Dagur - 09.01.1992, Page 7

Dagur - 09.01.1992, Page 7
Fimmtudagur 9. janúar 1992 - DAGUR - 7 Hákon Sigurðsson: íþróttamaður Húsavíkiir - hlaup, tónlist og tölvur eru aðaláhugamálin Hákon Sigurðsson, frjáls- íþróttamaður er Iþróttamaður Húsavíkur 1991, og það annað árið í röð. Hákon keppir aðal- lega í hlaupum, á millivega- lengdum. Hákon sagði að sér hefði kom- ið útnefningin á óvart en var að sjálfsögðu ákaflega ánægður með titilinn. Aðspurður sagðist hann stefna á að halda gripnum þriðja árið. „Það eru bara æfingar, en ekki nein sérstök mót,“ sagði hann þegar spurt var hvað fram- undan væri. Hann hyggst þó að keppa í atrennulausum stökkum á Norðurlandsmótinu á Akur- eyri. Sumarið er aðalkeppnistím- inn hjá Hákoni og þá stefnir hann á meistaramótið, og vonast einnig til að komast eitthvað út. Hann hefur keppt á Evrópumeist- aramótum unglinga undanfarin tvö ár. Hákon hefur æft 3-4 ár, en hann er 17 ára. Hann byrjaði að æfa fyrir landsmótið á Húsavík 1987, keppti og gekk bærilega. „Á sumrin æfi ég svo til daglega, 2-3 tíma í senn, en á veturna reyni ég að æfa fjórunt sinnum í viku og hlaupa þá sem mest,“ sagði Hákon. Hlaupin, tónlist og tölvur eru hans aðaláhugamál og framtíðarmarkmiðin að komast á Dýralæknaþjónusta Sigurborgar Daðadóttur Nýir símar: 1-1 7-51 og 985-37-9-37. íslenskur hvolpur til sölu á sama stað. Viltu lœra að dansa? Erum að hefja 10 tíma dansnámskeið. Kennsla hefst 18. janúar. Kennsla í barnadönsum, yngst 3 ára, gömlu dansar, sambadansar, hip hopp, rokk og tjútt. Allar nánari uppl. í síma 26624 frá kl. 13-18. Sigurbjörg D.S.Í. V/SA E íþróttamaður Húsavíkur er Hákon Sigurðsson og hlaut hann nafnbótina annað árið í röð. stórmót. „Þetta er bara spurning um að leggja sig fram, það næst enginn árangur öðruvísi," sagði Hákon, aðspurður um hvaða ráð hann hefði til að gefa öðrum unglingum sem ekki hefðu náð eins góðum árangri. IM Viðurkenningu sem veitt er fyrir störf að félagsmálum hlaut Katla Sóley Skarphéðinsdóttir og hlaut hún nafnbótina Völsungur ársins. Katla Sóley Skarphéðinsdóttir: Völsungur ársins - íþróttirnar áhugamál númer eitt til tíu Völsungur ársins er Katla Sól- ey Skarphéðinsdóttir, en þá nafnbót hlýtur unglingur innan 16 ára aldurs sem þótt hefur skara fram úr við þátttöku í félagsstarfi. - Nú hefur þú fengið talsvert margar viðurkenningar um ævina, en hvernig líkar þér þessi? „Æðislega, þetta er bara mjög fínt. Ég átti ekki von á þessu, hafði hreinlega ekki hugsað út í það. Ég varð hissa en ánægð, það er mjög gaman að fá svona viður- kenningu. Félagsmálin fylgja allt- af íþróttunum." - Á hvað stefnir þú á næst- unni? „Að standa mig vel næsta sumar, fara á unglingalandsmót, sem er nýtt mót. Ég ætla að fara á meistaramótið og svo stefni ég bara á að komast í landsliðið." - Hvernig er aðstaða á Húsa- vík til íþróttaiðkana? „Hún er ágæt, en gæti samt verið mikið betri. fþróttir eru mitt aðaláhugamál, alveg frá eitt °g UPP í tíu. Þarna er maður í góðum kunningsskap og eignast góða félaga.“ - Hvaða ráð getur þú gefið þínum jafnöldrum sem erfitt eiga með að finna sig í einhverju? „Að koma á æfingu og finna hvað hentar þeim, og að gefast ekki upp þó á móti blási því æfingin skapar meistarann.“ IM DANSSKpLI SMu RISA SKÓ VERKSMIÐJUÚTSALA Var opnuö i dag fimmtudag Opið frá kl.: 10.00-20.00 í dag Annar opnunartími: Mánud.-föstud. kl. 10.00-18.00 og laugard. kl. 10.00-16.00 ÞtVD SEM UNQUNQARNIR SLÁST UM MACAR HÆLABKÓR MED NÝJU KLÓSETTHÆLUNUM AN»REAM"« •i TlSKUSKÓR „Hún hefur alltaf verið vln$æl!“ En nú slær hún öllu vlð, þelta er langstærsta skóútsala sem haldin hefur verið é íslandi til þessa Og úrvalið hefur aldrei verið meira & 8TÆRSTI FRAMLEIÐANDINN IINNISKOM RAMI Back to '60th Aller nýjustu tlskuvörumar sem voru i skóverslunum landslns fyrlrjól, eru saman komnar úr skóverslunum i elnn staó, 6 heildsöluveröl ATH! MIKIÐ ÚRVAL AF: Hælaskóm með nýjustu klósetthælunum og þykkum hælum, rauðlr og svartir Back to '60th með þykkum sólum og stórum hælum Kvenskóm með kubb-hælum, kvart- hælum, slaufum, spennum og allskonar skrauti Prentiss tTALSKIR TlSKUSKÓR L0l\tnz© OMI (TALSKIR Tl&KUSKÓR smKiir SKÖVERKSMIÐJA

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.