Dagur - 24.03.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 24.03.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 24. mars 1992 - DAGUR - 3 Fréttir________________________________________________________________________ Sauðárkrókur: Bæjarráð leitar lögfræðiálits vegna Rastarimiar - samþykktur úreldingarstyrkur 37 milljónir Bæjarráð Sauðárkróks sam- þykkti á fundi sínum sl. föstu- dag að ráða lögfræðing til að kanna réttarstöðu bæjarins vegna sölu aflaheimilda og úreldingar á Röst SK-17. A fundinum var einnig fjallað um þær vinnureglur sem gilt hafa varðandi undirskriftir vegna Hvammstangi: Máleftialegar umræðui’ um hitaveituna „Það mættu um sextíu manns á fundinn og umræður voru málefnalegar í alla staði,“ segir Jón Haukdal Kristjánsson, gjaldkeri Verkalýðsfélagsins Hvatar á Hvammstanga um almennan borgarafund sem félagið hélt sl. sunnudag um hitaveitumál á Hvammstanga. Að sögn Jóns kom m.a. fram á fundinum að hreppsnefnd myndi endurgreiða notendum hitaveit- unnar ef tekjur hennar yrðu meiri en reiknað er með í fjár- hagsáætlun. Hinsvegar segir Jón að hreppsnefndarmenn hafi ekki lofað lækkun ef vatnssparnaður íbúa yrði það mikill að tekjur veitunnar yrðu minni en ráð væri fyrir gert. „A fundinum kom fram að íbúar staðarins búa ekki allir við sama hitastig á heita vatninu þrátt fyrir að allir greiði það sama fyrir mínútulítrann og hrepps- nefndarmenn viðurkenndu að töluvert væri eftir af framkvæmd- um við dreifikerfið áður en það yrði fullkomið. Þrátt fyrir að eng- ar eiginlegar niðurstöður hafi fengist, held að þessi fundur hafi létt aðeins á þeirri spennu sem hér I ríkir um þessi mál,“ segir Jón. SBG HlíðarQall: Þijú mót um helgina - en almennir skíða- menn voru fáir í íjallinu | Þrjú skíðamót voru haldin í1 Hlíðarfjalli um helgina og var góð þátttaka í þeim. Hins veg- ar var aðsókn almennings í fjallið ekki sérlega mikil, að sögn Kristins Sigurðssonar starfsmanns Skíðastaða. „Ég veit ekki af hverju aðsókn- in var svona dræm, hvort það er vegna þess að fólk er búið að gleyma skíðunum sínum eða hvort sólarleysið átti sökina. Auðvitað á það sinn þátt í þessu að þrjár lyftur eru lokaðar: barnalyftan, Hjallabraut og Hólabraut. Byrjendur fara ekki beint í stólalyftuna svo þeir komu ekki,“ sagði Kristinn. í gærdag var kominn 4-5 stiga hiti í fjallið og sagði Kristinn að starfsmennirnir óttuðust hlákuna sem nú væri verið að spá. „Við vildum gjarnan sjá meira af þess- ari snjókomu sem þeir spá öðru hvoru en minna verður úr,“ sagði hann. Ekki kvaðst hann þó óttast um landsmótið sem fara á fram í Hlíðarfjalli eftir 10 daga. „Það verður allt í lagi ef snjórinn verð- ur jafnmikill og liann er núna,“ sagði Kristinn. -ÞH kvótaleigusamninga. Að sögn Björns Sigurbjörns- sonar, formanns bæjarráðs Sauð- árkróks, ákvað bæjarráð að leita eftir lögfræðilegu áliti varðandi kvótasölu og úreldingu á Röst- inni til að fá úr því skorið hvernig til háttar með forkaupsrétt sveit- arfélagsins í þessu máli. Ráðið samþykkti auk þess að endur- skoða vinnureglur varðandi undirskriftir bæjarins við kvóta- leigu vegna þess að starfsmaður bæjaryfirvalda undirritaði fyrir skömmu 274 tonna kvótaleigu- samning frá Dögun til Granda án þess að láta bæjarráð vita sér- staklega. „Þær vinnureglur hafa gilt að starfsmenn bæjaryfirvalda hafa getað undirritað kvótaleigusamn- inga fyrir hönd bæjarins án þess að það væri tekið fyrir í bæjar- ráði. Það var því ekki óeðlilegt að þessi tiltekna undirritun var ekki tekin fyrir á bæjarráðsfundi, en í ljósi þess hversu mikinn kvóta var um að ræða, ákváðum við að endurskoða þessar vinnu- reglur okkar,“ segir Björn Sigur- björnsson. Staðfest er að Hagræðinga- sjóður samþykkti í síðustu viku beiðni Dögunar hf. um úreldingu á Röstinni og var 37 milljón króna úreldingarstyrkur sam- þykktur. Stjórn Dögunar getur því valið milli þess að selja skipið eða úrelda það, en að sögn Ómars Gunnarssonar fram- kvæmdastjóra er ekki búið að taka neinar ákvarðanir í því sambandi. Stjórnin hefur heldur ekki tekið afstöðu til beiðni bæjarstjórnar Sauðárkróks um að bærinn fái að ganga inn í sölu- samninga varðandi bolfiskkvóta Rastarinnar. Hvað snertir fregnir um að Grandi hf. hyggist kaupa Röstina af Dögun segist Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda, ekki vera reiðubúinn að segja annað um viðskipti fyrir- tækisins við Dögun, en að gerður hefði verið leigusamningur um bolfiskkvóta fyrir þetta kvótaár. Tíminn yrði að leiða í ljós hvort um frekari viðskipti yrði að ræða. SBG Grimnnr ★ 7% raunvextir og verðtrygging * Sparnaðartími3-5-10ár ★ 25% skattafsláttur ★ Lánsréttur í lok sparnaðartíma •k Innstœða eignarskattsfrjáls * Ákjósanlegur lífeyrissjóður Grunnur er húsnœðisreikningur Landsbankans. Hann er bundinn í 3-10 ár og nýtur ávallt bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býður. Leggja þarf inn á Grunn reglulega og er hámarksinnlegg á árinu nú kr. 428.360,- eða kr. 107.090,- ársfjórðungslega. Skattafsláttur af innlagðri upphæð er 25%. Pannig gefur til dœmis 400.000,- króna innlegg 100.000,- krónur ískattafslátt. Grunni fylgir sjáljkrafa lánsréttur vegna húsnœðis. Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna. Grunnur er þannig bœði góð sparnaðarleið fyrir þá sem hyggja á húsnœöiskaup eða byggingu og kjörinn lífeyrissjóðurfyrir spari- fjáreigendur. Landsbankinn býður viðskiptavinum að millifœra greiðslur af Einkareikningi yfir á Grunn, mánaðar- lega eða í lok hvers ársfjórðungs. Hafið samband við nœsta útibú Landsbankans og starfsmenn þar munu fúslega veita nánari upplýsing- ar um Grunninn. Dœmi um sparnað á Grunni: Forsendur: * Lagðar eruinnkr. 10.000 í lok hvers mánaðar. * Skattafsláttur er 25% af heildarinnleggi. * 7% raunvextir reiknast mánaðarlega og leggjast * Miðað er við fast verðlag. við höfuðstól í árslok. Sparnaðartími 3 ár 5 ár lOár Samtals innborgað 360.000 600.000 1.200.000 Vextir 38.165 112.229 511.167 ínnstœða með vöxtum 398.165 712.229 1.711.167 Skattafsláttur 90.000 150.000 300.000 Samtals vextir og skattafsláttur 128.165 262.229 811.167 Uppsöfnuð raunávöxtun 22.83% 15.97% 10.94% Sparnaðartími Margfeldi af höfuðstól Hámarksupphœð 3 ár 2 600.000 4 ár 3 1.200.000 5-10 ár 4 1.800.000 Til að ná fullum skattafslœtti fyrir árið 1992 þarf að leggja inn eigi síðar en 31. mars 1992. L Landsbanki íslands Útibúin á Norðurlandi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.