Dagur - 01.02.1992, Side 13
Laugardagur 1. febrúar 1992 - DAGUR - 13
í dag eru liðin tvö ár frá því
EIR, félag hjúkrunarfræði-
nema við Háskólann á Akur-
eyri var stofnað. Nú eru í allt
59 nemendur í heilbrigðisdeild
en í heild eru nemendur skól-
ans um 170. í öllum þremur
deildum hans eru starfandi
félög nemenda og er EIR elst
þeirra. Tvö ár eru vonandi
byrjunin á langri sögu þessa
félags og skólans en félagið er
hluti af því félagslífi sem kom-
ið er á legg í hinum unga
löguna að þessu nafni en haldin
var samkeppni um nafn á félagið.
Yirkir félagsmenn
Sigrún segir að markmið félags-
ins séu að gæta hagsmuna
nemenda og vera málsvari þeirra
innan skólans og utan en einnig
að efla fræðslu og auka kynni
meðal nemenda. Þá hafi félagið
einnig að markmiði að stuðla að
góðri samvinnu nemenda við aðr-
ar heilbrigðisstéttir. En hvernig
gengur að ná þessum markmið-
Sigrún Tryggvadóttir, formaður EIRAR í starfsnámi á fæðingadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Með henni
er Guðrún Eggertsdóttir, yfirljósmóðir en Sigrún heldur á ungum syni Ingibjargar Birgisdóttur.
EIR, félag hjúkrunarfræðinema í Háskólanum á Akureyri, tveggja ára í dag:
Hjúkrunarfræðin er engin hobbýdeild
- segir Sigrún Tryggvadóttir, formaður
háskóla á Akureyri. Sigrún
Tryggvadóttir, sem er á 3. ári í
hjúkrunarfræöinámi, er for-
maður félags hjúkrunarfræði-
nema og í tilefni af þessum
tímamótum hittum við hana að
máli og spurðum hana um
félagið og skólann. Sjálf er hún
Reykvíkingur sem fór gagngert
til Akureyrar að nema hjúkr-
unarfræði og segist ekki sjá
eftir þeirri ákvörðun.
Nafngift sótt í goðafræðina
„Félagið var stofnað 1. febrúar
1990 þegar árgangarnir í hjúkrun
voru orðnir þrír. Þennan vetur
voru hjúkrunarfræðinemarnir
tæplega 40 talsins og þá kom upp
að við þyrftum að stofna hags-
munafélag þessara nema. Stofn-
uð var undirbúningsnefnd sem
hélt stofnfund 1. febrúar 1990 og
þar með var félaginu hleypt af
stokkunum,“ segir Sigrún
Tryggvadóttir um aðdragandann
að stofnun félagsins.
Nafnið EIR var sótt í norræna
goðafræði og svo skemmtilega
vill til að Sigrún átti einmitt til-
um?
„Það hefur gengið ágætlega
fram að þessu,“ segir Sigrún.
„Hvað varðar eflingu fræðslu þá
höfum við mikið af slíkum fund-
um og byrjuðum að auglýsa þá í
haust fyrir almenning en þó þess-
ir fræðslufundir væru góðir þá
mættu ekki margir. Hins vegar
mæta félagsmenn vel á fræðslu-
fundina og reyndin er sú að þegar
félagið stendur fyrir einhverju þá
mæta félagsmenn ótrúlega vel.
Með því að vera virkir í félags-
starfinu öðlast nemarnir líka
þjálfun fyrir framtíðina þegar
þeir ganga síðar í fagfélög og fara
að stuðla að framgangi hjúkrunar
og skapa henni virðingu innan
þjóðfélagsins. Það hefur oft verið
sagt að hjúkrun fái ekki nógu
mikla virðingu innan þjóðfélags-
ins en þá verða hjúkrunar-
fræðingar líka að bera virðingu
fyrir sjálfum sér,“ segir Sigrún og
bætir við að andinn í kringum
störf hjúkrunarfræðinga sé að
breytast, færast frá talinu í kring-
um lágu launin að því að á þessa
grein sé litið sem virkilega fag-
grein.
Tengsl við
heilbrigðisstofnanir
Meðan á námi stendur hafa heil-
brigðisdeildarnemarnir ágæt
tengsl við ýmsar heilbrigðis-
stofnanir. Þannig segir Sigrún að
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
taki inn nema af öllum árum í
starfsnám auk þess að á lokaár-
inu fari allir nemarnir til að skoða
heilbrigðisstofnanir í Reykjavík.
Ennfremur fari nemarnir í styttri
vísindaferðir um Norðurland.
Sambandið við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri er gott og
hefur stofnunin nú tekið upp þá
nýbreytni að bjóða bæði 3. og 4.
ársnemum til upplýsingafunda
um stofnunina, kjör hjúkrunar-
fræðinga og framtíð sjúkrahúss-
ins. Þannig kynnir stofnunin
væntanlegum hjúkrunarfræðing-
um hvað þeim stendur til boða að
námi loknu.
Sigrún segir að komið hafi ver-
ið á góðu sambandi og samstarfi
við nemendur í hjúkrunarfræði í
Háskóla íslands. Þannig voru
fulltrúar úr Háskóla íslands á
kynningu í heilbrigðisdeild HA á
dögunum og með vorinu fer full-
trúi frá EIR til að kynna hjúkrun-
arfræðinámið á Akureyri meðal
nema í skólanum fyrir sunnan.
Þurfum að sanna okkur
og sanna
Opinberlega hefur virst nokkur
togstreita milli Háskóla íslands
og Háskólans á Akureyri og þær
raddir uppi að skólinn norðan
heiða taki af fjárveitingum sem
ella hefðu farið til Háskóla
íslands. Sigrún er spurð hvort
þetta komi fram í samskiptum
hjúkrunarfræðinemanna sunnan
heiða og norðan.
„Við heyrum raddir en svo
virðist að enginn eigi þær þegar á
reynir. Það er enginn sem stend-
ur undir þeim. Núna er fyrsti
útskriftarhópurinn kominn frá
skólanum og við sem útskrifumst
í fyrstu árgöngunum verðum að
standa okkur og sýna og sanna að
hjúkrunarfræðin við Háskólann á
Akureyri er fyllilega samkeppnis-
hæf við hjúkrunardeild Háskóla
íslands sem er 15 ára gömul
deild. En við finnum að það er
mikið fylgst með okkur og fáum
góða dóma,“ bætir hún við og
brosir.
Sigrún segir að þrátt fyrir nei-
kvæðar raddir út í uppbyggingu
Háskólans á Akureyri hafi sýnt
sig að í beinum samskiptum milli
nemenda skólanna hverfi slík
togstreita. Ekki sé heldur hægt
að sýna fram á að Háskólinn á
Akureyri sé að taka fjármagn frá
Háskóla íslands en þrátt fyrir það
megi búast við neikvæðum rödd-
um um einhver ár.
Nemendasamskiptin
mikilvæg
Sigrún segir greinilegt að hjúkr-
unarfræðinemarnir við HÍ hafi
ákveðnar skoðanir á því hjúkrun-
arfræðinámi sem er við Háskól-
ann á Akureyri en með heim-
sókninni á dögunum hafi í fyrsta
sinn gefist kostur á að kynna
nemendum að sunnan skólann og
námið á heimavelli. Auk kynnis-
starfa af þessu tagi hafi nemenda-
félög hjúkrunardeildanemanna í
skólunum samband sín á milli
auk þess að vera saman í norrænni
samvinnu hjúkrunarfræðinema.
Sigrún segir að fyrir Háskólann á
Akureyri sé þetta mikilvægt
vegna þess að innan þessarar
norrænu samvinnu sé EIR
minnsta félagið.
„Fyrir okkur er mikilvægt að fá
að vera með í þessu samstarfi.
Við kynnum þarna skólann, upp-
byggingu hans og ekki síst Akur-
eyrarbæ,“ segir Sigrún.
Höfum áhrif á námsefni
og kennslu
Auk þess að stjórn EIRAR vinni
samkvæmt markmiðum félagsins
er starfandi skemmtinefnd innan
félagsins og á aðalfundi eru kosn-
ir fulltrúar nemenda í námsnefnd
og deildarráð. Deildarráð fjallar
um mál einstakra nemenda, s.s.
undanþágubeiðnir, kærur prófa
og þess háttar en námsnefnd
vinnur m.a. að endurskoðun á
námsbókum og tekur fyrir þær
athugasemdir sem henni berast
varðandi kennslu. Því má segja
að í gegnum sína fulltrúa í náms-
nefndinni geti nemendur komið á
framfæri sínum sjónarmiðum um
kennsluna og lagt fram tillögur
um breytingar.
Sigrún segir að hvað varði
námsefni hafi ekki orðið stórar
breytingar á þessum fyrstu árum
skólans en nú standi yfir endur-
skoðun og þegar um slíkt sé að
ræða komi fulltrúar nemenda í
námsnefnd með hugmyndirnar til
atkvæðagreiðslu meðal nemenda
áður en hann samþykki þær f
námsnefndinni. „Þetta er því allt
mjög „diplómatískt" hjá okkur.
Við fáum alltaf að vera með,“
segir Sigrún.
Meira en hrista púða
og brosa
Við víkjum f lokin að náminu
sem slíku og segir Sigrún að þetta
sé stíft nám.
„Já, sérstaklega eftir því sem
lengra líður á. Þetta er því engin
hobbýdeild eins og sumir halda.
Þetta er virkilegt fag sem að baki
stendur fjögurra ára háskólanám
en ekki bara það að hjúkrunar-
fræðingar séu einhverjar sætar og
málaðar tískudrósir sem ekkert
geri annað en hrista púða og
brosa. í þessu starfi felst mun
meira,“ segir Sigrún Tryggva-
dóttir að lokum. JÓH
Tengsl Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og heilbrigðisdeildarinnar við HA eru mikil. Hér er Sigrún ásamt félög-
um sínum í stjórn EIRAR fyrir framan FSA. Frá vinstri: Rósa Ösp Ásgeirsdóttir gjaldkeri, Sigrún formaður, Þor-
steinn B. Bjarnason meðstjórnandi, Arnbjörg Jóhannesdóttir varaformaður og Sigríður Einarsdóttir ritari.
Myndir: Golli.