Dagur - 09.01.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 9. janúar 1992
I DAGS-LJÓSINU
Norðurlarids I992
verður haldin í Sjallanum í febrúar.
Tilkynningar um þátttöku svo og allar
ábendingar skulu berast til Sjallans í síma
22770 eða Dansstúdíós Alice í síma 24979.
Sigurvegari í keppninni „FegurðardrottningNorðurlands'
verður fulltrúi Norðurlands í keppninni um
„Fegurðardrottningu Islands".
fe
Allar upplýsingar eru
gefnar í Sjallanum í
síma 22770 og
Dansstúdíó Alice í
síma 24979.
SJALLINN
mmmmmmmm
HAPPDRÆTTI
STYRKTARFELAGS
VANGEFINNA
VINNINGSNUMER
1. vinningur Volvo 940 nr: 18028.
2. vinningur Subaru Justy nr: 3848.
3. -12. vinningur bifreió aó eigin vali á krónur
650.000.- nr:
13496 39998 42249
50574 71486 74460
79658 81638 82335
95539
ÞÖKKUM VEITTAN STUDNING.
GLEÐILEGT NÝÁR.
STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA.
Diskótek
Þann 15. janúar nk. hækka gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu:
Kvittanir dýrmætir pappírar
Þann 15. janúar nk. tekur gildi
ný reglugerð um hlutdeild
sjúkratryggðra í kostnaði
vegna heilbrigðisþjónustu.
Hér er um víðtækar breytingar
að ræða, sem fela í sér að þeir
sem heilbrigðisþjónustunnar
njóta munu greiða mun hærra
gjald fyrir hana en nú. Mest er
hækkunin á annað hundrað
prósent fyrir læknavitjun í dag-
vinnu.
En áður en lengra er haldið er
vert að birta í töfluformi núgild-
andi gjaldskrá og gjaldskrána frá
og með 15. janúar nk. Upphæð-
irnar eru í krónum.
Almenn gjöld Nú Verður
Heilsugæsla og heimilislæknar
Heimsókn á stofu 0 600
Heimsókn utan vinnutíma 500 1000
Læknavitjun, dagvinna 400 1000
Læknavitjun.eftirvinna 1000 1500
Sérfræðilæknar og göngudeildir
Heimsókn á stofu 900
Rannsóknir og röntgenskoðanir
Almennt gjald 300
Hámarksgreiðsla á ári
Almennt hámark 12000
Hámark v. barna samtals ekkert
1500
600
12000
12000
Þá skal þess getið að gjald lífeyr-
isþega verður þriðjungur almenns
gjalds og árlegt gjaldahámark er
óbreytt, eða 3000 krónur. Pá er
og þess að geta að eftir sem áður
verður mæðravernd, ungbarna-
eftirlit og heilsugæsla í skólum
ókeypis.
Læknar óttast að síma-
viðtölum fjölgi verulega
En lítum nánar á þær upplýsingar
Miðaverð kr. 800,-
,.insbestu1>‘‘ixur
pasto
Steikur
Hamboitorar
Stemmningin
endurvakin
Opið til 03.00 um helgar
Hinn geysivinsæli
IngvarJónsson
spilar fimmtudags- og laugardagskvöld
Gjald fyrir heimsókn til heilsugæslu-
læknis verður 600 kr. frá og með 15.
janúar nk.
sem fram koma í töflunni.
Snemma árs 1990 var reglugerð
um hlutdeild fólks í kostnaði við
heimsóknir á heilsugæslustöð
breytt þannig að því var ekki
lengur gert að greiða 150 krónur
til heilsugæslulækna fyrir heim-
sóknir. Nú er aftur tekið upp
gjald, sem rennur beint til við-
komandi heilsugæslustöðvar. Það
kemur hins vegar ekki til viðbót-
ar framlagi ríkisins til heilsu-
gæslustöðvanna, heldur dregst
frá því. Fjárhagsleg staða heilsu-
gæslustöðvanna lagast því ekki
við þessa breytingu.
Samkvæmt samtölum sem
Dagur hefur átt við heilsugæslu-
lækna óttast þeir að með 600
króna gjaldinu dragi úr því að
fólk komi á stofu og vilji leysa úr
sínum vandamálum í samráði við
viðkomandi lækni í síma, en sú
þjónusta er eftir sem áður án
endurgjalds.
Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða 200 krónur fyrir heimsókn
á stofu í dagvinnutíma.
Ráðuneytið segir að
600 kr. séu dropi í hafið
Samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisráðuneytisins er þetta 600
króna gjald sjöundi hluti þess
sem þjónusta heilsugæslu kostar
fullu verði. Raunverulegur
kostnaður við heimsókn til læknis
er samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisráðuneytis 3 til 4 þúsund
krónur.
Fyrir heimsókn utan dagvinnu-
tíma, þ.e. frá kl. 17.00 til 08.00
og á laugardögum og helgidögum
verður gjaldið 1000 krónur, en
350 krónur fyrir elli- og örorku-
lífeyrisþega.
Eins og fram kemur í töflunni
hækkar gjald fyrir heimsókn til
sérfræðinga, á göngudeildir,
slysadeildir og bráðamóttökur
sjúkrahúsa úr 900 krónum í 1500
krónur. Elli- og örorkulífeyris-
þegar skulu hins vegar greiða 500
krónur. Lífeyrisþegar greiða að
sama skapi þriðjung, eða 200
krónur, fyrir rannsóknir og rönt-
genskoðanir.
Þess skal og getið að fyrir
krabbameinsleit á heilsugæslu-
stöð eða hjá heimilislækni greið-
ast 1500 krónur fyrir hverja
komu, en lífeyrisþegar 500
krónur.
Lífeyrisþegar skulu greiða 350
krónur í dagvinnu fyrir læknis-
vitjun og 500 krónur utan dag-
vinnutíma.
Fríkort þegar 12 þúsund
krónum er náð
Hver einstaklingur 16 til 67 ára
skal ekki greiða meira en 12 þús-
und krónur fyrir læknisþjónustu
á ári og er miðað við almanaksár-
ið. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða að hámarki 3 þúsund
krónur. Parna er um að ræða
sameiginlegan kostnað vegna
heimsókna til heilsugæslulækna
eða á heilsugæslustöðvar, vitjanir
lækna, sérfræðilæknishjálp,
komu á slysadeild, göngudeild,
bráðamóttöku, rannsóknir og
röntgengreiningu. Samkvæmt
upplýsingum Tryggingastofnunar
teljast öll börn undir 16 ára aldri
í sömu fjölskyldu, þ.e. með sama
fjölskyldunúmer, sem einn ein-
staklingur gagnvart þessari
hámarkstölu. Þegar 12 þúsund
krónunum er náð á fjölskyldan
rétt á fríkorti frá Tryggingastofn-
un, sem veitir henni rétt á endur-
gjaldslausri þeirri þjónustu sem
áður er getið um. Þó er ein
undantekning á þessu. Eftir semn
áður skal fólk greiða fyrir læknis-
vitjanir, en þær verða ódýrari.
Fyrir vitjun greiðir handhafi frí-
korts 400 krónur í dagvinnu í
stað 1000 króna og 900 krónur
utan dagvinnutíma í stað 1500
króna. Elli- og örorkulífeyrisþeg-
ar greiða 150 krónur fyrir vitjun í
dagvinnu og 300 krónur utan
dagvinnu.
Haldið kvittununum
til haga!
Tryggingastofnun leggur ríka
áherslu á að til þess að eiga rétt á
fríkorti verður fólk að halda öll-
um kvittunum vegna læknis-
kostnaðar til haga og framvísa
þeim til Tryggingastofnunar eða
umboða hennar utan Reykjavík-
ur. Þessar kvittanir skulu auk
nafns útgefanda tilgreina tegund
þjónustu, fjárhæð, greiðsludag,
nafn og kennitölu sjúklings.
Algengt fyrirkomulag
á Vesturlöndum
Þorkell Helgason, aðstoðarmað-
ur heilbrigðisráðherra, vísar því
á bug að þessar breytingar séu til
þess fallnar að brjóta niður það
heilbrigðiskerfi sem við höfum
búið við. Hann segir þvert á móti
að áhersla hafi verið lögð á að
varðveita það öryggisnet sem
sameiginlegar sjúkratryggingar
veiti. Þeir sem þurfi á mikilli
læknisþjónustu að halda greiði
ekki meira eftir breytinguna en
nú. Því sé náð með því að halda
óbreyttu því hámarki sem sé á
útgjöldum hvers einstaklings
vegna heilbrigðisþjónustu. Jafn-
framt sé útgjaldahámarkið, þ.e.
12 þúsund krónur, látið ná til
allra gjaldaþátta í heilsugæsl-
unni, þ.e. hjá læknastofum og
göngudeildum sjúkrahúsa. Þor-
kell segir að til álita komi að taka
upp hámark vegna lyfjakaupa og
tannlæknakostnaðar.
Þorkell leggur á það áherslu að
markmiðið með reglugerðinni sé
tvíþætt. Annars vegar að hvetja
til aðhalds varðandi þessa þjón-
ustu og spara þar með þjóðinni
hugsanleg óþörf útgjöld og hins
vegar að draga úr kostnaði ríkis-
sjóðs í erfiðri stöðu hans.
Aðstoðarmaður heilbrigðis-
ráðherra bendir á að aðgerðir af
þessu tagi séu ýmist komnar til
framkvæmda eða séu ráðgerðar í
öllum helstu velferðarríkjum
Vestur-Evrópu og Norður-
Ameríku. Þannig segir hann að
hjá frændum vorum, Svíum, sé
mjög áþekk eða sumpart hærri
gjöld fyrir læknisþjónustu en tek-
in verða upp hér á landi frá og
nteð 15. janúar nk. óþh