Dagur - 02.07.1991, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 2. júlí 1991
Kodak '
Express
Gæóaframköllun
★ Tryggðu filmunni þinni
Jfiesta °Pedíomyndir'
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324.
„Brúðkaup ársins“ á Norðurlandi fór fram í Sauðárkrókskirkju sl. laugardag þegar knattspyrnukappinn Eyjólfur
Sverrisson gekk í það heilaga með Önnu Pálu Gísladóttur. Um tvöfalt brúðkaup var að ræða þar sem söngvarinn
góðkunni Kristján Gíslason, bróðir Önnu Pálu, gekk að eiga Hjördísi Jónsdóttur. Á myndinni ganga brúðhjónin
ungu frá kirkju, fyrst Eyjólfur og Anna Pála og þá Kristján og Hjördís. Eins og sjá má fengu þau að finna fyrir hrís-
grjónaregni vina og kunningja að athöfn lokinni. Síðan var haldið til veislu í félagsheimilið Melsgil hjá Reynistað
í Skagafirði. Brúðhjónin voru gefin saman af sr. Hjálmari Jónssyni. Mynd: -bjb
Aðalfundur Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar í gær:
Starfssvið félagsins þrengt
frá því sem verið hefur
- félagið taki þátt í umræðu um gæðastjórnun og veiti aðilum
með ráðgjöf um stofnun nýrra fyrirtækja
Bókun bæjarráðs ÓlafsQarðar:
Orð bæjarMtrúans um
kostnaðarreikninga bæjar-
stjóra falli niður dauð og ómerk
Aðalfundur Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar var haidinn í gær.
A fundinum var rætt nokkuð
um stefnumörkun fyrir félagið
en grundvallaratriði í þeim
hugmyndum er að þrengja
Álafoss:
Beðið eftir
svarifrá
Landsbankanum
Skiptaráðandi og bústjórar
þrotabús Álafoss hf. telja að
nauðsynlegt sé að fá fram
afstöðu veðhafa þrotabúsins
sem fyrst til þeirrar spurn-
ingar hvort ætlun þeirra sé
að leysa veðin til sín. Svar
Landsbankans skiptir hér
miklu máli, en hann er einn
stærsti kröfuhafinn.
Kolbeinn Sigurbjörnsson,
sem sæti á í starfsmannaráði
Áiafoss, segir að tíminn sé
dýrmætur, en tilvonandi
rekstrarfélag um nýtt ullariðn-
aðarfyrirtæki byggist auðvitað
á afstöðu stærstu kröfuhaf-
anna til hugmyndarinnar.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson,
skiptaráðandi, segir ljóst að
veðhafar verði að skýra
afstöðu sína gagnvart búinu
sem lyrst, og áhersla verði
lögð á að knýja fram svör um
þetta atriði.
Að sögn Kolbeins er enn
tími til að bjarga Rússasamn-
ingunum, hann telur að þeir
séu ekki í neinni teljandi
hættu. Nýlcga var rætt við
Sovétmenn, en þeir bíða
átekta eftir þróun mála varð-
andi Álafoss. EHB
starfssvið þess frá því sem ver-
ið hefur og að aftur verði horf-
ið til þess að Iðnþróunarfélag-
ið veiti ráðgjafaþjónustu og
upplýsingar fyrir þá aðila sem
hug hafa á stofnun og rekstri
nýrra fyrirtækja.
„Hér eru tveir starfsmenn og
við ætlum ekki að vera með fleiri
starfsmenn í þessum almennu
verkefnum. Ef við fáum hins veg-
ar fjármagn og tækifæri til að ráð-
ast í sérverkefni þá getur verið að
við ráðum tímabundið fleiri
starfsmenn,“ sagði Ásgeir Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Iðn-
þróunarfélagsins, að afloknum
aðalfundinum í gær.
„Við ætlum ekki að teygja
okkur út yfir allt svið atvinnulífs-
ins, ætlum ekki að sinna öllum
þáttum atvinnulífsins á öllum
forsendum því þá verður lítið úr
verki. Ætlunin er því frekar sú að
færri verkefni verði tekin fyrir í
einu,“ sagði Ásgeir.
Einnig segir hann að Iðnþró-
unarfélagið hyggist taka þátt í
umræðum um gæðastjórnun og
að félagið reyni að verða að liði
þeim starfandi fyrirtækjum sem
hafa í hyggju að nota gæðastjórn-
un til bættrar afkomu.
„Þá ætlum við líka að fara í
gang með verkefni fyrir þá sem
vilja fara af stað með atvinnu-
rekstur og hafa góðar hugmynd-
ir. í stað þess að Iðnþróunarfé-
lagið geri allt sjálft viljum við
vinna ineð viðkomandi aðilum og
undir þetta geta líka fallið nýjar
framleiðsluhugmyndir hjá þegar
starfandi fyrirtækjum. Pað er
miklu betra að svona lagað fari á
hausinn á skrifborðinu heldur en
slíkt gerist þegar búið er að
leggja allt undir. Svona viljum
við reyna að vinna,“ sagði Ás-
geir.
Á aðalfundinum í gær urðu litl-
ar breytingar á stjórn Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar. Kristján
Þór Júlíusson, fyrrverandi for-
maður stjórnar, fór nú út úr
stjórninn og sem fulltrúi Dalvík-
urbæjar kom Gunnar Aðal-
björnsson inn. Pá óskaði Ólafs-
fjarðarbær eftir fresti til að til-
nefna sinn fulltrúa en bæjarráð
hefur ekki komið sér saman um
tilnefningu hans og fer málið fyrir
bæjarstjórn. Aðrar breytingar
urðu ekki á stjórn IFE í gær.
JÓH
Félagsmálaráðuneytið hafnaði
sl. föstudag þeim hugmyndum
Sjálfstæðisflokksins í Ólafs-
flrði að boða fulltrúa úr sætum
8-14 á framboðslista við síð-
ustu kosningar til setu í bæjar-
stjórn nú þegar þrír aðalfull-
trúar flokksins hyggjast taka
sér frí til næstu áramóta.
Ákveðið hefur verið að boða
fulltrúa í sætum 5-7 til setu í
bæjarstjórninni, þ.e. þau
Guðrúnu Jónsdóttur, Hauk
Sigurðsson og Önnu Maríu
Elíasdóttur.
Óskar Þór Sigurbjörnsson,
forseti bæjarstjórnar, segir að
samkvæmt svari félagsmálaráðu-
neytisins sé ekki heimilt í þessu
tilviki að beita undanþágu-'
ákvæðum í lögum frá þeirri
almennu reglu að fyrstu vara-
menn á framboðslista taki sæti ef
aðalmenn víkja.
Síðdegis í gær var bæjarráðs-
fundur í Ólafsfirði þar sem
ákveðið var að boða til bæjar-
stjórnarfundar á <morgun en
bæjarstjórnarfundi hefur nú í
tvígang veriö frestað í kjölfar
deilna í meirihlutaflokki Sjálf-
stæðisflokksins. Fyrir bæjarráðs-
fundinn í gær sagðist Björn Valur
Gíslason, oddamaður minnihlut-
ans, ekki fallast á frekari frestun
bæjarstjórnarfundar en orðin
væri nema ef væri til vegna mynd-
unar á nýjum meirihluta. Eigi
bæjarmálin að ganga svona áfram
sé ekki um annað að ræða en fela
félagsmálaráðuneytinu að greiða
úr hnútnum.
Óskar Pór Sigurbjörnsson
sagði eftir bæjarráðsfundinn að á
bæjarstjórnarfundinn á morgun
mundu varamenn í 5.-7. sæti á lista
Sjálfstæðismanna mæta nema
gild rök lægju fyrir fjarveru en
annars næstu varmenn í réttri
röð. Óskar sagði að allt tal um
samstarf hans við núverandi
minnihluta um meirahlutasam-
starf væri ekki á dagskrá.
Á bæjarráðsfundinum voru
einnig til umræðu kostnaðar-
reikningar Bjarna Grímssonar
bæjarstjóra. Skoðunarmenn og
löggiltur endurskoðandi Ólafs-
fjarðarbæjar höfðu fyrir fundinn
farið yfir kostnaðarreikningana
og það var síðan samhljóða bók-
un bæjarráðs og skoðunarmanna
að ekkert væri við þá reikninga
að athuga. Bókunin varsvohljóð-
andi: „Ljóst er að Sigurður
Björnsson bæjarfulltrúi telur sig
ekki geta staðið við þau orð sem
hann viðhafði á bæjarráðsfundi
varðandi kostnaðarreikninga
bæjarstjóra. í ljósi þess telur
bæjarráð að orð Sigurðar Björns-
sonar fáist ekki staðist og hljóti
þau því að falla niður dauð og
ómerk". JÓH/GG
Norðurland vestra:
Fyrri slætti lokið
á sumum bæjum
Fyrri slætti er að Ijúka á sum-
um bæjum á Norðurlandi
vestra, en á öðrum bæjum er
lítið byrjað að slá vegna þess
Alda af umferðar-
óhöppum í Skagafírði
- ekið á mann á Vatnsskarði
Mikið var um umferðaróhöpp í
Skagaflrði um síðustu helgi.
Fjórar bílveltur urðu, einn
harður árekstur og ekið var á
mann á Vatnsskarði. Að sögn
lögreglu voru meiðsl ótrúlega
lítil miðað við það að bílar
skemmdust mikið.
Prjár bílveltur urðu fyrir utan
Hofsós á vegarkafla sein nýbúið
er að setja á harpað efni. Bíll,
sem í voru fimm ungmenni, lenti
útaf hjá bænum Vatni í Sléttuhlíð
og fór tvær veltur en þau sem í
honum voru sluppu að mestu
leyti við meiðsl. Einnig lentu bíi-
ar útaf við bæina Höfða og Tjarn-
ir en þar urðu heldur ekki nein
teljandi meiðsl á fólki. Einn bíll
valt síðan skammt frá bænum
Marbæli í Seyluhreppi án þess að
fólk slasaðist alvarlega.
Aðfaranótt sunnudags var
ekið á mann þar sem hann hugð-
ist létta á sér á veginum yfir
Vatnsskarð. Skömmu eftir að
hann var stiginn út úr bifreiðinni
sem hann var farþegi í ætlar bíll
fram úr en lendir þá á manninum
sem var að koma af dansleik í
Miðgarði. Hann lenti upp á bíln-
um og á framrúöunni svo hún
brotnaði. Farið var með manninn
á sjúkrahúsið á Sauðárkróki, en
að sögn lögreglu slapp hann
ótrúlega vel, en liggur samt enn á
sjúkrahúsinu.
Harður árekstur varð síðan á
Sauðárkróki við framúrakstur á
Aðalgötunni. Þar skemmdust bíl-
ar mikið, meiðsl voru lítil. SBG
hve lítið hefur sprottið í vætu-
leysi síðustu vikna.
Sverrir Magnússon, bóndi að
Efri-Ás í Hjaltadal, lauk fyrri
slætti sl. laugardag og segist hann
sjaldan hafa vitað betri hey-
skapartíð.
„Sprettan var í meðallagi og
svipað heymagn og eftir fyrri slátt
í fyrra. Eg þakka það aðallega
því að ég bar á svo snemma eða í
byrjun maímánaðar. Einnig ber
ég á í tvennu lagi, fyrst svona
þrjá poka á hektarann og síðan
afganginn þegar sprettan er kom-
in af stað, og virðist mér það
koma vel út. í fyrra lukum við
fyrri slætti þann 3. júlí og héldum
að varla væri liægt að gera betur,
en það varð þó þetta árið, en ég
byrjaði að slá þann 16. júní,“
sagði Sverrir en túnin að Efri-Ási
eru unt 40 hektarar að stærð.
Ástandið er þó ekki svona gott
alls staðar og þurrkurinn að gera
út af við marga. Aðallega kemur
hann illa niður á þeim sem náðu
ekki að bera nógu snemma á tún
sín, en hjá þeim hefur áburður-
inn ekki náð að virka að neinu
ráði ennþá. Dögg næturinnar er
eini rakinn sem jarðvegurinn hef-
ur fengið frá náttúrunni í langan
tíma og bændur því orðnir lang-
eygðir eftir regni þó sólbaðsdýrk-
endur kunni sér ekki læti. SBG