Dagur - 02.07.1991, Page 9
Þriðjudagur 2. júlí 1991 - DAGUR - 9
3. deild:
steinlá heima en
5r aftur á toppinn
urum á heimavelli sínum á laug-
ardaginn. Kristján Svavarsson
gaf Norðfirðingum tóninn þegar
hann prjónaði sig í gegnum
vörn Dalvíkinga og skoraði á
17. mínútu og Guðbjartur
Magnason bætti öðru marki við
úr vítaspyrnu á 25. mínútu.
Dalvíkingar sóttu stíft fram að
hléi og það bar árangur þegar
Árni Sveinsson minnkaði mun-
inn úr síðustu spyrnu hálfleiks-
ins.
Dalvíkingar byrjuðu af krafti
í seinni hálfleik og fengu þokka-
leg færi fyrstu 15 mínúturnar
sem öll fóru þó forgörðum.
Kristján Svavarsson bætti sínu
öðru marki við eftir aukaspyrnu
á 60. mínútu og þar með var all-
ur vindur úr heimamönnum. í
lokin skoraði Þráinn Haralds-
son fjórða mark Þróttar eftir
hornspyrnu og Marteinn Hilm-
arsson innsiglaði sigurinn í lok-
in eftir slæm varnarmistök Dal-
víkinga.
Þróttarar hafa átt erfitt upp-
dráttar í byrjun móts en sýndu í
þessum leik að ýmislegt býr í
íiðinu.
Kaflaskipt
á Árskógsströnd
Reynismenn léku undan nokk-
uð sterkum vindi í fyrri hálfleik
gegn ÍK og nýttu sér það. Hall-
dór Jóhannsson náði forystunni
fyrir Reyni með góðu marki,
fékk boltann inná teiginn, fór
framhjá tveimur varnarmönn-
um og sendi boltann í fjærhorn-
ið. Reynismenn sóttu síðan
mun meira en ÍK-ingar beittu
skyndisóknum sem voru hættu-
litlar. Um miðjan fyrri hálfleik
barst boltinn til Siguróla
Kristjánssonar inni í vítateig ÍK
og hann renndi honum í netið af
stuttu færi og breytti stöðunni í
2:0.
í seinni hálfleik snerist dæmið
við, ÍK-ingar sóttu en Reynis-
menn vörðust og héldu fengn-
um hlut með góðri baráttu.
Þröstur Gunnarsson minnkaði
muninn með skalla í bláhornið
og var síðan nálægt því að jafna
þegar hann átti hörkuskalla í
þverslá Reynismarksins. Þá átti
Ómar Jóhannsson þrumuskot
sem Logi Einarsson, markvörð-
ur Reynis, varði mjög vel og
úrslitin urðu því 2:1.
Dauft í Ólafsfíröi
Leikur Leifturs og BÍ í Ólafs-
firði var heldur daufur. Leift-
ursmenn voru sterkari aðilinn
en náðu ekki að skora í fyrri
hálfleik þrátt fyrir nokkur ágæt
færi. Það besta fékk Gunnlaug-
ur Sigursveinsson þegar hann
stóð fyrir opnu marki en mis-
reiknaði sig og markvörðurinn
náði boltanum. Seinni hálfleik-
ur var svipaður þeirn fyrri,
Leiftursmenn voru meira með
boltann og fengu opnari færi en
tókst ekki að nýta þau fyrr en
alveg í lokin. Þá skoraði Hall-
dór Guðmundsson, sem ■kom
inná sem varamaður í seinni
hálfleik, eina mark leiksins og
tryggði Leiftursmönnum þrjú
mikilvæg stig.
Völsungar þrisvar yfír
Völsungar léku undan vindi í
fyrri hálfleik í Borgarnesi og
sóttu meira. Unnar Jónsson
kom þeim yfir en Finnur
Thorlacius jafnaði fyrir Skalla-
grím. Jónas Grani Garðarsson
kom Völsungum aftur yfir og
staðan var 2:1 í hléi.
f seinni hálfleik jafnaði Grét-
ar Guðlaugsson eftir 10 mínútur
en Unnar Jónsson kom Völsu-
ngum enn yfir um miðjan hálf-
leikinn. Skallagrímsmenn sóttu
stíft eftir þetta og Valdimar Sig-
urðsson jafnaði jjegar 10 mínút-
ur voru til leiksloka og sóttu
heimamenn ákaft í lokin en án
árangurs. „Við vorum mjög
sáttir við þessi úrslit," sagði
Björn Olgeirsson, þjálfari
Völsungs.
Þess má geta að 16 ára strák-
ur úr 3. flokki, Árni Guð-
mundsson, var í byrjunarliði
Völsungs í leiknunt.
Akureyri:
Boltasjálfsali
tekinn í notkun
hjá Golfklúbbnum
Golfklúbbur Akureyrar hefur
tekið í notkun boltasjálfsala á
æfíngasvæði sínu á Jaðarsvelli.
Nú þurfa menn ekki lengur að
koma með eigin bolta til æf-
inga heldur geta þeir borgað
150 kr. og fá í staðinn 40 bolta
sem þeir slá út á svæðið og
þurfa ekki að hafa fyrir að
sækja þá.
Þetta hefur þann ótvíræða kost
að nú geta mun fleiri æft sig á
svæðinu í einu þar sem menn
verða ekki á ferðinni að týna upp
bolta. Þeir sem hafa áhuga á að
nýta sér þessa þjónustu borga 150
kr. í Golfbúð David’s og fá í
staðinn mynt sem gengur í sjálf-
salann á æfingasvæðinu. Þetta er
hægt að gera kl. 10-22 á virkum
dögum og 8-18 um helgar. Þeir
sem ekki eiga áhöld geta fengið
lánaðar kylfur í versluninni.
Nýliðar geta einnig komið á
hverjum miðvikudegi í sumar
milli kl. 20-22 og prófað að slá
endurgjaldslaust. Lítist þeim á
íþróttina býður David Barnwell
upp á hópkennslu fyrir byrjendur
og kostar tíminn 300 kr.
David er með tíma fyrir nýliða
12 ára og yngri á mánudögum og
föstudögum kl. 17-18 en fyrir
eldri nýliða á þriðjudögum kl. 17-
18. Fastir tímar fyrir lengra
komna eru á miðvikudögum kl.
17-18 og þá .daga eru einnig 9
holu mót fyrir 14 ára og yngri.
Verðlaunahafar á Viking-brugg niótinu í golfi. Sigurvegarinn, Kristján Gylfason, er lengst til vinstri í aftari röð en
Arnar Sigmundsson, sigurvegari í keppni með forgjöf, er við hlið hans. Mynd: jhb
Golf:
Kristján Gylfason og Amar
Sigmundsson unnu Viking-bruggið
Kristján H. Gylfason sigraði í
keppni án forgjafar á Viking
brugg móti GA sem fram fór
að Jaðri um helgina. Kristján
lék 36 holur á 150 höggum.
Arnar Sigmundsson sigraði í
keppni með forgjöf, lék á 135
höggum nettó,
Kristján lék mjög vel um helg-
ina, einkum seinni daginn en þá
lék hann 18 holurnar á 73
höggum, eða tveimur yfir pari.
Fyrri daginn lék hann á 77
höggum, eins og Þórhallur
Pálsson, sem hafnaði í öðru sæti.
Þórhallur lék á 75 seinni daginn
og lauk því keppni á 152
höggum. Þriðji varð Konráð
Gunnarsson á 155 höggum.
í keppni með forgjöf lék Arnar
Signtundsson á 135 höggunt nettó
og sigraði örugglega. Björn
Gíslason varð annar á 139 og
Þórhallur Pálsson þriðji á 140.
Þetta var fyrsta mótið sem Vik-
ing brugg verksmiðjan á Akur-
eyri styrkir. Fyrirtækið gaf verð-
laun fyrir fyrstu þrjú sæti með og
án forgjafar og einnig aukaverð-
laun fyrir þá sem urðu næstir
holu á þremur brautum. Konráð
Gunnarsson varð næstur holu á
11. flöt, 0.68 m, Jón Þór Gunn-
arsson á 4. flöt, 0.79 m, og Guð-
mundur Lárusson á 6. flöt, 0.42
m. Hlaut hver þeirra þrjá kassa
af gosi fyrir afrekið. Einnig var
rnikið magn af gosi og öli í verð-
laun fyrir að fara holu í höggi en
engum tókst það um helgina.
Skráningu í Akureyrarmót
að ljúka
Akureyrarmótið í golfi hefst á
morgun. Kylfingum skal bent á
að skráningu er að ljúka og renn-
ur fresturinn út um hádegi í dag.
Golf:
Öm og SigurpáJl í unglingalandslið
- fara á EM í næstu viku
Síðasta stigamót unglinga í
golfi fór fram á Jaðarsvelli á
Akureyri uni helgina. Mótin
voru alls fjögur talsins og var
valið eftir þeim í unglinga-
landsliðin sem taka þátt í
Evrópumóti og Norðurlanda-
móti á næstunni. Tveir Akur-
eyringar eru í liðunum, Sigur-
páll Sveinsson og Örn Arnar-
son.
Leiknar voru 36 holur á laugar-
daginn og urðu úrslit þau að
Þórður Emil Ólafsson, GL, sigr-
aði á 149 höggum, Tómas
Jónsson, GKJ, varð annar á 154
og Tryggvi Pétursson, GR. þriðji
á 155. Sigurpáll Sveinsson varð
fremstur Akureyringa, í 5. sæti á
156 höggum, en Örn Arnarson
varð 6. á 157.
Búið er að velja landsliðin sem
taka þátt í mótunum tveimur.
Evrópumótið hefst í Noregi í
næstu viku og liðið sem þangað
fer skipa: Sigurpáll Sveinsson,
GA, Örn Arnarson, GA, Þórður
Emil Ólafsson, GL, Tómas
Jónsson, GKJ, Tryggvi Péturs-
son, GR, og Arnar Astþórsson,
GS. NM-liðið er eins nema Rún-
ar Gunnarsson og Júlíus Haralds-
son koma inn í stað Arnars Ást-
þórssonar og Tómasar Jónsson-
ar. Norðurlandamótið fer fram á
Jaðarsvelli 27.-28. júlí.
Æfingasvæði G.A. að Jaðri er opið frá kl. 10-22 virka daga.
Um helgar frá kl. 8-18.
Hægt er að fá lánaða
40 GOLFBOLTA í FÖTU
fyrir kr. 150,- (þarf ekki að tína saman eftir æfingu!).
Áhöld fást lánuð hjá Golfbúð Davids.
David G. Barnwell golfkennari verður með ókeypis golfæfingar
á æfingasvæði G.A. að Jaðri alla miðvikudaga í sumar frá kl. 20-22.
David G. Barnwell, golfkennari • Sími 96-24836