Dagur - 01.02.1992, Síða 9
Laugardagur 1. febrúar 1992 - DAGUR - 9
Stjörnuspá
„Án ábyrgöar11
■H r*u+ \aV
21. mars - 19. apríl
Þó svo aö helgin verði aö sönnu ekkert sér-
stök, gott ef ekki beinlínis leiöinleg, þá bæta
óvænt gleðitíðindi á mánudag eða þriðjudag
það fyllilega upp. Þú ert óvenju orkumikil(l)
um þessar mundir en það er kannski
óþarflega mikil spenna í gangi. Hrútar hafa
tilhneigingu til að ofkeyra sig, jafnvel að
gamni sínu. Án gamans, hægðu á þér.
/\)cvu+
20. apríl - 20. maí
Það er útilokað að ætla að summa upp í
eina setningu öll þau ólíku áhrif sem plán-
etur sólkerfisins hafa á naut í næstu viku.
Helgin verður skemmtileg. Mánu- og
þriðjudagur verða erfiðir. Miðviku-, fimmtu-
og föstudagur þægilegir. Skapið er gott og
ástin blómstrar. Það er mórall í gangi á
öðrum vígstöðvum. Þú afkastar óvenju
miklu þessa vikuna. Heilsan er viðkvæm.
'Tvíbumr
21. maí - 20. júní
Lífsgleðin og fjörið sem einkenna tvíbur-
ana svo mjög verða allsráðandi þessa vik-
una. Tímarnir eru sérlega hagstæðir til
samskipta af öllu tagi, styttri ferðalaga,
umræðna og ákvarðanatöku sérstaklega
á mánudag og þriðjudag. Seinni part vik-
unnar verður eitthvert slúður um þig í
gangi en þú bítur það léttilega af þér.
Krabbi
21. júní - 22. júlí
Bömmer og blús. Ekki láta þér detta í hug
að fara út í kvöld að skemmta þér. Það
myndi enda með ósköpum. Nógu erfið
verður helgin samt. Þú hefur alit á hornum
þér og skeytir skapinu helst á þeim sem
þykir vænst um þig. Þá er vinnan/skólinn
að sliga þig. Allt tekur þetta enda, en ekki
strax. Þú færð samúð seinni part vikunnar
rf) L')ón
>/ V* 23. júlí - 22. ágúst
Það er óhemju mikil huglæg spenna í gangi.
Það er ráðist að þér úr öllum áttum með
ókvæðisorðum. Þú ert rígbundin(n) í spenni-
treyju þagnarheita og leyndarmála. Spennan
nær hámarki á mánu- eða þriðjudag og þú
tryllist. Þegar hin lífsglöðu, dagfarsprúðu og
þægilegu Ijón öskra, skelfur jörðin og dýr
merkurinnar flýja í ofboði. Á slíkum stundum
kunna eiturslöngurnar jafnvel á skellinöðru.
AAeyja
23. ágúst - 22. september
Dagurinn í dag og á morgun verða
skemmtilegustu dagar vikunnar. Annars
verða þessir dagar seint oflofaðir. Amor er
á flugi og einhleypar meyjar eru ástfangn-
ar og giftar meyjar í sjöunda himni. Þá er
vinnugleðin mikil en seinni part vikunnar
gætirðu lent í tvíverknaði.
fyrir vikuna 1. - 7.
23. september - 22. október
Eitthvert vesen af mjög svo jarðneskum
toga angrar þig alla helgina. Bilun í tækj-
um eða áhöldum og þess háttar. Þetta
gæti gerst óvænt og þá er viss slysa-
hætta. Annars þýðir eflaust lítið að vara
þig við því að þú ert full(ur) sjálfsöryggis
þessa dagana og anar áfram í bjartsýni,
en þú ert á næfurþunnum ís, sýnist mér.
Mánu- og þriðjudagur verða skemmtilegir.
Sporðd reki
23. október - 21. nóvember
Eitthvað kemur þér skemmtilega á óvart í
dag eða á morgun. Einhver vinargreiði
eða jafnvel óvæntir fjármunir. Mánudagur
og þriðjudagur verða þér aftur á móti
frekar andsnúnir. Kuldaleg tilsvör og
ástæðulaust þras. Á miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag verður hlýlegra um að
litast.
Sigfús E. Arnþórsson
febrúar 1992
SteÍK\ge.i+
22. desember- 19.janúar
Þetta er þín helgi og í kvöld fara steingeit-
ur út á lífið og sletta úr klaufunum. Á
morgun ferðu svo að heimsækja náinn
ættingja. Annars eru næstu tvær vikur
sérlega hagstæðar steingeitum, jafnt til
vinnu sem ásta. Eftir rólegan mánudag og
þriðjudag verður seinni hluti vikunnar ein-
staklega skemmtilegur.
Va+usbem
20. janúar- 18. febrúar
Það eru nýir tímar hjá vatnsberum. Kom-
andi vika er tími bjartsýni, sjálfsöryggis og
nýrrar orku. Það eru engar spennuafstöð-
ur á himinhvolfinu, aðeins sterkur meðbyr.
Þú stendur á fjallsbrúninni og horfir yfir
fyrirheitna landið í morgunsólinni og veist
nú nákvæmlega hvert þú ætlar. Þessi vika
er mikilvæg fyrir alla framtíð.
IBfogi'ncxcliAr
22. nóvember - 21. desember
HiskaK
19. febrúar - 20. mars
Það blása frískir vindar um bogmenn nú
um stundir. Óvenjulegar hugmyndir og
uppákomur á hverju strái. Samskiptin við
umhverfi þitt (vinnufélaga, skólafélaga og
heimilisfólk) ganga auk þess óvenju frið-
samlega fyrir sig. Eftir rólega helgi verða
mánudagur og þriðjudagur mest spenn-
andi dagar annars rólegrar vinnuviku.
Þetta verður leikandi létt og skemmtileg
vika. Amor er á sveimi með örvarnar sínar
og lífið leikur við þig. Þá ertu líka óvenju
afkastamikil(l) í vinnunni og skólanum.
Þótt helgin verði ánægjuleg eru það þó
miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur
sem verða skemmtilegastir þessa vikuna.
METBOK-bók sem ber nafn meö rentu
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki
Raunvextír Metbókar eru nú 7%.
Árið 1991 voru raunvextir Metbókar 5,96% fyrri hluta árs og 8,12%
seinni hlutann reiknað á ársgrundvelli. Meðalraunvextir voru 7,03%.
Einfaldur binditími.
Hver innborgun á Metbók er aðeins bundin í 18 mánuði. Eftir það er hún alltaf
laus til útborgunar. Að þessu leyti er Metbók frábrugðin öllum öðrum bundnum
innlánsreikningum.
Vextírnir alltaf lausir.
Vextir Metbókar eru lagðir við höfuðstól tvisvar á ári og eru alltaf lausir til
útborgunar.
Skiptikjör tryggja bestu ávöxtun.
í lok hvers vaxtatímabils er gerður samanburður á nafnvöxtum bókarinnar og
verðtryggðum kjörum að viðbættum tilteknum vöxtum. Ávöxtun ræðst af því hvor
kjörin eru hagstæðari hverju sinni.
Spariáskrift.
Tilvalið er að safna reglubundið inn á Metbók með aðstoð Sparnaðarþjónustu
Búnaðarbankans. Þá er umsamin fjárhæð millifærð reglulega af öðrum
bankareikningi, t.d. Gullreikningi.
Veöhæf bók.
Metbókin er veðhæf en hana er einnig hægt að fá sem bókarlausan sparireikning.