Dagur - 21.01.1992, Qupperneq 7
Þriðjudagur 21. janúar 1992 - DAGUR - 7
Til hamingju Þórsarar!
Hermann Karlsson varði frábærlega í Keflavík og átti stóran þátt í mikilvæg-
um sigri Þórs. Mynd: Golli
Þórsarar eru nú nánast öruggir
með sæti í 1. deild að ári eftir
góðan útisigur á HKN, einum
helsta keppinaut liðsins um 1.
deildarsæti. Þórsarar höfðu
yfírburði í leiknum, sigur
þeirra var aldrei í hættu og
lokatölurnar urðu 22:27. Þetta
var annar sigur Þórs á HKN á
einni viku og fíest bendir nú til
að Þórsarar þurfí að tapa fímm
af þeim leikjum sem eftir eru
til að missa af 1. deildarsætinu.
Það er erfítt að ímynda sér að
það geti gerst og því fer að
verða óhætt að óska Þórsurum
til hamingju með árangurinn.
HKN-ingar byrjuðu á því að
taka þá Ole Nielsen og Jóhann
Samúelsson úr umferð og gerðu
það nánast allan leikinn. Það bar
þó lítinn árangur, Þórsarar kom-
ust strax yfir og héldu 2-3 marka
forystu allan fyrri hálfleik. Stað-
an í hléi var 13:10.
I seinni hálfleik voru yfirburðir
Þórs algerir og þeir náðu á tíma-
bili 8 marka forystu en Suður-
nesjamenn klóruðu í bakkann í
lokin.
Hermann Karlsson átti frábær-
an leik í marki Þórsara, varði upp
undir 20 skot, þar af 3 vítaköst.
Sævar Árnason sýndi á sér nýja
hlið, lék vinstra megin fyrir utan
meðan Ole og Jóhann voru tekn-
ir úr umferð og var mjög sprækur
í þeirri stöðu. Annars var liðs-
heildin sterk að venju hjá Þórsur-
um og er ekki nokkur vafi á að
þjálfarinn Jan Larsen á þar stór-
an hlut að máli en hann hefur
gert frábæra hluti með þetta unga
og efnilega lið. Þess má geta að
hann komst ekki með vegna veik-
inda.
Þórsarar hafa enn ekki tapað
stigi eftir 8 umferðir og fátt virð-
ist geta stoppað liðið héðan af.
HKN og Afturelding hafa tapað
sex stigum og eiga eftir að spila
innbyrðis auk þess sem þau eiga
bæði eftir einn leik gegn ÍR sem
verður að teljast líklegt að þau
tapi. Þórsarar mega því nánast
örugglega tapa 8 stigum og
markatala liðsins er það góð að
það yrði sennilega að tapa 10
stigum til að HKN eða Aftureld-
ing kæmust upp fyrir. Þetta þýðir
að Þórsarar geta sennilega
áhyggjulausir tapað báðum
leikjunum fyrir ÍR en það er auð-
vitað óþarfi og eigum við ekki að
segja að það sé einnig ólíklegt?
Mörk HKN: Romas Pavalonis 8, Björg-
vin Björgvinsson 4, Pétur Ingi Magnús-
son 3, Gísli Jóhannsson 2, Guöbjörn
Jóhannesson 2, Magnús Þórðarson 2,
Ólafur Thordarson 1.
Mörk Þörs: Ole Nielsen 8, Sævar Árna-
son 5, Jóhann Samúelsson 4, Rúnar Sig-
tryggsson 4, Atli Rúnarsson 3, Ingólfur
Samúelsson 1, Kristinn Hreinsson 1,
Ólafur Hilmarsson 1.
„Sumir hreinlega að springa
ef þeir komast ekki í golf ‘
- tvö mót að Jaðri um helgina
Kylfíngar á Akureyri hafa ver-
ið brosmildir í veðurblíðunni
upp á síðkastið enda aðstæður
að Jaðri nánast eins og að
sumarlagi. Um helgina var
slegið upp tveimur mótum á
vellinum og voru keppendur
samtals um 100 talsins.
Sama fyrirkomulag var á
mótunum báða dagana. Leiknar
voru 18 holur og var betri 9 holu
hringurinn látinn gilda. Aðeins
var leikið með forgjöf og urðu
úrslit þau að á laugardeginum
sigraði Skjöldur Jónsson á 30
höggum nettó en jöfn í 2.-5. sæti
á 31 höggi urðu Jóhann Jóhanns-
son, Erla Adólfsdóttir, Magnús
Gíslason og Kjartan Bragason.
Á laugardeginum sigraði Ari
Baldursson á 30 höggum en jafnir
í 2.-3. sæti urðu Þór Árnason og
Magnús Gíslason á 32 höggum.
Að sögn Smára Garðarsson,
vallarstjóra á Jaðarsvelli, er
völlurinn mjög góður þessa dag-
ana og hafa kylfingar verið dug-
legir að nýta sér það. „Það er
mikil „traffík“ hérna þessa dag-
ana og menn afar ánægðir. Það er
nú einu sinni þannig að sumir eru
hreinlega að springa ef þeir kom-
ast ekki í golf og vita ekki hvað
þeir eiga að gera af sér. Þessi
góðviðriskafli er því eins og
himnasending fyrir þá,“ sagði
Smári.
Ef veður helst óbreytt verða
mót um næstu helgi og sagði
Smári ekki útilokað að þá yrði
leikið á sumargrínum!
Kæra Þórs vegna Haukaleiks:
Málinu vísað frá?
Pétur Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri KKÍ, sem
einnig á sæti í mótanefnd
KKÍ, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að dómstóll ÍBA
yrði væntanlega að vísa kæru
Þórsara, vegna úrskurðar
mótanefndar KKÍ uin leik
Þórs og Hauka í úrvalsdeild-
inni, frá þar sem hún hefði
þurft að berast innan við 48
tímum eftir að úrskurður
mótanefndar lá fyrir. For-
maður dómstóls IBA vildi
ekki staðfesta þetta í gær.
Leikur Þórs og Hauka var
flautaður á og af og Þórsurum
dæmdur sigur þegar Haukar
voru ekki mættir til leiks 45
mínútum eftir að leikurinn átti
að hefjast en Haukar kærðu þá
ákvörðun. Féllst mótanefnd á
rök þeirra og úrskurðaði að
leikurinn skyldi fara fram scm
fyrst. Þessu vildu Þórsarar ekki
una og kærðu til dómstóls ÍBA.
Árni Pálsson, lögfræðingur
og formaður dómstóls ÍBA,
sagði í gærkvöldi að hann ætti
eftir að kynna sér hvort vísa
bæri málinu frá. Úrskurður
mótanefndar KKÍ lá fyrir 9.
janúar en Árni staðfesti að kæra
Þórsara hefði ekki borist fyrr en
í gær.
Bikarkeppnin í körfuknattleik:
Þór fékk Hauka!
- Pétur í landsliðið á ný
í gær var dregið í 8 liða úrslit-
um bikarkeppninnar í körfu-
knattleik og fengu Þórsarar
heimaleik gegn „erkifjendun-
um,“ Haukum. Þá var til-
kynntur landsliðshópurinn sem
mætir Litháum ■ þremur leikj-
um á næstu dögum og vakti
þar mesta athygli að Pétur
Guðinundsson er aftur kominn
inn í hópinn.
Aðrir leikir í 8 liöa úrslitunum
eru ÍBK-UMFN, KR-UMFG og
UBK-Valur. Leikirnir fara fram
dagana 14.-22. febrúar. Stór-
leikurinn er auðvitað viðureign
Suðurnesjarisanna Keflvíkinga
og Njarðvíkinga en óneitanlega
vekur viðureign Þórs og Hauka
athygli en liðin hafa eldað grátt
silfur síðustu vikur eins og fram
kemur hér að ofan.
í bikarkeppni kvenna drógust
saman UMFN-Snæfell, KR-
Haukar, ÍS-ÍBK og ÍR-UMFG.
Þess má geta að þetta er fimmta
árið í röð sem ÍS og ÍBK dragast
saman í 8 liða úrslitunum og hef-
ur sigurliðið úr þeirri viðureign
ævinlega orðið bikarmeistari.
Landsleikirnir við Litháa fara
t'ram 22., 23. og 24. janúar. Hóp-
urinn verður eins skipaður og sá
sem mætti Pólverjum að því
undanskildu að Pétur Guð-
mundsson og Guðjón Skúlason
koma inn í stað Axels Nikulás-
sonar og Páls Kolbeinssonar sem
eru meiddir. Það verða því tveir
„Stólar“ í liðinu, þeir Pétur og
Valur Ingimundarson.
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Skagamenn meistarar
- Þórsarar í 1. deild
íslandsmótid í innanhússknatt-
spyrnu, 1. og 2. deild karla og
1. deild kvenna, fór fram í
Laugardagshöll um helgina.
Skagamenn uröu Islandsmeist-
arar í karlafíokki, sigruöu
Fram 3:1 í úrslitaleik. Þórsarar
komust upp í 1. deild en Reyn-
ir A. og Einherji féllu í 3.
deild.
KA-menn voru eina norð-
lenska liðið í 1. deild og léku í
riðli ineð Grindavík, Fram og
Haukum. Liðið varð í öðru sæti í
sínum riðli, sigraði Grindavík 3:0
og Hauka 3:0 en tapaði 1:4 fyrir
Fram. Liðið tapaði síðan 1:2 fyrir
IA í 8 liða úrsíitum.
Þórsarar höfðu mikla yfirburði
í sínum riðli í 2. deildinni, sigr-
uðu Hvöt 8:0, HSÞ-b 3:2 og Ein-
herja 7:1 og komust þar með upp
í 1. deild.
Þór keppti einnig í kvenna-
deildinni og gerði 1:1 jafntefli við
Stjörnuna og tapaði 0:6 fyrir
UBK en leikurinn við Sindra féll
niður þar sem Sindri komst ekki
vegna veðurs. Breiðablik varð
íslandsmeistari, sigraði ÍA 3:1 í
úrslitaleik.
Íshokkí:
SA-Björninn
frestað
Fresta varð viðureign Skauta-
félags Akureyrar og Isknattleiks-
félagsins Bjarnarins á íslands-
mótinu í íshokkí sem fram átti að
fara á laugardaginn. Ástæðan var
sú að ekki tókst að halda svelli á
vellinum í hitanum.