Dagur - 01.02.1992, Qupperneq 3
Fréttir
Laugardagur 1. febrúar 1992 - DAGUR - 3
Niðurskurður sjúkrahúsa á Norðurlandi vestra:
Dregið úr afleysingum, yflrviimu og viðhaldi
- tillögur stjórnar sjúkrahúsanna
Minna um sumarafleysingar,
minni yfirvinna, ekki ráðið í
stöður starfsfólks sem hættir
og minna viðhald. Þetta er
hluti af tillögum stjórna
sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva á Norðurlandi vestra
sem þær senda til heilbrigðis-
ráðuneytisins. Með m.a. þess-
um aðgerðum hyggjast stjórn-
endurnir ná að spara í sam-
ræmi við fyrirskipaðan niður-
skurð.
Sjúkrahúsið Blönduósi
Sjúkrahúsið á Blönduósi á að
spara á árinu 10,6 milljónir króna
og í heilsugæslu tengdri því, bæði
á Blönduósi og Skagaströnd, eiga
að sparast 1200 þús. krónur.
„Hluti af tillögum okkar er við-
kvæmt mál á þessu stigi, en ann-
ars er stærsti parturinn niður-
skurður á sumarafleysingum.
Einnig takmörkun á útköllum við
neyðartilfelli og að ekki verði
ráðið í störf sem losna. Álags-
greiðslur verði skornar niður í
einstökum tilvikum og stjórnar-
fundum verði fækkað til að lækka
stjórnarlaun," segir Bolli Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Sjúkra-
hússins á Blönduósi.
Bolli segir að þær niðurskurð-
araðgerðir sem gert er ráð fyrir í
tillögunum, þýði aukið álag á
starfsfólk eins og t.d. yfir sumar-
tímann þegar engir verði ráðnir í
afleysingar. Að sögn hans gera
tillögurnar ráð fyrir að meirihluti
hins 10,6 milljón króna sparnað-
ar náist, en þó ekki allur. Varð-
andi heilsugæsluna segir Bolli að
aðgerðir byggist á því sama og á
sjúkrahúsinu, en gera þurfi betur
en ná 1200 þús. króna sparnaði,
því ljóst sé að rekstrarhalli hafi
verið einhver á síðasta ári.
Sjúkrahúsiö Hvammstanga
Sjúkrahúsinu á Hvammstanga er
gert að spara 4,8 milljónir króna
á árinu samkvæmt niðurskurðar-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar og
heilsugæslustöðinni um 700 þús.
krónur.
„Við gerum ráð fyrir að með
breyttu vinnuskipulagi verði
reynt að fækka um 2-3 störf á
sjúkrahúsinu og að draga úr yfir-
vinnu eins og hægt er. í öðrum
útgjöldum eins og viðhaldi mun-
um við síðan reyna að þrengja að
okkur og með þessu móti teljum
við okkur geta náð tilætluðum
sparnaði," segir Guðmundur H.
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
sjúkrahússins
Hvað heilsugæsluna snertir
segir Guðmundur að við hana
starfi það fáir að ekki sé hægt að
draga mikið saman í henni, en
reynt verði þó að klípa krónu hér
og krónu þar.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sjúkrahús Skagfirðinga á Sauðár-
króki fékk rúmar 14 milljónir
króna í sinn hlut úr niðurskurð-
arfrumvarpinu og heilsugæsla í
Skagafirði um 1,5 milljónir
króna.
„Við munum reyna að gera allt
sem við getum án þess að til upp-
sagna þurfi að koma, en það þýð-
ir náttúrlega einhvern samdrátt í
þjónustu. í tillögum okkar gerum
við m.a. ráð fyrir aðhaldi í yfir-
vinnu og afleysingum, en annars
eru þetta það háar tölur að erfitt
er að ná þessum sparnaði nema
með mikilli skerðingu á þjón-
ustu. Við sýnum samt fram á það
í tillögunum hvernig eigi að ná
honum, en jafnframt sýnum við
fram á hvaða áhrif það myndi
hafa á starfsemina," segir Birgir
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Skagfirðinga.
Tillögur stjórna sjúkrahúsanna
munu á næstu dögum berast heil-
brigðisráðuneytinu og þar verður
farið yfir þær. Ekki er Ijóst hvort
alls staðar þurfi að fylgja niður-
skurðinum að öllu leyti, en að
sögn framkvæmdastjóranna, er
það ákvörðun ráðuneytisins
hversu langt þarf að ganga. SBG
Nýir og fjölbreyttari möguleikar
fyrir þig í kaskótryggingum
Nú bjóðast þér þrjár nýjar og mismunandi kaskótryggingar hjá VÍS. Þarfir bifreiðaeigenda fyrir kaskótryggingar
eru mismunandi og loksins getur þú valið tryggingu sem hentar þér, bæði hvað varðar bótasvið og verð.
UMFERDAR
AL-KASKO
Ný og víðtækari
kaskótrygging
Inn á bótasvið gömlu kaskó-
tryggingarinnar hefur verið bætt
eftirfarandi áhættuþáttum:
• Skemmdarverk
• Björgunarkostnaður
• Akstur erlendis
• Víðtækari akstursheimildir
• Nýjar reglur um útborgun bíla
• Bætur vegna flóða
Bónusflokkum hefur verið fjölgað
og eru þeir nú fjórir: 10%, 20%, 30%
og 40%. Góðir ökumenn falla nú minna
í bónus við tjón. Þessa nýju kaskó-
tryggingu býður VÍS á óbreyttu iðgjaldi.
K A S K O
Ný trygging sem
er sniðin að umferð
í þéttbýli
Umferðartrygging bætir tjón sem verða
vegna árekstra og áaksturs. Bónus er
ávallt sá sami og í ábyrgðartryggingu
bifreiða og getur orðið allt að 70%.
Þessi trygging er mun ódýrari en
venjuleg kaskótrygging. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi urn iðgjald fyrir Umferðarkaskó
miðað við 70% bónus.
Lítill bíll MeðalbíH Stór bíll
8.900 11.532 12.493
A S K O
Nýjung fyrir þá sem
aka aðallega á
þjóðvegum landsins
Vegakaskó er nýjung fyrir þá sem aka
aðallega á þjóðvegum landsins en lítið
í þéttbýli. Tryggingin bætir tjón vegna
veltu, bruna, foks, hruns og hraps.
Vegakaskó er nýr og ódýr valkostur
fyrir bifreiðaeigendur.
Iðgjald er óháð bónus. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Vegakaskó:
Lítill bíll Meðalbíll Stór bíll
8.688 11.256 12.195
-X§
Já takk, ég óska eftir nánari upplýsingum
um nýju kaskótryggingarnar
Klipptu þennan miða út og sendu Vátryggingafélagi íslands hf. Þá færð þú upplýsingabækling
um nýju kaskótryggingamar sendan um hæl.
Nafn
Kennitala
Heimilisfang
Sveitarfélag -
Sími
VATRYGGINGAFEIAGI8IANDS HF
-þar sem tryggingar snúast um fólk
ÁRMÚLI3, REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 8400, SÍMI60 50 60