Dagur - 09.01.1992, Page 9
Fimmtudagur 9. janúar 1992 - DAGUR - 9
Fædd 11. maí 1914 - Dáin 23. desember 1991
í stofunni hennar Ásu voru mörg
blóm. Falleg, blómstrandi blóm,
sem hugsaö var um af alúð.
Hún lagði alúð við allt sem hún
gerði, við heimilið, við barna-
hópinn sinn myndarlega, alla
fjölskylduna. Hún lagði alúð við
alla hlutina smáu sem eru þó svo
stórir og skipta máli, mynda
heild.
Ég kom fyrst til Ásu móður-
systur minnar, Hallgríms og
barnanna þeirra, lítil stúlka með
foreldrum mínum. Unglingur átti
ég þau að á menntaskólaárum.
Þau voru fjölskylda mín þá.
Vinkonur og skólasystur fengu
þá oft að njóta samvista við þau
því heimili þeirra stóð svo sann-
arlega undir nafni. Það andaði
hlýju sem laðaði og dró að. Það
var lifandi. Síðar voru eiginmað-
ur og börn með í för og alltaf vor-
um við velkomin, móttökurnar
hlýjar og alltaf sama rausnin og
myndarskapurinn í viðurgjörn-
ingi.
Það var gestkvæmt á þessu
heimili. Þar komu ættingjar, vinir
og vandalausir í kaupstaðarferð í
ýmsum erindagerðum. Sumir
dvöldust lengi, aðrir stutt. Sumir
voru að njóta lífsins og gleðinn-
ar, aðrir veikir að leita lækninga.
Sumir ungir, aðrir gamlir. Þótt
húsrými væri ekki ýkja mikið var
ætíð nóg hjartarúm og nóg til af
gestarúmfötum og öllu því sem
gestur hafði hugsanlega not fyrir.
Meðal annarra dvaldist móðir
mín, systir Ástu, þrjá vetur á
heimilinu og auk þess vetrarlangt
rúmliggjandi vegna Akureyrar-
veikinnar svokölluðu. Fyrir hana
hafði Ása tíma og alúð þótt hún
ætti nýstofnað heimili, mann og
barn.
í stofunni innan um blómin vel
hirtu, húsgögn, bækur og myndir,
sem römmuðu inn heimili Ásu og
Hallgríms, var margt rætt og
leyst úr mörgum vandamálum.
Stundum gerðust umræðurnar
stórpólitískar - og Hallgrímur fór
á kostum. Þau voru þannig gerð
bæði að geta velt upp björtu hlið-
um hlutanna, og alltaf var tilver-
an betri en áður eftir slíkar sam-
ræður. Þau voru skemmtileg hjón
og skildu svo margt.
Nú á jólunum klæddist eldri
dóttir mín pilsi sem Ása saumaði
mér fyrir næstum aldarfjórðungi.
Þetta pils hefur ekki fengið að
liggja inni í skáp og gleymast
heldur er það alltaf tekið fram
öðru hverju og notað, enda í
fullu gildi, vel sniðið og saumað,
vandað að allri gerð. Þannig eru
verkin hennar Ásu. Þau gleymast
ekki og endast vel.
Hún Ása var lágvaxin og fín-
gerð kona, alltaf vel klædd og vel
snyrt, gjarnan í fötum sem hún
hafði saumað sjálf, enda mennt-
uð á því sviði. Brúna hárið henn-
ar hafði kastaníulitan blæ og yfir
henni var glæsileiki. Hún hafði
afskaplega gaman af ferðalögum
og hefur áreiðanlega viljað fara
og skoða miklu meira en henni
var kleift.
í nokkurn tíma var vitað að
hverju stefndi. Hún bognaði oft
en reis upp aftur, sinnti blómun-
um og tók þátt í lífi og starfi fjöl-
skyldunnar sinnar myndarlegu og
stóru. Hún kvartaði ekki. í sum-
ar afsakaði hún útlit blómanna
sinna fyrir okkur, þótti hún ekki
hafa hirt nógu vel um þau, enda
veik. En lífinu tók hún þátt í og
nokkrir hlátrar hljómuðu um
stofuna.
Á Þorláksmessu, þegar daginn
er örlítið tekið að lengja og
undirbúningur jólanna er í
hámarki, lést Ásgerður Guð-
mundsdóttir. Hún hafði lokið
sínum undirbúningi. Þessi jól
hefur hún væntanlega átt með
Hallgrími. Ég trúi að hann hafi
beðið hennar.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
þau að, Ásu og Hallgrím. Þau
voru gott fólk, sem bættu í heim-
inn blómum, bæði þeim sem sjást
og svo hinum sem í brjóstum
gróa. Ég sakna þeirra.
Jósefína Olafsdóttir.
Ásgerður Guðmundsdóttir frá
Stóru Giljá, búsett að Víðilundi
14i Akureyri lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu Akureyri á Þorláks-
rnessu.
Ása var fædd á Stóru Giljá í
Austur Húnavatnssýslu 11. maí
1914. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Frímannsson frá
Hvammi í Vatnsdal og Jósefína
Erlendsdóttir frá Stóru Giljá.
Guðmundur veiktist af berklum
og leiðir þeirra skilja upp frá því,
en Ása var þá barnung. Af föð-
urnum átti hún einn bróður Jó-
hann Guðmundsson síðar póst-
meistari á Akureyri, en hann er
látinn. Hún ólst upp hjá móður-
ömmu sinni Ástríði Erlendsdótt-
ur og móðurbræðrum Sigurði og
Jóhannesi Erlendssonum á Stóru
Giljá. Jósefína giftist Friðriki
Hansen á Sauðárkróki og áttu
þau saman átta börn, Emmu,
Ragnar, Björgu og Guðmund,
sem búsett eru í Reykjavík og
Ástríði, Kristján, Érlend og
Jóhannes sem búsett eru á Sauð-
árkróki. Uppeldissystir Ásu, Jó-
hanna Björnsdóttir var síðan sú
tíunda í systkinahópnum.
Á Stóru Giljá ólst Ása upp við
fjölbreytt mannlíf. Auk margra
heimilismanna var þar mjög gest-
kvæmt og heimilið rómað fyrir
gestrisni og rausnarskap. Ása var
í Húsmæðraskólanum á Blöndu-
ósi 1933 og 34. Um 1940 fluttist
Ása til Akureyrar og vann fyrst
sem ráðskona og síðan lærði hún
klæðskerasaum. Á þeim tíma
kynntist hún Hallgrími Vil-
hjálmssyni frá Torfunesi í Köldu-
kinn, síðar tryggingafulltrúa á
Akureyri. Þau Hallgrímur giftu
sig 1944 og bjuggu fyrst í Fjólu-
Syngdu með
- íslenskur „karaoke“-
geisladiskur
Út er komin hjá Skífunni hf.
fyrsti íslenski „karaoke" diskur-
inn (og kassettan) sem ber nafnið
Syngdu með. Syngdu með inni-
heldur undirleik 11 þekktra
íslenskra dægurlaga og fylgir
texti með þeim öllum. Eins og
nafnið gefur til kynna er ætlast til
að sungið sé með þessu undirspili
en einnig er fyrsta lína hvers lags
sungin til að láta vita af hvenær
hefja ber sönginn. Allar bak-
raddir fylgja lögunum, þannig að
einungis er ætlast til að sungin sé
aðalrödd.
götu 18 og síðan í Víðivöllum 22
á Akureyri. Á sínum fyrstu árum
áttu þau og ráku ásamt fleirum
Vinnufatagerðina á Akureyri.
Ása vann ýmis störf samhliða
heimilishaldinu, m.a. hjá þvotta-
húsinu Mjöll, en síðast vann hún
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa.
Þau Hallgrímur eignuðust sjö
börn, en tvö misstu þau við fæð-
ingu.
Börn þeirra eru: Erla Jósefína,
Elísabet, Hallgrímur Ásgeir og
Jónas öll búsett á Akureyri og
Sigurður Jóhannes búsettur í
Hafnarfirði.
Barnatiörnin eru þrettán og
barnabarnabörnin þrjú.
Heimili þeirra Hallgríms og
Ásu var gott heimili, þar var líf,
þar var gestrisni og örlæti og þar
var góðvild. Raunar fannst mér
oft furðu sæta hvað þar reyndist
oft mikið pláss. Samband þeirra
við „fólkið sitt“ var óvenju mikið
og gott og því mjög gestkvæmt á
heimili þeirra.
Ása var með afbrigðum lag-
hent og vinnusöm. Hennar
vinnudagur byrjaði oftast
snemma á morgnana löngu áður
en annað fólk fór á fætur, en þá
var gjarnan friður til að sauma
föt á krakkana, smíða handa
þeim leikföng, eða gera við bil-
aða rafmagnssnúru. Enga aðra
konu hef ég séð gera við raf-
magnstæki og tól. Raunar var
sama á hverju hún snerti, allt lék
í höndunum á henni. Skapgerð
Ásu einkenndist af glaðværð og
jákvæðu hugarfari og meiningu
sína sagði hún hreinskilnislega
hverjum sem í hlut átti.
Hallgrím missti Ása ’81 og var
hans sárt saknað. Nú um jólin
hafa þau getað rifjað um sameig-
inlega öll skemmtilegu jólin í
Víðivöllunum.
Ég kveð Ásu tengdamóður
mína með þakklæti í huga fyrir
að hafa fengið að kynnast henni.
Pað var eitt kvöld að mér heyrðist
hálfvegis barið,
éghlustaði um stund og tók afkert-
inu skarið,
ég kallaði fram, og kvöldgolan
veitti mér svarið:
Hér kvaddi lífið sér dyra og nú er
það farið.
Jón Helgason.
Oskar Þór Árnason.
BORGARBíO
Salur A
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Addams fjölskyldan
Kl. 11.00 Þrumugnýr
Salur B
Fimmtudagur
Kl. 9.05 Rakettumaðurinn
Kl. 11.05 í jólagjöf
BORGARBÍÓ
S 23500
Nauðungaruppboð
Þriðja og síðasta sala verður á fasteigninni sjóhús við
Vesturhöfn, norðurhluta, Ólafsfirði, þingl. eign Björns V.
Gíslasonar hf. þriðjudaginn 14. janúar 1992 á eigninni
sjálfri. Uppboðsbeiðendur eru Atvinnutryggingarsjóður
útflutningsgreina og Ólafsfjarðarbær.
Bæjarfógetinn í Ólafsfirði.
Sérsmíði eftir
þínum óskum
Fataskápar,
Eldhúsinnréttingar
Baðinnréttingar
Hilluro.fi.
-Við björgum málinu-
Þeir sem þurfa viðhaldsvinnu
hafi samband sem fyrst.
FÖST VERÐTILBOÐ
Fjalar h.f.
S. 41346.
fnQl FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
■OCl Á AKUREYRI
Viljum taka á leigu
4-5 herbergja íbúð sem fyrst
Vinsamlega hafið samband við Vigni Sveinsson
skrifstofustjóra F.S.A. í síma 22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Verslunarstjóri
Kaupfélag Eyfirðinga óskar eftir að ráða verslun-
arstjóra til starfa við nýja verslun félagsins, sem
opnuð verður fyrri hluta ársins.
Leitað er eftir traustum og áhugasömum starfs-
manni, með reynslu í verslunarrekstri og stjórnun.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Hannes Karlsson deildar-
stjóri Matvörudeildar KEA, sími 96-30373.
Umsóknir um starfið þurfa að berast aðalfulltrúa
félagsins fyrir 24. janúar nk.
Faðir okkar,
SVERRIR GUÐMUNDSSON,
Lömatjörn,
verður jarðsunginn frá Laufáskirkju laugardaginn 11. janúar kl.
14.00.
Fyrir hönd vandamanna:
Sigríöur Sverrisdóttir,
Valgerður Sverrisdóttir,
Guðný Sverrisdóttir.