Dagur - 09.01.1992, Page 11

Dagur - 09.01.1992, Page 11
Fimmtudagur 9. janúar 1992 - DAGUR - 11 Íþróttir Jón Haukur Brynjólfsson Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Stólarnir skelltu meisturunum Valur Ingimundarson átti frábæran leik gegn sínuni gömlu félögum. Mynd: SBG Einn mest spcnnandi leikur sem leikinn hefur verið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki var spilaður sl. þriðjudags- kvöld þegar lið Tindastóls mætti Njarðvíkingum. Leikur- inn var mjög hraður og skemmtilegur allt frá fyrstu mínútu og til þeirrar síðustu, en heimamönnum tókst að merja sigur 108:106. Strax í upphafi var ljóst að leikur þessi myndi verða fjörug- ur. Bæði lið sóttu djarft og ekkert var gefið eftir. Liðin skildi aldrei meira en þrjú stig allt þar til tvær mínútur voru til hálfleiks. Þá gerði Valur Ingimundarson sér lítið fyrir og gerði tvær 3ja stiga körfur og eina tveggja á hálfri mínútu og snéri stöðunni 51:40 fyrir Tindastól. Njarðvíkingar svöruðu þó fljótt fyrir sig og stað- an í hálfleik var 51:49. Allan síðari hálfleikinn héldu heimamenn sínu og komust mest upp í fjórtán stiga forystu, 97:83 og 99:85. Þannig var staðan á 17. mín seinni hálfleiks, en þá sóttu gestirnir í sig veðrið og með góð- um leik næstu tvær mínúturnar náðu þeir að jafna þegar 40 sek. voru eftir, 106:106. Skömmu síð- ar gerði Pétur Guðmundsson tvö - Valur frábær stig úr vítum fyrir Stóiana og þrátt fyrir að Teitur Örlygsson ætti gott þriggja stiga skot á síð- ustu sekúndu leiksins sem skopp- aði á körfuhring Tindastóls, nægði það gestunum ekki. Tinda- stóll hafði sigur 108:106. „Þetta var hörkuleikur og ég held þetta hafi verið sanngjarn sigur þrátt fyrir að hann hafi get- að lent hvoru megin sem var á síðustu mínútunum. Tindastóls- menn spiluðu mjög vel og skynsamlega eða akkúrat eins og þeir eiga að spila og þá er erfitt að eiga við þá. Við vorum búnir að tala um að gera aðra hluti, en það gekk ekki upp í dag og þetta tap er okkur þörf áminning,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga þegar lokatölur voru ljósar. Milan Rozanek, annar þjálfara Tindastóls sagði eftir leikinn að þetta hefði verið allur annar leik- ur en við KR-inga sl. sunnudag og leiðinlegast væri að þeir skyldu ekki hafa náð jafngóðum leik þá. „Eg er náttúrlega alveg í skýjunum með þennan leik. Pað er ekki það að Njarðvíkingar hafi verið lélegir heldur áttu þeir hörkuleik. Við spiluðu bara frá- bærlega og í liðinu var góður andi og skoraði 47 stig auk góðrar stemmningar í hús- inu,“ sagði Valur Ingimundar- son, leikmaður og þjálfari Tinda- stóls að leik loknum. Besti ntaður Tindastóls var tvímælalaust Valur Ingimundar- son, en ungir leikmenn eins og Björgvin Reynisson, Hinrik Gunnarsson og Ingi Pór Rúnars- son, komu einnig skemmtilega á óvart með góðum leik. Bestur Njarðvíkinga var Teitur Örlygsson, en Rondey Robinson átti einnig ágætan leik. Þess má geta að í liði Njarðvík- inga léku í fyrsta sinn fjórir bræður, þeir Sturla, Teitur, Gunnar og Stefán Örlygssynir. Einnig má geta þess að kona Vals Ingimundarsonar fór á sjúkrahús um tveimur stundum fyrir leikinn til þess að ala barn, en það virtist einungis herða upp í verðandi föður. Stig UMFT: Valur Ingimundarson 47, Ivan Jonas 20, Pétur Guðmundsson 19, Björn Sigtryggsson 7, Björgvin Reynis- son 6, Einar Einarsson 5, Ingi Þór Rún- arsson 2, Kristinn Baldursson 2. Stig UMFN: Teitur Örlygsson 40, Rond- ey Robinson 25, Sturla Örlygsson 15, Jóhannes Kristbjörnsson 10, Kristinn Einarsson 6, Friðrik Ragnarsson 5, Gunnar Örlygsson 3, Ástþór Ingason 2. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Bergur Steingrímsson. Dæmdu þokkalega. Úrvalsdeildin A-riðill Tindaslóll-UMFN 108:106 Snæfell-Haukar 91:104 UMFN 15 12- 3 1423:1205 24 KR 14 11- 3 1293:1155 22 Tindastóll 15 7- 8 1368:1394 14 Snæfell 13 3-10 1050:1222 6 Skallagrímur 14 2-12 1142:1390 4 Akureyrarmót í frjálsum íþróttum innanhúss: Telma vann besta afrekið Afreksbikar UFA var afhentur í lok Akureyrarmótsins en hann cr veittur fyrir besta afrck ársins. Jóhannes Ottósson, formaður UFA, er lengst til vinstri en næst honum er Jóhanna Erla Jóhannesdóttir sem hlaut bikarinn annað árið í röð fyrir 7,65 m (1100 stig) í þrístökki án atrcnnu á Meistara- móti Islands. Við hlið hennar er Stella Ólafsdóttir, sem varð í 2. sæti fyrir 1075 stig í 60 m hlaupi og loks Smári Stefánsson sem varð í 3. sæti fyrir 1040 Mynd: Páll A. Pálsson Milli jóla og nýárs var haldið Akureyrarmót í frjálsum íþróttum innanhúss í íþrótta- höllinni. Þátttaka var góð, en keppendur voru allir úr Ung- mennafélagi Akureyrar sem hélt mótið. Ágætur árangur náðist á mót- inu. Besta afrekið vann Telma Númadóttir en hún hlaut 1030 stig fyrir þrístökk án atrennu. Stella Ólafsdóttir náði frábærum árangri í 40 m hlaupi stelpna, hljóp á 5,9 sek. sem er besti tím- inn til þessa á Akureyri en grein- in er ekki inni á stigatöflu. Tvö Akureyrarmet voru sett í 35 ára flokki, Cees van de Ven stökk 2,93 m í langstökki án atrennu og Jóhannes Ottósson stökk 8,64 m í þrístökki án atrennu. Úrslit urðu þessi: TÁTUR Langstökk án atrennu 1. Assa van de Ven 1,90 2. Anita L. Björnsdóttir 1,83 3. Klara F. Stefánsdóttir 1,81 40 m hlaup I. Assa van de Ven 6,7 2. Anita L. Björnsdóttir 6,9 3. Tinna Stefánsdóttir 7,1 600 ni hlaup 1. Assa van de Ven 2:27,6 2. Klara F. Stefánsdóttir 2:34,2 3. Tinna Stefánsdóttir 2;40,8 HNOKKAR Langstökk án atr. I. Haraldur E. Hannesson 1,86 2. Hörður F. Sigþórsson 1,73 3. Gunnlaugur Guðmundsson 1,37 40 m hlaup 1. Haraldur E. Hannesson 6,7 2. Hörður F. Sigþórsson 7,4 3. Gunnlaugur Guðmundsson 7,7 600 m hlaup 1. Höröur Sigþórsson 2:28,2 2. Haraldur E. Hannesson 2:35,3 STELPUR Langstökk án atr. 1. Rúna Ásmundsdóttir 2,18 2. Stella Ólafsdóttir 2,14 3. Arna Pálsdóttir 2.00 40 m hlaup 1. Stella Olafsdóttir 5,9 2. Sigurbjörg Guðmundsdóttir 6,4 3. Karen Gunnarsdóttir 6,4 stig í 50 m hlaupt. Kúluvarp 1. Birna Baldursdóttir 5,62 2. Karen Gunnarsdóttir 5,58 3. Arna Pálsdóttir 5,50 800 m hlaup 1. Stella Ólafsdóttir 3:15,8 2. Karen Gunnarsdóttir 3:17,3 3. Rúna Ásmundsdóttir 3:27,7 STRÁKAR Langstökk án atr. 1. Hilmar Kristjánsson 2,08 2. Orri F. Hjaltalín 2,06 3. Hilmar Stefánsson 2,03 40 m hlaup 1. Orri F. Hjaltalín 6,4 2. Óðinn Árnason 6,4 3. Hilmar Stefánsson 6,6 Kúluvarp 1. Orri F. Hjaltalín 7,75 2. Hilmar Stefánsson 6.35 3. Björn Davíðsson 5,92 800 m hlaup 1. Orri F. Hjaltalín 3:07,7 2. Óðinn Árnason 3:08,2 3. Hilmar Kristjánsson 3:12,9 TELPUR Langstökk án atr. 1. Hólmfríður Jónsdóttir 2,34 2. Telma H. Númadóttir 2,28 3. Hildur Bergsdóttir 2,28 Pristökk án atr. 1. Telma H. Númadóttir 6,82 2. Sigríður Hannesdóttir 6,38 3. Freydís H. Árnadóttir 5,36 Kúluvarp 1. Sigríður Hannesdóttir 6,03 2. Telma H. Númadóttir 5,64 3. Freydís H. Árnadóttir 5,52 40 m hlaup 1. Hólmfríður Jónsdóltir 6,1 2. Sigríður Hannesdóttir 6,2 3. Hildur Bcrgsdóttir 6,2 Hástökk I. Sigríður Hannesdóttir 1,25 2. Telma H. Númadóttir 1,20 3. Freydís H. Árnadóttir 1,10 800 m hlaup 1. Hildur Bergsdóttir 3:14,4 2. Freydís H. Árnadóttir 3:44,6 PILTAR Langstökk án atr. 1. Freyr Ævarsson 2,60 2. Jóhann Finnbogason 2,24 3. Smári Stefánsson 2,23 Þrístökk án atr. 1. Freyr Ævarsson 7,42 2. Smári Stefánsson 6,61 3. Jóhann Finnbogason 6,42 Kúluvarp 1. Páll Þórsson 11,46 2. Sigurður Magnússon 1,55 40 in hlaup 1. Cees van de Ven 5,3 2. Jóhannes Ottósson 5,4 3. Sigurður Magnússon 5,6 50 m grindahlaup 1. Sigurður Magnússon 8,2 2. Cees van de Ven 8,3 800 m lilaup 1. Jón Stefánsson 2:30,8 2. Cees van de Ven 2:53,6 3. Óskar Hjaltalín 2:53,9 Föstudagur Hljómsveitin Gleðigjafar Andri Backman og Ellý Vilhjálms Karaokemeistarinn * / Ottar Ottarsson tekur lagið Húsið opnað kl. 23.00 Frítt inn til kl. 24.00 Laugardagur Hljómsveitin Gleðigjafar Andri Backman og Ellý Vilhjálms Karaokemeistarinn / / Ottar Ottarsson tekur lagið Danssýning Jói rokk og Guðbjörg sýna rokkdans eins og hann gerist bestur Lúðvík Lingdal lítur inn Húsið opnað kl. 23.00 Kjallarinn Karaoke alla helgina Karaokemeistarnir Ottar * Ottarsson og Haraldur Davíðsson taka lagið í kvöld fimmtudag

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.