Dagur - 09.01.1992, Page 6

Dagur - 09.01.1992, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 9. janúar 1992 Húsvískir Rokkiingar sungu sig inn í hjörtu áheyrenda og sýndu skemmtileg tilþrif á sviðinu við undirleik hljómsveitarinnar Gloríu. kyngja kók og prins á sem stystri stundu. Prettándakvöld íþróttafélagsins Völsungs: Hátíð í hölliimi íþróttafélagið Völsungur á Húsavík hélt sína árlegu hátíð á þrettándanum, 6. jan. sl. í íþróttahöllinni. Tilnefndur var Nýr meðeigandi Hinn 1. janúar sl. varð Þórir Ólafsson, lög- giltur endurskoðandi, meðeigandi að Endur- skoðunarmiðstöðinni hf. — N. Manscher. Þórir veitir skrifstofu félagsins á Akureyri forstöðu. Skrifstofur félagsins eru á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Höfðabakka 9, sími 91-685455. Akureyri, Gránufélagsgötu 4, sími 96-25609. Húsavík, Garðarsbraut 15, sími 96-41865. Keflavík, Tjarnargötu 2, sími 92-13219. Egilsstöðum, Lagarási 4, sími 97-11379. EndurskoÓunar- mióstöóinhf. N.Manscher Björn St. Haraldsson, Ólafur Kristinsson, Davíð Einarsson, Reynir Vignir, Emil Th. Guðjónsson, Valdimar Guðnason, Geir Geirsson, Valdimar Ólafsson, Gunnar Sigurðsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Hallgrímur Þorsteinsson, Þórir Ólafsson, löggiltir endurskoðendur. Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1992 Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verð- mæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Frið- lýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs. b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varð- veislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningar- verðmæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita viðbót- arstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b). Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“ Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 1992. Eldri umsóknir ber að endur- nýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka fslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma (91) 699600. Reykjavík, 31. desember 1991. Þjóðhátíðarsjóður. Völsungur ársins, Katla Sóley Skaphéðinsdóttir og Iþrótta- maður Húsavíkur, Hákon Sig- urðsson. Aldeilis frábærir húsvískir Rokklingar skemmtu við undirleik hljómsveitarinn- ar Gloríu en söngstjóri var Sól- veig Jónsdóttir. Einnig komu fram börn af dagheimilinu og fímieikaflokkur undir stjórn Guðrúnar Kristinsdóttur. Aðalsteinn Baldursson stjórn- aði leikjum og ágætt bumbu- sláttarband kom fram, var það sagt ættað frá Klakksvík eða Klappsvík í Færeyjum. Fjöl- menni mætti á hátíðina og var vel klappað fyrir skemmti- nefndinni við samkomulok. Kiwanisklúbburinn Skjálfandi bauð síðan hátíðargestum sem út úr höllinni komu tU flugelda- sýningar. Vilhjálmur Pálsson, formaður Völsungs, ávarpaði samkomuna. Hann kallaði upp Guðrúnu Ingólfsdóttur til að afhenda Völsungi ársins bikar. Guðrún er ekkja Hallmars Freys Bjarnason- ar, en fjölskylda hans gaf bikar- inn 1988 til að viðurkenna þá unglinga, 16 ára og yngri, sem ynnu sérstaklega vel að félags- málum. „Þetta var vel til fundið því að Hallmar Freyr, sem var formaður okkar og félagi til margra ára, var einstakur félags- málamaður," sagði Vilhjálmur m.a. Hann sagði að þó að íþrótta- afrekin bæri oft hæst í umræð- unni, þá væri það svo, að bak við íþróttastarfið byggi mikið starf að félagsmálum. Því væri mjög vel til fundið að verðlauna ungl- ing sem þegar á unglingsaldri fyndi hvöt hjá sér til að vinna að þessum málum. Oft væri erfitt að velja verðlaunahafa en að þessu sinni séu allir sammála, sem að valinu stæðu, að Katla Sóley Skarphéðinsdóttir sé verðug þess að taka á móti bikarnum og varð- veita hann þetta ár. Guðrún afhenti Kötlu bikarinn og sagði Áhorfendur kunnu vel að meta ágæta skemmtun á þrettándakvöldi. Bumbuberjarar mættu að sjálfsögu, sögðust vera frá Færeyjum en töluðu með amerískum hreim. Vilhjálmur að þó Katla keppti í stökkum, köstum og hlaupum og verði tíma í keppni og æfingar þá gæfi hún sér alltaf tíma í félags- málin. Vilhjálmur bað síðan Völsung ársins að afhenda íþóttamanni ársins sinn bikar, en það er veg- legur farandgripur sem Kiwanis- klúbburinn Skjálfandi gaf á sín- um tíma. Rakti Vilhjálmur að nokkru sögu bikarsins. Sagði að fyrstu árin hefðu fótboltakapp- arnir og bræðurnir Kristján og Guðrún Kristinsdóttir mætti með fimleikastúlkurnar sínar, sem tóku heljar- stökk afturábak og áfram að mikilli mýkt og fimi. Myndir im Björn Olgeirssynir verið hand- hafar bikarsins, en þá fyrir afrek í skíðabrautunum. Að þessu sinni hlaut Hákon Sigurðsson bikar- inn, og það annað árið í röð. Hákon er frjálsíþróttamaður og keppir aðallega í hlaupum á millivegalengdum. Vilhjálmur sagði að til að ná árangri í þessari grein þyrfti gífurlegar æfingar og oft hefði hann séð til Hákons á skokkinu, og þegar allt væri orð- ið ófært vegna snjóa til landsins, þá hlypi hann í fjörunni. Síðan kæmu fréttir í útvarpinu um að hann væri að sigra sína jafnaldra á mótum hérlendis og einnig væri hann farinn að keppa á erlendri grundu. Vilhjálmur sagði að Hákon væri vel að nafngiftinni kominn, annað árið í röð, hann vonaði að Hákon reyndi að vinna til hans þriðja sinni en margir ætl- uðu að veita honum harða keppni á næsta ári. Vilhjálmur sagðist að lokum vilja þakka Kiwanisklúbbnum Skjálfanda sem myndi annast og kosta flugeldasýninguna síðar um kvöldið. Gat hann þess að klúbb- urinn hefði sýnt mikinn áhuga og hjálpsemi við þjálfun á boccialiði Völsungs. Hljómsveitinni Gloríu voru einnig færðar þakkir, en hún æfði og kom fram með litlu Rokklingunum, Völsungi að kostnaðarlausu. IM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.