Dagur - 09.01.1992, Side 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 9. janúar 1992
5. tölublað
Þrotabú ístess:
Láxármenn bíða svars
leigusamningur útrunninn
Enn hefur ekki verið tekin
afstaða til tilboðs Laxár hf. í
eignir þrotabús ístess, en eftir
að tilboði frá Skretting frá
Noregi var hafnað er nýja Lax-
ártilboðið það eina sem er inni
Hraðfrystihús
jðlafsijarðar:
Óvissaum
framtíð loðnu-
bræðslurmar
Loðnuverksmiðja Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar fékk enga
loðnu á haustvertíðinni og
óvíst er að hún verði starfrækt
áfram. Jóhann Guðmundsson,
framkvæmdastjóri HÓ, segir
að í raun sé ekki um önnur
verkefni að ræða fyrir verk-
smiðjuna ef frá er talin beina-
vinnsla sem er lítil.
„Þegar loðnuveiðarnar fóru af
stað vildum við bíða með að taka
við loðnu. Tíminn verður að
leiða í ljós hvað verður gert og þá
hvort einhver loðna býðst og þá á
hvaða verði. En loðnan fjarlægist
okkur þannig að líkurnar eru
kannski ekki rniklar," sagði
Jóhann.
Nóg var að gera í sumar við
beinabræðslu en eftir að nýtt
kvótaár byrjaði 1. september hef-
ur lítið verið að gera. Einn starfs-
maður er nú við verksmiðjuna.
JÓH
í myndinni.
Laxá hf. hafði hús og vélar
þrotabúsins á leigu til áramóta og
þótt tíminn sé runninn út er enn
unnið við fóðurframleiðslu á veg-
um fyrirtækisins.
„Við erum þarna ennþá, en
hvorki sem eigendur eða leigj-
endur, og framleiðum upp í pant-
anir. Þetta er rólegur tími og
framleiðslan miðast við eftir-
spurnina, sem er alltaf lítil á þess-
um árstíma,“ sagði Guðmundur
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Laxár.
Jóhannes Sigurðsson, bústjóri
þrotabús ístess, sagði að menn
væru að skoða tilboðið og fara
ofan í kjölinn á málunum en eng-
in ákvörðun lægi fyrir og það gæti
dregist í einhverja daga að taka
afstöðu til tilboðsins. SS
Færð að lagast í bænum.
Mynd: Golli
Fjárveitingar til Háskólans á Akureyri standa nánast í stað milli ára:
Ekkert rætt um hömlur á inntöku nýnema
- framhald hugmyndar um stofnun kennaradeildar rætt á fundi með menntamálaráðherra
Haraldur Bessason, rektor
Háskólans á Akureyri, segir aö
þrengri fjárhagsstaða skólans
verði ekki látin koma niður á
stúdentum þannig að hömlur
verði á inntöku nýnema. Tals-
verð umræða hefur verið að
undanförnu um að Háskóli
íslands muni takmarka veru-
lega inntöku nýnema í haust
vegna niðurskurðar á fjárveit-
ingum til skólans en Haraldur
segir að teknir verði inn
nýnemar í Háskólann á Akur-
eyri eins og eðlilegt sé.
Fjárveitingar til skólans á
þessu ári eru svipaðar og í fyrra
og segir Haraldur að gera megi
ráð fyrir miklu aðhaldi í rekstrin-
um af þeim sökum.
„Ýmsar framkvæmdir verða að
bíða en ég get ekki séð að
1200-1500 kýr bíða slátrunar í landinu:
Hugmyndir um að flytja út
allt að 300 tonn af kýrkjöti
Gert er ráð fyrir að 1200 til
1500 kýr bíði slátrunar í land-
inu í kjölfar tilboðs um greiðslu
ríkisins fyrir ónýttan rétt.
Komi þetta kjöt allt á markað
innanlands telur Guðmundur
Lárusson, formaður Lands-
sambands kúabænda, Ijóst að
það mun skapa vanda í sölu á
öðrum kjöttegundum, t.d.
dilkakjöti.
„Það hefur verið lagt ákveðið
dæmi fyrir ríkisvaldið sem byggir
á því að það taki þátt í því að
afsetja á erlenda markaði allt að
300 tonn af kýrkjöti. Þetta aukna
framboð af kýrkjöti er fyrst og
Skagagörður:
Atvinmileysisdögum fækkaði
Skráðir atvinnuleysisdagar hjá
verkalýðsfélögum þeim sem
skrifstofa Verkamannafélags-
ins Fram á Sauðárkróki annast
greiðslu atvinnulcysisbóta fyrir,
voru færri árið 1991 en árið á
undan.
Skrifstofan annast greiðslur
fyrir þrjú félög: Verkamanna-
félagið, Iðnsveinafélagið og Versl-
unarmannafélagið. Samtals 126
einstaklingar komust á atvinnu-
leysisskrá hjá þessum þremur
félögum á nýliðnu ári og er það
tíu færri en árið 1990. Skráðir
atvinnuleysisdagar voru 7540 í
fyrra eða um 7% færri en árið á
undan þegar dagafjöldinn var
8066. Heildarupphæð bóta ársins
var rúmlega 12,4 milljónir, en
12,1 árið 1990.
Ef skoðað er hvernig skráð
atvinnuleysi hjá þessum þremur
félögum, skiptist niður á sveitar-
félög er Sauðárkrókur vitanlega
stærstur með 63 einstaklinga og
2826 daga. Lýtingsstaðahreppur
kemur næstur með fjöldann 24 og
2317 daga og í Seyluhreppi voru
15 einstaklingar skráðir atvinnu-
lausir á síðasta ári, en dagarnir
1507. Önnur sveitarfélög voru
samtals með 14 einstaklinga og
606 daga. SBG
fremst tilkomið vegna aðlögunar
að markaði með 35 króna tilboði
ríkisins í mjólkurrétt. Við höfum
bent á að ef ríkið tæki þátt í
afsetningu kjötsins erlendis, þá
myndi ríkja jafnvægi á kjötmark-
aðnum. Ef hins vegar ekkert yrði
að gert, þá hefðum við fáar aðrar
leiðir en að lækka verðið til fram-
leiðenda og jafnframt til neyt-
enda. Við myndum þannig reyna
að afsetja það sem umfram yrði
til neytenda á niðursettu verði.
Það myndi aftur þýða að við ýtt-
um öðru kjöti út af markaði og
það eru allar líkur á því að dilka-
kjötið yrði undir í samkeppninni,
vegna þess að á því er ekki
sveigjanleg verðlagning. Dilka-
kjötið er á kostnað ríkisins og
yrði það undir í samkeppninni,
þá myndi það hafa f för með sér
aukinn kostnað við útflutning
þess,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að þessari leið
hefði ekki alfarið verið hafnað af
hálfu ríkisins, en sér sýndist að
menn hefðu ekki pólitískt hug-
rekki til þess að takast á við þetta
mál „og muni þess vegna kjósa
þá leið sem verður óhagkvæmari
fyrir ríkið þegar upp verður
staðið.“ óþh
stúdentar verði látnir gjalda þess.
Það eru auðvitað mörk á því hve
marga nýnema við getum tekið
inn en við gerum ráð fyrir eðli-
legri fjölgun,“ sagði Haraldur.
Umræða hefur verið uppi um
að kennaradeild verði komið á
fót við Háskólann á Akureyri í
haust og segist Haraldur ekki
hafa afskrifað hana þrátt fyrir
fjárveitinguna á fjárlögum. Mik-
iíl áhugi sé á þessu námi og mikið
undirbúningsstarf hafi þegar far-
ið fram. Nauðsynlegt sé fyrir
skólann að geta tekið þetta skref í
ár og því hafi ekki verið horfið
frá hugmyndinni. „Við viljum
geta byrjað strax í haust og það
dreymir okkur um. Mér finnst að
málið hafi alls staðar meðbyr. Ég
geri alveg ráð fyrir að leitað verði
leiða til að af þessu verði,“ sagði
Haraldur og bætti við að á mánu-
dag gangi hann, ásamt fleiri full-
trúum skólans, á fund mennta-
málaráðherra til að ræða um
stofnun kennaradeildar við
skólann. Úrslita í málinu sé vart
að vænta á fundinum en innan
tveggja mánaða megi vænta
niðurstöðu hvort af stofnun
deildarinnar verður í haust eða
ekki. JÓH
Nýjung í skólamálum á Kópaskeri:
Stefnt að sameiningu
grunn- og leikskóla
- Krílakot er í óviðunandi húsnæði
en nóg rými í grunnskólanum
Undirbúningsnefnd sem
hreppsnefnd Öxarfjaröar-
hrepps skipaði til aö skoða
hvort unnt væri að sameina
leikskólann og grunnskólann á
Kópaskeri hefur komist að
þeirri niðurstöðu að það sé
skynsamleg lausn. Málið verð-
ur tekið fyrir á fundi hrepps-
nefndar síðar í mánuðinum en
það hefur vakið athygli og
fengið góðan byr í mennta-
málaráðuneytinu.
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveit-
arstjóri í Öxarfjarðarhreppi,
sagði að þetta væri spennandi
verkefni enda einsdæmi hér á
landi, en ekki væri ljóst á þessu
stigi hverjar málalyktirnar yrðu.
Hún sagði að það myndi skýrast
síðar í mánuðinum.
„Markmiðið með sameining-
unni er að nýta betur þetta glæsi-
lega og góða skólahúsnæði sem
við eigum. Húsið er byggt fyrir 50
nemendur, ef ekki fleiri, en í dag
eru ekki nema rúmlega 20 nem-
endur í skólanum. Leikskólinn
Krílakot er í óviðunandi húsnæði
og er rekinn á undanþágu, þann-
ig að hann þarf að komast í ann-
að húsnæði og þess vegna datt
okkur þessi möguleiki í hug,“
sagði Ingunn.
Hún sagði að hugmyndin liefði
mælst vel fyrir jafnt hjá skóla-
fólki sem starfsfólki leikskólans
og allir væru spenntir fyrir að
koma upp nýjum skóla fyrir börn
frá hálfs árs aldri upp í tólf ára.
Þá er gert ráð fyrir samruna
deildanna og sagði Ingunn að
fulltrúa leikskóladeildar mennta-
málaráðuneytisins hefði litist vel
á þessa hugmynd og talið æski-
legt að reyna hana í framkvæmd.
SS