Dagur - 25.04.1992, Qupperneq 7
Laugardagur 25. apríl 1992 - DAGUR - 7
Fréttir
Togarar ÚA:
Hafa aflað vel eftir páska
- þorskveiði á Halamiðum og fyrir Suðurlandi
Togarar Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. hafa fiskað vel að
undanförnu. Svalbakur EA
kom inn til löndunar fyrstur
togaranna eftir páska með full-
fermi, þ.e. 260 tonn. Á sumar-
daginn fyrsta var því unnið í
frystihúsinu og þann dag kom
Árbakur EA einnig inn með
fullfermi, sem er 160 tonn. Afli
beggja togaranna var karfi og
grálúða, en grálúðan gaf sig
um páskana á djúpslóð fyrir
vestan.
Ragnar Elíasson, skipstjóri á
Kaldbak EA, segir að grálúðu-
veiðin sé dottin niður og því hafi
Menntamálaráðherra skipar
ÞróunameM Háskóla fslands
Menntamálaráðherra hefur
skipað Þróunarnefnd Háskóla
Islands. Nefndinni er ætlað að
vera yfirvöldum menntamála
til ráðgjafar í málefnum
Háskóla Islands.
Henni er ætlað að taka mið af
þróun háskóla hjá OECD-ríkjum
og þörfum íslensks þjóðfélags
fyrir almenna menntun, starfs-
menntun og rannsóknir á háskóla-
stigi. Sérstaklega skal nefndin
huga að aukinni þjónustu Há-
skólans við atvinnulíf í landinu.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri er formaður
nefndarinnar en aðrir í nefndinni
eru: Árni Gunnarsson, skrif-
stofustjóri Háskóla- og menning-
arskrifstofu menntamálaráðu-
neytisins, Björn Bjarnason,
alþingismaður, Friðrik Pálsson,
forstjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, Jón Sigurðsson,
forstjóri Járnblendiverksmiðj-
unnar að Grundartanga, Kristján
Árnason, prófessor, Magnús Pét-
ursson, ráðuneytisstjóri fjármála-
Bridgefélag Akureyrar:
Keppnistímabil-
inu að ljúka
Haukur Harðarson og Sigríður
Jóhannesdóttir urðu hlut-
skörpust á þriðja Nýliðamóti
BA á þriðjudagskvöld. Þau
hlutu 324 stig en Una Sveins-
dóttir og Pétur Guðjónsson
urðu í öðru sæti með 319 stig. í
þriðja sæti urðu Ólafur Stein-
arsson og Örn Steinarsson með
317 stig.
Kristján Guðjónsson og Sigur-
björn Þorgeirsson urðu í fjórða
sæti með 316 stig og þær Ragn-
heiður Haraldsdóttir og Ólína
Sigurjónsdóttir í því fimmta með
314 stig.
Alls stóðu Nýliðamótin yfir
þrjú spilakvöld og var hvert
þeirra sjálfstætt og veitt þrenn
verðlaun fyrir hvert þeirra. Mót-
ið var tvímenningskeppni og spil-
uðu saman vanir spilamenn og
nýliðar.
Eins og komið hefur fram í
Degi, sigruðu þeir Sigfús Hreið-
arsson og Birgir Marinósson á
fyrsta Nýliðamótinu. Á öðru
mótinu sigruðu þeir Kristján
Guðjónsson og Sigurbjörn Þor-
geirsson með 322 stig en þeir
Haukur Harðarson og Hörður
Jóhannesson urðu í öðru sæti
með 313. í þriðja sæti urðu Una
Sveinsdóttir og Pétur Guðjóns-
son með 312 stig, í fjórða sæti
Hermann Tómasson og Margrét
Kristinsdóttir með 309 stig og í
fimmta sæti Tryggvi Gunnarsson
og Hans Viggó með 303 stig.
Keppnistímabili Bridgefélags
Akureyrar fer senn að ljúka að
þessu sinni. Síðasta mót tímabils-
ins er Einmenningur og firma-
keppni sem fer fram næstu tvö
þriðjudagskvöld í Hamri og er
allt spilafólk velkomið. -KK
ráðuneytisins, Markús Örn
Antonsson, borgarstjóri, Páll Kr.
Pálsson, forstjóri Vífilfells, Pálmi
Jónsson, alþingismaður, Rannveig
Guðmundsdóttir, alþingismaður,
Sigmundur Guðbjarnason, próf-
essor, Sigríður Anna Þórðardótt-
ir, alþingismaður, Sveinbjörn
Björnsson, háskólarektor, Þórir
Einarsson, prófessor og Þórólfur
Þórlindsson, prófessor.
þeir Kaldbakskarlar leitað á
Halamið. „Þriðjudagurinn og
miðvikudagurinn gáfu vel af
þorski. Við vorum að fá 10 til 12
tonn í hali. Já, við erum að gera
þokkalegasta túr,“ sagði Ragnar.
Að sögn Þorleifs Ananíasar-
sonar, útgerðarstjóra hjá ÚA,
verður Kaldbakur EA til löndun-
ar á mánudag og Harðbakur EA,
sem er að veiðum á Halamiðum
sem Kaldbakur EA, kemur til
löndunar um miðja viku. Frysti-
togararnir tveir Sólbakur EÁ og
Sléttbakur EA eru að þorskveið-
um fyrir Suðurlandi sem gengur
vel af síðustu fréttum að dæma
og Hrímbakur EA fer til veiða
um helgina, en togarinn hefur
verið í slipp að undanförnu. „Já,
það er allt annað hljóð í okkur nú
eftir páska. Veiðin hefur glæðst
og vinnan í frystihúsinu er mikil.
Þannig verður unnið á laugardag-
inn sem á sumardaginn fyrsta til
að við náum endum saman,“
sagði útgerðarstjórinn. ój
Akureyri:
Þetta er víst hægt stelpur!
- er heiti á erindi Hildar Jónsdóttur, verk-
efnisstjóra, á fræðslufundi nk. miðvikudag
Miðvikudaginn 29. apríl nk.
verður opinn fræðslufundur á
vegum Norræna jafnlaunaverk-
efnisins og Jafnréttisnefndar
Akureyrar í Alþýðuhúsinu á
Akureyri. Þar mun Hildur
Jónsdóttir, verkefnisstjóri,
halda erindi undir yfirskriftinni
„Þetta er víst hægt stelpur!“
Fundurinn er sá fyrsti í funda-
röð Norræna jafnlaunaverk-
efnisins um allt land.
í erindinu fjallar Hildur um
launamun kynja og leiðir til að
draga úr honum. Komið verður
inn á hvernig konur geta nýtt sér
jafnréttislögin betur en hingað til
t.d. með því að leita úrskurðar
nýrrar kærunefndar jafnréttis-
mála, en einnig hvaða öðrum
aðferðum er hægt að beita til að
tryggja að konur og karlar fái
jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf
eins og kveðið er á um í lögun-
um. í því sambandi fjallar hún
um reynsluna erlendis af því að
beita kynhlutlausu starfsmati í
þessum tilgangi.
Að erindinu loknu verða
almennar umræður.
Fundurinn hefst kl. 20.30 og er
öllum opinn. Konur á Akureyri
og Eyjafjarðarsvæðinu eru sér-
staklega hvattar til að mæta.
(Fréttatilkynning)
Nú fá þínar
listauppskriftir að
njóta sín.
Matargerð er list
og unairstaðan er
úrvals hráefni.
Síðasti skiladagur í
samkeppninni er 1. maí.
Uppskriftum skal skila
í merkta kassa
í Kjörbúðum KEA
FRÖDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Pantanasími:
91 -81 23 00