Dagur - 01.02.1992, Page 19
Laugardagur 1. febrúar 1992 - DAGUR - 19
Islensk plötusala 1991
- mjög góð þegar á heildina er litið
Aö undanförnu hafa íslenskir
plötuútgefendur verið að taka
saman tölur yfir best seldu afurð-
ir sínar frá nýliðnu ári 1991. Er nú
niðurstaðan í þessari samantekt
orðin að mestu Ijós og er ekki
hægt að segja annað en að hún
sé mjög góð. Var salan hátt í tvö
hundruð þúsund eintök og dreifð-
ist hún á marga titla, sem er
ánægjulegt og gefur vísbendingu
um að gæðin séu meiri og fjöl-
breyttari. Þó er það nú eins og
endranær, að sumirseljast betur
en aðrir og skiptir þá ekki máli
hvort viðkomandi hafi einhvern
sérstakan gæðastimpil á sér
eður ei.
Poppskrifari Dags rennir hér á
eftir yfir nokkrar af plötunum sem
seldust best.
Sálin á toppnum
Fyrirfram var ekki búist við öðru
en að þessi nýja samnefnda
plata Sálarinnar Hans Jóns Míns
myndi seljast vel. Hljómsveitin
hafði átt tvö af vinsælli lögum
sumarsins, Ábyggilega og Brost-
ið hjarta, og gerði mikla lukku á
dansleikjum sínum og tónleikum.
Það kom manni hins vegar nokk-
uð á óvart að Sálin skyldi þegar
upp var staðið verða á toppnum.
Seldist platan í rúmlega 10.000
eintökum, sem telja verður fram-
ar vonum. Verðskuldaði platan
þó fyllilega þessa sölu og vel
það.
Bubbi og Rúnar
með silfrið
GCD plata þeirra Bubba og Rún-
ars varð önnur söluhæsta platan,
en hún fór í um 8.500 eintökum.
Að dómi poppskrifara var hún
tvímælalaust besta íslenska
platan 1991 og jafnframt sú
ánægjulegasta. Var löngu kom-
inn tími á að fá hreina og beina
rokkplötu af íslenskri ætt, þannig
að ekkert er skrýtið við að hún
skyldi fara vel í landann. Bubbi
gerði það reyndar ekki enda-
sleppt á árinu, því tónleikaplatan
hans, Ég er, seldist í yfir fimm
þúsund eintökum, sem sannar
ótvírætt að hann er enn vinsæl-
asti tónlistarmaður þjóðarinnar.
Ný Dönsk númer þrjú
Ekki hafði maður beint á tilfinn-
ingunni aö þlata Ný dönsk, de
luxe, yrði með allra söluhæstu
plötunum. Það fór nefnilega ekki
svo mikið fyrir henni til að byrja
með, en eftir að lagið Alelda fór
að heyrast æ oftar á öldum Ijós-
vakans og síðan myndbandið við
það birtist, fóru hlutirnir að
gerast. Jókst salan jafnt og þétt
og endaði platan í um 6.500 ein-
tökum fyrir áramót, sem þýðir að
hún varð þriðja mest selda á
árinu. Er Ný Dönsk vel að þess-
ari sölu komin.
íslandslögin yljuðu
(slandslögin „umdeildu" hans
Gunnars Þórðarsonar, (þau voru
að minnsta kosti umdeild á síð-
um Dags) seldust vel eða í um
6.000 eintökum, sem gerir verkið
að því fjórða best selda á árinu
1991. Sýnir þessi góða sala að
þjóðin kann enn að meta sín
öldnu sönglög og það þótt frjáls-
lega sé farið með þau. Endur-
speglaðist það ekki einungis í
■I
%
, ■ m,. J. ^
-. í ; ’
Bubbi er ennþá vinsælasti tónlistar-
maður þjóðarinnar. Plöturnar hans
tvær seldust í ríflega 13.000 eintök-
um.
Þeir Eyjólfur Kristjánsson og Stefán
Hilmarsson, söngvari Sálarinnar,
áttu ólíku gengi að fagna með plötur
sínar.
sölunni, heldur einnig í óskalaga-
dagskrám útvarpsstöðvanna, þar
sem mörg laganna heyrðust
tíðum.
í kjölfar íslandslaga kemursvo
Stjórnin, sem eins og skýrt hefur
verið frá hér á þessari síðu er ný
og breytt hljómsveit í dag, með
Tvö líf í 5.600 eintökum. Þar á
eftir eru m.a. barnaplatan með
Rokklingunum, Opera með
Todmobile og Bubbi í vel rúmum
5.000 eintökum.
Oft fer öðruvísi...
Það má segja um þessar þlötur
sem best seldust, að þær voru í
flestum tilvikum þær sem búist
var við að yrðu með þeim mest
seldu, nema e.t.v. í tilviki Rokkl-
Hertar tónleikareglur
[ kjölfar ýmissa slysa og óhaþpa
á tónleikum í Bretlandi undanfar-
in misseri m.a. dauða tveggja
ungra manna á Donington rokk-
hátíðinni 1988, eru uppi hug-
myndir þar í landi um hertar regl-
ur varðandi tónleikahald. Eru
þessar hugmyndir víðtækar og
ná yfir flesta þætti sem varða
tónleikahaldið.
Meðal annars er gert ráð fyrir
öflugri gæslu á viðkomandi tón-
leikastöðum á þann hátt að kom-
ið verði í veg fyrir að troðningur
myndist við sviðið. Yrði það t.d.
inganna. Þó voru þær plöturnar
gefnar út sem einnig áttu fyrir-
fram séð að verða í hópi þeirra
söluhæstu, en urðu það ekki af
einni eða annarri ástæðu, sömu-
leiðis sem aðrar sem ekki var
búist við miklu af, slógu í gegn.
Ágæt dæmi um hvorutveggja
má sjá á útgáfunni hjá ps músík.
Plötunni hans Eyjólfs Kristjáns-
sonar, Satt og logið, var spáð
mikilli velgengni, ekki síst í Ijósi
vinsælda hans og velfarnaðar í
Eurovision og Landslags-
söngvakeppnunum. Hún seldist
dræmt. (Fyrri plata Eyjólfs,
Dagar, seldist í um 7.000 eintök-
um.) Á hinn bóginn kom safnplata
ps músík, Minningar, þægilega á
óvart og seldist hún í um 5.000
eintökum. Þá sló Kristján Krist-
jánsson eftirminnilega í gegn
með sinni plötu, Lucky One, sem
fáir áttu von á að gæti gerst.
Seldist hún í um 3.500 eintökum
og er áreiðanlega enn að seljast.
Fleiri dæmi um þetta má nefna
eins og að safnplatan, Stóru
börnin leika sér, þar sem eldri
barnalög eru færð í nútímalegan
’ búning, fór mun betur í lýðinn en
kannski hefði mátt ætla og seld-
ist í um 5.000 eintökum. Hins
vegar seldist Tifa, tifa Egils
Ólafssonar heldur minna en ætla
hefði mátt eftir allt lofið sem verk-
ið fékk, eða í tæpum fjögur þús-
und eintökum. Sléttuúlfarnir riðu
heldur ekki of feitum hesti hvað
varðar söluna á þeirra annarri
þlötu, Undirbláum mána. Seldist
hún að vísu í rúmum þrjú þúsund
eintökum, en var samt ekki hálf-
drættingur á við Líf og fjör í
Fagradal, sem seldist í um 7.500
eintökum. Enn fleiri dæmi mætti
nefna en þetta verður látið
nægja. Sannar þessi upptalning
bara að ekkert er gefið fyrirfram
og að niðurstaðan verður oft
öðruvísi en ætlað er.
Framtíðin virðist björt
En burtséð frá því hverjir seldust
best, hverjir seldu minna og
hvers vegna, þá er staðreyndin
sú eins og áður greinir, að salan
hefur sjaldan eða aldrei verið jafn
mikil og árið 1991 í heildina. Með
átakinu íslenskt tónlistarsumar,
virðist hafa tekist að jafna og
dreifa plötusölunni yfir árið, jafn-
framt því að auka hana. Gefur
það fögur fyrirheit um að framtíð-
in verði björt í íslensku tónlistar-
lífi og að þar fari saman rífleg
útgáfa og ríkuleg gæði.
framkvæmt með þeim hætti aö
aðeins takmörkuðum fjölda
gesta væri hleypt næst sviðinu.
Þá eru hugmyndir um takmark-
aðan hljóðstyrk einnig til umræðu
á þá lund að hann megi aldrei
verða meiri en sem nemur 104
desibelum og að þar sem gert er
ráð fyrir að styrkurinn nái 96
desibelum, skuli miðarnir þrent-
aðir með aðvörun um að hætta á
heyrnarskemmdum sé möguleg.
Hafa þessar hugmyndir fengið
misjafnar undirtektir eins og
gengur, en búist er við að úr því
verði skorið hvort þær ná fram að
ganga fyrir lok þessa árs.
Hitt og þetta
Aðstandenda-
námskeið!
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur alkohól-
ista hefst fimmtudaginn 6. febrúar nk.
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofunni, Gler-
árgötu 28 og í síma 27611.
S.Á.Á.-N.
Bókhaldsþjónusta
TOK BÓKHALDSKERFI
Tek að mér bókhald fyrir einstaklinga og
minni fyrirtæki.
Ef óskað er eftir tilboði má ræða málin.
Aðstoð við skattframtöl.
Birgir Marinósson
Norðurgötu 42 • Sími 21774.
með rofustöppu!
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða yfirsjúkraþjálfara
er laus til umsóknar vegna afleysinga til 6 mán-
aða.
Staðan veitist frá 1. júní nk.
Einnig er laus til umsóknar staða SJÚKRAÞJÁLF-
ARA.
Staðan veitist frá 1. mars nk.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar nk.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
it
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR ÞORBERGSSON,
bifreiðastjóri,
Seljahlfð 3 h, Akureyri,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 28. janúar
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 3. febrúar
kl. 13.30.
Dýrleif Jónsdóttir Melstað,
Ragnheiður Ólafsdóttir, Kristján Pétursson,
Pétur Ólafsson, Helga Ingólfsdóttir,
Þorbergur Ólafsson, Bylgja Stefánsdóttir,
Ágústa Ólafsdóttir, Guðmundur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.