirðu í landinu
öllu og aukna endurvinnslu sagð-
ist ráðherra vonast til að búið
yrði að samþykkja fyrir lok þings
í vor. Júlíus minntist einnig á
hugmyndir eins og að umhverf-
isverndarskrifstofur yrðu í hverj-
um landshluta og síðan umhverf-
isverndarstofnun yfir öllu og að
búin yrði til deild innan jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga vegna sorp-
hirðu.
Framsögumenn á vegum um-
hverfisráðuneytisins voru: Davíð
Egilsson frá Náttúruvernd, Sigur-
björg Sæmundsdóttir frá ráðu-
! neytinu og Birgir Pórðarson frá
Hollustuvernd ríkisins. í máli
Davíðs kom m.a. fram að náttúru-
verndarnefndir á vegum sýslna
væru ekki nógu virkar t.d. í
sambandi við sorphirðumál og að
sveitarstjórnir þyrftu að móta sér
hugmyndir um landnýtingu.
Sveinn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
á Norðurl. vestra, lagði fram
skýrslu þar sem m.a. kom fram
að brýnt væri að bæta frárennsl-
ismál á Laugarbakka, Varmahlíð,
Hofsósi og ekki síst á Siglufirði.
Einnig sagði hann að stór þrösk-
uldur væri að þau sveitarfélög
sem brýnast væri að gera úrbætur
í væru oft illa stödd fjárhagslega.
Framsögumenn frá sveitarfé-
lögum á Norðurl. vestra voru
þeir Bjarni Þór Einarsson sveit-
arstjóri á Hvammstanga og
Snorri Björn Sigurðsson sveitar-
stjóri á Sauðárkróki. Þeir ræddu
um umhverfismál almennt og
Framkvæmdir við stækkun
Hótel Stefaníu á Akureyri eru
nú komnar af stað. Stefán Sig-
urðsson, einn af eigendum
hótelsins, fékk nýlega leyfi
bygginganefndar fyrir lóðar-
stækkun og viðbyggingu og
hófst hann þegar handa.
f bókun bygginganefndar kem-
ur fram að hún samþykkir lóðar-
stækkun að lóð Hafnarstrætis 81
og 81b upp í brekkuna ásamt
trapisulagaðri spildu af lóð Hafn-
arstrætis 81 og 81b, samkvæmt
sagði Snorri að með hinni nýju
mengunarvarnareglugerð væru
lagðar gífurlegar skyldur á herð-
ar sveitarfélaga og þau hefðu
ekki bolmagn til að koma þeim í
framkvæmd þó nauðsynlegt væri.
Snorri lagði einnig til að sveitar-
félög kæmu upp safnstöðvum, en
ríkið setti upp móttöku og förg-
unarstöðvar og að tilraun yrði
gerð með það á Norðurl. vestra.
Vilhjálmur Grímsson, tækni-
fræðingur, talaði um reynslu
Suðurnesjamanna og leiðir til
hagkvæmra lausna í sambandi
við förgun úrgangs á vegum sveit-
arfélaga og sagði árlega upphæð í
Norðlendingafjórðungi verða
2500-5000 krónur á íbúa til að
viðundandi förgun gæti átt sér
stað.
í lokin voru almennar umræð-
ur, en síðan var fundi slitið.
Samskonar fundur var haldinn
fyrir Norðurland eystra í gær á
Akureyri. SBG
nánari útmælingu tæknideildar.
Almennur umferðarréttur verði
áfram um sundið fyrir gangandi
fólk og umferðarréttur fyrir bíla
frá Hafnarstræti að fyrirhuguðum
tröppum.
Nefndin tók jákvætt í að byggt
verði við 2., 3. og 4. hæð Hótel
Stefaníu og samþykkt var að
byggður verði stoðveggur og
geymsla upp í brekkuna. Bygg-
inganefnd synjaði hins vegar
byggingu sorpgeymslu í sundinu.
SS
Akureyri:
Byggt við Hótel Stefaníu
Ég færi kjósendum
í Norðurlands-
kjördæmi eystra
þakkir fyrir stuðning
í nýafstöðnu prófkjöri
Alþýðuflokksins.
Þakka meðfram-
bjóðendum
drengilega framgöngu.
Merrild setur brag Langar þig í
á sérhvern dag fallega kaffidós ?
Merrild kaffið er afar vinsælt og
það á sér góðar og gildar ásæður:
Hin frábæra fylling og niýkt í
bragðinu helst lengur í munni en þú
átt að venjasl. Kaffið er drjúgt og
milt en aldrei rammt eða súrt. Það
leynir sér ekki að það er blandað og
brennt úr heimsins bragðbestu
kaffitegundum frá Kólombíu, Brasilíu
og Mið-Ameríku.
Góð kaffíráð
Gott hráefni er aðalsmerki Merrild
kaffisins og mjúki pokinn tryggir að
gæðin haldist svo að þú færð alltaf
sama ilmandi kaffið og frábæra
kaffibragðið.
Tæmdu aldrei pokann í dós. Settu
kaffipokann ofan í Merrild kaffi-
dósina. Þannig kemst hvorki
súrefni né birta að
kaffinu og
ilmurinn,
bragðið og
ferskleikinn
haldast til síðasta
dropa.
.
t
I
<1
t
Klipptu strikanrerkið af rauða
Merrild pakkanum og fáðu
kaffi-dós eins og þá sem þú
sérð hér til liliðar.
Allt sem þarf að gera er að
geyma strikanrerkin af 6
pökkum af rauðum Merrild 500
gr. og senda til okkar. Þá
sendum við þér Merrild kaffidós
þér að kostnaðarlausu. Einnig
getur þú skipt strikamerkjunum
í peninga ef þú vilt ekki
kaffidósina.
2 strikamerki = 40 kr.
4 strikamerki = 80 kr.
6 strikamerki = 120 kr.
Já, takk.
I I (krossið við) ég vil gjarnan fá eina Merrild kaffi-
dós og sendi hér með 6 strikamerki af rauðum Merrild
500 gr.
I I (krossið við) ég vil gjarhan fá greitt fyrir meðfylgjandi
stk. strikamerki samtals kr.
Hámark 1 umslag og 6 strikamerki á heimili.
Nafn________
Heimilisfang
Póstnr./bær _
Umslagið sendist til Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík.
Síðasti innsendingar
dagur er 28. febrúar
1991.
5 701037
28 90
D13234
Svona lítur strikamerkið
út. Þú finnur það aftaná
rauðum Merrild pakka.
Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík.