Dagur - 24.10.1991, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 24. október 1991
Hin nýja Hólaneskirkja á Skagaströnd er í senn tignarlegt og glæsilegt
mannvirki. Mynd: óþh
Jóhanna Linnet söng við vígsluat-
höfnina svo og í félagsheimilinu
Fellsborg að vígslu lokinni.
Fjölmemii á vígsluhátíð
Hólaneskirkju á Skagaströnd
Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vígði nýju kirkjuna. Lengst til vinstri
á myndinni er séra Pétur Þ. Ingjaldsson, sem var prestur Hólanessóknar um
40 ára skeið, frá 1941-1981; þá séra Guðni Þór Ólafsson, prófastur á Melstað
og séra Egill Hallgrímsson, Hólanessókn.
Svo sem greint var frá í Degi á
þriðjudaginn var ný kirkja á
Skagaströnd vígð sl. sunnudag
Hólaneskirkja hin nýja er teikn-
uð af Ormari Þór Guðmundssyni
og Örnólfi Hall hjá Arkitekta-
stofunni í Reykjavík en Helgi
Gunnarsson, byggingameistari á
Skagaströnd, stjórnaði smíði
kirkjunnar.
Vígsluathöfnin tókst í alla
staði mjög vel og var kirkjan full
út úr dyrum. Talið er að á fimmta
hundrað manns hafi verið við-
statt athöfnina og setið kaffisam-
sæti sem sóknarnefnd Hólanes-
sóknar efndi til í félagsheimilinu
Fellsborg að lokinni vígslu.
Þótt Hólaneskirkja hin nýja
hafi nú verið vígð og tekin í
notkun er enn talsvert í land með
að greiða byggingarkostnaðinn
Mannlif
Á Stjömukvöldi í SjaJlanum
nnur og Helena Eydal í léttri sveiflu
sljórnl„í!.afÞÓr Hel8ason> kynnir og
stjornandi syningarinnar. 8
Laugardaginn 19. október var
frumsýnd í Sjallanum ný
skemmtidagskrá sem ber nafnið
„Stjörnukvöld". Dagskráin bygg-
ist upp á blönduðum skemmti-
atriðum sem eru hnyttilega tengd
með líflegri kynningu Bjarna
Hafþórs Helgasonar. Ætlunin er
að efna til slíkra skemmtikvölda
alla laugardaga fram að áramót-
um en skemmtiblandan verður
eitthvað breytileg hverju sinni.
Á þessu fyrsta stjörnukvöldi
var boðið upp á fjögur skemmti-
atriði: Finnur og Helena Eydai
fluttu nokkur gömul og góð lög
úr safni sínu; Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma lét gamminn
geysa og fór m.a. í gervi margra
þjóðkunnra íslendinga; dans-
flokkur frá Stúdíó Alice undir
stjórn Nanette Nelms sýndi
nýstárlegan dans og loks sté laga-
smiðurinn og söngvarinn Eyjólf-
ur Kristjánsson á svið og flutti
nokkur lög. Hann sýndi m.a. á
sér alveg nýja hlið sem skemmti-
kraftur og fékk „salinn" með sér í
alls kyns söng- og líkamsæfingar.
Þá fór einnig fram samkeppni þar
sem þátttakendur úr hópi gesta
kepptu um allsérstæð verðlaun.
Að skemmtidagskránni lokinni
lék hljómsveitin Rokkbandið
ásamt söngkonunni Guðrúnu
Gunnarsdóttur fyrir dansi, en
hljómsveitin sá einnig um undir-
leik í skemmtidagskránni sjálfri.
Óhætt er að segja að fyrsta
stjörnukvöldið hafi tekist prýði-
lega og af stemmningunni mátti
ráða að gestir voru ánægðir með
það sem boðið var upp á.
Lárus Ægir Guðmundsson, formaður bygginganefndar kirkjunnar, afhendir
Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur, formanni sóknarnefndar, táknrænan lykil að
nýju kirkjubyggingunni.
Að vígsluathöfn lokinni bauð sóknarnefnd Hólanessóknar til kaffiveislu í
félagsheimilinu Fellsborg og þáðu á fímmta hundrað manns boðið.
Myndir: MJ/Skagaströnd.
Kirkjukór Hólancskirkju söng við vígsluna, ásamt söngfólki frá Blönduósi.
og standa straum af kaupum á
innanstokksmunum. Fjársöfnun
stendur því enn yfir og er velunn-
urum kirkjunnar bent á að hafa
samband við sóknarnefnd. Einn-
ig er mögulegt að láta fé af hendi
rakna beint í byggingasjóð kirkj-
unnar, sem hefur þrjá reikninga á
Skagaströnd. Þeir eru í Búnaðar-
bankanum, sparisjóðsbók nr.
16063; í íslandsbanka, spari-
sjóðsbók nr. 10369 og í Lands-
bankanum, sparisjóðsbók nr.
1273.